Morgunblaðið - 26.10.2001, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2001 41
HELGI Ólafsson og Ivan Sokolov
héldu skákmönnum um allan heim í
spennu í annarri umferð minningar-
mótsins um Jóhann Þóri. Auk þess
sem áhorfendur gátu fylgst með
þessari viðureign í ráðhúsi Reykja-
víkur var hún sýnd á netsíðu mótsins
og einnig á ICC-skákþjóninum, en
þar eru sex athyglisverðustu viður-
eignir hverrar umferðar sýndar.
Helgi hafði svart og virtist ekki þurfa
að kvarta þegar út í miðtaflið var
komið. Mjög óvænt náði Sokolov hins
vegar að skapa sér færi og Helgi lenti
í afar erfiðri stöðu. Hann sýndi hins
vegar mikla hugkvæmni í vörninni og
kom áhorfendum hvað eftir annað á
óvart með því að koma auga á varn-
armöguleika sem öðrum hafði yfir-
sést. Hann gaf drottninguna fyrir
einungis hrók, en hafði sterkt frípeð
á móti. Engu að síður var staðan töp-
uð, en þó það flókin að í 32. leik missti
Sokolov af skemmtilegri vinningsleið.
Eftir þetta fóru að koma upp raddir
um það, að Helgi væri að tryggja sér
jafntefli, en hann var kominn með frí-
peðið á d2, tryggilega valdað af hrók-
um. Það verður að koma síðar í ljós
hvort jafnteflið var fyrir hendi, en
eftir frábæra vörn Helga varð hann
loks að játa sig sigraðan eftir 70 leiki.
Vonandi sjást fleiri svona baráttu-
skákir í næstu umferðum.
Hannes Hlífar Stefánsson hélt
sínu striki í annarri umferð og sigraði
Norðmanninn Leif Johannessen og
er þar með kominn í hóp fimm skák-
manna sem eru efstir á mótinu með
tvo vinninga. Þröstur tapaði hins
vegar fyrir Peter Heine Nielsen.
Annars var fátt um óvænt úrslit í
annarri umferð. Friðrik Ólafsson
varð að sætta sig við jafntefli við hinn
efnilega skákmann Dag Arngríms-
son. Guðmundur Pálmason sýndi að
hann er að komast í gang þegar hann
gerði jafntefli við Kristján Eðvarðs-
son. Röð efstu manna er þessi eftir
fyrstu tvær umferðirnar:
1.-5. Peter Heine Nielsen, Jonny Hector, Ivan
Sokolov, Henrik Danielsen, Hannes H.
Stefánsson 2 v.
6.-14. Lars Schandorff, Murray G. Chandler,
Stefán Kristjánsson, Halldór Hall-
dórsson, Tomi Nyback, Jón Viktor Gunn-
arsson, Ingvar Ásmundsson, Jaan
Ehlvest, Jan H, Timman 1½ v.
15.-28. Leif Erlend Johannessen, Helgi Ólafs-
son, Róbert Harðarson, Dagur Arn-
grímsson, Þröstur Þórhallsson, Jón Árni
Halldórsson, Sævar Bjarnason, Lenka
Ptacnikova, Friðrik Ólafsson, Björn Þor-
steinsson, Ingvar Þór Jóhannesson, Ás-
kell Örn Kárason, Björn Þorfinnsson, Páll
A. Þórarinsson 1 v. o.s.frv.
Þriðja umferð var tefld í gærkvöldi
og þá hafði Hannes hvítt gegn Soko-
lov.
Teflt er í ráðhúsi Reykjavíkur.
Áhorfendur eru velkomnir. Teflt er
SKÁK
R á ð h ú s
R e y k j a v í k u r
MINNINGARMÓT UM
JÓHANN ÞÓRI JÓNSSON
19.–21.10. 2001
Dodge Ram 2500 cummins disel, 4
dyra, sjálfsk, leður, einn með öllu.
Verð 4.590 þús. Sk á ód. Einnig
Chevrolet 6.5 D. 1998.
Toyota Landcruiser Vx, 3.4 bensín
1999, sjálfsk., leður. Verð 3.350 þús.
Eigum einnig dísel, aðrar árg.
Toyota Rav 4 1999, 5 g, álfelgur,
dráttarkrókur, blár, ek. 38 þ. km. Verð
1.850 þús. Lán 1.100. einnig 2000-
2001.
Suzuki Vitara, Vorum að fá inn nokkra
Suzuki Vitara Se 1998 á góðu stgr.
verði.
Musso E-32 7/2000, sjálfsk., ek. 15 þ.
km, grænn. Verð 3.250 þús. Tilboð
2.900 þús. Einnig dísel.
Mmc Pajero 2.8 disel turbo 1997,
sjálfsk., álfelgur, dráttarkrókur, hvítur,
ek. 75 þ. km. Verð 2.090 þús. Sk. á ód.
Mmc Space Wagon 2.0 4x4 1/2000,
sjálfsk, vínrauður, ek. 31 þ. km. Verð
1750 þús.
Toyota Yaris sol 6/1999, 5 g., 5 d.,
vindsk, spoiler, ek. 21 þ. km. V. 980
þús. Einnig Terra.
Mazda 626 Glxi 2.0 2/2000, sjálfsk.,
sóllúga, álfelgur, hraðastillir o.fl, blár,
ek. 45 þ. km. Verð 2.090 þús. Tilboð
1.890 þús. stgr.
Vw Passat 1.6 8/2001, 5 g., álfelgur,
allt rafdr., krómpakki, grænn, ek. 5 þ.
km. Verð 1.950, bílalán 1.400.
Suzuki Sidekick 1.8 sport 1996,
sjálfsk. V. 990 þús.
Polo 1.4 2000. V. 1.250, 100% lán,
Nissan Almera 2000. V. 1.490, lán
1.040 þús.
Toyota Corolla 2000. V. 1.290, lán
900 þús.
Funahöfða 1 - Fax 587 3433
www.litla.is
Sími 587 7777
Skráðu bílinn á www.litla.is
Mikil sala!
Minningarmót Jóhanns Þóris.
Önnur umferð
1 Ivan Sokolov - Helgi Ólafss. 1-0
2 Peter H. Nielsen - Þröstur Þórhallss. 1-0
3 Hannes H. Stefánss. - Leif Joh.sen 1-0
4 Tomi Nyback - Lars Schandorff ½-½
5 Murray G. Chandler - Jón V. Gunnarss. ½-½
6 Jón Árni Halldórss. - Jonny Hector 0-1
7 Henrik Danielsen - Róbert Harðars. 1-0
8 Arnar Gunnarss. - Jaan Ehlvest 0-1
9 Magnús Örn Úlfarss. - Jan H Timman 0-1
10 Dagur Arngrímss. - Friðrik Ólafss. ½-½
11 Bragi Þorfinnss. - Halldór Halldórss. 0-1
12 Stefán Kristjánss. - Guðm. Kjartanss. 1-0
13 Tómas Björnss. - Ingvar Ásmundss. 0-1
14 Björn Þorsteinss. - Ingvar Þ. Jóh.ss. ½-½
15 Davíð Kjartanss. - Guðmundur Gíslas. ½-½
16 Olavur Simonsen - Sævar Bjarnas. 0-1
17 Páll A. Þórarinss. - Gylfi Þórhallss. 1-0
18 Áskell Ö. Káras. - Sig. P. Steindórss. 1-0
19 Hrannar Baldurss. - Björn Þorfinnss. 0-1
20 L. Ptacnikova - Guðjón H. Valgarðss. 1-0
21 Guðm. Pálmas. - Kristján Eðvarðss. ½-½
Daði Örn Jónsson
daglega og umferðir hefjast klukkan
17. Þó verður frídagur 26. október.