Morgunblaðið - 28.12.2001, Síða 6

Morgunblaðið - 28.12.2001, Síða 6
FRÉTTIR 6 FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ RAUÐI kross Íslands og Blóð- bankinn skrifuðu í gær undir samkomulag um afhendingu á fullkomnum blóðsöfnunarbíl og er bíllinn væntanlegur til landsins næsta sumar. Með tilkomu þessa færanlega blóðsöfnunartækis er öryggi í blóðbankaþjónustu stór- aukið, auk þess sem hægt verður að ná í ríkari mæli til fólks í blóðsöfnun. Ætlunin er að fara í blóðsöfnunarferðir í skóla, fyr- irtæki, stofnanir, verslanasam- stæður og fleiri fjölsótta staði. Blóðsöfnunarbifreiðin er 13,5 metra langur vagn búinn full- komnustu tækjum til blóðgjafar, sem geta annað 50–100 blóð- gjöfum á venjulegum vinnudegi og mun fleiri í neyðartilvikum. Gert er ráð fyrir að þriðjungur þess blóðs sem safnast á landinu í framtíðinni komi í gegnum þenn- an færanlega blóðbanka. Sveinn Guðmundsson, yfirlæknir og for- stöðumaður Blóðbankans, segir að þetta verði bylting í þjónustu við blóðgjafa og þjóðfélagið í heild sinni. Bíllinn er að grunni til Scania-lagferðabifreið sem er sérsmíðuð og útbúin tækjum af finnska fyrirtækinu Kiitokuori. Hún er fengin hingað til lands í gegnum Heklu hf. í kjölfar út- boðs. Heildarkostnaður við kaup- in er um 31 milljón króna og leggur Rauði krossinn til 26 millj- ónir króna, sem félagið hefur safnað síðan 1996, og stjórnvöld fimm milljónir króna, sem sam- þykktar voru með fjáraukalögum í vetur. Víðtækt samstarf Rauða krossins og Blóðbankans „Ein leið til þess að koma í veg fyrir þjáningar og bjarga manns- lífum er að sjá til þess að til séu nægilegar blóðbirgðir í landinu þegar á þarf að halda. Blóðsöfn- un hefur verið eitt af meginverk- efnum Rauða krossins frá fyrri heimsstyrjöld og Rauði kross Ís- lands kom fyrst að blóðsöfnun í kringum 1943. Tíu árum síðar var Blóðbankinn stofnaður og allt frá þeim tíma hefur verið mikil og náin samvinna Rauða krossins og Blóðbankans,“ segir Sigrún Árnadóttir, framkvæmdastjóri Rauða kross Íslands. Hún bendir á að með þessu tæki sé reynt að koma í veg fyrir að sú staða komi nokkurn tíma upp hér á landi að ekki sé hægt að bjarga fólki á skurðarborðinu af því að það vanti blóð. Að sögn Sigrúnar hefur hlutur Rauða krossins í þessu samstarfi einkum verið að gefa út kynning- arefni, afla blóðgjafa og sjá um blóðsöfnunarferðir. Var fyrst keyptur bíll í kringum 1960 til þess að sjá um slíkar ferðir. Allt frá þeim tíma og til ársins 1995 lagði Rauði krossinn til bíl og bíl- stjóra og Blóðbankinn sérhæft starfslið. Við endurskoðun á ýms- um verkefnum Rauða krossins var ákveðið að hætta formlegum afskiptum af blóðsöfnunarmálum og hætta rekstri bíls en í staðinn var ákveðið að skilja við Blóð- bankann með veglegum hætti og kaupa þennan bíl. Rekstur þessa blóðbanka á hjólum er alfarið í höndum Blóðbankans en gert er ráð fyrir að deildir Rauða kross Íslands aðstoði við blóðsöfnun líkt og verið hefur. Víða um heim rekur Rauði krossinn blóðbanka og talið er að um þriðjungur blóðs sem safnað er á heimsvísu komi beint frá Rauða krossinum og annar þriðj- ungur frá blóðbönkum sem Rauði krossinn styður á einhvern hátt. Hreyfanlegur blóðbanki eykur öryggi í sjúkraþjónustu Morgunblaðið/Kristinn Jólasveinn gaf blóð í tilefni af komu nýja blóðsöfnunarbílsins. ÞEGAR búið er að taka utan af jóla- gjöfunum kemur oft í ljós að ýmsu þarf að skila eða skipta og vakna þá spurningar um skilarétt á vörum. „Það eru í raun engar reglur sem segja til um að verslanir þurfi að taka við vörum sem hafa verið keyptar nema þær séu gallaðar,“ segir Emil B. Karlsson hjá Samtökum verslunar og þjónustu. Hann segir að hins vegar sé hægt að skila vörum í allflestum verslunum þó að misjafnt sé hversu löngu eftir kaupin skilarétturinn gildi og hvort endurgreitt sé eða afhent inneignarnóta. Það er þó alltaf skil- yrði að framvísað sé kassakvittun eða að um sé að ræða augljósa jólagjöf, til dæmis jólabækur. Að sögn Emils koma stundum upp vandamál þegar útsölurnar hefjast eftir áramót. Þegar vörur sem keypt- ar voru fyrir jól á fullu verði, eru komnar á útsölu er varan venjulega metin á því verði sem að hún var keypt á, svo framalega sem að kassa- kvittun sé framvísað. Ef kassakvittun er ekki með í för eru vörurnar metnar á útsöluverði. Límmiðar gefa til kynna hvaða reglur gildi Viðskiptaráðuneytið gaf út fyrir um ári leiðbeinandi reglur fyrir versl- anir um hvernig æskilegt væri að standa að skilarétti. Þar eru meðal annars reglur um verðmæti vara þeg- ar þeim er skilað þegar útsala stendur yfir í verslunum. „Þar sem það voru ekki til neinar samræmdar reglur var ákveðið að setja saman vinnuhóp, sem semja átti slíkar reglur. Þeir sem taka þessar reglur upp geta límt hjá sér límmiða með ákveðnu merki, þannig að þá eiga neytendur að vita hvaða reglur gildi í þeim verslunum,“ segir Emil. Einhverjar verslanir hafa tekið þessar reglur upp en honum er ekki kunnugt um fjölda þeirra. Aðspurður hvort hann telji þörf fyrir að setja einhverjar bindandi reglur um skilarétt, segir hann að nýbúið sé að endurnýja kaupalögin, sem taki til neytendakaupa og hafi hann talið það nægjanlegt. Misjafnar reglur um skilarétt á vörum MD-83-farþegavél MD-flug- félagsins ehf., sem er m.a. í eigu íslenskra aðila, sem fór frá Ar- landa í Svíþjóð á Þorláksmess- umorgun. Vélinni, sem var í flugtaki áleiðis til Malaga á Spáni, var snúið við eftir 58 mínútna flug vegna viðvörunar- ljóss hjá flugmönnunum, sem gaf til kynna að nefhjól vélar- innar hefði ekki farið upp eftir flugtak. Hjólið reyndist ekki hafa far- ið í læsta stöðu þrátt fyrir að það drægist upp eins og eðlilegt var, en vegna ónógs þrýstings í loft- og vökvadælu hjólsins læstist það ekki. Tilraunir flug- manna til að ná hjólinu upp og fá ljósið til að slokkna báru ekki árangur og var vélinni því lent aftur á Arlandaflugvelli. Farþegar fóru frá borði og biðu á meðan gert var við vélina og var hún komin aftur í loftið eftir um þriggja klukkustunda töf. Talið er að 25 stiga frost nóttina áður en vélin fór í loftið hafi haft þau áhrif að vökva- kerfi hjólabúnaðarins virkaði ekki sem skyldi. Snúið við vegna bilunar í nefhjóli SALA flugelda stendur nú sem hæst og eru það einkum björgunar- og hjálparsveitir sem afla tekna til starfs síns með flugeldasölu. Fram- leiðslan og undirbúningur sölunnar stendur meira og minna allt árið en það er heldur fljótlegra að höndla og síðan skjóta dótinu til himins þegar þar að kemur. Allt hefur það þó einhvern tilgang, að gleðja kaupendur og koma að gagni í nauðsynlegu starfi sveitanna. Morgunblaðið/Þorkell Flug- eldasalan á fullri ferð LÖGREGLAN á Ísafirði lagði hald á um tvö grömm af hassi sem fundust á einum farþega sem kom til Ísafjarðar í áætl- unarflugi Flugfélags Íslands frá Reykjavík á Þorláksmessu. Um var að ræða 19 ára mann, sem hefur áður komið við sögu lögreglu vegna fíkniefnamis- ferlis. Honum var sleppt úr haldi lögreglu að loknum yfir- heyrslum en á von á tilheyrandi refsingu vegna brotsins. Hass tekið af manni FYRSTU ellefu mánuði ársins seldi Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins lið- lega 958 þúsund alkóhóllítra og er það um 7,4% meira en á sama tímabili í fyrra. Í lítrum talið nam salan tæp- lega 11,8 milljónum lítra og er það lið- lega 8% meira en í fyrra. Mest varð aukningin í sölu á rauðvíni og hvítvíni eða um 21,3% og 18,5% í lítrum talið. Þá jókst sala á bjór um rúm 7%. Minni breytingar urðu í sölu á sterku víni: Sala á vodka og brenni- víni stóð því sem næst í stað, sala á viskíi jókst um tæplega 3% en sala á rommi dróst saman um sama hlutfall. Samdráttur varð í sölu á öllum teg- undum tóbaks fyrstu ellefu mánuði ársins nema á neftóbaki en sala á því jókst lítillega. Sala á vindlingum dróst saman um 2,55%, á vindlum um 1,2%, á reyktóbaki um 3,8% og um 16,3% á munntóbaki. Höskuldur Jónsson, forstjóri ÁTVR, segir að dagarnir nú í desem- ber séu það afbrigðilegir og saman- burður erfiður að menn treysti sér ekki til þess að spá nákvæmlega fyrir um söluna á árinu öllu. „Almenn til- finning í verslunum okkar er þó sú að sala á léttu víni hafi aukist verulega á árinu en menn vilja minna fullyrða um sölu á sterku víni. Það eru þrír söludagar hjá okkur milli jóla og ára- móta og þá daga selst mjög mikið. Þetta mun því skýrast betur eftir ára- mótin.“ Veruleg aukning í sölu á léttvíni
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.