Morgunblaðið - 04.09.2001, Síða 56
56 ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Álfabakka 8, sími 587 8900 og 587 8905
FYRIR
1250 PUNKTA
FERÐU Í BÍÓ
www.sambioin.is
Sýnd kl. 8. Vit 243.
strik.is
Ó.H.T.Rás2
Kvikmyndir.com
Hugleikur
ÚR SMIÐJU
LUC BESSON
Sýnd kl. 6. Ísl tal. Vit 258.
Sýnd kl. 6, 8 og 10. Enskt tal. Vit 265. Sýnd kl. 10. B.i.16 ára. Vit nr. 257.
ÓHT Rás2
Kvikmyndir.is
Fantagóður kraftur er allt sem þarf. Óvæntasti smellur þessa
árs. Sló eftirminnilega í gegn í Bandríkjunum einum.
Ef þú hefur það sem þarf
geturðu fengið allt.
f f f
t r f i llt.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.10. B.i. 12. Vit . 256
DV
strik.is
kvikmyndir.is
Kvikmyndir.com
SV MBL
DV
strik.is
kvikmyndir.com
kvikmyndir.is
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Vit nr. 267
Tvíhöfði/Hugleikur
Hausverk.is
USA TODAY
1/2
NY POST
Ísl tal. Sýnd kl. 6. Vit nr. 245
Enskt tal. Sýnd kl. 8.10 og 10. Vit nr. 244
HÁSKÓLABÍÓ
þar sem allir salir eru stórir
STÆRSTA bíóupplifun ársins er hafin!
Eruð þið tilbúin?
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i.10.
Hagatorgi www.haskolabio.is sími 530 1919
Sýnd kl. 6 og 10.
Kvikmyndir.com
DV
RadioX
Sýnd kl. 8. B.i. 12.
1/2 Kvikmyndir.com
H.L. Mbl.
H.K. DV
Strik.is
ÓHT Rás 2
1/2 i ir.
. . l.
. .
tri .i
betra er að
borða graut-
inn saman en
steikina einn
TILLSAMMANSTILL S
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
DV
Stærsta mynd ársins
yfir 45.000. áhorfendur
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Ef þú hefur það sem þarf
geturðu fengið allt.
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. B.i.12 ára.
Kvikmyndir.com
Kvikmyndir.is
Tvíhöfði/Hugleikur
Hausverk.is
USA TODAY
1/2
NY POST
VICTORIA Beckham, gamla
„snobb-kryddið“, sakar fyrrverandi
vinkonu sína Geri Halliwell um að
hafa raskað átvenjum sínum. Þetta
kemur fram í nýútkominni sjálfs-
ævisögu Beckham, Learning To
Fly, þar sem hún viðurkennir í
fyrsta sinn að hafa glímt við átrösk-
un. Hún segir að þegar þær Krydd-
stelpur bjuggu saman, í upphafi
ferilsins, hafi Halliwell hvatt sig til
þess að fara í stórhættulega megr-
un. Halliwell, sem sjálf hefur háð
baráttu við lystarstol og lotu-
græðgi, á samkvæmt Beckham að
hafa kennt vinkonum sínum nokkr-
ar vafasamar og miður heilsu-
samlegar brellur, sem hún taldi að
myndu halda línunum í skorðum,
þ.á m. að sötra megrunarmjólk-
urhristing og háma í sig morgun-
korn í öll mál í stað þess að borða
almennilegan mat. „Ég breyttist
mikið við þetta, frá því að vera af
og til í megrun í að vera haldin þrá-
hyggju út af línunum.“
Hún segist hafa lagast mikið þeg-
ar hún gekk með soninn Brooklyn
en eftir fæðinguna hafi baráttan
við línurnar aftur tekið völdin í lífi
hennar, að hluta til vegna þess að
hún var heltekin af því að líta vel út
á brúðkaupsdaginn.
Hún segist hins vegar hafa náð
fullum tökum á þessum vanda sín-
um í dag og það hafi hún gert með
aðstoð fjölskyldu, góðra vina og
sérfræðinga.
Í bókinni játar Victoria jafnframt
að hafa kýlt eiginmann sinn,
knattspyrnustjörnuna David
Beckham, eftir að upp komu
ásakanir um að hann hefði átt í
ástarsambandi við aðra konu. Vikt-
oría segir barsmíðarnar hafa átt
sér stað meðan hún var þunguð.
Hún notar líka tækifærið til að
neita ýmsum orðrómi sem heyrst
hefur í gegnum árin, þ.á m. að hún
hafi látið stækka á sér brjóstin, og
bendir á að það séu fleiri aðferðir
til að láta barminn sýnast stærri en
hann í raun er.
Það er annars af stúlkunni að
frétta að hún er um það bil að gefa
út sína fyrstu einherjaskífu og
vinnur hörðum höndum að því að
kynna hana.
Menn velta hins vegar vöngum
yfir því hvernig einherjaferillinn
muni ganga. Fyrstu viðtökur hafa í
það minnsta ekki verið alltof upp-
lífgandi því á tónleikum um helgina
í borginni Leicester var hún grýtt
með góðu úrvali af ávöxtum og
grænmeti. Hún lét það ekki á sig fá
og kláraði dagskrána af stakri fag-
mennsku, klædd svörtu leðurdressi.
Victoria Beckham gefur út sjálfsævisögu
Kennir Geri um átröskun sína
AP
Victoria var með línurnar í lagi
á tónleikum helgarinnar.
HANN verður seint verðlaunaður
fyrir afköst, rómantíkerinn óbilandi
hann Paddy McAloon. Ferill Prefab
Sprout spannar nú
heila tvo áratugi og
afraksturinn er ein-
ar sjö plötur, að
þessari nýjustu
meðtalinni.
Fyrir tæpum
áratug greip karl-
inn eitthvert sveitasöngvaæði er hann
samdi tónlistina við sjónvarpsþættina
Crocodile Shoes og þrátt fyrir að síð-
asta platan, Andromeda Heights, hafi
gefið annað til kynna þá virðist hann
enn vera við sama heygarðshornið.
Sem er alls ekki svo slæmt því karlinn
er býsna sleipur í sveitarómantíkinni.
Það sem mestu máli skiptir er að
The Gunman and Other Stories bætir
fyrir mistökin sem forverinn var í nær
einu og öllu. Lögin eru sterkari, yf-
irbragðið lágstemmdara og vemmi-
legheitin að mestu horfin. En þó ekki
alveg. Rómantík er hið besta mál og
ekkert að því að skreyta tónlistina
smásírópi þar sem við á en McAloon
hefur hætt til að hella heldur ótæpi-
lega úr krukkunni og gerir á stöku
stað hér. Þáttur Viscontis veldur þar
að auki vonbrigðum, útsetningar og
upptökustjórn á stöku stað hallæris-
lega gamaldags.
Á plötunni eru samt alveg nógu
margar Prefab Sprout-perlur til að
hægt sé að mæla með henni við unn-
endur McAloons, lög á borð við
„Cowboy Dreams“, „Love Will Find
Someone For You“ og „The Gun-
man“. Tónlist
Sveitasæla
Prefab Sprout
The Gunman and Other Stories
Liberty/Skífan
Sjöunda breiðskífa hljómsveitar Paddys
McAloons sem nú nýtur aðstoðar gamla
upptökustjóra Davids Bowies, Tonys Vis-
contis.
Skarphéðinn Guðmundsson
♦ ♦ ♦