Morgunblaðið - 27.09.2001, Page 2
Gallup-könnun
um hryðjuverkin
NÍUTÍU prósent þeirra Íslend-
inga sem tóku þátt í könnun
Gallup eru þeirrar skoðunar að
framselja eigi hryðjuverka-
mennina sem áttu sök á hryðju-
verkunum í Bandaríkjunum 11.
september sl. og draga þá síðan
fyrir dómstóla. Þetta hlutfall
mældist hvergi hærra nema í
Mexíkó en Gallup gerði könnun
meðal íbúa 30 aðildarlanda sinna
þar sem spurt var um hryðju-
verkin. Aðeins 30% Banda-
ríkjamanna sögðu að framselja
ætti ódæðismennina en 54%
vildu gera árás á það land sem
hýsir hryðjuverkamennina. 77%
Ísraela vildu gera árás.
Úrtakið á Íslandi var 987
manns á aldrinum 16 til 75 ára
sem valdir voru tilviljanakennt
úr þjóðskrá. Svarhlutfallið var
tæplega 70%.
Önnur spurning vék að því
hvort Bandaríkin ættu að ráðast
aðeins á hernaðarsvæði eða
bæði hernaðarsvæði og borg-
araleg svæði kæmi til árásar og
svöruðu 80% íslensku þátttak-
endanna að aðeins ætti að ráðast
á hernaðarsvæði. Hlutfallslega
fæstir svöruðu á þessa leið í
Bandaríkjunum, Ísrael og Pak-
istan.
Skiptar skoðanir um
hernaðaraðgerðir
Afstaða til þess hvort viðkom-
andi lönd ættu að taka þátt í
hernaðaraðgerðum með Banda-
ríkjunum gegn hryðjuverkum
var misjöfn eftir löndum þar
sem stuðningur var mestur í
Danmörku, Bretlandi og Ind-
landi en minnstur í Finnlandi og
Venesúela. 41% Íslendinga er
hlynnt því að Ísland taki þátt í
hernaðaraðgerðum, 51% er and-
vígt og 9% tóku ekki afstöðu eða
neituðu að svara.
Könnunin sýnir einnig að 40%
landsmanna telja að efnahags-
kreppa fylgi í kjölfarið en 48%
eru á þeirri skoðun að hryðju-
verkin komi ekki til með að hafa
langtímaáhrif á efnahag heims-
ins. Þessari skoðun var deilt
með yfir 50% íbúa Danmerkur,
Noregs og Finnlands.
Draga á
ódæðis-
mennina
fyrir dóm
FRÉTTIR
2 FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isGunnar hafði betur í Íslendinga-
slagnum í Frakklandi / B4
ÍR, Valur og Haukar unnu leiki sína
í handboltanum / B2, B3
4 SÍÐUR16 SÍÐUR
Sérblöð í dag
VIÐSKIPTABLAÐ MORGUNBLAÐSINS
S É R B L A Ð Á F I M M T U D Ö G U M U M V I Ð S K I P T I , S J Á V A R Ú T V E G & A T H A F N A L Í
Sveiflur á mörkuðum
erlendis meiri en hér / C1
Hvergi skjól fyrir
sköttum / C8
Með Morgun-
blaðinu í dag
fylgir blað frá
Garðabæ,
„Atvinnulíf
í Garðabæ“.
Blaðinu verður
dreift á
höfuðborgar-
svæðinu.
FLUGFÉLÖGIN Atlanta og Flug-
leiðir hafa hert verulega allar ör-
yggisreglur um borð í vélum sínum
vegna hryðjuverkanna í Bandaríkj-
unum 11. september sl. Félögin
gefa þó mismiklar upplýsingar um
til hvaða ráðstafana þau grípa.
Samkvæmt upplýsingum frá
Atlanta var þeim skilaboðum ný-
lega komið á framfæri við allar
áhafnir félagsins að dyr að flug-
stjórnarklefa verða framvegis ekki
aðeins að vera lokaðar heldur einn-
ig læstar. Þá er umgangur farþega
fram í klefann bannaður og reglur
hertar um það hverjir eigi að vera
inni í klefanum meðan á flugi
stendur. Meðferð hvers konar bit-
vopna og oddhvassra hluta verður
bönnuð um borð og flugliðar verða
ætíð að vera til taks á efra þilfari í
Boeing 747 vélum sem félagið flýg-
ur.
Að sögn Guðjóns Arngrímssonar,
upplýsingafulltrúa Flugleiða, starf-
ar félagið eftir alþjóðlegum stöðlum
í öryggismálum um borð í flugvél-
unum. Eftir árásina í Bandaríkj-
unum hefur því verið komið á fram-
færi til áhafna, bæði í Evrópuflugi
og ekki síst í flugi til Bandaríkj-
anna, að herða á öllu eftirliti og
fylgja strangt eftir þeim reglum
sem gilda. Ákvörðun hefur verið
tekin um að taka úr sölu ákveðnar
vörur um borð í flugvélunum sem
nota má sem vopn, t.d. skæri í
snyrtiveskjum. Að öðru leyti segir
Guðjón að öryggisráðstafanir verði
ekki ræddar opinberlega, það sé
hluti af sömu ráðstöfunum.
Vopnaleit á Reykja-
víkurflugvelli
Hert öryggisgæsla hefur verið á
Keflavíkurflugvelli að undanförnu,
að sögn Jóhanns R. Benediktssonar
sýslumanns, og hafa farþegar og
starfsmenn flugvallarins og flug-
félaga sýnt mikinn skilning á þeim
aðstæðum. Á þetta einkum við um
flug til Bandaríkjanna. Til að fylgja
eftir aukinni öryggisgæslu í bygg-
ingunni eru þar vopnaðir lögreglu-
menn sem starfa hjá sýslumanns-
embættinu.
Einnig stendur til að herða
öryggisgæslu með millilandaflugi á
Reykjavíkurflugvelli og búið er að
koma þar fyrir búnaði til vopnaleit-
ar. Líklegt er að samskonar ráð-
stafanir verði gerðar vegna milli-
landaflugs á Akureyrarflugvelli og
Egilsstaðaflugvelli.
Flugleiðir og Atlanta herða öryggisreglur um borð í vélum sínum
Flugstjórnarklefi læstur
og sala bitvopna bönnuð
ALLSHERJARÞING alþjóðalög-
reglunnar Interpol stendur nú yfir í
Búdapest. Í sendinefnd Íslands á
þinginu eru Haraldur Johannessen
ríkislögreglustjóri, Þórir Oddsson
vararíkislögreglustjóri og Smári
Sigurðsson, yfirmaður alþjóðadeild-
ar ríkislögreglustjóra. Meðal þess
sem fram hefur komið á þinginu er
að stórauka á þjónustu og upplýs-
ingaöflun til aðildarlandanna vegna
hryðjuverkanna í Bandaríkjunum
11. september sl. en atburðirnir hafa
gerbreytt þeirri endurskipulagningu
á Interpol sem stóð fyrir dyrum.
Á þinginu var lögð fram og sam-
þykkt ályktun um aðgerðir gegn al-
þjóðlegri hryðjuverkastarfsemi.
Í ályktuninni er árásin fordæmd
sem „fjöldamorð framið með köldu
blóði“ og talin „glæpur gegn mann-
kyni“ og skorað á aðildarlöndin að
veita aðstoð við rannsóknina án skil-
yrða að því marki sem lög aðildar-
ríkja heimila til að takast megi að
hafa uppi á hverjum þeim einstak-
lingi sem viðriðinn var árásina og
draga hann fyrir rétt.
Fram kom í ræðu nýs fram-
kvæmdastjóra Interpol, Ronalds
Noble, að flýta ætti þeirri endur-
skipulagningu sem undirbúningur
hófst á fyrir tíu mánuðum, eða frá
því að hann tók við embættinu. Hann
sagði að komið hefði verið á sólar-
hringsþjónustu við stofnunina sem
embætti ríkislögreglustjóra segir í
tilkynningu um þingið að sé gjör-
breyting frá því sem verið hefur þeg-
ar skrifstofur Interpol hafa verið
lokaðar á nóttunni. Jafnframt á að
leggja aukna áherslu á að safna sam-
an upplýsingum um hermdarverka-
menn frá öllum aðildarlöndunum,
sem nú eru 179 eftir að aðild Júgó-
slavíu var samþykkt á allsherjar-
þinginu.
Framkvæmdastjóri Interpol
skýrði einnig frá því að hann hefði
beitt sér fyrir niðurfellingu skulda
aðildarríkja sem ekki hafa staðið í
skilum með framlög sín til stofnun-
arinnar og hafa þar af leiðandi ekki
getað sótt fundi. Kvað hann stofn-
unina nú þurfa á öllum aðildarríkj-
unum að halda ef árangur ætti að
nást í þeirri baráttu sem framundan
væri gegn alþjóðlegri hryðjuverka-
og brotastarfsemi. Af þessu tilefni
bauð hann fulltrúa Kúbu sérstaklega
velkomna til þingsins en Kúba hefur
ekki setið allsherjarþing Interpol
um áratuga skeið.
Allsherjarþing Interpol í Búdapest
um hryðjuverkin í Bandaríkjunum
Fordæmd sem
fjöldamorð fram-
ið með köldu blóðiEVRÓPSKI tungumáladagurinnvar haldinn hátíðlegur í gær. Efnt
var til skemmtunar við Austurbæj-
arskóla, þar sem Vigdís Finnboga-
dóttir, fyrrverandi forseti, var heið-
ursgestur. Hún minnti börnin á hve
mikilvæg tungan er, og kenndi
þeim að segja „ég elska þig“ á
nokkrum tungumálum. Kynnt var
örsagna- og ljóðakeppni, fernuflug,
þar sem elstu bekkjum grunnskól-
ans er boðið að spreyta sig á að
semja sögur eða ljóð. Þá var 2001
blöðru sleppt til himins.
Í Háskóla Íslands stóðu Stofnun í
erlendum tungumálum og Hugvís-
indastofnun fyrir dagskrá, þar sem
rætt var um þýðingar, menningar-
gildi þeirra og mikilvægi þess að
kynnast öðrum menningarheimum.
Morgunblaðið/Þorkell
Ást á evr-
ópskum
tungu-
máladegi
Börn skálda/26
Samskipti/31
TILKYNNT var um eld í mann-
lausri íbúð í fjölbýlishúsi við Suður-
hóla í Breiðholti um sexleytið í gær-
kvöldi. Slökkvilið höfuðborgarsvæð-
isins var kallað út og var talsverður
viðbúnaður á staðnum.
Ekki var um mikinn eld að ræða
en talsverðar skemmdir urðu þó í
íbúðinni, m.a. á eldhúsinnréttingu.
Eldur í mann-
lausri íbúð
♦ ♦ ♦
STRÆTISVAGNI var ekið á dreng í
Garðabæ um klukkan fjögur í gær og
var hann fluttur á slysadeild Land-
spítalans í Fossvogi. Þar fengust
upplýsingar um að áverkarnir hefðu
verið minniháttar og drengurinn
fengið að fara heim að skoðun lok-
inni.
Vagninum var ekið á drenginn við
biðskýli skammt frá Bitabæ við Víf-
ilsstaðaveg. Að sögn lögreglunnar í
Hafnarfirði er ekki vitað frekar um
tildrög slyssins og er málið í
rannsókn.
Ekið á dreng
í Garðabæ