Morgunblaðið - 27.09.2001, Qupperneq 53
Nýju haust- og vetr-
artískulínurnar í hár-
greiðslu voru kynntar
hjá stóru alþjóða-
samtökunum sem
skapa tískuna sunnu-
daginn 16. september,
hjá ICI (Haute Coiff-
ure Francaise) í
Louvre-safninu og af
alþjóðassamtökunum
Intercoiffure mánu-
daginn 17. september í
Imperial leikhúsinu á
Avenue Wagram. Ís-
lenskir hágreiðslu-
meistarar eru með-
limir á báðum stöðum
og sóttu íslenskir þáttakendur báðar
sýningarnar. Forseti íslensku sam-
takanna í báðum er hárgreiðslu-
meistarinn Guðbjörn Sævar
(Dúddi).
Sýning ICI, þar sem Frakkar hafa
forystuna og nýja línan er gjarnan
gefin út klárt og kvitt, var með ein-
dæmum glæsileg. Rússar, Mongólar
og Líbanir höfðu lagt gífurlega mik-
ið í sýninguna, einkum Rússarnir
sem kölluðu sitt Bolchoi og voru með
fræga ballerínu þaðan, kósakka sem
stökk hæð sína jafnfætis og sýning-
arstúlkurnar í glæsifatnaði sem
minnti á keisarahirðina með gyll-
ingum og skrauti. Mongólska sýn-
ingin einkenndist af fjölbreyttum
skinnum og þrátt fyrir 17 ára borg-
arastríð veita Líbanir sér ómældan
lúxus. Þarna bar strax töluvert á
klippingu með síðari lokkum fram á
andlitið öðrum meg-
in. Minnir á hina
frægu Veroniku
Lake-greiðslu fyrir
hálfri öld. Og sú til-
hneiging kom fram á
báðum sýningunum.
Búningar og
músík föst í NY
Intercoiffure eru
aftur á móti hin
stóru alþjóðlegu
samtök þjóðanna, er
sjálf leggja aðal
tískulínuna, sem
hárgreiðslumeist-
arar 40 þjóða um all-
an heim vinna svo úr
hver á sínu heima-
sviði. Íslendingar
hafa lengi verið
áhrifamiklir í Int-
ercoiffure Mondial.
Íslenska sýningin
var sú fyrsta á svið-
ið í Impire-
leikhúsinu, þar sem
lögð var áhersla á
listamannsþáttinn í
hárgreiðslunni og sviðssetningunni
og hárgreiðslu fyrir unga fólkið. Ís-
lendingarnir í sýningunni voru Sig-
mundur Sigurðsson (Simbi) frá stofu
Jóa og félaga, Guðrún Sverrisdóttir
frá Cleo, Bjarni Björnsson frá Kar-
akter, Sigrún Ægisdóttir á Hótel
Sögu, Marta Teitsdóttir í Elegans í
Keflavík, Arnar Tómasson í Salon
VEH í Glæsibæ, Bára Kemp í Hár
og Snyrting.
Sendiherra Íslands í París, Sigríð-
ur Snævarr, heiðraði sýninguna með
nærveru sinni, þar sem Íslendingar
áttu svo stóran þátt.
Búið var að leggja mikið í íslensku
sýninguna, þar sem komu m.a. fram
balletmær, söngkona og klarinettu-
leikari. En fram á síðustu stundu leit
út fyrir að allt færi í vaskinn. Edda
Guðmundsdóttir, hönnuður sýning-
arinnar, átti að koma frá New York
með alla búningana og tónlistina og
sat þar föst eftir að allt flug yfir Atl-
antshafið stöðvaðist vegna atburð-
anna í World Trade Center. Og aðrir
gengu fyrir þegar flug var leyft aft-
ur. Fram á síðasta dag var öllum
áhrifum beitt frá Intercoiffure-
samtökunum til að ná Eddu frá New
York. Allir voru því að að fara á
taugum þar til hún kom með allt sem
„við átti að eta“ daginn áður. Það
aftraði æfingum á sviði, sem ekki
varð þó merkt á
þeirri glæsilegu
frammistöðu Íslend-
inganna þar sem
sýningin gekk lið-
lega og snurðulaust.
Eldur og ís hjá
unga fólkinu
Á miðri dag-
skránni var sýning
unga hárgreiðslu-
fólksins, sem hafði
unnið samkeppni í
sínu heimalandi og
fengu að launum
nokkurra daga dvöl
í París á vegum
stofnunar sem
kennd er við Guill-
aume, stofnanda
Intercoiffure. Þar
sýndi Linda Björk
Þórðardóttir frá
Keflavík og hlaut
Guillaume-styttu.
En öll sýning unga
fólksins hét Ice and
Fire, kennd við eld
og ís og ekki að ófyr-
irsynju að ætla að þar hafi íslensku
áhrifin á sýningunni líka leikið sitt
hlutverk.
Íslenskt hárgreiðslufólk er stétt
sem árum saman hefur lagt mikið í
endurmenntun og aðhalda sér í
fremstu röð í tískustraumum.
Hvorki sparað þar fé né árlega þát-
töku á alþjóðavettvangi. Verið þar
góðir fulltrúar Íslands, á eigin veg-
um og án nokkurs utanaðkomandi
stuðnings.
Íslensk hár-
greiðsla í stóru
hlutverki í París
París. Morgunblaðið.
Dæmi um dömu- og herratísku frá París.
Íslenskir hárgreiðslumeistarar áttu stóran þátt í
kynningunni á haust- og vetrartískunni á Intercoiffure-
sýningunni í Empire-leikhúsinu á Avenue Wagram í
París mánudaginn 17. september. Þar stóðu sjö íslenskar
stofur að kynningarsýningu og Elsa Haraldsdóttir,
listrænn stjórnandi Intercoiffure, stýrði og kynnti
sýningu á alþjóðalínunni 2002 og Linda Björk Þórð-
ardóttir úr Keflavík sýndi með ungu hárgreiðslufólki frá
fleiri löndum á vegum Guillaume-stofnunarinnar.
Morgunblaðið/Elín Pálmadóttir
Linda Björk Þórðardóttir
úr Keflavík, fulltrúi ungu
kynslóðarinnar, með Guill-
aume-styttuna sína fyrir
þátttökuna.
Sýning íslensku hárgreiðslustofanna vakti verðskuldaða athygli.
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2001 53
LAUGAVEGI, S. 511 1717KRINGLUNNI, S. 568 9017
Tískuvika
Kringlunni
Kringlan opin til 21 á fimmtudögum
Ný sending af DIESEL gallabuxum í dag
Dæmi:
Laura Aime bolir/skyrtur 20% afsl.
Tark buxur 3.900-4.900
Diesel peysur/bolir 20% afsl.
4-you skyrtur/peysur 20% afsl.
Billi bi stígvél 20% afsl.
Trend Design skór/stígvél 20% afsl.
o.fl. o.fl.
Í tilefni tískuviku gefum við
20% afslátt
af nýjum og spennandi fatnaði í