Morgunblaðið - 04.09.2001, Blaðsíða 36
UMRÆÐAN
36 ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Skrifstofutækni
250 stundir!
Markmið námsins er að þjálfa nemendur til starfa á skrifstofum
og er áhersla lögð á tölvugreinar og bókfærslu. Námið er mjög
hagnýtt og byggist að verulegu leyti á verklegum æfingum.
Námið eykur samkeppnishæfni nemenda og býr þá undir krefj-
andi störf á vinnumarkaði.
Helstu námsgreinar eru:
Handfært bókhald
Tölvugrunnur
Ritvinnsla
Töflureiknir
Verslunarreikningur
Glærugerð
Mannleg samskipti
Tölvubókhald
Internet
STARFSMENNTUN
fjárfesting til framtíðar
Mig langaði að vera vel samkeppnisfær í
öllum almennum skrifstofustörfum og eftir
vandlega umhugsun valdi ég Tölvuskóla
Íslands. Þar bætti ég kunnáttuna í Word-
ritvinnslu og Excel-töflureikni og lærði
hand- og tölvufært bókhald, glærugerð,
verslunarreikning ásamt undirstöðuatriðum
í mannlegum samskiptum og Interneti.
Námið er vel skipulagt og kennsla frábær.
Nú finnst mér ég vera fær í flestan sjó!.
Steinunn Rósq, þjónustu-
fulltrúi,
Íslenska Útvarpsfélaginu
Öll námsgögn innifalin
Tölvuskóli Íslands
B í l d s h ö f ð a 1 8 , s í m i 5 6 7 1 4 6 6
Opið til kl. 22.00
Heilsurækt
Sjúkraþjálfarans
Hjartahópur
Fjölbreytt þjálfun fyrir hjartasjúklinga
Tækjasalur
Úrval þol- og styrktartækja
Kvennaleikfimi
Hressileg leikfimi fyrir konur
Sjúkraþjálfarinn ehf.,
Strandgötu 75, sími 555 4449,
220 Hafnarfirði.
Einungis fagfólk sem leiðbeinir
Nánari upplýsingar gefur:
FYRIR hönd Stúdentaráðs
Háskóla Íslands bjóðum við
nýnema við Háskólann vel-
komna. Það eru talsverð við-
brigði að koma úr framhalds-
skólunum í Háskóla Íslands
og það þekkja eldri nemar af
eigin raun. Spurningar varð-
andi námsfyrirkomulag,
námsmat, námslán, próftöku
og annað vefjast fyrir fólki og
á margan hátt virðist há-
skólasamfélagið hálfgerður
frumskógur til að byrja með.
Þjónusta Stúdentaráðs
Stúdentaráðsliðar eru
kosnir til að fara með hags-
muni allra stúdenta Háskól-
ans. Á skrifstofu Stúdentaráðs er
nemendum veitt margvísleg þjón-
usta. Upplýsingar varðandi réttindi
stúdenta, leiguhúsnæði, lánasjóð-
inn eða hvað annað sem er eru
veittar á skrifstofunni. Skrifstofa
Stúdentaráðs er í Stúdentaheim-
ilinu við Hringbraut og þar er opið
alla virka daga frá klukkan 9:00–
17:00.
Matsölustaður í
Stúdentaheimilið
Stúdentaráð hafði forgöngu um
það að nú hefur matsölustaðurinn
Delí verið opnaður í Stúdentaheim-
ilinu. Þetta er fagnaðarefni og hef-
ur nú fengist aukin fjölbreytni í
veitingum fyrir stúdenta og sam-
fara mun örugglega færast meira líf
í Stúdentaheimilið. Í Stúdenta-
heimilinu verður einnig Námsráð-
gjöf Háskóla Íslands til húsa og fær
hún loks húsnæði sem gerir starfs-
mönnum hennar kleift að þjónusta
alla þá stúdenta sem til hennar
þurfa að leita. Sérstakt fagnaðar-
efni er að fatlaðir stúdentar geti
komist á greiðan hátt til þess aðila
sem sér um málefni þeirra innan
skólans. Þetta er mikilvægur áfangi
í baráttunni fyrir auknu jafnrétti
innan Háskólans.
Fartölvutilboð fyrir stúdenta
Stúdentaráð skrifaði nýlega und-
ir samninga við Nýherja og Griffil,
sem bjóða munu stúdentum og
starfsfólki Háskólans fartölv-
ur á hagstæðum kjörum.
Þetta gerðist í kjölfar þess að
Stúdentaráð leitaði tilboða í
fartölvur hjá öllum helstu
tölvufyrirtækjum landsins.
Stúdentaráð hvetur stúdenta
til að nýta sér tilboðin og taka
þannig þátt í áframhaldandi
fartölvuvæðingu náms við
Háskólann. Mikil þróun hefur
átt sér stað í uppsetningu á
þráðlausum staðarnetum inn-
an skólans og geta stúdentar
með fartölvur komist inn á
Netið og inn á sitt heima-
svæði í Háskólanum frá ýms-
um stöðum á háskólasvæðinu
þráðlaust. Þetta þráðlausa
sendikerfi hefur aukið stórlega
möguleika á notkun tölva við
kennslu og auk þess minnkað álag á
þau tölvuver sem fyrir eru.
Nýr student.is
Stúdentaráð hefur opnað nýjan
frétta- og upplýsingavef fyrir nem-
endur Háskólans á slóðinni
www.student.is. Vefurinn hefur að
geyma heimasvæði Stúdentaráðs
og Stúdentablaðsins, fréttir af
starfi deildarfélaga auk annarra
upplýsinga er varða stúdenta. Vef-
urinn er umfangsmikill og þar er
tekið á fjölbreyttum málaflokkum
sem varða nemendur við Háskóla
Íslands en einnig er áhersla lögð á
öflugan fréttaflutning sem gerir
vefinn að lifandi miðli. Stúdenta-
ráðið og Stúdentablaðið vilja nýta
kosti vefjarins til upplýsingagjafar
og samskipta í auknum mæli.
Góð tengsl við nemendur
Að lokum viljum við segja að það
er gaman að vera nemandi við Há-
skóla Íslands. Nemendafélögin,
sem skipta tugum, standa fyrir
margskonar skemmtiviðburðum og
Stúdentaráð sér um að gæta hags-
muna stúdenta jafnt innan Háskól-
ans sem utan. Framundan er við-
burðaríkur vetur og nú á næstunni
standa Stúdentaráð og nemenda-
félögin í sameiningu fyrir fyrstu
Nýnemavikunni. Í október höldum
við upp á 90 ára afmæli Háskólans
og þá verður Stúdentadagurinn
haldinn í annað skipti. Góð hags-
munagæsla felst ekki síst í góðum
tengslum við nemendur og hvetjum
við alla stúdenta til að líta sem oft-
ast inn á skrifstofu Stúdentaráðs.
Við erum í vinnu fyrir ykkur.
Velkomin í Háskólann
Dagný
Jónsdóttir
Nám
Fyrir hönd Stúdenta-
ráðs Háskóla Íslands,
segja Þorvarður Tjörvi
Ólafsson og Dagný
Jónsdóttir, bjóðum
við nýnema við
Háskólann velkomna.
Tjörvi er formaður Stúdentaráðs og
Dagný framkvæmdastjóri ráðsins.
Þorvarður
Tjörvi Ólafsson
EKKI geri ég
ágreining við það sjón-
armið Sigurðar Ólafs-
sonar í Mbl. 21.8. að
umræðan um Evrópu-
mál verði að byggjast á
vel ígrunduðum rök-
um. Hins vegar fellst
ég ekki á órökstuddar
fullyrðingar hans um
að samkvæmt Nice-
samþykktinni verði
„heildaratkvæðafjöldi í
ráðherraráðinu líklega
345 atkvæði, ekki 342“
en hámarkstala þing-
manna Evrópuþings-
ins 732, ekki 738. Að
vísu breytir þessi munur ekki meg-
inatriðinu um áhrifaleysi okkar inn-
an ESB, ef til kæmi. Hugsanleg 3 at-
kvæði Íslands af 342 eða 345 og 732
eða 738, sama hvorar tölurnar yrðu
notaðar, eru hvort sem er tákn um
algjört áhrifa- og valdaleysi okkar
innan klíkuveldis ESB-báknsins.
Tölur mínar eru í samræmi við
frumheimildir Reuters-fréttastof-
unnar frá ESB í lok Nice-ráðstefn-
unnar sem sendar voru út í frétta-
skeyti 11. 12. 2000 og birtar á bls. 33
í Mbl. 12. desember. Telji Sigurður
þær ekki réttar verður hann að
þrasa við Reuter og Mbl. um þær,
ekki mig.
Bollaleggingar Sigurðar, um
hvernig Ísland myndi vinna innan
ESB-klíkuræðisins til að hafa þar
áhrif og sækja stuðning við sína
hagsmuni með bónbjörgum, eru
vægast sagt léttvægar og sýna fyrst
og fremst að hann hefur ekki
reynslu af að fara með umboð ríkis í
fjölþjóða- eða alþjóðasamstarfi. Þar
mótast afstaða ríkja af þröngum
hagsmunum, ekki góðsemi, eins og
t.d. afstaða Finna og Svía gegn
hagsmunum Íslands á nýafstöðnum
fundi hvalveiðiráðsins sýnir svo ljós-
lega. Í alþjóðasamstarfi verðum við
að finna bandamenn sem tengja sína
hagsmuni okkar hagsmunum. Slík
hagsmunatengsl er grundvallarregl-
an sem gildir í fjölþjóða- og alþjóða-
samstarfi, svo sem landhelgisbar-
átta okkar 1952–76 er gott dæmi um.
Ég sleppi að ræða ýmis aukaatriði
og ímyndaða meira og minna óraun-
hæfa undanþágumöguleika í máli
Evrókrata. En grein Sigurðar gefur
tilefni til að við skoðum stóru ókosti
ESB-aðildar.
Fyrst, ein af grundvallarreglum
þjóðaréttarins er fullveldisjafnrétti
ríkja. Samkvæmt henni eru öll sjálf-
stæð og fullvalda ríki, smá eða stór,
jafnrétthá í alþjóðasamskiptum.
Þess vegna höfum við sama at-
kvæðavægi innan SÞ og Bandaríkin,
Kína, Rússland og öll önnur aðild-
arríkin. Á reglunni byggist skipulag
SÞ og sérstofnana þeirra og reyndar
flestra fjölþjóða- og al-
þjóðastofnana. Undan-
tekningin er ESB. Þeir
úthýstu fullveldisjafn-
réttinu. Þar hefur at-
kvæðavægið verið mis-
jafnt, frá 2 upp í 10, og
verður áfram misjafnt,
frá 3 upp í 29, innan
æðstu valdastofnunar-
innar, ráðherraráðsins.
Réttindaskerðing sem
þessi er gagnstæð gild-
andi þjóðarétti og
gagnstæð hagsmunum
smáríkja eins og Ís-
lands.
Næst kemur að
ESB-aðild fæli í sér frekari fullveld-
isskerðingu en við létum yfir okkur
ganga með EES-samningnum (og
þykir mörgum meira en nóg) þar
sem laga- og reglugerðafargan ESB
nær yfir fleiri svið en EES.
Þriðja stóra málið er að við yrðum
að fórna fullveldi okkar til þess að
gera sjálfstæða viðskipta- og tolla-
samninga við önnur ríki, eins og t.d.
Bandaríkin, Japan ofl., en afhenda
ESB þetta vald, samanber t.d.
skyldu nýju umsóknaraðildarríkj-
anna til þess að falla frá fríverslun-
arsamningunum við okkur og EFTA
en ganga inn í samninga ESB sem
yfirtekur samningsrétt þeirra.
Fjórða, við yrðum að afhenda
ESB fullveldisrétt okkar í sjávar-
útvegsmálum með því að undir-
gangast sjávarútvegsstefnu þeirra,
afsala til þeirra ákvörðunarvaldi í
lífshagsmunamáli okkar, veita þeim
yfirstjórn kvótaákvarðana og út-
hlutunar veiðileyfa úr íslenskum
fiskimiðum. Árangursrík landhelgis-
barátta okkar færi þá fyrir lítið.
Einnig yrðum við að afsala til þeirra
fullveldinu til að gera sjálfstæða
sjávarútvegssamninga við önnur
ríki, t.d. Grænland, Færeyjar, Nor-
eg o.fl.
Öllu sæmilega skynbæru fólki
ætti að vera ljóst að með öllum þess-
um stóru ókostum væri ESB-aðild of
dýru verði keypt.
En fleira kemur til. Gerðum við
þau mistök að gerast aðilar, fengjum
við það ekki ókeypis.
Samkvæmt gildandi aðildar-
gjaldaformúlu yrði árgjald okkar á
bilinu 8–13 milljarðar króna en
myndi hækka verulega við væntan-
lega fjölgun fátækari A-Evrópuríkja
í ESB. Þessa peninga gætum við
notað betur í annað.
Hitt er líka umhugsunarefni, að
engin trygging er fyrir því að aðild
fæli í sér frekari tollalækkanir fyrir
okkar sjávarafurðir. Ástæðan er sú
að viðskipti með sjávarafurðir eru
utan fríverslunar fjórfrelsisins. Um
þær yrði að gera sérsamning. Allt er
því í óvissu um frekari tollalækkanir
af sjávarafurðum, ef til aðildar
kæmi.
Mér fannst athyglisvert að Uffe
Elleman-Jensen, fv. utanríkisráð-
herra Danmerkur, sagði í spurn-
ingatíma á fundi Dansk-íslenska
verslunarráðsins 8. ágúst sl. að
„ESB myndi hagnast á aðild Ís-
lands“. Það er rétt. En við myndum
stórtapa.
Tap eða gróði af
ESB-aðild?
Hannes Jónsson
Höfundur er félagsfræðingur
og fv. sendiherra.
EBE-aðild
Öllu sæmilega
skynbæru fólki, segir
Hannes Jónsson, ætti
að vera ljóst að með öll-
um þessum stóru ókost-
um væri ESB-aðild of
dýru verði keypt.