Morgunblaðið - 04.09.2001, Blaðsíða 43
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 2001 43
LEGSTEINAR
Komið og skoðið
í sýningarsal okkar eða
fáið sendan myndalista
MOSAIK
Hamarshöfði 4, 112 Reykjavík
sími: 587 1960, fax: 587 1986
LEGSTEINAR
Hamarshöfði 4, 112 Reykjavík
sími: 587 1960, fax: 587 1986
Komið og skoðið
í sýningarsal okkar eða
fáið sendan myndalista
MOSAIK
✝ Sigríður EsterElísdóttir fædd-
ist í Hafnarfirði 31.
mars 1912. Hún lést
á Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja hinn 26.
ágúst síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Elís Ólafsson,
f. 1.9. 1888, d. 16.4.
1957, og Helga Sig-
fúsdóttir, f. 24.9.
1892, d. 11.8. 1974.
Sigríður var elst
barna þeirra hjóna,
en næst komu Ólaf-
ur, f. 8.9. 1913, d.
31.12. 1958, kona hans Gyða
Björnsdóttir, f. 4.11. 1914; Anna
Sigríður, f. 1.6. 1920, hennar
maður Guðmundur Sveinsson, f.
22.11. 1911, d. 31.12. 1966; Sig-
fús, f. 23.3. 1923, d. 8.7. 1986,
kona hans Hafdís Svavarsdóttir,
f. 8.6. 1934; Kristín, f. 12.10.
1931, hennar maður Bjarni Sig-
urður Finnsson, f. 18.1. 1928, d.
10.1. 1995.
Fjölskyldan bjó í Hafnarfirði
fyrstu árin en fluttist síðan til
Innri-Njarðvíkur þar sem Sig-
ríður vann í fiski. Þar kynntist
hún verðandi eiginmanni sínum,
en hann var af
norskum ættum.
Sigríður giftist
Nils Hagerup Jen-
sen 4.4. 1946. Nils
var fæddur 27.1.
1894, d. 12.2. 1968.
Þau eignuðust einn
son, en hann lést í
fæðingu.
Árið 1950 hófu
Sigríður og Nils
störf fyrir söfnuð
sjöunda dags að-
ventista á Hlíðar-
dalsskóla í Ölfusi,
hún sem húsmóðir
og síðar matráðskona en hann
sem umsjónarmaður húseigna.
Þar starfaði Sigríður, að fáum
árum undanskildum, allt til árs-
ins 1987. Þá fluttist hún til syst-
ursonar síns og fjölskyldu hans
og bjó hjá þeim og árið 1989
fluttist hún með þeim til Kefla-
víkur. Hjá þeim bjó hún til árs-
ins 1997 en þá fluttist hún á
Dvalarheimilið Hlévang í Kefla-
vík.
Sigríður verður jarðsungin
frá Aðventkirkjunni, Ingólfs-
stræti 19 í Reykjavík, í dag og
hefst athöfnin klukkan 15.
Í dag kveð ég kæra vinkonu og
frænku barnanna minna, hana Siggu
frænku eins og hún var alltaf kölluð
innan fjölskyldunnar. Eftir margra
mánaða erfið veikindi og sjúkrahús-
dvöl er í raun gott að fá hvíldina. Hún
var lengi búin að þrá hana.
Ég sit hér sorgmædd en þó þakk-
lát að hennar kvöl skuli vera á enda
og fyrir að hafa fengið að kynnast
Siggu. Hún kom inn í líf mitt á sama
hátt og svo margra annarra, í gegn-
um mörg ár á Hlíðardalsskóla. Þar
gaf hún okkur að borða og þvoði
þvottinn okkar svo vel og var okkur
eins og aukamamma. Heimili hennar
var mér opið og átti ég margar góðar
og ánægjulegar stundir þar.
Ennþá betur kynntist ég Siggu
þegar ég giftist seinna inn í fjöl-
skyldu hennar og fljótlega varð hún
mjög stór hluti af lífi okkar Harðar
og barnanna okkar. Þau ár sem hún
bjó hjá okkur voru ekki síður
ánægjuleg og gefandi fyrir okkur
fjölskylduna en ég veit og vona að
þau hafa verið henni. Hún reyndist
börnunum okkar mjög vel og var í
raun aukaamma fyrir þau. Þau nutu
góðs af kærleik hennar og þolin-
mæði, og dekstraði hún óspart við
þau. Hún kenndi þeim ýmislegt eins
og t.d. að spila og auðvitað tapaði
Sigga frænka alltaf. Hún hafði alltaf
tíma til að spjalla og lesa. Já, og nóg
var af efni. Sögurnar sem henni voru
svo kærar úr Biblíunni og svo auðvit-
að frá því hún var lítil stelpa í Njarð-
vík og Hafnarfirði.
Sigga var ákveðin kona en skap-
góð, þegar eitthvað bjátaði á gátum
við rætt málin og eftir á voru vanda-
málin ekki til.
En tímarnir breyttust og Sigga fór
á Vistheimilið Hlévang í Keflavík.
Þetta var erfiður tími fyrir alla og
ekki síst fyrir Siggu. En samskiptin
voru alltaf ljúf og góð, henni leið vel á
Hlévangi enda hugsað vel um hana í
alla staði.
Sigga var mjög trúuð kona, hún
var sjöunda dags aðventisti og fylgdi
sínum Guði í einu og öllu. Hún kenndi
börnunum mínum að biðja kvöld-
bænirnar og lærðu þau hin ýmsu
vers þótt þau væru ekki há í loftinu.
Ég veit að þau verða henni ævinlega
þakklát fyrir allt sem hún gerði fyrir
þau og sjálf þakka ég af öllu hjarta
fyrir að hafa kynnst Siggu minni.
Eftirfarandi vers finnst mér svo lýsa
lífi hennar svo óstjórnlega mikið:
Ég fús í fylgd með Jesú
vil feta á vegferð hér.
Ó, Guð að dauðadegi
þá dýru náð veit mér.
Það er minn æðsti heiður,
mitt eina sanna ljós,
að fá að fylgja honum
og feta við hans ljós.
(Þýð. Bjarni Eyjólfsson.)
Að lokum bið ég góðan Guð að
blessa elsku Stínu mína, Hörð, Önnu
og fjölskyldur þeirra. Ída mín, Bjarni
og Björn Ingi. Guð mun styrkja okk-
ur öll og við vitum að við munum öll
hitta Siggu okkar þegar Jesús kemur
að sækja okkur – því eins og segir í 1.
Þessaloníkubréfi 4; 16–18: „Því að
sjálfur Drottinn mun stíga niður af
himni með kalli, með höfuðengils
raust og með básúnu Guðs, og þeir,
sem dánir eru í trú á Krist, munu
fyrst upp rísa. Síðan munum vér,
sem eftir lifum, verða ásamt þeim
hrifnir burt í skýjum til fundar við
Drottin í loftinu. Og síðan munum
vér vera með Drottni alla tíma. Upp-
örvið því hver annan með þessum
orðum.“
Blessuð sé minning þín.
Ollý Smáradóttir.
Elsku Sigga. Nú ertu farin eftir að
hafa verið svo lengi veik. Við vitum
að þú elskaðir okkur og okkur þótti
svo vænt um þig. Okkur langar að
hafa þig lengur hjá okkur en við vit-
um að þú varst mjög lasin og þér leið
illa.
Takk fyrir allt sem þú gerðir fyrir
okkur, við gætum talið það upp alveg
endalaust. Allar sögurnar sem þú
sagðir okkur úr Biblíunni og frá því
þegar þú varst lítil stelpa í Hafnafirði
og Njarðvíkum. Dýrin ykkar, hund-
urinn Músti, kötturinn Lyngur og
kýrin Gjöfa. Allt voru þetta skemmti-
legar sögur að hlusta á.
Svo kenndirðu okkur að biðja til
Jesú áður en við fórum að sofa. Þá
sastu hjá okkur og hélst í hendurnar
okkar og gast róað okkur.
Ástarfaðir himinhæða
Heyr þú barna þinna kvak.
Enn í dag og alla daga
í þinn náðar faðm mig tak.
Náð þín sólin er mér eina,
orð þitt döggin himni frá,
er mig hressir, elur, nærir,
eins og foldar blómin smá.
Einn þú hefur allt í höndum,
öll þér kunn er þörfin mín,
ó, svo veit í alnægð þinni
einnig mér af ljósi þín.
Anda þinn lát æ mér stjórna,
auðsveipan gjör huga minn,
og á þinnar elsku vegum
inn mig leið í himin þinn.
(Stgr. Th.)
Takk fyrir allt, elsku Sigga.
Þínir
Jóhann Bjarni
og Björn Ingi.
Sigga frænka, eins og við kölluð-
um hana alltaf, var mjög stór þáttur í
lífi okkar, eiginlega var hún eins og
amma okkar.
Þegar við vorum lítil var takmark-
ið hjá okkur systkinunum að fara til
Siggu frænku á Hlíðardalsskóla og
vera hjá henni í nokkrar vikur á
sumrin en við fengum ekki að vera
hjá henni í sveitinni nema við gætum
hjálpað okkur sjálf á klósettið og
reimað skóna okkar. Hún hafði ekki
tíma til að vera á þönum á eftir okkur
með svoleiðis þarfir. Oft var fjör og
fyrirgangur í okkur en hún hló bara
og hafði gaman af. Svo kenndi hún
okkur:
Þér frjálst er að sjá hvar ég bólið mitt bjó
ef börnin mín smáu þú lætur í ró,
þú manst að þau eiga sér móður,
og ef að þau lifa þau syngja þér söng
um sumarið blíða og vorkvöldin löng,
þú gerir það vinur minn góður.
(Þorsteinn Erlingsson.)
Þetta ljóð, ásamt bæninni „Faðir
vor“, fórum við með áður en við fór-
um að sofa.
Hún las fyrir okkur biblíuvers og
hennar uppáhaldsvers var Sálmur
121:
Ég hef augu mín til fjallanna:
Hvaðan kemur mér hjálp?
Hjálp mín kemur frá Drottni,
skapara himins og jarðar.
Oft vorum við frændsystkinin
mörg hjá henni og sváfum á dýnum
út um alla íbúð. Stelpurnar inni hjá
henni en strákarnir frammi í stofu.
Hún sagði okkur sögur og var alltaf
svo góð og þolinmóð við okkur. Við
systkinin munum varla eftir neinum
jólum sem Sigga frænka og amma
hafa ekki verið með okkur á aðfanga-
dagskvöld heima hjá mömmu. Síð-
ustu jól eru þau einu sem hún var
ekki með okkur, en þá var hún á
sjúkrahúsinu. Við kveðjum þessa
elskuðu frænku okkar og þökkum
fyrir blíðu hennar og umhyggju alla
tíð.
Guð blessi minningu Siggu
frænku.
Brynja Sif og Guðmundur.
Með fáum orðum vil ég minnast
Siggu frænku minnar og þakka allt
sem hún var mér og fjölskyldu minni.
Hún var einn af föstu punktunum í
tilveru minni allt frá bernskuárunum
þegar mamma og pabbi fóru með
okkur systkinin að sumarlagi að Akri
í Innri-Njarðvík, þar sem afi og
amma bjuggu, en þar vorum við allt-
af á sumrin. Sigga frænka og Nils
maður hennar voru tíðir gestir á
heimili afa og ömmu og dvöldu þar
stundum í fríum sínum og á öllum
stórhátíðum. Ekki fór hjá því að ég
fór að elska þessa frænku mína, sem
alltaf sýndi mér og systkinum mín-
um blíðu og kærleika. Meðan hún
starfaði á Hlíðardalsskóla kom ég oft
til hennar og var hjá henni á sumrin.
Þegar börnin mín voru orðin nógu
stór, fóru þau til hennar á sumrin og
síðar sem nemendur á Hlíðar-
dalsskóla. Alltaf var Sigga nærri
með umhyggju sína, kærleiksríkt
bros og glaðlegt viðmót. Yfir öllum
minningum um Siggu frænku hvílir
einstök heiðríkja. Öllum sýndi hún
sömu hjartahlýju, bæði mönnum og
málleysingjum. Börnunum mínum
kenndi hún fallegar bænir og ljóð og
að bera virðingu fyrir náttúrunni.
Hjálpsemi hennar og fúsleiki til að
láta gott af sér leiða var engu öðru
lík. Alltaf var hún boðin og búin að
leggja öðrum lið og fyrst allra að
bjóða fram hjálp sína.
Sigga fór ung til Noregs til að
vinna og eftir að hún kom aftur heim
lagði hún mikla áherslu á það við
okkur frændsystkinin að við skyld-
um reyna að komast til útlanda til að
víkka sjóndeildarhring okkar.
Eftir að pabbi minn og Nils
eiginmaður Siggu voru látnir voru
mamma og hún saman í flestum
frístundum, dvöldu saman á
hvíldardögum, fóru saman í kirkju,
fóru saman á mót aðventsafnaðar-
ins. Einu sinni fóru þær saman á
slíkt mót í Austurríki. Það var mikil
ævintýraferð sem þær systur ræddu
oft um og sögðu okkur sögur af.
Siggu fannst þetta lítið mál af því að
hún talaði „útlensku“ eins og við
krakkarnir sögðum.
Mamma þakkar Siggu systur sinni
fyrir allar samverustundirnar fyrr og
síðar og fyrir allt sem hún var henni
og fjölskyldu hennar.
Trú Siggu frænku var traust og
rótföst í kenningum Sjöunda dags
aðventista. Hún starfaði fyrir söfn-
uðinn nær alla sína ævi og þeir eru
ófáir sem minnast hennar úr starfinu
á Hlíðardalsskóla og þakka það.
Nú er þessi kæra frænka mín sofn-
uð og bíður upprisudagsins þegar
Jesús kemur aftur.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Fyrir hönd fjölskyldunnar vil ég
þakka starfsfólki Hlévangs og
Heilsustofnunar Suðurnesja fyrir
alla umönnun og hlýju í hennar garð.
Við Reynir þökkum ógleymanleg-
ar samverustundir. Blessuð sé minn-
ing Siggu frænku minnar.
Helga Guðmundsdóttir.
Í dag kveðjum við Siggu frænku
sem horfin er á braut yfir móðuna
miklu. Þegar ég minnist Siggu
frænku koma margar minningar upp
í huga mér. Ég man eftir Siggu
frænku á Heiðarveginum í Keflavík
með manni sínum Níls sem lést 1968.
Seinna var ég hjá þeim hjónum á
Víðimelnum og á Víðivöllum þar sem
þau hjónin voru við vinnu hjá Guð-
mundi í Víði eins og hann var alltaf
kallaður.
Síðan lágu leiðir okkar saman á
Hlíðardalsskóla, þar sem Sigga
frænka og Níls unnu og ég kom
þangað sem nemandi. Margar voru
þær stundirnar sem við áttum sam-
an.
Alltaf gat ég leitað til Siggu
frænku þegar eitthvað bjátaði á og
hún hafði alltaf svör á reiðum hönd-
um.
Trúuð var hún mjög og miðlaði
hún þekkingu sinni til mín.
Þegar ég svo stofnaði fjölskyldu og
eignaðist dætur mínar Döddu Siggu
og Thelmu Björk áttu þær því láni að
fagna að fá að koma til Siggu frænku
í sumarbúðir á Hlíðardalsskóla sum-
ar eftir sumar, þó sérstaklega Dadda
Sigga. Á hún margar góðar minning-
ar frá þeim tíma, og þakkar hún
frænku sinni fyrir þær.
Það að hafa fengið að kynnast
Siggu frænku og Níls eru forréttindi
út af fyrir sig, sem gaf mér ómet-
anlega innsýn í gott líf. Margar fleiri
minningar um Siggu frænku er hægt
að rifja upp, en núna á skilnaðar-
stundu er mér efst í huga þakklæti
fyrir allt það sem hún gerði fyrir mig
og mína og er hún kvödd með sökn-
uði.
Mamma, Anna og fjölskyldur, Guð
gefi ykkur styrk í söknuðinum.
Erla Kr. Bjarnadóttir
og fjölskylda.
Lítil, gömul og gráhærð kona,
hjartahlý og ljúf með góðlegt fas og
ótæmandi þolinmæði. Sigga frænka
var ömmusystir mín og á ég margar
góðar minningar frá sumrunum sem
ég dvaldi hjá henni. Eftir að skólan-
um lauk á vorin voru dagarnir taldir
niður með eftirvæntingu því að þá
skyldi haldið austur á Hlíðardals-
skóla. Þar var oft glatt á hjalla og
vorum við stundum fimm og jafnvel
sex, sjö frændsystkinin hjá henni í
einu. Henni fannst það ekkert of mik-
ið enda alltaf svo þolinmóð og ljúf,
alltaf var hægt að bæta við börnum
því fjöldinn allur af dýnum var til og
gólfplássið nóg. Á þessum árum
fengum við frændsystkinin tækifæri
til að eyða parti af sumrinu saman í
sveitasælunni og höfðum alltaf nóg
fyrir stafni. Við fórum í dagsferðir
upp í skógrækt með nesti, tjölduðum
við lækinn, óðum í læknum og dutt-
um alloft í hann með tilheyrandi gleði
og skvettugangi, héldum kókosbollu-
partý, fylgdumst með „hástökksroll-
unni“ Jumbo sem gat stokkið yfir
gaddavírsgirðingar, tókum þátt í
heyskap niðri á búi, að ógleymdri
blóðbergstínslunni ef einhver kvef-
aðist því blóðbergste var allra meina
bót. Það var margt skemmtilegt gert
á þessum árum og ótalmargt sem
Sigga frænka kenndi okkur. Hún
hafði ofsalega gaman af tónlist og
söng og þykir mér alltaf jafnvænt um
það þegar hún hringdi heim um miðj-
an vetur og bað mig að syngja fyrir
sig í símann lítið lag sem var í miklu
uppáhaldi hjá henni. Lagið var sung-
ið með hárri raust í símann og ómaði
lagið „Gleði, gleði, gleði, gleði líf mitt
er …“ um allt húsið!
Mig langar að kveðja Siggu
frænku með ljóði sem hún kenndi
okkur frændsystkinunum:
Þér frjálst er að sjá, hve ég bólið mitt bjó,
ef börnin mín smáu þú lætur í ró;
þú manst, að þau eiga sér móður;
og ef að þau lifa, þau syngja þér söng
um sumarið blíða og vorkvöldin löng,
þú gerir það, vinur minn góður.
(Þorsteinn Erl.)
Anna María.
SIGRÍÐUR ESTER
ELÍSDÓTTIR
Fleiri minningargreinar um Sig-
ríði Ester Elísdóttur bíða birtingar
og munu birtast í blaðinu næstu
daga.