Morgunblaðið - 04.09.2001, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 04.09.2001, Blaðsíða 47
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 2001 47 ÝMISLEGT Veitingaraðilar — tækifæri Óskum eftir að komast í samband við veitinga- menn eða rekstraraðila sem kynnu að hafa áhuga á að reka veitingasal í Reiðhöllinni Víðidal. Áhugasamir leggi inn nöfn og síma- númer inn á auglýsingadeild MBL. merkt „Reiðhöll“ fyrir 10. september. minnir á verkefnisumsóknir fyrir árið 2002 Nordtest styrkir samnorræn verkefni á sviði tæknilegra mælinga og prófana. Sjá allar upplýsingar og eyðublöð á vefsíðu Nordtest: www.nordtest.org . Frestur til umsókna fyrir árið 2002 rennur út þann 15. september 2001. FÉLAGSSTARF Félagsfundur sjálfstæðismanna í Nes- og Melahverfi verður haldinn mánudaginn 10. september kl. 17.30 í Valhöll. Gestur fundarins verður Júlíus Vífill Ingvarsson. Dagskrá: 1. Kjör landsfundarfulltrúa. 2. Önnur mál. Stjórnin. STYRKIR R A Ð A U G L Ý S I N G A R HÖRÐ barátta og óvænt úrslit hafa einkennt fyrstu þrjár umferð- irnar í landsliðsflokki á Skákþingi Íslands. Stigahæstu skákmennirnir hafa þurft að hafa mikið fyrir vinn- ingunum. Þannig náðu þeir þrír stigahæstu einungis tveimur jafn- teflum í annarri umferð mótsins. Þeir stigalægri eru sýnd veiði en ekki gefin, ólíkt því sem stundum hefur verið, enda mæta margir þeirra til leiks í góðri æfingu eftir að hafa aflað sér dýrmætrar reynslu á alþjóðlegum skákmótum í sumar. Engu að síður eru það stórmeist- ararnir tveir, Hannes Hlífar Stef- ánsson og Þröstur Þórhallsson, sem hafa tekið forystuna á mótinu þegar þremur umferðum af níu er lokið. Þeir Þröstur og Hannes mættust í fjórðu umferð sem tefld var í gær- kvöldi og gæti sú skák ráðið úrslit- um á mótinu. Í fyrstu umferð mótsins vakti skák þeirra Jóns Viktors og Braga Þorfinnssonar mesta athygli. Bragi hafði svart og eftir slæman afleik Jóns Viktors í 22. leik gat Bragi unnið riddara á einfaldan hátt, en báðir keppendur voru slegnir skák- blindu og skákin fór aftur í fyrri far- veg þar sem Jón Viktor hafði betri stöðu og innbyrti að lokum vinning- inn. Í þessari umferð tefldi kona í fyrsta sinn í landsliðsflokki og ekki er hægt að segja annað en byrjunin lofi góðu, en Lenka Ptacnikova gerði jafntefli við Stefán Kristjáns- son. Í annarri umferð hélt hún upp- teknum hætti og Hannes Hlífar Stefánsson mátti hafa sig allan við til að ná jafntefli gegn henni. Þetta var reyndar umferð hinna stiga- lægstu á mótinu, en þrír stigalægstu skákmennirnir fengu fleiri vinninga en þeir þrír stigahæstu. Loksins í þriðju umferð voru úrslitin nálægt því eftir bókinni, en Björn Þorfinns- son náði þó að leggja Braga bróður sinn og þar með er hann kominn í toppbaráttuna í mótinu. Staðan: 1.–2. Hannes Hlífar og Þröstur 2½ v. 3.–5. Jón Viktor, Stefán Krist- jánsson, Björn Þorfinnsson 2 v. 6.–8. Bragi Þorfinnsson, Lenka Ptacnikova, Arnar Gunnarsson 1 v. 9.–10. Jón Garðar Viðarsson, Sig- urbjörn Björnsson ½ v. Staðan í kvennaflokki er þessi: 1. Harpa Ingólfsdóttir 2 v. af 2 2. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir 1½ v. 3.–4. Elsa María Þorfinnsdóttir og Anna Björg Þorgrímsdóttir 1 v. 5. Aldís Rún Lárusdóttir ½ v. 6. Hallgerður H. Þorsteinsdóttir 0 v. Teflt er daglega í landsliðsflokki í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði. Umferðir hefjast kl. 17. Eftirfarandi skák var tefld í fyrstu umferð mótsins. Hvítt: Sigurbjörn Björnsson Svart: Hannes Hlífar Stefánsson Sikileyjarvörn 1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 a6 5. Rc3 Dc7 6. Be2 Rf6 7. 0–0 Be7 8. Be3 d6 9. f4 b5 10. a3 -- Önnur leið er 10. e5, t. . d. 10. -- dxe5 11. fxe5 Rfd7 12. Bf3 Bb7 13. Bxb7 Dxb7 14. Dg4 Rc6 15. Dxg7 0– 0–0 16. Rxc6 Dxc6 17. Dxf7 Hhg8 18. Df3 Dxf3 19. Hxf3 Rxe5 20. Hh3 Rc4 21. Re4, jafntefli (Rytsagov – Júdasín, Vilnius 1997). 10. . . Bb7 11. Bd3 -- Hvítur getur einnig leikið 11. Bf3, t. d. 11. -- Rbd7 12. De1 0–0 13. g4 Rc5 14. Bf2 g6 15. De3? e5 16. Rde2 Hfe8 17. f5 d5!, með betra tafli fyrir svart (Walsh – Georgiev, Ikaria 1997). 11. . . Rbd7 12. Kh1 -- Hvítur á um ýmsar aðrar leiðir að velja í stöðunni, t.d. 12. De2 Rc5 13. Bf2 Hc8 14. Bg3 0–0 15. e5 dxe5 16. fxe5 Rd5 17. Rxd5 Bxd5 18. Kh1 Db7 19. Hf4 Rxd3 20. cxd3 Hc7 21. Haf1 Dc8 22. Bh4 Bxh4 23. Hxh4 Hc1 24. Hhf4 Dc5 25. h3 Hc8 26. Kh2 Hxf1 27. Dxf1 Ba8 með stöðu, sem gefur báðum færi (Clague– Battes, New York 1998). 12. . . 0–0 13. Df3 -- Eða 13. De1 Hfe8 14. Hd1 Bf8 15. Rb3 e5 16. Dh4 exf4 17. Bxf4 Re5 18. Bxe5 Hxe5 o. s. frv. 13. . . Rc5 14. Hae1 Rfd7 15. Dg3 Hfe8 16. f5!? -- Það er yfirleitt ekki talið gott fyr- ir hvít að gefa svarti eftir e5-reitinn í stöðum sem þessari. Til greina kemur að leika 16. Rde2, ásamt Be3-d4 síðar. 16. . . Bf6 17. fxe6 fxe6 18. Rde2 Re5 19. Rf4 Dd8 20. Hd1 De7 21. Dh3 g6 22. b4? -- Hvítur missir þolinmæðina. Hann verður að bíða átekta með leik eins og 22. Rfe2, ásamt 23. Bd4, þótt staða hans sé óvirk og vandtefld í því tilviki. 22. . . Rexd3 23. cxd3 Bxc3 24. bxc5 dxc5 25. Hc1 Bd4 26. Bxd4 cxd4 27. Rxe6!? -- 27. . . Bc8 Ekki verður annað séð en svartur megi drepa riddarann, t.d. 27. . . Dxe6 28. Dxe6+ Hxe6 29. Hc7 Hb8 30. Hff7 Hc8! 31. Hg7+ Kf8 32. Hcf7+ Ke8 33. h4 Hc1+ 34. Kh2 Bc6 o.s.frv. Keppendur hafa trúlega verið komnir í tímahrak og Hannes sér, að leikurinn í skákinni gefur honum mjög gott tafl. 28. Hc7 Dxc7 29. Rxc7 Bxh3 30. Rxe8 Hxe8 31. gxh3 Hf8 32. Hc1 -- Hvítur má ekki fara í hrókakaup: 32. Hxf8+ Kxf8 33. Kg2 a5 34. Kf3 a4 35. Ke2 b4 36. Kd2 36. . . b3 37. h4 (37. Kd1 Kf7 38. Kd2 Ke6 39. Kd1 Ke5 40. Kd2 Kf4 41. Kd1 Ke3 42. e5 Kxd3 43. Kc1 Kc3 44. e6 d3 44. e7 b2+ 40. Kb1 d2 41. e8D d1D+ 42. Ka2 Da1+ mát) 37. . . Kg7 38. Kc1 Kh6 39. Kb2 Kh5 40. e5 (40. Kc1 Kxh4 41. Kb2 Kh5 42. Kc1 g5 43. Kb2 Kg6 44. Kb1 h5) 40. . . Kh6 41. e6 Kg7 42. e7 Kf7 og svart- ur vinnur, með frípeð á báðum vængjum. 32. . . Hf3 33. Hc6 -- Hvítur veitir meira viðnám með 33. Hc8+, en svartur ætti einnig að vinna í því tilviki, t. . d. 33. -- Kf7 34. Ha8 Hxh3 35. Hxa6 Hxd3 36. Kg2 He3 37. Ha5 Hb3 38. h4 Kf6! 39. Kf2 Ke5 40. a4 Kxe4 41. Hxb5 Hf3+ 42. Ke1 Hh3 43. Hb6 Hxh4 44. Hxg6 Hh1+ 45. Kd2 Hh2+ 46. Kd1 Ha2 o.s.frv. 33. . . a5 34. Hc5 Hxd3 35. Hxb5 Hxa3 36. Kg2 a4 37. Hd5 -- Eða 37. Hb4 d3 38. Hd4 Ha2+ 39. Kf3 d2 40. Ke2 a3 41. Ha4 Kf7 42. Ha6 g5 43. e5 Ke7 44. Kd1 h6 45. Ke2 h5 46. Kd1 Ha1+ 47. Kxd2 a2 48. Kc3 Hc1+ 49. Kb2 a1D+ 50. Hxa1 Hxa1 51. Kxa1 Ke6 52. Kb2 Kxe5 53. Kc3 Ke4 54. Kd2 Kf3 55. Kd3 g4 56. hxg4 hxg4 57. Kd4 Kg2 58. Ke4 Kxh2 og svartur vinnur. 37. . . Hd3 38. Ha5 a3 39. Ha7 Hd2+ 40. Kg3 a2 41. Kf4 Hf2+ 42. Ke5 d3 43. Ke6 Hc2 og hvítur gafst upp. Eftir 44. Kf6 Hc6+ 45. Ke5 d2 vekur svartur upp drottningu og vinnur létt. Hörð barátta og óvænt úrslit í landsliðsflokki SKÁK H a f n a r f j ö r ð u r SKÁKÞING ÍSLANDS 31.8.–8.9. 2001 Daði Örn Jónsson Bragi Kristjánsson Tvö gröf féllu niður Í grein Más Wolfgangs Mixa, „Í fjötrum árangurslausrar vaxta- stefnu?“ sem birtist í laugardags- blaði Morgunblaðsins, á bls. 38, féllu niður tvö gröf sem áttu að fylgja greininni. Beðist er velvirðingar á því en gröfin birtast hér með. Eins og sjá má hefur hlutfallið hægt og bítandi hækkað í Bandaríkj- unum samhliða lægra vaxtastigi. Á Íslandi hefur hlutfallið líklegast fall- ið aftur í átt að núllinu. Meðalmismunur á hagnað fyrirtækja milli landa var árin 1980–1996 rúmlega 4%. Eins og sést á grafinu hafa vextir undanfarin ár hækkað mikið á Íslandi á meðan vaxtastig í helstu viðskiptalöndum okkar hefur lækkað. Þetta hefur skert samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja. LEIÐRÉTT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.