Morgunblaðið - 25.11.2001, Síða 8
FRÉTTIR
8 SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
H E I M I L I S T Æ K I
SÍNE er fertugt á þessu ári
Ekki úrelt þótt
fertugt sé
SAMBAND íslenskranámsmanna erlend-is, SÍNE, er fjöru-
tíu ára um þessar mundir
og í tilefni þess verður eitt
og annað gert til hátíðar-
brigða. Hrafn Sveinbjarn-
arson er í forystusveit
SÍNE og hann svaraði
nokkrum spurningum
Morgunblaðsins í tilefni
ársins.
Hvert var tilefni stofn-
unar SÍNE fyrir fjörutíu
árum?
„SÍNE (Samband ís-
lenskra námsmanna er-
lendis) var upphaflega
stofnað sem SÍSE (Sam-
band íslenskra stúdenta
erlendis) 13. ágúst 1961 á
lofti Íþöku, bókasafns
MR. Kveikjan að stofnun
sambandsins var gengisfelling ís-
lensku krónunnar í febrúar 1960,
um leið var afnuminn svokallaður
námsmannagjaldeyrir, en gjald-
eyrir hafði fram að því verið ódýr-
ari fyrir námsmenn erlendis en
aðra. Með þessu kom afrakstur-
inn af sumarvinnunni að minna
gagni en áður og sáu margir
námsmenn fram á að þurfa að
hverfa frá námi í útlöndum. SÍSE
varð SÍNE í ágúst 1969 og spunn-
ust nokkrar deilur um það þá.“
Hvernig hafa áherslur SÍNE
breyst í áranna rás?
„Megináherslan hefur í raun
alltaf verið sú sama, það er að
halda á lofti hagsmunum náms-
manna gagnvart stjórnvöldum
varaðndi námslán og -styrki og
miðla upplýsingum um nám er-
lendis til þeirra sem hyggja á
slíkt. Hvernig aðferðirnar hafa
verið hefur tekið breytingum eft-
ir tíðaranda og aðstæðum. Það
hefur gengið á ýmsu. Einhver eft-
irminnilegasti skellurinn var
verðtrygging námslána sem sett
var á 1976. Útborganir námslána
eftir á, þ.e. eftir að misserum lýk-
ur, voru teknar upp 1992. Það
þýðir að námsfólk þarf að taka
bankalán til að skrimta fyrsta
misserið og velta því svo á undan
sér allan námstímann. Þetta var
bönkum til hagsbóta, en náms-
fólki áþján. Á svipuðum tíma var
hætt að veita námslán í grunn-
nám erlendis. Gengisfellingar
voru vandamál þegar SÍNE var
stofnað. Að því leyti eru menn
komnir á byrjunarreit. Gengisfall
krónunnar undanfarið er til mik-
illa vandræða fyrir marga ís-
lenska námsmenn erlendis, eink-
um í Bandaríkjunum. Að áeggjan
SÍNE er stjórn Lánasjóðs ís-
lenskra námsmanna nú með þau
mál í athugun.“
Hvað er SÍNE í dag?
„SÍNE er nú fremur félag ein-
staklinga en samband félaga. Fé-
lagsmenn eru ekki eins áfjáðir í
að mæta á fundi eins og fyrsta
áratuginn og það heyrir til und-
antekninga að félagsmenn sendi
félagsstjórninni bréf upp á 4-5
þéttvélritaðar blaðsíður eins og
tíðkaðist um og upp úr
1970.
Hagsmunagæsla
SÍNE fer mjög hinar
formlegu leiðir, SÍNE
hefur fulltrúa í stjórn
LÍN og fulltrúa í vafamálanefnd
LÍN. Þar fyrir utan er reynt eftir
föngum að safna fróðleik um lífs-
kjör og fjárhagsmál námsmanna
erlendis til samanburðarathug-
ana bæði til að hafa auga með því
að allt sé í lagi og til þess að byggt
sé á traustum grunni í öllum mál-
flutningi. Stjórn SÍNE er einkum
skipuð fólki sem er nýkomið heim
úr námi, það skapar óneitanlega
meiri festu að stjórnin geti hist í
Reykjavík. SÍNE er með einn
launaðan starfsmann, fram-
kvæmdastjóra, sem nú er Heiður
Reynisdóttir. Skrifstofa SÍNE er
opin virka daga fyrir hádegi.
Trúnaðarmennirnir víða um heim
eru mikilvægir tengiliðir milli
stjórnar og félagsmanna. Tvisvar
á ári er Sæmundur, málgagn
SÍNE, gefið út og sent til allra fé-
lagsmanna. Haldnir eru aðalfund-
ir um jól og sumar þannig að fé-
lagsmenn geti hist og borið
saman bækur sínar. Félagsmenn
SÍNE, 1.400 talsins, eru nú um
75% þeirra íslensku námsmanna
erlendis sem taka námslán.“
Er SÍNE nútímalegur mál-
svari félaga sinna?
„SÍNE kemst nú varla hjá því,
annars væri það ekki til. Það hef-
ur verið mjög nútímalegt á öllum
tímum. Skýringin liggur í því að
aðstandendur SÍNE, fé-
lagsmennirnir og stjórnin, eru
fólk sem hefur lagt stund á nám í
ýmsum menningarinnar soðpott-
um, háskólum milljónaþjóða og
fylgist þar af leiðandi oft frekar
vel með. Þeir hafa heim með sér
reynslu af því sem í hæsta máta
getur talist nútímalegt. Með tím-
anum hætta hinir eldri í stjórn
SÍNE og hinir yngri taka við.
Meiri nútímaleiki er varla hugs-
anlegur. SÍNE er ekki úrelt þótt
fertugt sé.“
Hvað verður gert til hátíðar-
brigða?
„Það hefur verið
rætt um að rita sögu
SÍNE en líklega verð-
ur því frestað til fimm-
tugsafmælisins. Það er
verið að skrá skjalasafn SÍNE og
þesskonar vinna er forsenda al-
varlegrar sagnaritunar. Ætlunin
er að halda fagra veislu 29. nóv-
ember fyrir vini og kunningja
SÍNE og svo verður jólafundur-
inn í desember væntanlega í veg-
legri kantinum þannig að almenn-
um félagsmönnum sem verða á
landinu þá gefst kostur á að halda
upp á fertugsafmælið.“
Hrafn Sveinbjarnarson
Hrafn Sveinbjarnarson er
fæddur 19. desember 1973 í
Lundi í Svíþjóð. Ólst þó upp á Ís-
landi. Stúdent frá MH 1993 og
BA í sagnfræði frá HÍ 1997.
Cand.mag. í sagnfræði frá Hafn-
arháskóla 2001. Hefur unnið ým-
is störf, flest sagnfræðitengd,
samhliða námi en starfar nú við
Þjóðskjalasafn Íslands. Hann
hefur ritað fjölda greina um
sagnfræðileg málefni í blöð og
tímarit. Hrafn er ennfremur tón-
listarmenntaður, með sérgrein í
flautuleik, og hefur haft með
hendi fjölda trúnaðar- og fé-
lagsstarfa.
Gengisfall
krónunnar til
vandræða
Þetta er allt í lagi, elskan, það er bara verið að fylgjast með
að ég stundi ekki líka brottkast í svefni.
HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt ís-
lenska ríkið til að greiða konu 300
þúsund krónur í bætur vegna gæslu-
varðhaldavistar sem hún var hneppt
í. Taldi rétturinn að varðhaldið hefði
ekki þurft að verða lengra en 7 dag-
ar, í stað þeirra 10 sem hún sat inni,
sérstaklega með tilliti til þess að að-
stæður fyrir gæsluvarðhaldsfanga í
fangageymslum lögreglunnar í
heimabæ konunnar væru ekki full-
nægjandi.
Konan var handtekin í Vest-
mannaeyjum ásamt sambýlismanni
sínum og fundust fíkniefni í fórum
hans. Fimm dögum síðar var hún yf-
irheyrð í fyrsta sinn og loks látin laus
tíu dögum eftir handtöku. Hæsti-
réttur fann að seinagangi lögregl-
unnar í Eyjum og dæmdi konunni
bætur fyrir þá þrjá daga, sem rétt-
urinn taldi hana hafa setið óþarflega
lengi í haldi.
Í öðru máli var íslenska ríkið
dæmt til að greiða skipverja á Goða-
fossi tæpar 270 þúsund krónur
vegna fjögurra daga varðhalds sem
hann var hnepptur í eftir að tollverð-
ir sáu tveimur trossum með plast-
brúsum varpað frá borði skammt ut-
an við innsiglinguna í Reykja-
víkurhöfn. Í annarri trossunni
reyndust vera 29 tómir og gataðir 20
lítra plastbrúsar, en hin trossan
sökk. Tollverðir leituðu í skipinu og
fundu m.a. áfengi falið í leynihólfi, en
skipverjar neituðu allir aðild að mál-
inu.
Listi ekki lagður
fyrir héraðsdóm
Hæstiréttur vísar til þess, að lög-
reglan hafi við rannsókn málsins
fundið lista heima hjá einum skip-
verjanna, þar sem talin voru upp
nöfn og skráðar inn upphæðir og
fjöldi kúta. Nöfn sjö skipverja á
Goðafossi voru á listanum, en ekki
þess sem höfðaði mál vegna gæslu-
varðhaldsins. „Fram er komið að
þessar upplýsingar voru ekki lagðar
fram þegar krafa var gerð um gæslu-
varðhald áfrýjanda,“ segir Hæsti-
réttur.
„Af hálfu stefnda hefur ekki verið
gerð grein fyrir hvers vegna það var
ekki gert. Með öllu er óvíst að hér-
aðsdómur hefði úrskurðað áfrýjanda
í gæsluvarðhald hefðu þessi gögn
verið kynnt dóminum. Með hliðsjón
af þessu verður fallist á það með
áfrýjanda að stefndi hafi ekki sýnt
fram á að nauðsyn hafi borið til að
halda honum eftir að síðastnefnd
gögn fundust og að setja hann í
gæsluvarðhald.“
Bætur fyrir gæsluvarðhald
BJÖRN Bjarnason, menntamála-
ráðherra, hefur skipað Magnús
Skúlason í embætti forstöðumanns
húsafriðunarnefndar. Skipað er í
embættið til fimm ára í senn sam-
kvæmt nýjum lögum um húsafriðun
nr. 104/2001 og tekur Magnús við
embættinu frá og með 1. desember
næstkomandi.
Skipaður
forstöðumaður
húsafriðunar-
nefndar
♦ ♦ ♦