Morgunblaðið - 04.09.2001, Side 39
Upplýsingaveita um nám
MENNT er að vinna að smíði á
gagnagrunni um Upplýsingaveitu
um nám. Upplýsingaveitan er
gagnabanki sem hýst getur allt
námsframboð á Íslandi. Hægt er
að leita almennt eða sértækt í
gagnabankanum og bera saman
framboð, verð og gæði. Upplýs-
ingaveitan er hönnuð með einföldu
notendaviðmóti þannig að mikil
tölvukunnátta er ekki skilyrði til
að geta notað hana. Allir sem hafa
aðgang að tölvu og interneti geta
tengst Upplýsingaveitunni ókeyp-
is. Byrjað er að þróa rafrænan
námsráðgjafa sem tengist Upplýs-
ingaveitunni. Notandinn svarar
nokkrum spurningum sem leiða í
ljós áhuga- og færnisvið hans.
Ráðgjafinn hjálpar sérstaklega
þeim sem vita ekki endilega hvað
þá langar til að læra.
Upplýsingaveitan mun nýtast
jafnt þeim sem leita eftir námi eða
námskeiði eða bjóða það. Stefnt er
að því að allt nám og öll námskeið
á Íslandi verði vistuð í Upplýs-
ingaveitunni, hvort sem er í hefð-
bundna skólakerfinu, í einkaskól-
um eða fræðslustofnunum.
Markhópar Upplýsingaveitunn-
ar eru tvenns konar. Í fyrsta lagi
mun Upplýsingaveitan sérstaklega
nýtast almenningi sem leitar eftir
námskeiðum eða námi. Það hefur
oft reynst erfitt fyrir almenning að
fá upplýsingar um framboð á námi
eða námskeiðum því leita þarf víða
og á ólíkum stöðum. Með tilkomu
Upplýsingaveitunnar getur þessi
hópur leitað á einum stað eftir
upplýsingum um framboð á námi
eða námskeiðum á þeim stað sem
þeim hentar og á því skólastigi
sem það óskar eftir. Í öðru lagi er
markhópur Upplýsingaveitunnar
skipuleggjendur námskeiða, eins
og fulltrúar símenntunarmiðstöðv-
anna um landið, fræðslufulltrúar
stéttarfélaga og fræðslufulltrúar
fyrirtækja. Þegar námskeið eru
skipulögð fyrir þá einstaklinga
sem halda á námskeið fyrir, er
mikilvægt að hægt sé að ganga að
upplýsingum um framboð á
ákveðnu námi eða námskeiðum
hvar sem er á landinu.
Upplýsingaveitan verður opnuð
almenningi í byrjun næsta árs og
með frekari þróun og viðbótum í
Viku símenntunar 2002.
Vika símenntunar er kjörinn
vettvangur til að koma á framfæri
námskeiðum, verkefnum, góðum
hugmyndum og almennri umræðu
um mikilvægi símenntunar. Á veg-
um átaksins verður efnt til kynn-
ingarherferðar um mikilvægi sí-
menntunar, með áherslu á tölvur
og tungumál en einnig verður mik-
ilvægi símenntunar almennt gerð
góð skil. Vefsíða viku símenntunar
er www.mennt.is/simenntun
Höfundur er framkvæmdastjóri
MENNTAR.
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 2001 39
NESSTOFA er eitt elsta steinhús
landsins, byggð upp úr 1760. Þar bjó
fyrsti landlæknir Íslands og þar er nú
vísir að lækningaminjasafni. Húsið
stendur eins og perla í landslaginu.
Hafa Seltirningar lagt töluvert á sig
til að tryggja að ekkert skyggi þar á
eins og undirskriftasöfnun stórs hluta
íbúa sýndi fyrir fimm árum. Sú und-
antekning hefur verið á, að byggja
mætti lækningaminjasafn norðan
Nesstofu. Voru þeirri byggingu sett
mjög ströng skilyrði um aðlögun að
umhverfi.
Aðför að lækningaminjasafni
Nú hefur það gerst, að meirihluti
sjálfstæðismanna í bæjarstjórn hefur
samþykkt að á safnlóðinni skuli reisa
60 vistmanna hjúkrunarheimili. Í
kynningu kom fram ákveðinn vilji
stjórnenda Eirar um að stækka
mætti heimilið um rúmlega helming
og æskilegt væri að reisa þjónustu-
íbúðir í nágrenni þess. Nánast engin
umræða fór fram um þetta í bæjar-
stjórn, meirihlutinn stöðvaði með
hörku möguleika á lýðræðislegri um-
fjöllun. Um leið ýtti meirihlutinn út af
borðinu tillögu Neslistans um annan
valkost, en þar var lögð áhersla á
vandaða og hraða málsmeðferð.
Aðför að staðreyndum
Samþykkt sjálfstæðismanna bygg-
ist á tveimur röngum forsendum. Sú
fyrri segir að byggingarnefnd Nes-
stofusafns hafi skilað úthlutaðri lóð.
Þetta er ekki rétt. Nefndin skilaði af
sér umboði sínu eftir að ljóst varð að
ekkert yrði af fjárframlögum ríkisins
næstu árin vegna endurbyggingar
Þjóðminjasafns. Læknafélag Íslands,
sem var aðili að nefndinni, hefur stað-
fest í tvígang við bæjarstjórn, nú síð-
ast fyrir nokkrum dögum, að ekki sé
hætt við byggingu lækningaminja-
safns. Þjóðminjavörður hefur sagt
það sama í bréfi til bæjarstjórnar 13.
júlí sl. Átti þjóðminjavörður fund með
bæjarstjóra á sl. hausti einmitt til að
ræða byggingamál safnsins. Mennta-
málaráðherra er sama sinnis í viðtali
við Mbl. 22. ágúst. Því er það með öllu
óskiljanlegt að Sigurgeir Sigurðsson
bæjarstjóri skuli halda öðru fram.
Hin forsendan er meira í ætt við
brandara. Með samþykkt sinni út-
hlutar meirihluti sjálfstæðismanna
lóð lækningaminjasafns undir 60
manna hjúkrunarheimili. Lóðin er
staðfest skv. lóðablaði vera 3.489 fm.
Hjúkrunarheimilið er 4.000 fm, á
einni hæð, og á þá eftir að gera ráð
fyrir öllu sem tilheyra á lóð. Sá sem
getur komið 4.000 fm húsi fyrir á tæp-
lega 3.500 fm lóð ætti að eiga auðvelt
með að koma úlfalda í gegnum nál-
arauga. Þótt því sé hnýtt aftan í tillög-
una að tæknideild eigi að gera tillögu
um lóðarstærð þá er það einungis lóð
safnsins sem er til ráðstöfunar.
Bæjarstjóri sagði í umræðunni og
hafa þau orð gengið aftur í opinberri
umræðu, að lækningaminjasafni hefði
aldrei verið úthlutuð lóðin. Hvað
segja eftirfarandi staðreyndir um
þetta:
Bæjarstjóri staðfesti byggingar-
reit fyrir safnið í bréfi dagsettu 13.
nóvember 1996. Skipulagsnefnd Sel-
tjarnarness samþykkti lóðarblað fyr-
ir lækningaminjasafn á fundi 3. nóv-
ember 1997. Er lóð safnsins þar 3.489
fermetrar. Byggingarnefnd Seltjarn-
arness samþykkti á fundi 21. janúar
1998 teikningar fyrir lækningaminja-
safn, að hluta byggt inn í landslagið.
Og ekki má gleyma því að formaður
skipulagsnefndar og forseti bæjar-
stjórnar á þeim tíma, Erna Nielsen,
var fulltrúi bæjarstjórnar í bygging-
arnefnd safnsins. Erna vann vel og
samviskulega í nefndinni. Er næsta
ótrúlegt að bæjarstjóri skuli ætla
henni það, að leiða nefndina út í 15
milljón króna hönnunarkostnað, væri
lóðin ekki til reiðu. Þetta er athygl-
isvert framlag hans í þá prófkjörsbar-
áttu, sem er framundan vegna bæj-
arstjórnarkosninga.
Aðför að lýðræði
Hollt er að rifja upp þau rök bæj-
arstjóra að ekki þyrfti að ræða málið í
fagnefndum. Skipulagsnefnd hefði
ekkert með málið að gera, en nefndin
hafði afgreitt lóð undir
848 fm safn á svæðinu,
sem er lagt að jöfnu
við 4.000 fm hjúkrun-
arheimili. Félagsmála-
ráði litist ábyggilega
vel á tillöguna. Um-
hverfisnefnd var ekki
virt viðlits þó að nefnd-
in hafi staðið vörð um
svæðið. Hnykkti bæj-
arstjóri á um þetta
með því að segja, að
allir vissu að þetta
væri best svona. Í orð-
leysi mínu yfir þessum
dæmalausa málflutn-
ingi rifjaðist upp fyrir
mér ferð mín til Júgóslavíu og Ung-
verjalands ásamt fulltrúum annarra
norrænna stúdentaráða árið 1969.
Talsmenn ungverskra stúdenta í
þeim viðræðum voru samanreknir
karlar á miðjum aldri, dæmigerðir
„apparatchik“. Einn okkar spurði í
tilbúnu sakleysi hvernig stæði á því
að stúdentar sjálfir væru ekki með
fulltrúa í viðræðunum. Eftir töluvert
fát kom svarið frá einum aðstoðar-
mannanna um leið og hann benti á
forsvarsmanninn: „Hann veit hvað er
stúdentum fyrir bestu.“
Aðför að Nesstofu
Aðförin að safninu skýrist best með
þessu einfalda dæmi:
Nesstofa er 240 ára gamalt stein-
hús, um 120 fm að grunnfleti.
Fyrirhugað lækningaminjasafn er
848 fm að grunnfleti, falið
í landslaginu.
Fyrirhugað hjúkrun-
arheimili er 4.000 fm að
grunnfleti og stækkar
væntanlega upp í rúma
6.000 fm. Það er staðsett
miklu framar í landinu,
þar sem samstaða hefur
verið um að byggja ekki.
Hafi einhver hugsað
sér að eyðileggja sjón-
rænt jafnvægi Vestur-
svæðisins; hafi einhver
hugsað sér að draga úr
sjónrænni reisn Nes-
stofu; hafi einhver hugs-
að sér að koma í veg fyrir
tengsl lækningaminjasafns og Nes-
stofu þá hefur meirihlutinn markað
leiðina.
Enn má koma í veg fyrir þetta
fyrirhugaða menningarsögulega
skemmdarverk og umhverfisspjöll.
Fyrir liggur tillaga um byggingu
hjúkrunarheimilis á fyrirhugaðri
uppfyllingu sem kallar á samvinnu við
Reykjavík. Forystumenn skipulags-
mála í Reykjavík hafa mikinn áhuga á
þeim hugmyndum.
Málið á ekki að snúast um flokka-
pólitík. Því eru allir þeir, sem unna
náttúrufari Vestursvæðisins og
menningarverðmætum, hvattir til að
láta til sín heyra.
Aðför að
Nesstofu
Högni Óskarsson Nes
Enn má koma í veg fyr-
ir, segir Högni Óskars-
son, þetta fyrirhugaða
menningarsögulega
skemmdarverk og um-
hverfisspjöll.
Höfundur er læknir og annar
fulltrúi Neslistans í bæjarstjórn
Seltjarnarness.
arbreytingar á lögum um stjórn
fiskveiða og lögum um þróun-
arsjóð.“
og síðar í greininni:
„Þorsteinn sagði að það hefði
verið mjög brýnt að ná sam-
komulagi við Landssamband
smábátaeigenda og það sam-
komulag væri í mjög góðu jafn-
vægi þegar tekið væri tillit til
þróunarinnar síðustu árin.“
og Þorsteinn bætir við:
„Það ætti að vera stórútgerðinni
í landinu keppikefli að skapa frið
um fiskveiðarnar. Ég sé ekki að
hún bæti stöðu sína með því að
vera í endalausum stríðsátökum
við minni báta og trillukarla.“
Undirritaður taldi rétt að koma
þessu á framfæri þannig að les-
endur blaðsins fái rétta mynd af
gangi mála á þessum tíma. Þó ekki
hafi verið undirritað samkomulag,
lék enginn vafi á að samkomulag
var gert og við samkomulag á að
standa.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Landssambands smábátaeigenda.