Morgunblaðið - 04.09.2001, Blaðsíða 1
BRESKUR hermaður í liði Atlants-
hafsbandalagsins í Makedóníu sést á
myndinni skoða Kalashnikov AK47-
riffil úr vopnasafni því sem albansk-
ir skæruliðar í landinu hafa látið af
hendi.
Makedónska þingið hóf aftur um-
ræður um stjórnarskrárbreytingar í
tengslum við friðarsamninga í gær.
Umræðunum hafði verið frestað á
laugardag og óttuðust þá margir um
framhald friðarferlisins. Breyting-
arnar miða að því að auka réttindi
albanska minnihlutans í landinu, en
harðlínumenn úr röðum Makedóna
eru því andvígir og voru margir
þeirra fjarverandi úr þingsölum í
gær. Talsmaður NATO fagnaði því
að umræðurnar væru hafnar á ný og
kvað það glæða vonir um að her-
menn bandalagsins gætu lokið
vopnasöfnuninni á tilsettum tíma.
AP
Vopnin
kvödd
Skopje. AFP, AP.
200. TBL. 89. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 4. SEPTEMBER 2001
ákvörðunina með trega en hann hefði
komist að þeirri niðurstöðu að fund-
urinn gæti ekki orðið gagnlegur í
baráttunni gegn kynþáttafordómum.
„Ég veit að ekki er hægt að berj-
ast gegn kynþáttahatri með ráð-
stefnu sem samþykkir ályktanir þar
sem notað er hatursfullt orðalag er í
sumum tilfellum er afturhvarf til
þeirra tíma er síonismi var sagður
vera kynþáttahatur, ýtir undir þá
hugmynd að of mikið hafi verið gert
úr Helförinni, gefur til kynna að að-
skilnaðarstefna sé við lýði í Ísrael
eða gerir eina þjóð, Ísraela, að blóra-
böggli og skotmarki,“ sagði Powell.
Ráðstefnan er haldin í Durban í
Suður-Afríku og var markmiðið að
efla baráttu gegn kynþáttamisrétti
og nýlendustefnu. Shimon Peres, ut-
anríkisráðherra Ísraels, sagðist
skömmu síðar hafa kallað sendinefnd
COLIN Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, gaf í gær fulltrúum
landsins á alþjóðaráðstefnu Samein-
uðu þjóðanna í Suður-Afríku um
kynþáttamisrétti skipun um að
ganga af fundi til að mótmæla árás-
um arabaþjóða á stefnu Ísraela.
Skömmu síðar sögðust Ísraelar einn-
ig myndu hverfa á brott og gert var
ráð fyrir að Kanadamenn gerðu slíkt
hið sama. Í drögum að lokayfirlýs-
ingu ráðstefnunnar og ýmsum
plöggum sem dreift hefur verið er
síonisma, þeirri stefnu gyðinga að
þeir eigi rétt á þjóðarheimili í Ísrael,
jafnað við kynþáttafordóma, ras-
isma. Eru Ísraelar sakaðir um svo-
nefnda þjóðarhreinsun og þjóðar-
morð.
Ráðstefnunni á að ljúka á föstu-
dag. Powell utanríkisráðherra sagð-
ist í yfirlýsingu sinni hafa tekið
Ísraela heim frá Durban og harmaði
að „furðulegar uppákomur“ hefðu
einkennt ráðstefnuna. Hefðu Ísrael-
ar verið sakaðir um nýlendustefnu
og arabaríkin hefðu haft samráð á
ráðstefnunni um að varpa allri
ábyrgðinni á deilunum við Palestínu-
menn á Ísraela. Nokkru áður hafði
Peres sagt í viðtali að Ísraelar
myndu ekki hafa frumkvæði að því
að ganga af fundi vegna þess að ef
þeir gerðu það og Bandaríkjamenn
fylgdu þeim yrðu hinir síðarnefndu
sakaðir um að láta Ísraela stjórna
gerðum sínum.
„Allt Arababandalagið hefur
ákveðið að vera á móti friði,“ sagði
Peres reiðilega. Hann fékk friðar-
verðlaun Nóbels árið 1994 ásamt
Yitzhak Rabin forsætisráðherra, er
var myrtur ári síðar, og Yasser Ara-
fat, leiðtoga Palestínumanna, fyrir
þátt sinn í friðarsamkomulaginu sem
kennt er við Ósló.
Reynt fram á síðustu
stundu að sætta deiluaðila
Norðmenn reyndu fram á síðustu
stundu að fá deiluaðila til að sættast
á málamiðlun. Amr Moussa, fram-
kvæmdastjóri Arababandalagsins og
fyrrverandi utanríkisráðherra
Egyptalands, sagði áður en skýrt var
frá ákvörðun Powells að ljóst væri að
Palestínumönnum væri mismunað
og yrðu Ísraelar að sætta sig við að
stefna þeirra væri gagnrýnd.
Moussa sagði hins vegar brýnt að
Bandaríkjamenn tækju þátt í ráð-
stefnunni og tryggðu að samin yrði
lokayfirlýsing þar sem gætt yrði
jafnvægis.
Fundur SÞ um kynþáttamisrétti í upplausn vegna deilna um Ísrael
Bandaríkjamenn ganga
af fundi í Durban
Durban, Washington, Jerúsalem. AFP, AP.
Arabaþjóðir saka/26
KAÞÓLSKIR foreldrar fylgja
skelkuðum börnum sínum í skólann
framhjá röð norður-írskra lög-
reglumanna á Ardoyne-götu í Bel-
fast í gær.
Um 200 sambandssinnar reyndu
að koma í veg fyrir að börnin kæm-
ust í Holy Cross-skólann fyrsta
skóladaginn eftir sumarleyfi, að
sögn til að mótmæla svívirðingum
og ógnunum sem þeir hafi mátt
þola af hálfu kaþólskra. Lögregla
og hermenn héldu opinni leið fyrir
börnin, en eftir að þau voru komin í
skólann kom til ryskinga milli sam-
bandssinna og lögreglumanna.
Einnig kom til óeirða í Belfast í
gærkvöld.
Reuters
Fyrsti skóla-
dagurinn
FLÓTTAMENNIRNIR, sem höfð-
ust við í heila viku um borð í norska
gámaflutningaskipinu Tampa fyrir
ströndum Jólaeyju, voru í gær ferj-
aðir yfir á ástralskt herskip sem flyt-
ur þá til Papúa Nýju-Gíneu.
Áætlað er að förin til Papúa Nýju-
Gíneu taki um viku, en aðstæður fyr-
ir flóttafólkið eru mun betri um borð í
ástralska herskipinu, HMAS Man-
oora, en á Tampa. Eftir komuna til
Port Moresby verða flóttamennirnir,
sem eru að minnsta kosti 430 talsins,
fluttir flugleiðis til Nýja-Sjálands og
Kyrrahafseyjarinnar Nauru. Þar
verða umsóknir þeirra um hæli af-
greiddar, en hluti fólksins mun fá
landvistarleyfi í öðrum ríkjum.
Ástralskur dómstóll á reyndar eft-
ir að kveða upp endanlegan úrskurð í
máli mannréttindasamtaka, sem
kröfðust þess að flóttafólkið fengi að
koma á land á Jólaeyju. Úrskurðar-
ins er að vænta í vikunni, en ef dóm-
stóllinn kemst að þeirri niðurstöðu að
Áströlum hafi borið skylda til að taka
við flóttafólkinu verður HMAS Man-
oora snúið við.
Flóttamennirnir eru flestir frá
Afganistan, en áhöfn Tampa bjargaði
þeim af sökkvandi indónesískri ferju
fyrir tíu dögum. Fjórir skipverjar
indónesísku ferjunnar voru hnepptir
í gæsluvarðhald á Jólaeyju í gær og
verða væntanlega ákærðir fyrir brot
á áströlskum innflytjendalögum.
Flóttamenn á
leið til Papúa
Nýju-Gíneu
Jólaeyju. AFP, AP.
ÞEGAR ítalski skartgripasalinn
Bulgari fór þess á leit við bresku
skáldkonuna Fay Weldon að hún
skrifaði skáldsögu um fyrirtækið
neitaði hún þegar í stað. En Weld-
on, sem er þekkt fyrir að taka
óvenjulega áhættu, fékk bak-
þanka, að því er umboðsmaður
hennar, Giles Gordon, greindi frá.
Útkoman varð skáldsagan
Bulgari-tengslin (The Bulgari
Connection), sem gefin verður út í
Bandaríkjunum í næsta mánuði.
Gegn því að fá greidda tiltekna
upphæð, sem ekki hefur verið gert
uppskátt um, nefndi Weldon Bulg-
ari-skartgripaverslunina í London
tólf sinnum á nafn í bókinni.
Heimildamenn í útgáfubrans-
anum telja sumir að þetta sé í
fyrsta sinn sem skáldsaga er pönt-
uð í þeim tilgangi að auglýsa til-
tekna vöru. Weldon sjálf vildi í
gær ekki ræða um bókina, en um-
boðsmaður hennar sagði þetta
vera „einhverja bestu skáldsögu
hennar“. Það rýri bókina ekki að
minnst sé á Bulgari tólf sinnum í
henni.
Meðal þekktustu skáldsagna
Weldons eru Praxís og Ævi og
ástir kvendjöfuls, sem báðar hafa
verið þýddar á íslensku. Weldon
hóf ritferil sinn sem auglýsinga-
textahöfundur. Hún sagði einu
sinni frá því að auglýsingar hefðu
verið „það eina sem ég gat gert til
að hafa til hnífs og skeiðar“.
Bulgari kostar bók
London. AP.