Morgunblaðið - 04.09.2001, Qupperneq 17
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 2001 17
Nokkur frábær fyrirtæki
1. Nýlegur tölvuskóli með mjög fullkomnar nýjar og öflugar tölvur
og góðan viðbúnað. Frábært nýtt námsefni fylgir með. Selst
vegna anna eigandans. Pláss fyrir 36 nemendur. Allt nýtt og
fullkomið. Aðalvertíðin er að byrja. Undirverktakar sjá um
kennslu.
2. Lítið framleiðslufyrirtæki til sölu sem ekki hefur öll eggin í sömu
körfu. Framleiðir í þremur ólíkum greinum, sýnishorn á staðnum.
Framleiðir úr gúmmíi, járni og plasti. Þarf um 150 fm pláss.
3. Bjórkrá í miðborginni með hljóðkerfi, spilakössum og palli fyrir
uppákomur. Vel staðsettur staður sem býður upp á marga mögu-
leika og er í fullum rekstri. Öll leyfi til staðar. Nær eingöngu
bjórsala. Góð velta.
4. Iðnfyrirtæki með prjónavélar sem framleiðir frábærar vörur,
betri en innfluttar. (Ekki peysur). Getur verið hvar sem er á land-
inu. Einstök gæðavara með fallegt útlit. Mikil hönnunarvinna
hefur átt sér stað. Sýnishorn á staðnum.
5. Skemmtistaður úti á landi með tveimur sölum og börum. Dansleik-
ir, veislur, ferðahópar, fastir viðskiptavinir á veturna. (Lions
og önnur félög). Skemmtileg lifandi vinna. Húsnæðið fylgir með.
Verð kr. 28 millj. Áhvílandi er kr. 11 millj. Laust strax ef vill.
Skemmtilegt og lifandi bæjarfélag.
Höfum kaupanda að stórri matvöruheildverslun.
Höfum kaupanda að smærri plastverksmiðjum.
Erum með úrval fyrirtækja á skrá hjá okkur á hverjum tíma.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
LJÓSANÓTT, menningarnóttin í
Reykjanesbæ, tókst vel. Fjöldi
fólks var á hátíðinni sem fram fór
síðastliðinn laugardag og áætla
skipuleggjendur og lögregla að
15-20 þúsund manns hafi verið
viðstaddir hápunkt hátíðarinnar,
þegar kveikt var á lýsingu Bergs-
ins. Gestirnir hafa því verið mun
fleiri en íbúar Reykjanesbæjar.
Um 10.800 búa í bænum en alls
um 16.500 á Suðurnesjum.
„Ég er enn í skýjunum. Það
tókst allt vel. Veðrið lék við okk-
ur, eins og ég hafði spáð, og
kvöldið fallegt. Þá var gaman að
sjá hvað margir gestir komu,“
segir Steinþór Jónsson hótelstjóri
en hann var formaður undirbún-
ingsnefndar ljósahátíðar.
Bæjarbúar ánægðir
Steinþór segist hafa verið að
tala við þá sem voru með sýn-
ingar og uppákomur á laug-
ardaginn. Allir létu vel af deg-
inum, mikil umferð hafi verið
allsstaðar þar sem eitthvað var
um að vera. Nefnir hann sem
dæmi að áætlað hafi verið að
sýna stuttmynd með gömlum
myndum úr bæjarlífinu fjórum
sinnum en 100 manns hafi orðið
frá að hverfa þótt aukasýningu
hafi verið bætt við. Segir Stein-
þór að reynt verði að sýna mynd-
ina seinna til þess að allir geti átt
þess kost að sjá hana.
„Það var dagskrá fyrir alla ald-
urshópa og ég held að okkur hafi
tekist að gera alla ánægða. Ég
finn það á viðbrögðum bæjarbúa
að þeir eru ánægðir. Það kemur
mér raunar skemmtilega á óvart
að okkur hefur tekist að koma
fólki aftur á óvart. Það var undr-
andi á því hvað margir komu á
ljósanótt í fyrra, þegar við
kveiktum á lýsingu Bergsins í
fyrsta skipti, en núna tókst okkur
að gera betur með fjölbreyttari
dagskrá og nýjum atriðum,“ segir
Steinþór.
Að sögn lögreglunnar í Kefla-
vík fór ljósanóttin vel fram. Ein-
hver útköll voru en allt vegna
smávægilegra mála. Þó gistu þrír
fangageymslur.
Áætlað er að 15–20 þúsund gestir hafi verið á ljósanótt
Tókst aftur að
koma fólki á óvart
Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson
Eldgleypar sýndu töfrabrögð sín í portinu hjá Svarta pakkhúsinu á ljósanótt.
Reykjanesbær
BÓKAÚTGÁFAN Skjaldborg hefur
gefið Lyngseli í Sandgerði vísi að
bókasafni. Svæðisskrifstofa Reykja-
ness rekur skammtímavistun fyrir
fötluð börn í Lyngseli.
Tilgangur skammtímavistunar-
innar er að veita fötluðum börnum
frístundir við hæfi og hvíla heimilin,
að sögn Kolbrúnar Marelsdóttur
forstöðuþroskaþjálfa. Þangað koma
um 20 börn á mánuði og dvelja frá
tveimur dögum og upp í viku í senn
og sum koma tvisvar í mánuði. Við
heimilið starfa tuttugu manns.
Starfsfólkið hefur haft áhuga á að
eignast barnabækur og þar sem
engu fé er varið til þess hefur það
hringt í bókaforlögin og falast eftir
bókum að gjöf. „Skjaldborg tók ein-
staklega vel í beiðni okkar og kom
fram með þá hugmynd að stofna
bókasafn hér,“ segir Kolbrún.
Börnin kunna að
meta bækurnar
Skjaldborg gaf Lyngseli 70
barnabækur sem stofn að bókasafni.
Fyrirtækið hefur verið að auka út-
gáfu á barnabókum og rekur barna-
bókaklúbbinn Lestrarhestinn.
Flestar bækurnar hafa verið gefnar
út af honum, að sögn Björns Eiríks-
sonar forstjóra. „Það er nauðsyn-
legt að bækur séu alls staðar þar
sem börn eru. Við fréttum af því að
hér væri þörf og fannst gráupplagt
að leggja eitthvað af mörkum. Von-
andi bæta aðrar bókaútgáfur við,“
segir Björn.
Kolbrún segir að börnin séu
ánægð með bókasafnið og noti bæk-
urnar mikið. Sum lesi sjálf en það
þurfi að lesa fyrir önnur. „Jafnvel
mikið fötluð börn kunna að meta
bækurnar, þau fletta til dæmis lit-
skrúðugum fræðslubókum. Bæk-
urnar auka víðsýni barnanna, örva á
margan hátt og eru einnig góð af-
þreying,“ segir Kolbrún.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Gestur Þorsteinsson tekur við gjafabréfi úr hendi Björns Eiríkssonar.
Viðstaddar eru Kolbrún Marelsdóttir forstöðuþroskaþjálfi og Eygló
Guðrún Þorsteinsdóttir.
Skjaldborg gefur vísi
að bókasafni í Lyngseli
Sandgerði
BÆJARRÁÐ Sandgerðis hefur
samþykkt að láta gera deiliskipulag
fyrir frístundabyggð í landi Þór-
oddsstaða.
Meginhluti lands jarðarinnar Þór-
oddsstaða er í eigu Sandgerðisbæj-
ar. Býlið sjálft og land umhverfis er
þó í einkaeigu. Bærinn er um þrjá
kílómetra norðan við Sandgerði, við
veginn til Garðs.
K-listinn sem skipar meirihluti
bæjarstjórnar lagði tillöguna fram í
bæjarráði og var hún samþykkt sam-
hljóða.
Gert er ráð fyrir að skipulögð
verði sumarhúsabyggð á landinu og
orlofshús til útleigu. Einnig er rætt
um að tekið verði frá svæði fyrir
golfvöll, í samráði við Golfklúbb
Sandgerðis sem óskað hefur eftir
auknu landrými. Tekið er fram að
gera eigi ráð fyrir svæði undir tjald-
stæði, tjaldvagna og fellihýsi, auk
nauðsynlegra þjónustubygginga.
Í samþykkt bæjarráðs er lögð
áhersla á góða útfærslu og að svæðið
verði hannað meðal annars með tilliti
til fjöru, tjarnar og aðkomu að golf-
velli.
Byggingafulltrúa var falið að láta
gera breytingar á aðalskipulagi, ef
þess yrði talin þörf, til að nýta svæð-
ið sem best til útivistar og frístunda-
byggðar.
Sumarhúsabyggð
á Þóroddsstöðum
Sandgerði