Morgunblaðið - 25.08.2001, Síða 44
MESSUR
44 LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÁSKIRKJA: Bent á guðsþjónustur í
nágrannakirkjum vegna sumarleyfa
starfsliðs Áskirkju.
BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11:00. Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11:00. Sr.
Jakob Ág. Hjálmarsson prédikar og
þjónar fyrir altari. Sönghópur úr Dóm-
kórnum syngur. Organisti Marteinn
H. Friðriksson.
GRENSÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11:00. Kirkjukór Grensáskirkju syng-
ur. Organisti Árni Arinbjarnarson.
Vænst þátttöku tilvonandi fermingar-
unglinga og fjölskyldna þeirra. Kynn-
ingarfundur um fermingarstarfið að
guðsþjónustu lokinni. Ólafur Jó-
hannsson.
GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili:
Guðsþjónusta kl. 10:15. Organisti
Kjartan Ólafsson. Sr. Kjartan Örn Sig-
urbjörnsson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl.
11:00. Félagar úr Mótettukór syngja.
Organisti Hörður Áskelsson. Sr. Jón
Dalbú Hróbjartsson.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11:00.
Fermingarbörn ársins 2002 mæti til
skráningar. Organisti Douglas A.
Brotchie. Sr. Helga Soffía Konráðs-
dóttir.
LANDSPÍTALINN Hringbraut: Guðs-
þjónusta kl. 10:30. Sr. Ingileif Malm-
berg.
LANDSPÍTALI Háskólasjúkrahús
Fossvogi: Guðsþjónusta kl. 10:00.
Organisti Helgi Bragason. Sr. Sigfinn-
ur Þorleifsson.
LANDSPÍTALI háskólasjúkrahús
Landakot: Guðsþjónusta kl. 11:30.
Organisti Helgi Bragason. Sr. Sigfinn-
ur Þorleifsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups. Messa kl. 11:00.
Sr. Kristján Valur Ingólfsson messar.
Hrafnhildur Ólafsdóttir syngur ein-
söng. Organisti Jón Stefánsson.
Kaffisopi eftir stundina.
LAUGARNESKIRKJA: Skólamessa
kl. 17:00 í tilefni af upphafi skóla-
árs, haldin við þvottalaugarnar í
Laugardal. Skólastjóri Laugarnes-
skóla Helgi Grímsson, verður sér-
staklega boðinn velkominn til starfa
og mun hann annast ritningarlestur
við messuna. Þorvaldur Halldórsson
mun flytja létta og glaða sálma,
sunnudagaskólinn og annað barna-
starf í Laugarneskirkju verður kynnt
fyrir krökkunum og sr. Bjarni Karls-
son flytur stutta hugvekju.
NESKIRKJA: Messa kl. 11:00. Sr.
Frank M. Halldórsson prédikar. Sr.
Örn Bárður Jónsson þjónar fyrir altari
eftir prédikun. Organisti Reynir Jón-
asson. Kór Neskirkju syngur.
SELTJARNARNESKIRKJA: Orgeltón-
list kl. 11-11:30. Viera Manasek org-
anisti leikur á orgelið. Áhersla lögð á
ljósastand Seltjarnarneskirkju, sem
er mikið notaður í bænahaldi. Fólk
kemur og tendrar ljós um leið og
bæn er beðin. Þar getur þú átt stund
með Guði, tendrað ljós og fundið frið
frá öllu amstri hversdagsins undir
fallegri orgeltónlist. Verið öll hjartan-
lega velkomin.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: Guðsþjón-
usta kl. 20:30. Helgi Daníelsson fyrr-
verandi yfirlögregluþjónn prédikar.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11. Fermingarbörn
og foreldrar þeirra og fjölskyldur eru
hvött til að koma og taka þátt. Ferm-
ingarbörn munu taka virkan þátt í
helgihaldinu með ritningarlestrum og
bænagjörð. Léttir söngvar og eitt-
hvað fyrir alla aldurshópa. Léttur há-
degisverður í safnaðarheimilinu í lok
guðsþjónustu. Allir hjartanlega vel-
komnir. Hjörtur Magni Jóhannsson.
ÁRBÆJARKIRKJA: Safnaðarferð.
Farið verður frá kirkjunni kl. 9 árdegis
áleiðs á Njáluslóðir. Leiðsögumaður
á leiðinni austur verður Óskar Ólafs-
son. Á Njáluslóðum verður sr. Gunn-
ar Björnsson leiðsögumaður. Guðs-
þjónusta á Hlíðarenda kl. 14.00 þar
þjóna sr. Gunnar Björnsson og sr.
Halldór Gunnarsson. Ættingjar og
velunnarar Nínu Sæmundsson gefa
kirkjunni hökul. Þátttakendur taki
með sér nesti til dagsins. Guðsþjón-
usta í Árbæjarkirkju fellur niður þenn-
an dag. Prestarnir.
SAFNKIRKJAN í Árbæjarsafni: Síð-
asta reglulega messa sumarsins nk.
sunnudag kl. 14. 19. aldar messa í
sveit á 21. öld í borg. Öðruvísi upp-
lifun. Organisti Sigrún Steingríms-
dóttir. Kristinn Ágúst Friðfinnsson.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Sr. Sigurjón Árni Eyjólfsson
messar. Organisti. Sigrún Þórsteins-
dóttir.
DIGRANESKIRKJA: Kirkjan er lokuð í
ágústmánuði vegna sumarleyfa og
viðhalds á kirkjuhúsi. Afleysingaþjón-
ustu veitir sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson í
Kópavogskirkju. Bent er auk þess á
helgihald annarra kirkna í prófasts-
dæminu.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 20:00. Lilja G. Hallgríms-
dóttir, djákni þjónar. Organisti: Lenka
Mátéová. Kór Fella- og Hólakirkju
syngur. Prestarnir.
GRAFARVOGSKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11:00. Sr. Bjarni Þór Bjarna-
son prédikar og þjónar fyrir altari. Sr.
Bjarni Þór mun gegna prestsstarfi í
Grafarvogskirkju á meðan sr. Sigurð-
ur Arnarson er í námsleyfi. Organisti:
Hörður Bragason. Kór Grafarvogs-
kirkju syngur. Prestarnir.
HJALLAKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Sr. Íris Kristjánsdóttir þjónar.
Félagar úr kór kirkjunnar syngja og
leiða sálmasöng. Organisti Jón Ólaf-
ur Sigurðsson. Við minnum á bæna-
og kyrrðarstundir sem verða áfram-
haldandi á þriðjudögum kl. 18. Prest-
arnir.
KÓPAVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11:00. Altarisganga. Kór Kópa-
vogskirkju syngur og leiðir safnaðar-
söng. Organisti: Julian Hewlett. Sr.
Ægir Fr. Sigurgeirsson.
SELJAKIRKJA: Guðsþjónusta í hjúkr-
unarheimilinu Skógarbæ kl. 16.00.
Kvöldguðsþjónusta kl. 20. Altaris-
ganga. Prestur sr. Valgeir Ástráðs-
son. Organisti Gróa Hreinsdóttir.
ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN: Sam-
koma kl. 20 sunnudag. Mikil lofgjörð
og fyrirbænir. Edda M. Swan prédik-
ar. Allir velkomnir.
VEGURINN Smiðjuvegi: Bænastund
kl. 20, beðið fyrir vetrarstarfinu.
Mánudag, fjölskyldubænastund
kl.18:30 og samfélag á eftir, allir
komi með sér e-h á hlaðborð.
KLETTURINN: Almenn samkoma kl.
20 fyrir alla fjölskylduna. Mikil lof-
gjörð og tilbeiðsla. Athugið breyttan
samkomutíma.
KFUM & K, Holtavegi: Samkoma á
Holtavegi 28 klukkan 17. Samkom-
an er tileinkuð Helga Hróbjartssyni
kristniboða sem er staddur hér á
landi í stuttu leyfi.Allir eru hjartan-
lega velkomnir.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Hjálpræðis-
samkoma sunnudag kl. 20. kafteinn
Ragnheiður Jónas Ármannsdóttir tal-
ar. Allir hjartanlega velkomnir.
FÍLADELFÍA: Almenn samkoma kl.
20. Lofgjörðarhópur Fíladelfíu leiðir
söng. Ræðumaður Vörður L. Trausta-
son, forstöðumaður. Allir hjartanlega
velkomnir.
KAÞÓLSKA KIRKJAN: 26. ágúst – 1.
september.
Reykjavík - Kristskirkja í Landakoti:
Sunnudaga: Hámessa kl. 10.30:
Messa á ensku kl. 18.00. Alla virka
daga: Messa kl. 18.00.
Reykjavík – Maríukirkja við Raufar-
sel: Sunnudaga: Messa kl. 11.00.
Laugardaga: Messa á ensku kl.
18.30. Virka daga: Messa kl. 18.30.
Riftún í Ölfusi: Sunnudaga: Messa
kl. 17.00.
Hafnarfjörður – Jósefskirkja: Sunnu-
daga: Messa kl. 10.30. Miðviku-
daga: Messa kl. 18.30.
Karmelklaustur: Sunnudaga: Messa
kl. 08.30. Virka daga: Messa kl.
8.00.
Keflavík – Barbörukapella: Skóla-
vegi 38: Sunnudaga: Messa kl.
14.00. Fimmtudaga: skriftir kl.
19.30. Bænastund kl. 20.00.
Akranes: Laugardaginn 25. ágúst:
messa kl.18.00.
Borgarnes: Laugardaginn 25. ágúst:
Messa kl.15.00.
Stykkishólmur, Austurgötu 7:
Sunnudaga: Messa kl. 10.00.
Grundarfjörður: Sunnudaginn 26.
ágúst kl. 19.00.
Ólafsvík: Sunnudaginn 26. ágúst:
Messa kl.16.00.
Ísafjörður – Jóhannesarkapella:
Sunnudaga: Messa kl. 11.00.
Bolungarvík: Sunnudaga: Messa kl.
16.00.
Suðureyri: Sunnudaga: Messa kl.
19.00.
Flateyri: Laugardaga: Messa 18.00.
Kaþólska kirkjan á Akureyri, Pét-
urskirkja, Hrafnagilsstræti 2: Laug-
ardaga: Messa kl. 18.00. Sunnu-
daga: Messa kl. 11.00.
FÆREYSKA SJÓMANNAHEIMILIÐ:
Samkoma á morgun kl. 16.
LANDAKIRKJA í Vestmannaeyjum:
Guðsþjónusta kl. 11 sunnudag. Pré-
dikunarefni: Lífsviskan sem okkur er
lögð í brjóst og syndin. Kl. 14 helgi-
stund á Hraunbúðum.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11. Félagar úr kór kirkj-
unnar leiða söng. Organisti Natalía
Chow. Prestur Gunnþór Þ. Ingason.
FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði: Kvöld-
guðsþjónusta kl. 20:00 – Prestar
kirkjunnar Sigríður Kristín Helgadótt-
ir og Einar Eyjólfsson flytja sam-
talspredikun. Kór kirkjunnar leiðir al-
mennan söng undir stjórn Þóru
Guðmundsdóttur. Samverustund í
safnaðarheimili að lokinni guðsþjón-
ustu þar sem fjallað verður um starf-
ið í kirkjunni á komandi vetri. Prestar
og starfsfólk Fríkirkjunnar Hafnarfirði
bjóða alla velkomna til góðrar sam-
verustundar.
VÍDALÍNSKIRKJA: Guðsþjónusta í
Vídalínskirkju sunnudaginn 26.
ágúst kl. 11:00. Félagar úr kór kirkj-
unnar leiða almennan safnaðar-
söng. Organisti: Jóhann Baldvins-
son. Við athöfnina þjóna Hans
Markús Hafsteinsson og Nanna Guð-
rún Zoëga djákni. Mætum vel í lok
sumars og sameinumst í lofgjörð til
Drottins. Biðjum saman fyrir látnum
bræðrum okkar og systrum og ást-
vinum þeirra. Biðjum þess að vetur-
inn megi verða okkur mildur. Prest-
arnir.
NJARÐVÍKURKIRKJA: Guðsþjónusta
sunnudag kl. 20.30. Kirkjukór Njarð-
víkur syngur undir stjórn Steinars
Guðmundssonar organista. Sóknar-
prestur.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Guðsþjónusta
á púttvellinum við Mánagötu kl. 13.
Kórstjóri Hákon Leifsson. Kór Kefla-
víkurkirkju leiðir söng. Hið árlega
kirkjumót verður haldið að guðsþjón-
ustu lokinni. Eftir mótið verður öllum
boðið í kaffiveitingar. Allir velkomnir.
Prestur sr. Sigfús Baldvin Ingvason.
Guðsþjónusta á sjúkrahúsinu kl.
13.30.
SELFOSSKIRKJA: Messa kl. 11.
Morguntíð sungin kl. 9 frá þriðjudegi
til föstudags. Kaffi og brauð að
henni lokinni. Foreldrasamvera kl.
11 á miðvikudögum. Sóknarprestur.
ODDAKIRKJA á Rangárvöllum:
Messa sunnudag kl. 10.30. Organ-
isti Guðjón Halldór Óskarsson. Sókn-
arprestur.
ÞYKKVABÆJARKIRKJA: Kvöld-
messa kl. 20. Organisti Guðjón Hall-
dór Óskarsson. Aðalsafnaðarfundur
Þykkvabæjarsóknar verður haldinn í
kirkjunni að messu lokinni. Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf. Önnur mál.
Sóknarprestur og sóknarnefnd
Þykkvabæjarsóknar.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: Presta-
vígsla verður sunnudag kl. 14. Sr.
Sigurður Sigurðarson vígir Leif Ragn-
ar Jónsson, cand. theol. til Patreks-
fjarðarprestakalls.
BRIMILSVALLAKIRKJA: Fjöl-
skylduhátíð á Brimilsvöllum kl. 15
sunnudag. Uppskeruhátíð við lok
sumars. Guðsþjónusta, leikir, fjölda-
söngur og grillveisla. Allir velkomnir.
Sóknarprestur.
ÍSAFJARÐARKIRKJA: Messa og alt-
arisganga kl. 11. Sóknarprestur.
MÖÐRUVALLAKIRKJA: Kvöldguðs-
þjónusta verður fyrir allt prestakallið
í Möðruvallakirkju sunnudag kl. 21.
Sr. Gylfi Jónsson prédikar og sókn-
arprestur þjónar fyrir altari. Messu-
kaffi hjá Pálínu og Bjarna að Möðru-
völlum III eftir guðsþjónustuna.
Sóknarprestur.
ÞINGVALLAPRESTAKALL: Messað
verður í Þingvallakirkju sunnudag kl.
14. Organisti Guðmundur Vilhjálms-
son. Prestur sr. Þórey Guðmunds-
dóttir. Þetta verður seinasta guðs-
þjónustan á Þingvöllum í sumar-
skrúða áður en haustþjónustan
tekur við.
Guðspjall dagsins: Far-
ísei og tollheimtumaður.
(Lúk. 18).
Morgunblaðið/SverrirFríkirkjan við Tjörnina.
FRÉTTIR
ÖLL sýningarpláss á sýningunni
Heimilið í Laugardalshöllinni eru nú
uppseld og sýningaraðstaða á Is-
landica 2001 er einnig langt komin
með að fyllast. Sýningarnar verða í
Laugardalshöllinni, Skautahöllinni
og Fjölskyldu- og húsdýragarðinum,
auk þess að ná yfir stórt útisvæði við
Laugardalshöllina. Búist er við 40–
60 þúsund gestum.
Sýningin Islandica 2001 hefur
undirtitilinn ævintýrið um íslenska
hestinn og er henni ætlað að kynna
vörur og þjónustu sem tengjast ís-
lenska hestinum og efla þá fjöl-
breyttu atvinnustarfsemi sem teng-
ist honum, í ferðaþjónustu, verslun,
iðnaði og landbúnaði.
Heimilissýningin er nú endurvak-
in í breyttri mynd en forverar henn-
ar – heimilissýningarnar á áttunda
og níunda áratugnum – þóttu marg-
ar hverjar hinar glæsilegustu og
voru jafnan fjölsóttar.
Sýningarpláss
á Heimilið
2001 uppselt
ÞJÓÐRÆKNISFÉLAG Íslendinga
stendur fyrir námskeiði um landnám
Íslendinga í Vesturheimi á vestur-
faratímabilinu. Fjallað verður um til-
raunir Íslendinga til landnáms víðs-
vegar um Bandaríkin og Kanada, en
einnig verða aðrir þættir þessa tíma-
bils skoðaðir.
Reynt verður að útskýra hvers
vegna þessir staðir urðu fyrir valinu
og hvernig tókst til hverju sinni. Um-
sjónarmaður námskeiðsins er Jónas
Þór, sagnfræðingur. Námskeiðið
verður haldið í Gerðubergi á þriðju-
dagskvöldum kl. 20-22 og hefst 4.
september nk. en lýkur 23. október.
Skráning á námskeiðið verður í
Gerðubergi 30. ágúst kl. 17 og 20 og 2.
september kl. 14-17. Þátttökugjald er
kr. 10.000 og greiðist við skráningu.
Námskeið um
vesturfara
HINN 21. ágúst s.l. á milli kl. 14.55 til
15.20 var ekið á bifreiðina XM-455,
sem er Nissan rauð fólksbifreið, þar
sem hún stóð kyrr og mannlaust í
stæði við Hverfisgötu 29.
Sá sem það gerði fór hins vegar af
vettvangi án þess að tilkynna það til
lögreglu eða hlutaðeiganda. Því er
hann eða aðrir sem geta gefið frekari
upplýsingar beðnir að snúa sér til
lögreglunnar í Reykjavík.
Vitni vantar
að ákeyrslu
FÖSTUDAGINN 31. ágúst og
mánudaginn 3. september verður
sendiráð Bandaríkjanna lokað. Af
því tilefni viljum við benda á að ekki
verður tekið á móti umsóknum fyrir
vegabréf eða vegabréfsáritanir
þessa daga. Í neyðartilvikum er þó
hægt að ná í embættismann sendi-
ráðsins í síma 693-9207.
Sendiráð Banda-
ríkjanna lokað
SAMVIL ehf. býður upp á símennt-
unarnámskeið á Netinu. Eftirfarandi
námskeið eru í boði á haustmisseri
2001:
„Námskeið í vefsíðugerð (Front-
Page/Netscape Composer). Nám-
skeið í glærugerðarforritinu Power-
Point. Námskeið í Word og Excel
fyrir lengra komna. Kennslan fer ein-
göngu fram á Netinu í lokuðu náms-
umhverfi. Hvert námskeið stendur
yfir í þrjár vikur. Umsjónarmenn og
kennarar eru vanir fjarkennslu.
Skráning á námskeiðin er á Netinu
á vefslóð http://frontpage.simnet.is/
samvil/fjarnam/namskeidkenn.htm,“
segir í fréttatilkynningu.
Símenntun
á Netinu
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦