Morgunblaðið - 04.09.2001, Blaðsíða 49
ÞJÓNUSTA/FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 2001 49
Innritun á haustnámskeið er hafin og fer fram daglega virka daga kl. 14:00 til 17:00 í skólanum, Síðu-
múla 17, sími: 588-3730, fax: 588-3731, tölvupóstur: ol-gaukur@islandia.is. Á þessari önn verða í boði
þau námskeið sem talin eru upp hér að neðan, miðað við næga þáttöku. Nánari upplýsingar í innritunar-
síma á innritunartíma og einnig sendum við ítarlegan bækling um skólann til þeirra sem þess óska.
LÉTTUR
UNDIRLEIKUR
Hægt
að fá leigða
HEIMAGÍTARA
kr. 2500 á önn
Sendum
vandaðan
upplýsinga-
bækling
HEFÐBUNDINN
GÍTARLEIKUR
ÖNNUR
NÁMSKEIÐ
1. FORÞREP FULLORÐINNA
Byrjendakennsla, undirstaða, léttur
undirleikur við alþekkt lög. Geisla-
diskur með æfingum fylgir.
2. FORÞREP UNGLINGA
Byrjendakennsla, sama og Forþrep
fullorðinna. Geislad. m. æfingum fylgir.
3. LÍTIÐ FORÞREP
Spennandi, styttra, ódýrara námskeið
fyrir börn að 10 ára aldri. Geisladiskur
með æfingum fylgir.
4. FRAMHALDS-FORÞREP
Nýtt, skemmtilegt námskeið í beinu
framhaldi af Forþrepi. Geisladiskur
með æfingum fylgir.
5. PLOKK
Beint framhald Forþreps – meiri undir-
leikur með áherslu á svonefnt „plokk“.
6. ÞVERGRIP
Beint framhald Forþreps – dægurlög
undanfarinna áratuga og áhersla á
þvergrip.
7. BÍTLATÍMINN
Aðeins lög frá Bítlatímabilinu, t.d. lög
Bítlanna sjálfra, Rolling Stones, vinsæl
íslensk lög o.fl. Fyrir þá sem lokið hafa
Forþrepi/kunna fáein grip.
8. PRESLEYTÍMINN
Einkum lög sem Elvis Presley gerði
fræg um alla heimsbyggðina ásamt
alþekktum lögum íslenskra og
erlendra höfunda frá sama tíma.
Afbragðs þjálfun fyrir þá sem lokið
hafa Forþrepi/kunna fáein grip.
9. TÓMSTUNDAGÍTAR
Byrjendakennsla (sama og Forþrep
fullorðinna, en styttra) fyrir 16 ára og
eldri í samvinnu við Tómstundaskólann.
10. FYRSTA ÞREP
Undirstöðuatriði nótnalesturs fyrir
byrjendur lærð með því að leika
léttar laglínur á gítarinn o.m.fl.
Forstig tónfræði. Próf.
11. ANNAÐ ÞREP
Framhald Fyrsta þreps, leikin þekkt
smálög eftir nótum, framhald tón-
fræði- og tónheyrnarkennslu. Próf.
12. ÞRIÐJA ÞREP
Beint framhald Annars þreps. Verk-
efnin þyngjast smátt og smátt.
Framhald tónfræði- og tónheyrnar-
kennslu. Próf.
13. FJÓRÐA ÞREP
Beint framhald Þriðja þreps. Bæði
smálög og hefðbundið gítarkennslu-
efni eftir þekkt tónskáld. Tónfræði,
tónheyrn, tekur tvær annir. Próf.
14. FIMMTA ÞREP
Beint framhald Fjórða þreps. Leikið
námsefni verður fjölbreyttara.
Tónfræði, tónheyrn. Tekur tvær
annir. Próf.
15. JAZZ-POPP I
Þvergrip, hljómauppbygging,
tónstigar, hljómsveitarleikur o.m.fl.
Einhver nótnakunnátta áskilin.
16. JAZZ-POPP II/III
Spuni, tónstigar, hljómfræði,
nótnalestur, tónsmíð, útsetning.
17. TÓNSMÍÐAR I/II
Byrjunarkennsla á hagnýtum
atriðum varðandi tónsmíðar. Einhver
undirstaða nauðsynleg.
18. TÓNFRÆÐI – TÓNHEYRN I/II
Innifalin í námi.
19. TÓNFRÆÐI – TÓNHEYRN
FYRIR ÁHUGAFÓLK
Fyrir þá sem langar að kynna sér hið
einfalda en fullkomna kerfi nótnanna
til þess m.a. að geta sungið/leikið
eftir nótum.
20. KASSETTUNÁMSKEIÐ
Námskeið fyrir byrjendur á tveim
kassettum og bók, tilvalið fyrir þá
sem vegna búsetu eða af öðrum
ástæðum geta ekki sótt tíma í
skólanum en langar að kynnast
gítarnum. Sent í póstkröfu.
INNRITUN DAGLEGA KL. 14-17
588-3730
veru franskra sjómanna á Íslandi. Opið daglega í
sumar kl. 10.30-17. Sími 475 1525 og 864 2728. Net-
fang: alberte@islandia.is
FRÆÐASETRIÐ Í SANDGERÐI, Garðvegi 1, Sand-
gerði, s. 423 7551, bréfs. 423 7809. Opið alla daga kl.
13–17 og eftir samkomulagi.
GAMLA PAKKHÚSIÐ í Ólafsvík er opið alla daga í
sumar frá kl. 9–19.
GOETHE-ZENTRUM: Laugavegur 18, 3. hæð, Reykja-
vík. Opið þri. og mið. kl. 15–19, fim., fös. og lau. kl.
15–18. S. 551 6061. Fax: 552 7570. Sumarleyfi er frá
11. júní til 13. ágúst.
HAFNARBORG, menningar og listastofnun Hafnar-
fjarðar opin alla daga nema þri. frá kl. 11–17.
LANDSBÓKASAFN ÍSLANDS _ HÁSKÓLABÓKA-
SAFN: Frá 21.5. til 19.8. er opið sem hér segir: mán.–
fös. kl. 9–17, lau. 10–14. Sun. lokað. Þjóðdeild og
handritadeild lokaðar á laugard. S: 525 5600, bréfs:
525 5615.
LISTASAFN ÁRNESINGA, Tryggvagötu 23, Selfossi:
Opið eftir samkomulagi. S. 482 2703.
LISTASAFN EINARS JÓNSSONAR: Opið alla daga
nema mánudaga, kl. 14-17. Inngangur frá Eiríksgötu
og Freyjugötu. Höggmyndagarðurinn við Freyjugötu
er alltaf opinn.
LISTASAFN ÍSLANDS, Fríkirkjuvegi. Sýningarsalir,
kaffistofa og safnbúð: Opið daglega kl. 11–17, lokað
mán. Skrifstofa safnsins og upplýsingar um leiðsögn:
Opið alla virka daga kl. 8–16. Bókasafn: Opið þri.–fös.
kl. 13–16. Aðgangur er ókeypis á mið. Uppl. um dag-
skrá á internetinu: http//www.natgall.is
LISTASAFN REYKJAVÍKUR
THE REYKJAVÍK ART MUSEUM
Lisatsafn Reykjavíkur – Kjarvalsstaðir Flókagötu –
105 ReykjavíkSími/Tel: (354) 552 6131 Fax: (354) 562
6191 Netfang/E-mail: listasafn@reykjavik.is mailto:l-
istasafn@reykjavik.is www.reykjavik.is/listasafn Opið
fimmtudaga–þriðjudaga 10–17 miðvikudaga 10–19
Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhúsið Tryggvagötu 17 –
101 Reykjavík Sími/Tel: 511 5155 Fax: 562 6191 Net-
fang/E-mail: listasafn@reykjavik.is mailto:listasafn-
@reykjavik.is www.reykjavik.is/listasafn Opið föstu-
daga–miðvikudaga 11–18 Fimmtudaga 11–19
Listasafn Reykjavíkur – Ásmundarsafn Sigtúni – 105
Reykjavík Sími553 2155 Fax: 562 6191 Netfang: lista-
safn@reykjavik.is www.reykjavik.is/listasafn Opið
maí–september kl. 10–16 alla daga október–apríl kl.
13–16 alla daga
LISTASAFN KÓPAVOGS – GERÐARSAFN: Opið dag-
lega kl. 12–17 nema mán.
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR: Safnið er
opið alla daga nema mánudag kl. 14-17. Upplýsingar í
s. 553 2906.
LISTASALUR Korpúlfsstöðum við Thorsveg er opinn
alla mið. kl. 12-18.
LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR: Grófarhús,
Tryggvagata 15, Reykjavík. Sími 563 1790. Fax:
563 1799. reykjavik.is/ljosmyndasafn - Opið mán-
._föst. kl. 10-16.
LYFJAFRÆÐISAFNIÐ: Neströð, Seltjarnarnesi. Safn-
ið er opið á sun., þri., fim og laug. kl. 13-17.
MENNINGAMIÐSTÖÐIN GERÐUBERG: Sýningatími í
sumar er kl. 12-19 virka daga. Lokað um helgar. Sími
575-7700.
MINJASAFN AKUREYRAR, Minjasafnið á Akureyri,
Aðalstræti 58, Akureyri. S. 462 4162. Opið alla daga
frá 1. júní til 15. sept. kl. 11-17.
MINJASAFN AUSTURLANDS, Safnahúsinu Laufskóg-
um 1, Egilsstöðum er opið alla daga nema mán. kl.
11–17 til 1. september. Alla sun. frá kl. 14–17 má
reyna sig við gamalt handbragð í tóvinnu undir leið-
sögn eldri borgara. Safnbúð með minjagripum og
handverksmunum. Kaffi, kandís og kleinur. S.
471 1412, netfang minaust@eldhorn.is.
MINJASAFN ORKUVEITU Reykjavíkur v/rafstöðina v/
Elliðaár. Opið á sun. kl. 15–17 og eftir samkomulagi.
S. 567 9009.
MINJASAFN SLYSAVARNAFÉLAGS ÍSLANDS Þor-
steinsbúð við Gerðaveg, Garði. Opið alla daga í sumar
frá kl. 13–17. Hægt er að panta á öðrum tímum í s.
422 7253.
IÐNAÐARSAFNIÐ Á AKUREYRI, Dalsbraut 1 er opið
frá 1. júní til 31. ágúst kl. 14–18, en lokað á mán. S.
462 3550 og 897 0206.
MYNTSAFN SEÐLABANKA/ÞJÓÐMINJASAFNS,
Einholti 4, s. 569 9964. Opið virka daga kl. 9–17 og á
öðrum tíma eftir samkomulagi.
NÁTTÚRUFRÆÐISTOFA KÓPAVOGS, Digranesvegi
12. Opið mið. og lau. 13–18. S. 554 0630.
NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ, sýningarsalir Hverfisgötu
116 eru opnir sun. þri. fim. og lau. kl. 13.30–16.
NESSTOFUSAFN. Opið laugardaga , sunnudaga,
þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 13-17.
NORRÆNA HÚSIÐ. Bókasafnið opið mán.–sun. 12–17.
Sýningarsalur opinn þri.–sun. kl. 12–17, lokað mán.
Kaffistofan opin mán.–laug. kl. 8–17, sun. kl. 12–17.
Skrifstofan opin mán.–föst. kl. 9–16. Sími 551–7030,
bréfas: 552 6476. Tölvupóstur: nh@nordice.is –
heimasíða: hhtp://www.nordice.is.
PÓST- OG SÍMAMINJASAFNIÐ: Austurgötu 11, Hafn-
arfirði. Opið þri. og sun. 15–18. S. 555 4321.
RJÓMABÚIÐ á Baugsstöðum. Safnið er opið lau. og
sun. til ágústloka frá l. 13–18. S. 486 3369.
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR, Bergstaðastræti 74, s.
551 3644. Sýning á uppstillingum og landslagsmynd-
um. Stendur til marsloka. Opin lau. og sun. kl. 13.30–
16.
SJÓMINJASAFN ÍSLANDS, Vesturgötu 8, Hafnarfirði,
er opið alla daga frá kl. 13-17 fram til 30. september.
Sími sýningar 565 4242. Skrifstofa, Lyngási
7, 210 Garðabær, sími 530 2200. Netfang: sjominjasafn-
@natmus.is.
SJÓMINJA- OG SMIÐJUSAFN JÓSAFATS HINRIKS-
SONAR, Súðarvogi 4. Opið þri. – lau. frá kl. 13–17. S.
581 4677.
SJÓMINJASAFNIÐ Á EYRARBAKKA: Hópar skv.
samkl. Uppl. í s: 483 1165, 483 1443.
SNORRASTOFA, Reykholti: Sýningar alla daga kl. 10–
18. S. 435 1490.
STOFNUN ÁRNA MAGNÚSSONAR, Árnagarði v/Suð-
urgötu. Handritasýning opin:1. júní - 25. ágúst mánu-
daga - laugardaga kl. 11.00 - 16.00
STEINARÍKI ÍSLANDS, Görðum Akranesi: Opið alla
daga kl. 10–18. Opnað fyrir hópa utan þess tíma. For-
sýning á safni Landmælinga Íslands. Maríukaffi býð-
ur upp á gómsætar veitingar. Til sölu steinar, minja-
gripir og íslenskt handveerk. S. 431 5566. Vefsíða:
www.islandia.is/steinariki
SVEINSHÚS, KRÍSUVÍK: Opið fyrsta sunnudag í mán-
uði frá 3. júní til 2. sept. frá kl. 13-17. Áhugasamir
geta pantað leiðsögn fyrir hópa á öðrum tímum.
Uppl. í símum 861-0562 og 866-3456.
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS: Sýningar við Suðurgötu
lokaðar vegna endurbóta á húsnæði.
ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ: Menningarsögulegar sýn-
ingar. Fundarstofur til leigu. Veitingastofa. Opið alla
daga frá kl. 11–17. Sími 545 1400.
AMTSBÓKASAFNIÐ Á AKUREYRI: Mán. til fös. kl.
10–19. Lau. 10–15.
LISTASAFNIÐ Á AKUREYRI: Opið alla daga frá kl.
14–18. Lokað mán.
NONNAHÚS, Aðalstræti 54. Opið a.d. kl. 10–17 frá 1.
júní – 1. sept. Uppl. í s. 462 3555.
NORSKA HÚSIÐ Í STYKKISHÓLMI: Opið daglega í
sumar frá kl. 11–17.
ATVINNA mbl.is
Á MORGUN miðvikudaginn 5. sept.
kl. 16.30-18.30 verður Vera Sören-
sen, myndlistarmaður og kennari,
með sýnikennslu í BOB ROSS-mál-
unartækni í Bókasafni Garðabæjar,
Garðatorgi 7. Vera er fyrsti fullgildi
kennari í málunartækni BOB ROSS
á Íslandi. Allir eru velkomnir.
Sýnikennsla í
málunartækni
UM næstu helgi efna íslenskir flug-
áhugamenn til hópferðar til London í
þeim tilgangi að sækja heim eina
skrautlegustu flugsýningu sem hald-
in er í Evrópu árið 2001. Sýningin
stendur 8. og 9. september á Dux-
ford-flugminjasafninu, skammt frá
London, en það er jafnframt stærsta
safn sinnar tegundar í álfunni með
um 180 sögufrægar gamlar flugvélar
auk margvíslegra stríðstóla sem
komin eru til ára sinna.
Ferðin er skipulögð af Fyrsta flugs
félaginu, áhugamannafélagi um flug-
mál.
Í tilefni af þessari ferð hefur Flug-
félagið Atlanta hf. ákveðið að bjóða
tveimur heiðursgestum með, þeim
Þorsteini E. Jónssyni, fyrrv. flug-
stjóra, og Úlfari Þórðarsyni, fyrrver-
andi augnlækni. Þeir Þorsteinn og
Úlfar eru þjóðkunnir fyrir heilla-
drjúg störf sín af flugmálum Íslend-
inga.
Aðalatriði flugdaganna á Duxford
verða sýningar hinna heimsþekktu
Red Arrows, listflugsveitar breska
flughersins (RAF) og listfallhlífa-
sveitar breska landhersins sem heitir
Red Devils. Þar að auki mun vélum
úr fyrri og seinni heimsstyrjöldinni
verða flogið auk nýjustu tegundum af
orrustu- og sprengjuþotum sem
breski flugherinn hefur yfir að ráða.
Alls munu rúmlega 40 mismunandi
flugvélagerðir leika listir sínar í loft-
inu heilan eftirmiðdag.
Í ferðaskipulaginu er gert ráð fyrir
sérstökum hátíðarkvöldverði með
skemmtiívafi í gömlum breskum
sveitakastala skammt frá Duxford.
Farþegar hafa síðan frjálsan dag í
London, en gist verður á nýendur-
nýjuðu hóteli í miðborginni. Farar-
stjórn verður í höndum Gunnars Þor-
steinssonar, formanns Fyrsta flugs
félagsins. Farið verður út síðdegis
föstudaginn 7. september og komið
heim undir miðnætti sunnudaginn 9.
september. Nánari upplýsingar og
nákvæma prentaða ferðadagskrá er
unnt að fá hjá Fyrsta flugs félaginu.
Hópferð á risa-
flugdag í Englandi
WOLFGANG Viereck flytur fyrir-
lestur miðvikudaginn 5. september
kl. 17.15 í stofu 423 í Árnagarði. Fyr-
irlesturinn er í boði Íslenska mál-
fræðifélagsins og nefnist „The
Computerisation of English Dialect-
al Data“.
Wolfgang Viereck er prófessor í
enskum málvísindum og miðalda-
fræðum við Otto-Friedrich Uni-
versität í Bamberg. Í fyrirlestrinum
mun hann fjalla um tölvuvinnslu á
gögnum úr mállýskurannsókninni
Survey of English Dialects, með til-
liti til orðaforða, orðhlutafræði, setn-
ingafræði og hljóðfræði.
Málfræði-
fyrirlestur í
Árnagarði
DR. PHILIP S.M. Chin, prófessor
við Tækniháskólann í Queensland í
Ástralíu og heiðurskonsúll Íslands í
Singapúr, mun halda fyrirlestur á
vegum verkfræðideildar Háskóla
Íslands og Umhverfisstofnunar Há-
skóla Íslands fimmtudaginn 6. sept-
ember kl. 16.10, í sal 101 í Lögbergi.
Fyrirlesturinn er öllum opinn.
Fyrirlesturinn verður fluttur á
ensku og nefnist „SUSTAINABLE
DEVELOPMENT GREEN CIT-
IES AND GREEN ISLANDS“.
Fjallað verður um samspil orku-
notkunar og umhverfis, sérstaklega
innan samgöngugeirans og við
byggðaskipulag og húsagerð, t.d.
notkun sjálfbærra lausna í almenn-
ingssamgöngum, nýjum gerðum
húsa og almennt í borgarsamfélög-
um. Dr. Chin mun fjalla m.a. um
það nýjasta í þróun rafbíla, rafbíla
m. hjálparvél (tvinn-bíla) og ann-
arra farartækja sem nota sjálfbæra
orkugjafa, segir í fréttatilkynningu.
Fyrirlestur
um orku
og umhverfi
♦ ♦ ♦
ANDLEGI skólinn, sem standa mun
fyrir ýmsum námskeiðum, meðal
annars í Raja-jógahugleiðslu, al-ein-
ingaröndun, sálarhugleiðslu og
uppstigningarprógrammi, hefur
göngu sína seinni hluta september-
mánaðar.
Að sögn Karls Þorsteinssonar,
andlegs leiðbeinanda, er markmið
námskeiðanna að þátttakendur verði
sjálfs sín meistarar, fullnuma í and-
legri þróun og nái að öðlast guðlega
vitund. Fyrirhugað er að halda
kynningu á námskeiðunum í Há-
skólabíói laugardaginn 9. september
klukkan 14.00.
Andlegur skóli
rekinn í vetur
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦