Morgunblaðið - 04.09.2001, Blaðsíða 21
VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 2001 21
NÍUNDA ársþing Samtaka sveit-
arfélaga í Norðurlandskjördæmi
vestra (SSNV) skorar á Alþingi og
ríkisstjórn Íslands að standa fast
gegn álagningu auðlindagjalds á
sjávarútveg, hvort sem um er að
ræða fyrningarleið eða sérstaka
gjaldtöku.
Þingið telur að sjávarútvegsfyr-
irtæki muni ekki þola slíka skatt-
lagningu og neikvæð margfeldis-
áhrif hennar myndu óhjákvæmi-
lega leiða til aukinna erfiðleika í
byggðaþróun.
Þrír milljarðar beint út úr
rekstri fyrirtækjanna?
Í greinargerð með tillögunni
segir svo:
„Niðurstaða svonefndrar auð-
lindanefndar var að leggja bæri
auðlindagjald á sjávarútveg á Ís-
landi. Nefndin gerði ekki tillögu
um fjárhæð gjaldsins en af um-
ræðum um málið má ætla að auð-
lindagjald muni ekki nema lægri
fjárhæð en þremur milljörðum
króna sem teknir yrðu beint út úr
rekstri útgerðarfyrirtækja.
Áætla má að um 90% aflaheim-
ilda séu á útgerðarfyrirtækjum á
landsbyggðinni og því komi gjald-
ið nánast beint fram sem lands-
byggðarskattur.
Sjávarútvegsfyrirtæki hafa á
undanförnum vikum birt milliupp-
gjör fyrir fyrstu 6 mánuði þessa
árs og þar hefur komið skýrt fram
að burðir sjávarútvegs til að axla
auknar álögur er ekki til staðar.
Vegna gengisþróunar hafa skuldir
þeirra aukist og tap verið á rekstr-
inum. Verði álagning auðlinda-
gjalds að veruleika er því fyrir-
liggjandi að þau eiga ekki annan
kost en að leita allra leiða til að
lækka tekjur sjómanna og draga
saman allan þann rekstur sem
ekki skilar nægjanlegri arðsemi.
Enn aukin sameining sjávarút-
vegsfyrirtækja mun væntanlega
verða afleiðing auðlindagjaldsins
og samþjöppun aflaheimilda á
færri einingar í samræmi við það.
Þá er minnt á að íslenskur sjávar-
útvegur er í alþjóðlegri samkeppni
um sölu á afurðum og auknar álög-
ur munu óhjákvæmilega koma
niður á samkeppnisstöðu þeirra.“
Flutningsmenn tillögunnar
voru Magnús B. Jónsson og Adolf
H. Berndsen.
Tillagan var samþykkt mótat-
kvæðalaust
Ályktun frá Samtökum sveitar-
félaga á Norðurlandi vestra
Skora á Alþingi
að hafna
auðlindagjaldi
Í GREIN í The Financial Times
kemur fram að afkastageta í frakt-
flutningum fer nú vaxandi á sama
tíma og eftirspurnin hefur heldur
dvínað. Þetta hefur meðal annars
orðið til þess að fraktverð á mörgum
helstu siglingaleiðum hefur haldið
áfram að lækka á öðrum fjórðungi
ársins. Ástæðan er fyrst og fremst
tilkoma nýrra risafraktflutninga-
skipa, einkum á siglingaleiðunum
milli Evrópu og Asíu og Asíu og
Bandaríkjanna. Þannig hefur verðið
frá Evrópu til Asíu lækkað um 8% og
um 6% frá Asíu til Evrópu. Verðið í
fraktinni frá Asíu til Bandaríkjanna
lækkaði um 6% en raunar aðeins um
1% hina leiðina. Sérfræðingar telja
að þessi þróun muni halda áfram,
þ.e. að framboðið í flutningum verði
mun meira en eftirspurnin.
Verð í flutningum um Atlantshaf
hefur haldist mun stöðugra, einkum
vegna þess að hin nýju risaskip eru
einatt of stór fyrir evrópskar hafnir
eða flutningsgeta þeirra of mikil fyr-
ir einstök markaðssvæði, segir The
Financial Times.
Kemur sér vel fyrir
Íslendinga
Þorkell Sigurlaugsson, fram-
kvæmdastjóri Þróunarsviðs Eim-
skips, segir að það hafi orðið lækkun
á flutningsgjöldum á síðustu árum
og áratugum, bæði hér á landi og
erlendis vegna stækkunar skipa og
þar með aukinnar hagkvæmni í
rekstri. „Það kemur sér vel, bæði
fyrir okkur Íslendinga sem aðra, að
flutningskostnaður á meginleiðum
lækki. Stór hluti af flutningskostnaði
er vegna framhaldsflutninga með
skipum annarra fyrirtækja, til dæm-
is þeirra sem sigla milli Asíu og Evr-
ópu. Ekki er þó hægt að gera ráð fyr-
ir að stækkun skipa í siglingum á
alþjóðaleiðum verði þess valdandi að
uppstokkun verði í siglingum til og
frá Íslandi. Þessi risastóru skip
munu ekki geta haft viðkomu nema í
örfáum höfnum erlendis vegna
skorts á hafnaraðstöðu og tækjabún-
aði.“
Aðspurður segir Þorkell að Eim-
skip hafi nýlega tekið í notkun stærri
og hagkvæmari skip sem muni til
næstu ára styrkja stöðu félagsins í
alþjóðlegri samkeppni. „Með aukinni
hagkvæmni í alþjóðasiglingum á
meginleiðum mun heildarhag-
kvæmnin aukast enn frekar fyrir Ís-
lendinga og draga úr þeirri hindrun
sem fjarlægð landsins frá öðrum
þjóðum hefur haft á samkeppnis-
stöðu þjóðarinnar.“
Morgunblaðið/Ásdís
Þorkell Sigurlaugsson, framkvæmdastjóri Þróunarsviðs Eimskips, segir að það komi Íslendingum vel að flutnings-
kostnaður á meginleiðum lækki en fraktverð á mörgum helstu siglingaleiðum heims hefur farið lækkandi á árinu.
Umframafkastageta
í fraktflutningum