Morgunblaðið - 04.09.2001, Side 20

Morgunblaðið - 04.09.2001, Side 20
VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF 20 ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ ALLMÖRG fyrirtæki í upplýsinga- og tæknigeiranum hafa verið að segja upp starfsfólki á undanförnum dögum og vikum. Þetta bætist við uppsagnir sem þegar hafa orðið í þessum geira fyrr á árinu eins og til að mynda hjá Aco-Tæknival en sam- kvæmt samkomulagi Tæknivals og Aco um sameiningu félaganna tveggja þá var ætlunin að fækka starfsmönnum úr 270 í ársbyrjun í 200 á árinu. Þá er og ljóst að eitthvað hefur verið um beinar launalækkanir í tæknigeiranum þótt erfitt sé að henda reiður á hversu miklar þær hafi verið. Öllum talsmönnum þeirra fyrir- tækja, sem Morgunblaðið ræddi við, ber saman um að vegna breyttra að- stæðna á markaði hafi reynst nauð- synlegt að fækka fólki og grípa til al- mennra aðhaldsaðgerða á öðrum sviðum. Um annað sé ekki að ræða. Flestir taka fram að ekki hafi verið um auðvelda ákvörðun að ræða, ekki síst í þeim tilvikum þegar menn hafi neyðst til þess að segja upp hæfu og traustu starfsfólki. Nauðsynlegt að bregðast við breyttum markaðsaðstæðum Holberg Másson, stjórnarformað- ur Netverks, segir að hjá Netverki hafi starfsmönnum verið fjölgað töluvert á fyrriparti ársins eða um fimmtán talsins þar sem þá hafi menn verið að ljúka ýmsum verkefn- um. Hugmyndin hafi verið sú að þeg- ar þeim verkefnum lyki yrði starfs- mönnum fækkað aftur. „Við höfum verið að framkvæma það og horfa á aðstöðuna á þeim mörkuðum sem við erum að vinna á. Við töldum okkur sjá fram á að það tæki lengri tíma að afla tekna frá fyrirtækjum á fjar- skiptasviði en gert var ráð fyrir. Við þessu verðum við að bregðast og segjum því upp fleiri starfsmönnum en þessum fimmtán, bæði hér heima og erlendis.“ Steingrímur Ólafsson hjá Oz segir að starfsmönnum hafi vitaskuld fækkað við lokun starfseminnar í Svíþjóð. Ekki hafi verið um neinar uppsagnir að ræða hér heima og jafnvel frekar reiknað með að bætt verði við starfsfólki. Sárgrætilegt að þurfa að segja upp góðu fólki Benedikt Svavarsson, fram- kvæmdastjóri Kveikis, segir að níu starfsmönnum af 27, eða hátt í þriðj- ungi, hafi verið sagt upp fyrir helgina. „Við vorum aðallega að fækka forriturum en ætlum að ein- beita okkur að ráðgjöf í tengslum við vefinn, sem hefur verið okkar styrk- ur, og gagnvirka hönnun. Við verð- um áfram með forritara til þess að leysa slík verkefni. En því miður þurftum við að segja upp færu fólki og góðum félögum, það er það sár- grætilega í þessu. En þetta þurfti að gera svo fyrirtækið gæti átt sér framtíðargrundvöll. Menn verða að aðlaga sig aðstæðum á hverjum tíma og við munum einnig auka samstarf- ið við móðurfélagið, sem er EJS, til þess að nýta samlegðarmöguleika og einbeita okkur að því sem við getum best. Uppsagnirnar eru hluti af stærri skipulagsbreytingum hjá okkur. “ Kristján Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri Zoom, segir að félagið hafi nýlega sagt upp sex manns með þriggja mánaða fyrirvara. Starfs- menn Zoom séu 19 til 20 talsins. „Þetta eru einfaldlega viðbrögð við ástandi á markaðinum og vonandi getum við endurskoðað það ef að- stæður breytast. En við urðum að bregðast við. Þess ber þó að geta að við vorum ekki nema 15 til 16 í upp- hafi ársins og erum því fleiri nú en þá.“ Áfram uppsagnir í tæknigeiranum Morgunblaðið/Billi Nokkuð hefur verið um uppsagnir hjá tæknifyrirtækjum undanfarið vegna samdráttar, en talið er nauðsynlegt að aðlagast markaðsaðstæðum þannig. hefur aðeins verið að veiðum frá því um mitt sumar. Veiðin hefur verið jöfn og góð undanfarnar vikur og er svo enn. Samkvæmt upplýsingum SF hefur mestu verið landað á Eskifirði, 62.250 tonnum, næst kemur SR-mjöl á Seyðisfirði með 55.200 tonn og í þriðja sætinu er Síldarvinnslan í Neskaupstað með 52.200 tonn. Lítil veiði hefur verið af norsk- íslenzku síldinni að undanförnu, en alls hafa 46.000 tonn veiðzt til þessa en leyfilegur kvóti er 132.000 tonn. Nú er leyfilegt að hefja veiðar á Suð- urlandssíldinni og eru skipin að gera klárt fyrir þær veiðar. KOLMUNNAAFLI okkar Íslendinga á þessu ári er orðinn um 223.000 tonn samkvæmt upplýsingum Sam- taka fiskvinnslustöðva. Alls hefur verið landað um 264.000 tonnum af kolmunna hér og er hlutur útlend- inga því um 41.000 tonn. Á öllu síð- asta ári varð kolmunnaafli okkar um 260.000 tonn og hafði þá aldrei orðið meiri. Samkvæmt upplýsingum SF er Hólmaborg SU enn aflahæsta kol- munnaskipið með 27.500 tonn. Börk- ur NK er með tæp 24.000 tonn, Jón Kjartansson SU með 21.600 og Ás- grímur Halldórsson SF með 20.500. Athygli vekur að Huginn VE er kominn með um 15.00 tonn, en hann Mikil kolmunnaveiði Ásgrímur Halldórsson landar kolmunna á Seyðisfirði. Morgunblaðið/Jón Páll RÍFLEGA 1,1 milljarður króna kom í hlut meðeigenda Baugs hf. í A-Holding, þegar Baugur keypti A-Holding að fullu í maí á þessu ári og eignaðist þar með rúm 20% hlutafjár í breska smásölufyrir- tækinu Arcadia Group. Meðeigendur Baugs í A-Holding voru fjárfestingarfélögin Gaumur og Gilding, auk Íslandsbanka og Kaupþings. Fjárfestingarfélagið Gaumur er í eigu Jóhannesar Jónssonar, stofnanda Baugs og stjórnarmanns, og fjölskyldu hans, þ.á m. Jóns Ásgeirs Jóhannesson- ar, forstjóra Baugs. Gaumur átti 32% í A-Holding og nam söluhagnaður félagsins af viðskiptunum við Baug með Arcadia-bréfin 362 milljónum króna. Sú spurning vaknar hvort eðlilegt sé að menn sitji báðum megin borðs í viðskiptum af þessu tagi og hver lagaleg staða þeirra sé. Jakob R. Möller hrl., sem reynslu hefur í hlutafélagarétti, segir aðspurður að ekki sé hægt að segja neitt ákveðið að svo stöddu um lagalega stöðu þeirra sem sitji báðum megin borðs í áðurnefndum viðskiptum Baugs og fjárfesting- arfélagsins Gaums. „Til þess að draga ályktanir um slík viðskipti þarf fyrst að fara mjög nákvæm- lega ofan í slík mál, m.a. kanna hvort stjórnarmenn í Baugi eigi persónulegra hagsmuna að gæta í viðskiptum við Gaum. En það hvarflar ekki að mér að þessir að- ilar hafi gert eitthvað rangt og ég hef engar forsendur til þess að draga neins konar ályktanir af fréttinni í laugardagsblaði Morg- unblaðsins einni saman.“ Jakob vísar í greinar í lögum um hlutafélög sem eiga við mál af þessu tagi. Í 72. gr. segir: „Stjórn- armaður eða framkvæmdastjóri mega ekki taka þátt í meðferð máls um samningsgerð milli félagsins og þeirra, um málshöfðun gegn þeim eða um samningsgerð milli félagsins og þriðja manns eða málshöfðun gegn þriðja manni ef þeir hafa þar verulegra hagsmuna að gæta sem kunna að fara í bága við hagsmuni félagsins. Skylt er stjórnarmanni og framkvæmda- stjóra að upplýsa um slík atvik.“ Jakob bendir á að stjórnar- mönnum í Baugi beri að gæta hagsmuna hluthafa í Baugi og ef Baugur hafi keypt bréfin af Gaumi á of háu verði til að Gaumur gæti innleyst hagnað sé það óeðlilegt. Hins vegar beri þeim sem setji slíka tilgátu fram að sanna hana þar sem sönnunarbyrðin liggi þeim megin. Jakob bendir einnig á 95. gr. hlutafélagalaga þar sem segir að hluthafafundur megi ekki taka ákvörðun sem bersýnilega er fallin til þess að afla ákveðnum hlut- höfum eða öðrum ótilhlýðilegra hagsmuna á kostnað annarra hlut- hafa eða félagsins. „Þar sem hluthafafundur, sem er æðsta vald í hverju hlutafélagi, má ekki taka ákvarðanir af þessu tagi er ljóst að stjórnin má það ekki heldur,“ segir Jakob R. Möll- er. Lagaleg staða ekki ljós Viðskipti almenningshlutafélagsins Baugs og fjárfestingarfélagsins Gaums Kanna þarf hvort stjórnarmenn eigi persónulegra hagsmuna að gæta RÚNAR Sigurðsson, stofnandi Tæknivals og fyrrverandi forstjóri, er hættur störfum hjá nýlega sam- einuðu félagi AcoTæknivals. Rúnar segir í samtali við Morg- unblaðið að það hafi orðið að sam- komulagi hans og stjórnarformanns að Rúnar hætti störfum síðastliðinn föstudag. Rúnar er varamaður í stjórn AcoTæknivals en mun nú taka sæti aðalmanns. Rúnar hafði sinnt ýmsum verkefn- um hjá Tæknivali eftir að hann hætti störfum sem forstjóri og tók við stöðu framkvæmdastjóra fyrir- tækjasviðs við sameiningu Aco og Tæknivals í sumar. Hann segir það aldrei hafa staðið til að hann yrði lengi hjá fyrirtækinu og ákveðið að hann yrði ekki hluti af nýju skipuriti AcoTæknivals. Rúnar segist ekki hafa ákveðið hvað hann tekur sér fyrir hendur nú. Hann er áfram hlut- hafi í fyrirtækinu. Rúnar hættur hjá AcoTæknivaliTAP af rekstri dansk-íslenska net- bankans Basisbank á fyrri helmingi ársins 2001 nam 24,6 milljónum danskra króna, tæplega 300 milljón- um íslenskra króna. Tap síðasta árs var 58 milljónir danskra króna, sem jafngildir um 700 milljónum íslenskra króna. Í netútgáfu Jyllands-Posten segir að hálfsársuppgjör Basisbank sé ekki uppörvandi lesning, loksins þegar bankinn hafi sent uppgjörið frá sér. Blaðið segir að bankinn geti ekki haldið taprekstri lengi áfram, einung- is með hlutafé upp á 74 milljónir danskra króna eða tæpar 900 millj- ónir íslenskra króna. Þá segir blaðið að vinnubrögð stjórnenda bankans í tengslum við uppgjörið hafi einkennst af klúðri. Þeir hafi ekki gert sér grein fyrir því fyrr en á síðustu stundu, síð- astliðinn föstudag, að bankanum bæri að birta hálfsársuppgjör. Skömmu áður hafi Peter Andersson, fram- kvæmdastjóri Basisbank, sagt í sam- tali við Jyllands-Posten, að bankinn þyrfti ekki að birta annað en heilsárs- uppgjör. Annað hafi komið á daginn. Mikil ásókn var í viðskipti við Bas- isbank eftir að hann opnaði í septem- ber á síðasta ári og hafa um 22 þús- und viðskiptavinir skráð sig hjá bankanum. Jyllands-Posten segir að bankinn hafi ekki átt möguleika á að taka við þessum fjölda viðskiptavina, sérstaklega þar sem stór hluti þeirra hafi ekki notað bankann að staðaldri. Því tali Basisbank nú um virka við- skiptavini sem Peter Andersson segir að séu um 15 þúsund talsins. Íslandsbanki er stærsti einstaki hluthafinn í Basisbank. Enn tap hjá Basisbank Jón Ólafsson kaupir í Ís- landsbanka JÓN Ólafsson og co. sf. keypti sl. fimmtudag 8 milljónir að nafn- verði hlutafjár í Íslandsbanka á verðinu kr. 3,78. Söluverð hlut- arins er því rúmar 30 milljónir. Eignarhlutur Jóns Ólafssonar og co. eftir kaupin nemur tæp- um 128 milljónum króna að nafnverði eða sem nemur 486 milljónum að söluverði. Jón Ólafsson er stjórnarmað- ur í Íslandsbanka. 10,4% í Kefla- víkurverktök- um seld EISCH Holding SA hefur keypt hlutabréf í Keflavíkurverktökum hf. að nafnvirði kr. 32,5 milljónir. Síð- asta viðskiptaverð var 4,15 og er markaðsverðmæti bréfanna því um 134,9 milljónir króna og samsvarar 10,4% hlut, en áður átti Eisch Hold- ing ekki hlut í Keflavíkurverktökum. Bjarni Pálsson, viðskiptafræðing- ur, er eigandi Eisch Holding SA, sem skráð er í Lúxemborg. Viðskipt- in fóru fram dagana 27.-30. ágúst, að því er fram kemur í tilkynningu til Verðbréfaþings Íslands, og hafði Kaupthing Luxembourg milligöngu um viðskiptin. Bjarni segist í samtali við Morg- unblaðið starfa að fjárfestingum og er hann einn eigandi Eisch Holding. Félagið er eignarhaldsfélag og á hluti í íslenskum og erlendum fyr- irtækjum. Straumur eykur hlut sinn í Olís FJÁRFESTINGARFÉLAGIÐ Straumur hefur keypt rúmlega 10 milljónir að nafnverði í Olíuverslun Íslands hf. Eignarhlutur Straums í Olís er nú 6,45% eða 43,2 milljónir að nafnverði. Á fimmtudag, þegar tilkynnt var um viðskiptin, var lokaverð Olíu- verslunar Íslands 5,20 á Verðbréfa- þingi Íslands sem var15,6% hækkun frá fyrra degi. Miðað við lokaverð Olíuverslunar Íslands á VÞÍ þann dag þá má áætla að kaupverð bréfanna hafi verið rúmar 52 milljónir króna. ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.