Morgunblaðið - 08.09.2001, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 08.09.2001, Blaðsíða 27
NEYTENDUR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 2001 27 ÚRVAL af lífrænt ræktuðu græn- meti og ávöxtum í stórmörkuðum er mismikið og hefur enginn þeirra sérstaka deild fyrir slíka vöru. Talsmenn þeirra stórmark- aða sem bjóða upp á lífrænar vörur telja innflutning ekki borga sig og segja margir að fremur lítið framboð sé á íslenskri framleiðslu. Nokkrar stórverslanir bjóða hins vegar upp á úrval annars konar líf- rænna vara til dæmis þurrvörur, kjöt, mjólk, sultu, niðursuðuvörur og brauð og þykir markaður fyrir slíkar vörur fara vaxandi. Hætt við sölu í Fjarðarkaupum Ekki er boðið upp á lífrænt grænmeti og ávexti í Fjarðarkaup- um um þessar mundir en hins veg- ar er sérstök deild í versluninni með um hundrað tegundir af ann- ars konar lífrænum vörum, að sögn Gísla Sigurbergssonar, kaup- manns í Fjarðarkaupum. „Við reyndum að vera með úrval af bæði innfluttu og íslensku græn- meti og einnig ávöxtum í vor en það gekk einfaldlega ekki, enda sú vara 20–30% dýrari en venjulega varan. Kúnnahópurinn er ekki orð- inn nógu stór og þeir sem eru að leita eftir lífrænum vörum fara frekar í sérverslanir.“ Hann segir að á næstunni verði aftur reynt að taka inn nokkrar algengar tegund- ir eins og lífrænt ræktaðar gulræt- ur, tómata, gúrkur, epli, appels- ínur og banana. Lítil sala í Nýkaupi Í Nýkaupi var í vetur selt inn- flutt lífrænt grænmeti og ávextir en því var fljótlega hætt vegna lít- illar sölu, að sögn Árna Ingvason- ar, kaupmanns í Nýkaupi. „Núna seljum við þær íslensku tegundir sem í boði eru hverju sinni en framboðið er ekki mikið. Af annars konar lífrænum vörur bjóðum við um hundrað vörutegundir. Við teljum að áhugi fyrir lífrænum vörum sé að aukast og stefnum að því að auka vöruúrvalið á næstu mánuðum.“ Takmarkað magn af innfluttu í Nóatúni Í Nóatúni hefur íslenskt lífrænt grænmeti verið á boðstólum í sum- ar og hefur salan gengið vel, að sögn Jóns Þorsteins Jónssonar, markaðsstjóra Nóatúns. „Við erum með samning við íslenskan fram- leiðanda sem hefur séð okkur fyrir gúrkum, tómötum, papriku, gul- rótum og kryddjurtum sem fengist hafa í allt sumar.“ Hins vegar höf- um við verið með takmarkað magn af innfluttu grænmeti og ávöxtum, það er mun dýrara en venjuleg vara og hefur því ekki selst vel.“ Hann segir að boðið sé upp á nokkrar vörutegundir af annars konar lífrænum vörum sem fari fjölgandi. Sérstök deild í Hagkaupi í Smáralind Í Hagkaupi hefur íslenskt líf- rænt grænmeti einnig verið fáan- legt í sumar að sögn Finns Árna- sonar, framkvæmdastjóra Hag- kaups. „Við höfum boðið nokkrar teg- undir, meðal annars tómata, papr- iku, salat, agúrku og kryddjurtir. Við reyndum í vetur að flytja inn lífrænt grænmeti og ávexti en það gafst ekki nógu vel.“ Boðið er upp á um hundrað og fimmtíu annars konar lífrænar vörutegundir að sögn Finns. „Í nýrri verslun okkar í Smáralind stendur til að hafa sérstaka deild með lífrænum vörum en nú eru lífrænu vörurnar með öðrum vörum í þeim flokkum sem þær tilheyra.“ Hann telur að þótt salan sé ekki mikil ennþá fari hópurinn sem leitar eftir lífrænum vörum stækkandi. Ekki seldar lífrænar vörur í Nettó og Bónus Í Nettó eru ekki seldar lífrænar vörur og segir Gísli Gíslason, inn- kaupastjóri hjá Matbæ, ekki mikla eftirspurn eftir þeim. „Lífrænu vörurnar eru vandmeðfarinn flokk- ur og mun dýrari en aðrar vörur, við höfum ekki séð ástæðu til að fara á þann markað.“ Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónuss, tekur í sama streng, en þar eru heldur ekki seldar lífræn- ar vörur. „Vöruúrval okkar miðar að því að uppfylla þarfir neytenda en hingað til hefur ekkert verið spurt um lífrænar vörur og því sjáum við ekki ástæðu til að vera með þær. Ef eftirspurn fer að aukast kemur vel til greina að taka slíkar vörur inn.“ Fremur lítið úrval lífræns ræktaðs grænmetis og ávaxta í stórmörkuðum Úrval lífrænna vara, svo sem grænmetis og ávaxta, er mest í sérverslunum en stórmarkaðir eru þó í auknum mæli að fikra sig á þá braut. „FYRIR fimmtán árum þegar við vorum að byrja með lífrænar vörur vissi nánast enginn hvað við vorum að tala um og fannst þetta hálf- skrítið, við höfum þó þraukað og síðustu fjögur árin hefur eftirspurn aukist mjög,“ segir Rúnar Sig- urkarlsson annar eigandi Ygg- drasils sem er verslun sem selur eingöngu lífrænar vörur. „Fyrst var þetta mjög þröngur hópur sem keypti inn hjá okkur, helst fólk sem hafði verið blómabörn en nú kemur fólk á öllum aldri og úr öllum stétt- um.“ Í versluninni eru seldir upp undir þúsund vöruliðir og eru gul- rætur og kartöflur vinsælustu vör- urnar að mati Rúnars. Hann segir mjög aukna eftirspurn vera eftir líf- rænum vörum í öðrum löndum en Íslendingar hafi ekki verið fljótir að taka við sér í þeim efnum. „Fréttir af gin- og klaufaveiki og umræða um erfðabreytt matvæli hafa ýtt undir eftirspurn í Evrópu.“ Jóhanna Kristjánsdóttir inn- kaupastjóri Heilsu sem rekur Heilsuhúsið segir lífrænar vörur vera betra hráefni en annað. „Síð- ustu tvö árin hefur eftirspurn auk- ist gífurlega, fólk virðist í æ ríkari mæli vera tilbúið til að borga hærra verð fyrir að fá lífræna vöru.“ Í Brauðhúsinu Grímsbæ er ein- göngu selt lífrænt brauðmeti og segir Guðmundur Guðfinnson þá stefnu hafa verið tekna fyrir þrem- ur árum. „Við kaupum lífrænt korn að utan sem við mölum og bökum úr bæði brauð og kökur.“ Að- spurður segir hann speltbrauð vera vinsælasta brauðið um þessar mundir. Áhugi á lífrænum vörum er sífellt að aukast, að sögn Súsönnu Ein- arsdóttur deildarstjóra hjá Blóma- val en þar er selt íslenskt og erlent lífrænt grænmeti og ávextir ásamt fleiri lífrænum vörum. Hún bendir á að verð ráði miklu um hvaða teg- undir seljist best. „Við seljum mest af íslensku framleiðslunni, til dæm- is gulrótum og kartöflum, en þar er ekki svo mikill verðmunur á milli lífrænu varanna og hinna venju- legu, til dæmis er hann 38% á gul- rótum og á papriku 32%. Á erlendu framleiðslunni er hins vegar mun meiri munur, til dæmis er hann 148% á eplum og á banönum 109%,“ segir hún og bætir við að verðið sé nokkuð breytilegt eftir tímabilum. Salan gengur vel í sérverslunum „NEYTENDUR sem velja líf- rænar vörur fá hreinni vöru og margir telja hana líka bragðbetri,“ segir dr. Ólafur R. Dýrmundsson ráðunautur Bændasamtaka Íslands í líf- rænum búskap og landnýt- ingu. „Lífræn ræktun felur í sér að ekki er notaður tilbú- inn áburður heldur lífrænn sem stuðlar að langtíma upp- byggingu á frjósemi jarð- vegs, ekki eru notuð eitur- efni og hefðbundin lyf, bannað er að nota erfða- breyttar lífverur og mjög vel er farið með búfé, til dæmis er bannað að hafa hænur í búrum. Þannig eru bæði heilsufarsleg, umhverfis- og búfjárverndarsjónarmið sem valda því að margir kjósa líf- rænar vörur.“ Við komin skemmra en margar þjóðir Neytendahópurinn stækkar ört að mati Ólafs en þó eru Íslendingar komnir skemmra á þessari braut en margar aðrar þjóðir. „Í Svíþjóð eru rúmlega 10% af allri land- búnaðarframleiðslu lífræn á meðan hún er innan við 1% hér á landi.“ Hann segir ís- lenska bændur í lífrænum bú- skap ekki anna eftirspurn en mest selst af grænmeti. „Líf- ræn framleiðsla er það sem koma skal. Hér hafa aðallega sérverslanir verið í þessum geira en stórmarkaðir minna. Ég býst við að úrval og eft- irspurn aukist til muna að minnsta kosti ef við erum í takt við nágrannalöndin þar sem í stórmörkuðum finnast veglegar, glæsilegar deildir tileinkaðar lífrænum vörum.“ Bragð- betri og hreinni vara Morgunblaðið/Arnaldur Verðið oft hátt og salan því lítil
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.