Morgunblaðið - 28.12.2001, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 28.12.2001, Blaðsíða 1
299. TBL. 89. ÁRG. FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 28. DESEMBER 2001 ARIEL Sharon, forsætisráðherra Ísraels, segist ætla að stýra sjálfur samningaviðræðum við Pal- estínumenn ef til þeirra komi en þær geti ekki hafist fyrr en öllum árásum á Ísraela verði hætt. Hann viðurkenndi í fyrsta sinn í gær að stjórn Yassers Arafats Palestínuleiðtoga hefði orðið nokkuð ágengt í að berja niður hryðjuverk en enn væri þó langt í land. Palestínsku harðlínu- samtökin Hamas fordæmdu í gær fundi palest- ínskra embættismanna með Ísraelum. Á vefsíðu samtakanna var hvatt til þjóðareiningar og jafn- framt að haldið yrði áfram að berjast gegn her- náminu. Skýrt var frá því í gær að Ísraelsher hygðist aflétta herkví um borgina Betlehem í nótt til að auðvelda hátíðarhöld kristinna manna á staðnum. Sharon viðurkenndi í vikunni að hann hefði veitt Shimon Peres utanríkisráðherra heimild til að hafa samband við forseta þings Palestínu- manna, Ahmed Qorei, en vísaði á bug fréttum þess efnis að náðst hefði samkomulag um að Pal- estínumenn fengju fljótlega að stofna sjálfstætt ríki. Ísraelskt dagblað birti drög að samningi um þessi efni á Þorláksmessu en Qorei staðfesti í gær að ekki væri um neinn samning að ræða. „Við höfum rætt ákveðnar hugmyndir en þær hafa ekki leitt til ákveðinna lausna,“ sagði hann. Qorei sagði Ísraela fram til þessa eingöngu hafa viljað ræða um öryggismál en Palestínumenn vildu að fjallað yrði um pólitískar lausnir sem væru tengdar öryggismálunum. Ísraelskir hermenn handtóku í gær og fyrra- dag menn sem grunaðir eru um hryðjuverk, réð- ust þeir meðal annars inn á stúdentagarð í Hebr- on og tóku þar átta manns. Arafat sagði í blaðaviðtali að sú ákvörðun Ísraela að meina honum að vera viðstaddur jólamessu væri gróft brot á ákvæðum Óslóarsamninganna um ferða- frelsi. Hamas fordæmir viðræður Jerúsalem. AFP, AP. Ísraelsher afléttir herkví um Betlehem  Ben Eliezer/26 INDVERJAR kröfðust þess í gær að helmingur starfsliðs sendiráðs Pak- istans í Nýju-Delhí yrði kallaður heim og ennfremur var allt flug pakist- anskra flugvéla yfir indversku landi bannað. Stjórnvöld í Pakistan guldu í sömu mynt tveim stundum síðar en hvöttu til viðræðna. Jafnt Pakistanar sem Indverjar ráða nú yfir kjarn- orkuvopnum og flugskeytum til að flytja slík vopn. Talsmaður stjórn- valda í Islamabad, Rashid Quereshi hershöfðingi, sagði í gær að öll ráð yrðu notuð til að verjast Indverjum en „óhugsandi“ væri að gripið yrði til kjarnorkuvopna. Þau væru eingöngu höfð í vopnabúrinu til að fæla aðra frá slíkri árás. „Pakistanar og Indverjar eru ábyrgar þjóðir,“ sagði talsmaðurinn. Ráðamenn beggja aðila segjast reiðubúnir að hefja stríð ef ekki náist sættir. Indverjar saka Pakistana um að styðja aðskilnaðarsinna í Kasmír sem beitt hafa hryðjuverkum í bar- áttu sinni gegn indverskum yfirráð- um. Indverjar segja að um hryðju- verkamenn frá Kasmír hafi verið að ræða er gerð var árás á þingið í Nýju- Delhí fyrir skömmu. Pakistanar vilja að Kasmírbúar fái að ákveða sjálfir hvoru ríkinu þeir tilheyri. Miklir liðsflutningar og annar við- búnaður hefur verið af hálfu beggja í grennd við landamærin undanfarna daga, skotið hefur verið af þunga- vopnum og vaxandi ótti ríkir um að til átaka komi. Bandaríkjamenn hvöttu í gær stjórnir beggja landanna til að reyna að setja niður deilurnar með friðsamlegum hætti á væntanlegum leiðtogafundi Suður-Asíulanda í Nep- al í næstu viku. Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hringdi í leiðtoga beggja ríkjanna, þá Atal Bihari Vajpayee, forsætisráðherra Ind- lands, og Pervez Musharraf, forseta Pakistans, á miðvikudag og hvatti þá til að beita ekki vopnavaldi heldur semja. Einnig hefur Powell ráðgast við utanríkisráðherra Bretlands og Rússlands. Kínverjar hafa einnig lýst áhyggjum sínum af framvindu mála á landamærunum. RÁÐHERRA innanríkismála í Afg- anistan, Yunus Qanooni, sagði í gær að hryðjuverkasamtökin al-Qaeda hefðu orðið fyrir miklu tjóni í stríðinu gegn hryðjuverkum en forysta þeirra væri enn til staðar. „Al-Qaeda hefur aðeins misst land en ekki leiðtoga sína,“ sagði ráðherrann og taldi sam- tökin enn vera afar hættuleg þótt liðs- menn þeirra hefðu orðið að flýja frá Afganistan. Talsmaður varnarmálaráðherra Afganistans sagði í gær að „áreiðan- legar heimildir“ njósnara væru fyrir því að Sádi-Arabinn Osama bin Lad- en hefði farið frá Tora Bora-svæðinu í austurhluta Afganistan fyrir um það bil viku og haldið til Pakistan. Þar hefði hann síðan haft bækistöðvar sínar á svæði undir stjórn einnar harðlínuhreyfingar múslíma, Jamait Ulema-e-Islam. Talsmaður hreyfing- arinnar sagði að þetta væri alrangt og pakistanskur embættismaður sagði einnig að um þvætting væri að ræða og pakistanskar öryggissveitir fylgd- ust vel með landamærunum. Donald Rumsfeld, varnarmálaráð- herra Bandaríkjanna, sagði á frétta- mannafundi í Washington að Banda- ríkjamenn hefðu ekki hugmynd um dvalarstað bin Ladens, stöðugt bær- ust misvísandi frásagnir af ferðum mannsins. Rumsfeld sagði ennfremur að fangar úr röðum talibana og al- Qaeda yrðu hafðir í haldi i Guant- anamo-herstöðinni á Kúbu. Gerð var loftárás á þorpið Naka, nálægt Ghazni í austurhéruðunum í gær og fullyrtu heimildarmenn að tugir óbreyttra borgara hefðu fallið. Richard Myers, hershöfðingi og for- seti bandaríska herráðsins, sagði að talið væri að flestir hinna föllnu hefðu verið talibanaleiðtogar. Sjónvarpsstöðin Al-Jazeera í Katar birti í gær myndband með ávarpi Osama bin Ladens, leiðtoga al-Qaeda. Hann hyllir tilræðismennina frá 11. september og segir að fimmtán þeirra hafi verið frá Sádi-Arabíu. Árásirnar hafi verið „hryðjuverk“ en þau hafi notið blessunar og hrokafullri þjóð hafi verið kennd lexía. Kollvarpa þurfi efnahag Bandaríkjamanna, þá muni þeir verða uppteknir af eigin vanda- málum. Al-Qaeda enn sögð hættu- leg samtök Fangar frá Afganistan til Guantanamo-stöðvarinnar á Kúbu Kabúl, Kaíró, Washington. AP, AFP.  Grár og/22 Indverjar og Pakistanar hvattir til að ræðast við AP Indverskur hermaður í Mehnd- ipur við landamærin í gær. Islamabad, Nýju-Delhí, Washington. AP, AFP.  Bitbein/24 Fulltrúi Musharrafs segir „óhugsandi“ að beitt verði kjarnorkuvopnum AP KULDI og sjúkdómar herja á allt að 400.000 fjöl- skyldur, milljónir manna, sem hafast nú við á af- skekktum fjallasvæðum í Afganistan, að sögn Alþjóðaráðs Rauða krossins. Lítil stúlka grætur hér í flóttamannabúðum í Balkh-héraði í Norður- Afganistan. Kuldinn herjar á flóttafólk
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.