Morgunblaðið - 28.12.2001, Qupperneq 2
FRÉTTIR
2 FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Newcastle kemur enn á
óvart á Englandi/C3
Örn Arnarson hreppti titilinn í
þriðja sinn/C1
8 SÍÐUR Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is
4 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Á FÖSTUDÖGUM
Fauk á hlið-
ina undir
Hafnarfjalli
ÖKUMAÐUR flutningabifreiðar var
fluttur á heilsugæslustöðina í Borg-
arnesi eftir að bifreið hans fauk á
hliðina við Hafnarfjall um kl. 5.20 í
gærmorgun. Meiðsli hans voru ekki
talin alvarleg. Mjög hvasst var undir
fjallinu og fór vindur yfir 30 m/s í
mestu hviðunum. Bíða átti birtingar
og betra veðurs til að unnt yrði að
bjarga farmi bifreiðarinnar, um 20
tonnum af freðnum fiski til útflutn-
ings, og ná henni aftur upp á veg.
Tvær fólksbifreiðir fuku einnig út
af veginum á svæðinu frá Leirá norð-
ur undir Hafnarskóg. Meiðsli á fólki
voru minniháttar.
Bílskúr brann
í Bolungarvík
STÓR bílskúr við Miðstræti í Bol-
ungarvík og bifreið, sem í honum
var, eyðilögðust í eldsvoða seinni-
partinn í gær. Ekki urðu slys á
fólki en talsverður eldur var þegar
mest var. Mikill eldsmatur var í
skúrnum, s.s. ýmsir plasthlutir, en
15 manna lið Slökkviliðs Bolung-
arvíkur réð niðurlögum eldsins á
tæpri klukkustund. Eldurinn náði
ekki að læsa sig í önnur mann-
virki.
Eldsupptök eru ókunn en málið
er í rannsókn hjá lögreglunni í
Bolungarvík.
FLUGUMFERÐARSTJÓRAR hafa
samþykkt að hefja yfirvinnubann
mánudaginn 14. janúar nk. og mun
það standa þar til nýr kjarasamning-
ur hefur verið undirritaður.
Bannið var samþykkt í leynilegri
póstatkvæðagreiðslu og tekur til allra
félagsmanna Félags íslenskra flug-
umferðarstjóra sem starfa hjá Flug-
málastjórn Íslands og Flugmála-
stjórn í Keflavík.
Í atkvæðagreiðslunni voru 102 á
kjörskrá. 86 þeirra skiluðu inn at-
kvæðum og var heildarkjörsókn því
84,3%. Já sögðu 64 eða 74,5% en nei
sagði 21 eða 24,5%. Einn seðill var
ógildur.
Þá hefur Félag flugumferðarstjóra
dreift bréfi, sem David Cockroft,
framkvæmdastjóri Alþjóðasambands
flutningaverkamanna, ITF, hefur
sent Davíð Oddssyni forsætisráð-
herra. Þar kemur fram að verið sé að
undirbúa formlega kvörtun til nefnd-
ar Alþjóðavinnumálastofnunarinnar
um félagafrelsi vegna inngripa ís-
lenskra stjórnvalda í verkfall ís-
lenskra sjómanna. Nú hafi Félag ís-
lenskra flugumferðarstjóra tjáð
sambandinu að ríkisstjórnin hafi hót-
að inngripi með því að neita þeim um
grundvallarréttinn til verkfalls.
Í bréfinu segir einnig, að þótt svona
árásir á grundvallarréttindi séu al-
gengar í ríkjum með takmarkaða lýð-
ræðishefð finnist ITF með ólíkindum
að á Íslandi, þar sem elsta þing í heimi
situr, skuli slíkum aðferðum beitt.
Ekki þurfi að taka fram að ITF leggi
ríka áherslu á nauðsyn þess að
tryggja öryggi í flugmálum, sérstak-
lega í ljósi atburðanna 11. september
sl. Hins vegar megi ekki nota þessa
atburði sem tilefni til þess að svipta
flugmálastarfsmenn, þ.m.t. flugum-
ferðarstjóra, grundvallarrétti sínum.
Flugumferð-
arstjórar boða
yfirvinnubann
Samþykkt með atkvæðum
nærri 75% félagsmanna
ÁTTA björgunarsveitarmenn úr
björgunarsveitinni Sæbjörgu á Snæ-
fellsnesi björguðu tveimur kindum
úr sjálfheldu við Fróðá í gærdag en
til þess þurftu þeir að fara með
kindurnar út í ána. Eigandi kind-
anna, Bjarni Ólafsson bóndi í Geira-
koti, sá að þær voru lentar í sjálf-
heldu vegna klaka í klettum við ána
í fyrradag, en varð frá að hverfa án
þess að geta aðstoðað þær.
„Það var svo mikill klaki að það
var ekki hægt að ná þeim nema að
vera sérstaklega útbúinn til þess.
Þær voru styggar og kolvitlausar
alveg svo að það var ómögulegt að
ná þeim,“ segir Bjarni sem hafði í
nokkra daga freistað þess að hand-
sama þær. „Svo þegar þær eru orðn-
ar svona þverar þá leggja þær út í
næstum hvað sem er og enduðu
þarna í klettunum og komust
hvergi.“
Bjarni segir að kindurnar hafi
verið orðnar nokkuð kaldar þegar
þær komu í hús í gær enda hafi
björgunarsveitarmenn þurft að
synda með þær yfir Fróðána. „Það
var mjög kalt, 11 stiga frost, og það
á eftir að koma í ljós hvort þær ná
sér eftir volkið.“
Fóru með ánum í ána
Bjarni hafði samband við Björg-
unarsveitina Sæbjörgu og átta
manna hópur frá henni kom á stað-
inn um klukkan eitt í gær og tókst
þeim að bjarga kindunum þrátt fyr-
ir að þær væru styggar og aðstæður
erfiðar. Þrír björgunarsveitarmenn
í flotbúningum fóru með kindunum
út í ána en töluverður krapi var í
henni og áin mjög köld. „Það var
engin leið að ná þeim öðruvísi en að
fara með þær yfir ána,“ segir Magn-
ús E. Manúelsson, formaður Sæ-
bjargar. „Þær voru orðnar frekar
slappar þegar við komum en samt
ótrúlega sprækar. En við gátum
króað þær af, settum bandspotta á
þær og syntum svo með þær yfir
ána.“
Magnús segir að nokkrum sinnum
á vetri þurfi björgunarsveitarmenn
að frelsa kindur úr sjálfheldu og oft
við mjög erfiðar aðstæður. „Það var
töluverð norðanátt og mikill kuldi.
Svo var mikið krapavatn í ánni, en
þetta gekk vel.“
Morgunblaðið/Alfons
Björgunarsveitarmenn athafna sig við Fróðá í gærdag en erfitt var að ná ánum úr sjálfheldunni.
Kindum bjargað úr sjálfheldu
KARLMAÐUR, sem gekk til rjúpna
frá Grímsstöðum í Borgarfirði síðast-
liðinn laugardag, 22. desember, ásamt
þremur veiðifélögum, fannst látinn
seint að kvöldi sama dags eftir víð-
tæka leit björgun-
arsveitarmanna.
Engir áverkar
fundust á hinum
látna, en réttar-
læknisfræðileg
rannsókn hefur
leitt í ljós að hann
varð bráðkvadd-
ur.
Hinn látni hét
Theodór Jónas-
son, til heimilis í
Grófarseli 30 í Reykjavík. Hann
fæddist 14. desember 1971 og lætur
eftir sig unnustu og eitt barn. Spor-
hundur frá björgunarsveit Hafnar-
fjarðar fann hinn látna um klukkan 23
á laugardagskvöld, en þá höfðu um
100 björgunarsveitarmenn, frá Borg-
arnesi, Borgarfirði, Akranesi og af
höfuðborgarsvæðinu, leitað hans.
Maðurinn fór til rjúpna ásamt
þremur félögum sínum frá bænum
Grímsstöðum í Álftaneshreppi á Mýr-
um, en þegar hann skilaði sér ekki á
tilsettum tíma höfðu veiðifélagar hans
samband við lögreglu sem óskaði síð-
an eftir aðstoð björgunarsveita Slysa-
varnafélagsins Landsbjargar.
Seinast heyrðist til mannsins um
kl. 14 á laugardag þegar hann talaði
við félaga sína í talstöð. Þá var hann á
leið í bifreið þeirra félaga. Hann var
vanur rjúpnaveiðimaður, vel útbúinn
og með GPS-staðsetningartæki, far-
síma auk talstöðvar.
Í upphafi tóku um 30 björgunar-
sveitarmenn þátt í leitinni, en
skömmu síðar voru kallaðir út 60
menn frá höfuðborgarsvæðinu. Einn-
ig voru kallaðir út fimm svæðis-
leitarhundar og sporhundur. Um
klukkan 23 fann sporhundur hinn
látna í austanverðum Grímsstaða-
múla. Svartaþoka var og skyggni afar
takmarkað en stillt og hlýtt veður.
Varð bráðkvaddur
á rjúpnaveiðum
Theodór
Jónasson
♦ ♦ ♦