Morgunblaðið - 08.09.2001, Side 26
ERLENT
26 LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
LEIÐTOGAR arabaþjóða heita
jafnan Palestínumönnum aðstoð í
baráttunni gegn Ísraelum þegar
þeir koma saman á fundum en
minna hefur orðið úr efndum. Að
sögn The Los Angeles Times er
einföld ástæða fyrir því að stærsta
arabaþjóðin, Egyptar, er svo var-
kár: þeir setja frið ofar öllu.
Þriggja klukkustunda löng, leikin
kvikmynd um ævi Anwars heitins
Sadats forseta, er samdi við Ísr-
aela um frið 1977, hefur nú verið
sýnd í meira en sex vikur fyrir full-
um húsum í landinu. Vekur athygli
að ungt fólk flykkist á myndina.
Framleiðandi myndarinnar íhug-
aði um hríð að bíða með að frum-
sýna hana vegna uppreisnar Pal-
estínumanna er staðið hefur í 11
mánuði og óttaðist að andúð á
stefnu Ísraela myndi valda því að
áhorfendur sætu heima. En stuðn-
ingurinn við friðarstefnu virðist
ekki minni meðal almennings nú
en 1977 er Sadat tók þá afdrifaríku
ákvörðun að fara í friðarheimsókn
til Ísraels og ávarpa þing landsins.
„Fólk styður Palestínumenn en
stuðningurinn er ekki af því tagi
að hægt sé að hefja stríð vegna
málstaðar þeirra,“ segir Abdel
Monem Said, yfirmaður rann-
sóknastofnunarinnar Al Ahram í
Kaíró.
Islamskir heittrúarmenn myrtu
Sadat er hann var viðstaddur her-
sýningu 1981. Í myndinni, sem
hefst um 1970, er reynt að skyggn-
ast á bak við atburði í lífi forsetans
en ekki er mikið um dramatíska at-
burði. Sadat er sýndur á fundum,
við skrifborðið, á gangi í garðinum.
Inn á milli er þó skotið inn bútum
úr svarthvítum heimildarmyndum.
Fundið hefur verið að því að reynt
sé að hvítþvo forsetann en þess má
geta að skömmu áður en hann var
myrtur lét hann handtaka fjölda
pólitískra andstæðinga. Aðrir segja
að reynt hafi verið að þóknast öll-
um sjónarmiðum að einhverju
marki og gagnrýna myndina fyrir
stefnuleysi.
Sadat var á sínum tíma í hópi
ungra liðsforingja er átti samstarf
við stjórn Adolfs Hitlers í Þýska-
landi um að grafa undan breskum
áhrifum í Egyptalandi með njósn-
um. Er Gamal Abdel Nasser stóð
fyrir byltingu og hrakti síðasta
konung landsins, Farúk, úr landi
1952 var Sadat meðal byltingar-
manna.
Hosni Mubarak, núverandi for-
seti, var sérstaklega hrifinn af einu
atriði myndarinnar. „Mig langar að
segja ykkur frá einni mikilvægustu
ákvörðun sem ég hef tekið í lífinu.
Ég hef valið mér varaforseta,
Hosni Mubarak.“ Hefur Mubarak
veitt sex leikurum og öðrum að-
standendum myndarinnar orður í
viðurkenningarskyni.
Friðarvilji í Egyptalandi
Mynd um Sadat
fær metaðsókn
Reuters
Vegfarendur í Kaíró á leið fram-
hjá stóru veggspjaldi á kvik-
myndahúsi sem sýnir myndina
um ævi Anwars Sadats.
JAPANSKT efnahagslíf dróst sam-
an um 0,8% á öðrum ársfjórðungi og
sýnir svo ekki verður um villst, að
nýtt samdráttarskeið er hafið í Jap-
an. Hefur Junichiro Koizumi, for-
sætisráðherra landsins, brugðist við
tíðindunum með því að boða auka-
fjárlög eða aukin ríkisútgjöld til að
örva efnahagslífið.
Koizumi sagði í gær, að ástandið í
efnahagsmálunum væri grafalvar-
legt, en miðað við tölurnar fyrir ann-
an ársfjórðung er samdráttur í
vergri þjóðarframleiðslu 3,2% yfir
allt árið. Ætlar Koizumi að bregðast
við með því auka ríkisútgjöldin en á
sama tíma boðar hann umbætur,
sem óhjákvæmilega munu auka á
kreppuna í nokkurn tíma áður en
þær fara að skila árangri. Þá er eink-
um átt við, að ríkið hætti miklum og
oft marklausum byggingarfram-
kvæmdum víða um landið og taki til
við að hreinsa upp gífurlegar skuldir
í bankakerfinu.
Samdráttur hefur verið í japönsku
efnahagslífi tvo ársfjórðunga í röð og
ljóst þykir, að svo verði einnig á þeim
þriðja. Það fer því ekki á milli mála,
að eiginlegt samdráttarskeið er haf-
ið, en erlendir efnahagssérfræðingar
segja, að Koizumi og aðrir ráðamenn
geri sér ekki fulla grein fyrir því hve
ástandið er alvarlegt.
Frammámenn í atvinnulífinu
skoruðu í gær á stjórnvöld að bregð-
ast hart við ástandinu í efnahagsmál-
unum og horfast í augu við það, að
kreppa væri á næsta leiti. Sögðu
þeir, að efnahagslífið væri í hraðri
afturför, og ljóst væri, að úr því
myndi ekki rætast alveg á næstunni.
Kjör japansks almennings hafa
versnað allmikið síðasta áratuginn
og atvinnuleysið aukist. Það er nú
opinberlega 5% en margir segja, að
10% séu nær réttu lagi. Um 75%
launþega vinna hjá smáum eða með-
alstórum fyrirtækjum og hagnaður
þeirra hefur minnkað mikið eða horf-
ið alveg og mörg orðið gjaldþrota. Í
landinu er ekki verðbólga, heldur
verðhjöðnun, og hún ýtir ekki undir
neyslu eins og ætla mætti. Fólk held-
ur að sér höndum í von um enn meiri
verðlækkun og fyrirtækin sitja uppi
með lítt seljanlegar birgðir.
Nýtt samdráttar-
skeið hafið í Japan
Tókýó. AFP.
NIÐURSTÖÐUR fyrstu lýðræðis-
legu kosninganna á Austur-Tímor
urðu þær að sjálfstæðishreyfingin
Fretilin hlaut 57% atkvæða. Flokk-
urinn fær að sögn eftirlitsmanns
Sameinuðu þjóðanna, Carlos Val-
enzuela, 55 af 88 þingsætum.
Fretilin fær því ekki tvo þriðju
hluta þingsætanna sem hefðu gert
flokknum kleift að samþykkja eigin
tillögur að stjórnarskrá án stuðn-
ings annarra flokka eða þingmanna.
Næstmest fylgi fékk Lýðræðis-
flokkurinn með 8,72% og sjö þing-
sæti.
Sergio Vieira de Mello, aðalfull-
trúi SÞ í landinu, sagði að kosning-
arnar hefðu farið einstaklega vel
fram og formaður Fretilin lýsti
ánægju sinni, taldi niðurstöðurnar
geta tryggt friðinn. Úrslitin verða
staðfest opinberlega á mánudag.
Fretilin hlaut 57%
Dili. AP.
Kosningarnar á Austur-Tímor
TONY Blair, forsætisráðherra
Bretlands, grípur í gítar og tón-
listarneminn Andrew Cragg, 15
ára, spilar á saxófón í gær, þegar
Blair heimsótti menntunarmið-
stöðina í Dyke House-skólanum í
Hartlepool á Norður-Englandi.
Blair var á unglingsárum í rokk-
hljómsveit og sýnist höndla
Fender Telecaster-gítarinn af
fagmennsku en ekki hafa borist
fregnir af viðtökum áheyrenda.
Fimmti Bítillinn?
AP