Morgunblaðið - 28.12.2001, Qupperneq 10
FRÉTTIR
10 FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
SÉRGREINAKENNARAR í Hafn-
arfirði eru að undirbúa málsókn til að
fá viðurkenndar greiðslur sem þeir
hafa notið frá bænum sl. 20 ár, en
þær voru felldar niður 1. ágúst sl.
þegar nýtt launakerfi tók gildi. Þess-
ar greiðslur byggjast á samningi sem
kennarar gerðu við bæjaryfirvöld í
Hafnarfirði og stéttarfélag kennara
kom hvergi nálægt að gera. Samn-
ingnum hefur enn ekki formlega ver-
ið sagt upp.
Kjarasamningur Félags grunn-
skólakennara við launanefnd sveitar-
félaganna, sem gerður var í byrjun
janúar, hefur talsvert verið gagn-
rýndur af hópi kennara. Um 37%
kennara greiddu atkvæði gegn hon-
um sem bendir til þess að hann hafi
verið umdeildur. Óánægja kennara
snerti m.a. breytingar sem gerðar
voru á kennsluafslætti eldri kennara,
en sérgreinakennarar voru einnig
óánægðir og tónmenntakennarar
ályktuðu t.d. á sínum tíma um að
hætta væri á að breytingar sem
samningurinn hefði í för með sér
leiddu til þess að tónmenntakennsla
legðist af í grunnskólum.
Kjarasamningurinn fól í sér veru-
legar hækkanir á grunnkaupi kenn-
ara, en jafnframt fól hann í sér breyt-
ingar á skipulagi skólastarfs sem
miðuðu að því að auka sveigjanleika
og auka möguleika skólastjóra til að
stýra skólastarfi, auk fjölgunar á
skóladögum.
Viðbótarsamningar algengir
Eftir að kjarasamningur var gerð-
ur við grunnskólakennara árið 1997
sögðu allmargir kennarar upp störf-
um til að þrýsta á um bætt kjör og
það leiddi til þess að einstök sveit-
arfélög gerðu samninga við kennara
um viðbótarkjör. Með samningnum
sem gerður var í janúar á þessu ári
vildu sveitarfélögin komast út úr
þessum viðbótarsamningum og því
byggðist samningurinn á þeirri for-
sendu að allir samningar um viðbót-
arkjör, yfirborganir eða hvers konar
álagsgreiðslur yrðu felldar brott.
Jafnframt lagði launanefndin mjög
hart að sveitarfélögunum að láta ekki
undan þrýstingi einstakra hópa
kennara um gerð viðbótarsamninga
líkt og gerðist 1997.
Mjög algengt er að við gerð kjara-
samninga setji samningsaðilar sér
það markmið að færa taxta að
greiddu kaupi og segja má að eitt af
markmiðum samnings grunnskóla-
kennara og launanefndarinnar hafi
verið að gera þetta. Samtök atvinnu-
lífsins og forveri þess Vinnuveitenda-
sambandið hafa margoft gert kjara-
samninga þar sem markmiðið var að
færa launataxta að greiddu kaupi.
Vinnuveitendur hafa reynt að
tryggja í samningnum að samhliða
launabreytingum falli yfirborganir
brott. Það hefur yfirleitt tekist en
ekki alltaf.
Eftir að VSÍ og Bifreiðastjóra-
félagið Sleipnir gerðu kjarasamning
árið 1995 komu fram efasemdir með-
al bílstjóra um að Sleipnir gæti tekið
ákvörðun um að skerða samninga um
yfirborganir sem félagið hafði aldrei
komið nálægt að semja um. Um var
að ræða samninga sem starfsmenn
gerðu beint við vinnuveitanda sinn án
afskipta stéttarfélagsins. Málið fór
að lokum til dómstóla og alla leið fyr-
ir Hæstarétt, sem féllst á rökstuðn-
ing starfsmannsins. Hvorki samtök
vinnuveitenda né stéttarfélag
mannsins gætu tekið ákvarðanir sem
vörðuðu ráðningarkjör mannsins
sem hann sjálfur hefði samið um við
sinn vinnuveitanda.
Eftir að þessi dómur féll hafa Sam-
tök atvinnulífsins sett ákvæði inn í
kjarasamning sem fela í sér að starfs-
menn geta valið um hvort þeir vilja
taka laun í samræmi við breytingar
sem kjarasamningurinn kveður á um
eða halda sömu kjörum að viðbættri
þeirri almennu prósentuhækkun sem
samið var um.
Dæmi um slíkt ákvæði er eftirfar-
andi ákvæði sem tekið er úr kjara-
samningi: „Starfsmaður sem kýs að
halda þeim greiðslum sem hann hef-
ur haft umfram taxta kjarasamnings
skal tilkynna vinnuveitanda það
skriflega innan 30 daga frá gildistöku
samnings þessa.“
Í samningi kennara við launa-
nefndina er ekkert slíkt ákvæði að
finna, en leiða má líkur að því að
samningsaðilar væru ekki í vandræð-
um með framkvæmd samningsins ef
sambærilegt ákvæði hefði verið sett í
hann. Raunar er ekkert ákvæði í
samningnum um að við launakerfis-
breytingarnar beri að tryggja að
engir kennarar lækki í launum.
Málshöfðun í undirbúningi
Heimilisfræðikennarar, smíða-
kennarar og myndmenntakennarar í
Hafnarfirði hafa sótt það fast að sam-
komulag sem þeir gerðu við bæjar-
stjórann í Hafnarfirði 12. september
1980 um viðbótargreiðslur fyrir inn-
kaup og viðhald verkfæra verði virt,
en hætt var að greiða eftir því þegar
launakerfisbreytingin tók gildi 1.
ágúst sl. Þeir hafa óskað eftir að
Kennarasambandið beiti sér í málinu
fyrir þeirra hönd. Forysta Kennara-
sambandsins er hins vegar í þeirri
erfiðu stöðu að þurfa bæði að tryggja
framkvæmd kjarasamnings sem hún
hefur gert, en á sama tíma verður
hún að vinna að framgangi mála sem
félagsmenn fela henni.
Niðurstaða KÍ var að fela lög-
manni sambandsins að vinna grein-
argerð um málið en þar er komist að
þeirri niðurstöðu að þó að túlka megi
grunnskólakennarasamninginn með
þeim hætti að ákvæðið um viðbótar-
kjör nái yfir samkomulagið frá 1980
sé það engu að síður staðreynd að
einstaklingsbundin ráðningarkjör
verði ekki afnumin með gerð kjara-
samnings. Samningurinn gildi þang-
að til Hafnarfjarðarbær hafi sagt
honum upp. Þetta er sama niður-
staða og Hæstiréttur komst að í
Sleipnismálinu.
Sérgreinakennarar
undirbúa málsókn
Efasemdir hafa vaknað um að ákvæði kjarasamnings grunnskóla-
kennara um viðbótarkjör haldi, en sérgreinakennarar í Hafnarfirði
eru að undirbúa málsókn. Egill Ólafsson skoðaði málið.
egol@mbl.is
REYNSLAN af notkun rafræns lyf-
seðils milli Heilbrigðisstofnunar
Þingeyinga á Húsavík og Húsavík-
urapóteks er góð og kostir kerfisins
hafa berlega sýnt sig, að mati Ásgeirs
Böðvarssonar yfirlæknis á heilbrigð-
isstofnuninni.
Í mars var undirritaður samstarfs-
samningur um svonefnda lyfseðils-
gátt milli heilbrigðisráðuneytis og
Eyþings (heilbrigðishóps Eyjafjarð-
ar- og Þingeyjarsýslna) um þróun raf-
ræns lyfseðils við forsvarsmenn fyr-
irtækisins DOC EHF sem hannar
hugbúnaðinn sem kerfið byggist á.
Hugbúnaðurinn gerir lækni kleift að
nálgast allar fagupplýsingar um lyf
um leið og lyfjum er ávísað á sjúkling.
Ýmis öryggisforrit eru samkeyrð lyf-
seðlunum og gera þau læknum við-
vart ef ávísun er frábrugðin ráðlagðri
meðferð og á því hugbúnaðurinn að
draga verulega úr hættu á mistökum
við lyfjagjöf.
Ásgeir segir samstarf DOC EHF
og Heilbrigðisstofnunarinnar hafa
gengið vel, en starfsmenn tölvufyrir-
tækisins koma reglulega norður og
breyta og bæta kerfið í samvinnu við
notendur þess. „Undanfarna tvo mán-
uði höfum við notað rafræna lyfseðla
á heilbrigðisstofnuninni og reynslan
er mjög góð,“ segir Ásgeir. „Við not-
um kerfið ekki á alla lyfseðla og
ástæðan fyrir því er sú að kerfið er
eins og er aðeins í tengslum við eitt
apótek og sumir kjósa að versla við
annað apótek, svo er ekki leyfilegt að
senda eftirritunarskyld lyf með þess-
um hætti og ekki heldur endurnýjan-
lega lyfseðla.“
Kostir kerfisins margþættir
Hugmyndin að baki kerfinu bygg-
ist á því að sjúklingur geti leyst út lyf-
seðilinn í hvaða apóteki sem er en til
reynslu er aðeins eitt apótek í sam-
starfinu nú. Ásgeir segir kosti raf-
ræns lyfseðils fram yfir handskrifaða
seðla vera margþætta. „Þegar þróun
á seðlinum hófst settum við fram ósk-
ir um að miklu meira væri inni í kerf-
inu en aðeins það að hafa sjálfan lyf-
seðilinn rafrænan. Við vildum setja
inn ýmsa þætti, svo að miklu meira
hangir á spýtunni. Það sem við höfum
þróað inn í seðilinn nú eru þrjú örygg-
iskerfi; svokölluð milliverkana- og
aukaverkanakerfi svo og skömmtun-
arkerfi. Þetta eru öryggiskerfi sem
verða til þess að áhættan á ofskömmt-
un og tvískömmtun er hverfandi sem
er auðvitað stór kostur.“
Einnig er verðskrá inni í kerfinu
sem gefur nýjustu upplýsingar, en áð-
ur höfðu læknar aðgang að verðskrá
sem var uppfærð 1–2 á ári. Einnig er í
kerfinu aðgangur að Sérlyfjaskránni
sem hefur að geyma fagupplýsingar
um öll skrásett lyf á Íslandi í dag.
„Helsti kosturinn er sá að rafræni
lyfseðillinn tryggir hámarksöryggi
fyrir lyfjaávísanir sem var eitt af upp-
haflegu markmiðum heilbrigðisráðu-
neytisins með kerfinu, en hugmyndin
er sú að allar upplýsingar séu dulkóð-
aðar. Með rafrænum lyfseðli verða
ólæsilegir lyfseðlar úr sögunni og
engin leið er fyrir mann úti í bæ að
falsa lyfseðil. Þá felst í notkun hans
mikil fjárhagsleg hagræðing. Ef við
hugsum okkur að allir lyfseðlar í
framtíðinni verði rafrænir þá er talað
um að 20 milljónir muni sparast ein-
göngu í pappírskostnaði.“
Útgjöld ríkisins til lyfjamála fara
sífellt hækkandi sem skýrist einkum
af breyttri aldurssamsetningu þjóð-
arinnar. „Ef allir fara að nota þennan
rafræna lyfseðil og þau öryggispró-
grömm sem honum geta fylgt, og í öll-
um tilfellum yrði notað ódýrasta lyf,
þá er varlega áætlað að um 10%
sparnaður myndi hljótast af.“
Ásgeir segir að sjúklingar séu al-
mennt ánægðir með þetta nýja kerfi
og efist ekki um öryggi þess. „Flestir
hafa engar áhyggjur og finnst þægi-
legt að lyfið bíði þeirra tilbúið til af-
greiðslu í apótekinu.“ Nú er unnið að
úttekt á þeirri reynslu sem komin er
af notkun rafræna lyfseðilsins. „Heil-
brigðisráðuneytið á síðan næsta leik
hvað þetta varðar og um það hvort all-
ar heilbrigðisstofnanir og apótek
muni taka upp þetta kerfi í framtíð-
inni. En við mælum með því, árangur
okkar er býsna góður.“
Góð reynsla af notkun lyfseðilsgáttar á Húsavík
„Kostir rafræns lyf-
seðils eru margþættir“
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hef-
ur dæmt tvo fyrrverandi flugvirkja
hjá Flugleiðum í fangelsi fyrir að
reyna að smygla fíkniefnum til lands-
ins í klæðningu flugvélar. Annar mað-
urinn var dæmdur í sex mánaða fang-
elsi en hinn í fjögurra mánaða
skilorðsbundið fangelsi. Einnig voru
tæp tvö kg af hassi gerð upptæk.
Málið kom upp í febrúar sl. Menn-
irnir voru báðir flugvirkjar og höfðu
unnið saman um árabil. Annar þeirra,
sá sem þyngri dóminn hlaut, flaug
með farþegavél Flugleiða til Amster-
dam nokkrum dögum fyrr, keypti þar
hass og kom því fyrir í tveimur leir-
brúsum undan áfengi. Tók hann sér
svo far með flutningavél félagsins til
baka og hafði komið leirbrúsunum
fyrir í hólfi sem er fyrir ofan loft-
klæðningu rétt fyrir aftan flugstjórn-
arklefann.
Eftir að vélin var lent á Keflavík-
urflugvelli fór hinn maðurinn um borð
í vélina en hann hafði stillt svo til að
það kæmi í hans hlut að framkvæma
reglubundna skoðun í vélinni. Hafði
maðurinn tekið brúsana úr hólfinu
þegar tollvörður kom að honum og
málið komst upp.
Pétur Guðgeirsson héraðsdómari
kvað upp dóminn. Verjandi þess sem
hlaut 6 mánaða dóminn var Örn Clau-
sen hrl. og verjandi meðákærða var
Sveinn Andri Sveinsson hrl. Svavar
Pálsson sótti málið fyrir ákæruvaldið.
Fyrrverandi flug-
virkjar dæmdir fyr-
ir hassinnflutning
JAPANSKIR ferðamenn létu
kuldann í Reykjavík í gær ekki
slá sig út af laginu heldur klæddu
sig eftir aðstæðum og skoðuðu
sig um í miðbænum.
Á köldum klaka
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
TVÆR bílveltur urðu á
Reykjanesbraut með þriggja
klukkustunda millibili í fyrra-
kvöld og fyrrinótt. Kl. 23.19 var
tilkynnt um bílveltu á Reykja-
nesbraut og svo aftur seinna
um nóttina. Einn var fluttur á
sjúkrahús úr hvorri veltu.
Laust eftir klukkan fimm í
gærmorgun varð svo árekstur
á mótum Grensásvegar og
Miklubrautar og var einn mað-
ur var fluttur á sjúkrahús. Báð-
ar bifreiðarnar voru dregnar á
brott með dráttarbifreið og
númer tekin af annarri þeirra.
Tvær veltur á
Reykjanesbraut
Tekinn með
hálft kg af hassi
TOLLGÆSLAN á Keflavíkur-
flugvelli tók 500 grömm af hassi
af Íslendingi á leið frá Kaup-
mannahöfn á jóladag. Maður-
inn, sem er á fertugsaldri, var
handtekinn og er fíkniefnadeild
lögreglunnar í Reykjavík með
málið til rannsóknar. Mannin-
um var sleppt að loknum yfir-
heyrslum og þótti ekki ástæða
til að krefjast gæsluvarðhalds
yfir honum. Hassið fannst í til-
viljanaúrtaki meðal farþega.