Morgunblaðið - 28.12.2001, Blaðsíða 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2001 11
FJÖLBRAUTASKÓLINN í Breið-
holti útskrifaði nemendur í 56. sinn
föstudaginn 21. desember sl. Alls
luku 103 nemendur námi við skól-
ann, 59 nemendur luku stúdents-
prófi, 37 nemendur luku prófum af
starfsnámsbrautum og 7 nemendur
luku öðrum prófum.
Þær María Kristinsdóttir og
Linda Rós Björnsdóttir voru með
bestan árangur á stúdentsprófi.
Erna Sigurðardóttir náði hæstri ein-
kunn sjúkraliða, Bjarney Sif Krist-
insdóttir náði bestum árangri snyrti-
fræðinga, Einar Örn Ágústsson var
með bestan árangur rafvirkja og
Ólafur Ásmundsson var hæstur tré-
smiða í útskriftarhópnum.
Í yfirlitsræðu skólameistara,
Kristínar Arnalds, kom fram að
skólastarfið í vetur hafi gengið vel
en alls voru 2.055 nemendur í dag-
og kvöldskóla FB á önninni. Kristín
nefndi að skólanum væri naumt
skammtað fé og hefði hann þurft að
bregðast við með ýmsu móti, m.a.
hafi verið dregið úr námsframboði
og ýmis þjónusta verið skert. Kristín
sagði að þrátt fyrir mikinn halla
væri kostnaður við hvern nemanda í
FB hvað lægstur á landinu og mun-
aði þar tugum þúsunda.
Að lokinni útskriftarathöfninni
sungu viðstaddir jólasálminn Heims
um ból við undirleik Pálmars Ólafs-
sonar, kennara við skólann, og
kvöddu útskriftarnemendurnir skól-
ann sinn með hlýrri jólakveðju.
Útskrift Fjölbrauta-
skólans í Breiðholti
Morgunblaðið/Sverrir
Útskriftarnemendur Fjölbrautaskólans í Breiðholti tóku
stoltir við prófskírteinum sínum.
STJÓRN Félags íslenskra atvinnu-
flugmanna, FÍA, hefur sett fram at-
hugasemd við eina grein lagafrum-
varps um breytingu á lögum um
loftferðir. Er frumvarpið nú til um-
fjöllunar hjá samgöngunefnd Al-
þingis. Franz Ploder, formaður FÍA,
tjáði Morgunblaðinu að flugmenn
hefðu ekkert út á það að setja að
Flugmálastjórn fengi meiri völd til
eftirlits í þágu flugöryggis en stofn-
un sem hafi þann starfa að kanna og
hafa eftirlit með hæfni flugmanna og
flugrekenda til starfa sinna þurfi
sjálf að sýna og sanna hæfni sína til
þess. Er vikið að þessu í bréfi til sam-
göngunefndarinnar.
Athugasemdin sem FÍA gerir við
lagafrumvarpið er varðandi 4. grein-
ina. Þar er kveðið á um að almennt
aldurshámark flugliða í flutninga-
flugi skuli vera 60 ár en ráðherra sé
heimilt að framlengja þessi mörk eða
reglugerð allt til 65 ára aldurs að
fullnægðum skilyrðum sem hann set-
ur. Þetta vill FÍA fá í lögin sjálf og
leggja til að í 4. grein standi að mörk-
in megi framlengja til allt að 65 ára
aldurs ef í áhöfn séu fleiri en einn
flugmaður, aðrir flugmenn í
áhöfninni yngri en 60 ára og um sé að
ræða innanlandsflug eða að
samþykki erlends ríkis komi til.
Kveðst félagið rökstyðja þessa
breytingartillögu með því að hér sé
um svo mikilvæg atvinnu- og per-
sónuréttindi og almenn mannrétt-
indi að ræða að rétt sé að setja slíkar
reglur í lög.
Í bréfi FÍA segir að ljóst sé af al-
mennu athugasemdunum með frum-
varpinu að tilefni þess sé að auka
flugöryggi. „Almennu öryggi í flugi á
að ná fram m.a. með því, eins og seg-
ir í athugasemdunum, að auka þving-
unarúrræði og eftirlitsvald Flug-
málastjórnar,“ segir í bréfi FÍA. Í
athugasemdum með lagafrumvarp-
inu stendur m.a.: „Með frumvarpi
þessu eru ætlunin að fjölga þving-
unarúrræðum stofnunarinnar og efla
hana þannig til eftirlitsstarfsins með
það að markmiði að auka flugör-
yggi.“
Mikilvæg staða ekki auglýst
FÍA segir einnig í bréfi sínu að
Flugmálastjórn þurfi að hafa yfir að
ráða starfsmönnum með sérþekk-
ingu á flugi sem sönnuð sé með námi
og prófum. Starfsmönnum þurfi og
að vera ljóst að hlutverk þeirra sé
ekki aðeins að hafa eftirlit með hönd-
um heldur að greiða götu manna eft-
ir bestu getu. „Með því móti skapast
traust sem aftur leiðir til aukins flug-
öryggis,“ segir FÍA.
Þá segir félagið dæmi um að ekki
hefði verið auglýst mikilvæg staða
hjá Flugmálastjórn sem auglýsa
hefði átt lausa til umsóknar heldur
skipað í hana að geðþótta. Þetta væri
ekki fallið til þess að auka traust og
þar með flugöryggi.
Einnig kemur fram í bréfi félags-
ins til nefndarinnar að traust stjórn-
ar FÍA og fjölda flugmanna til Flug-
málastjórnar Íslands hafi minnkað
svo mikið að verði ekki úr því bætt
með einhverjum hætti kunni það að
leiða til trúnaðarbrests.
Telja Flugmálastjórn eftirbát
annarra í gæðakerfum
Forráðamenn Flugskóla Íslands
setja fram þau sjónarmið í umsögn
sinni um frumvarpið að Flugmála-
stjórn sé eftirbátur allra stærri flug-
rekstraraðila hérlendis hvað varði
traust gæðakerfi. Megi skrifa gagn-
rýni á Flugmálastjórn, sem m.a. hafi
verið undanfarið í kjölfar flugslyss-
ins í Skerjafirði á síðasta ári, á reikn-
ing ófullkomins gæðakerfis innan
stofnunarinnar.
Í niðurlagi bréfs Flugskólans seg-
ir að mikil aukning í flugrekstri og
flugkennslu hérlendis krefjist aukins
mannafla hjá Flugmálastjórn. Það sé
skoðun skólans að þar vanti starfs-
fólk sem hafi nauðsynlega menntun,
reynslu og þekkingu til að geta starf-
að sem eftirlitsmaður Flugmála-
stjórnar með flugrekstri eða skír-
teinismálum. „Þessu til staðfestingar
má til dæmis nefna að hjá skírteina-
deild Flugmálastjórnar í dag starfar
ekki einn einasti aðili með fullnaðar
flugmannsmenntun né víðtæka eða
staðgóða reynslu úr flugrekstri,“
segir í bréfi Flugskóla Íslands.
Flugmenn telja traust til Flugmálastjórnar hafa minnkað
Telja Flugmálastjórn
þurfa að sanna hæfni sína
SÍBROTAMAÐUR hefur verið
dæmdur í þriggja mánaða fangelsi
fyrir vopnalagabrot með því að ógna
dyraverði með eftirlíkingu af
skammbyssu þegar honum var neit-
að um inngöngu á veitingahús á
gamlársdag í fyrra.
Byssan var í raun kveikjari en í
dómi Héraðsdóms Reykjavíkur seg-
ir að eftirlíkingin væri áþekk byssu
að gerð og lögun og þurfi að horfa á
gripinn nokkra stund til að átta sig
á því að um er að ræða eitthvað
annað en skotvopn. Með atlögu sinni
að dyraverðinum þótti maðurinn
hafa brotið gegn 233. gr. almennra
hegningarlaga.
Maðurinn, sem er 45 ára, á lang-
an sakaferil að baki. Hann var fyrst
dæmdur til óskilorðsbundinnar
refsivistar með dómi Sakadóms
Reykjavíkur í ágúst 1974. Hann hef-
ur sætt refsingum reglulega síðan
og var nú ákveðinn hegningarauki
við refsingu samkvæmt tveimur
refsidómum, sem hvor um sig hljóð-
aði upp á fangelsi í sex mánuði. Eru
það dómar Hæstaréttar frá í mars
sl. og dómur Héraðsdóms Reykja-
víkur frá í janúar sl. Auk refsing-
arinnar var kveikjarinn gerður upp-
tækur og maðurinn dæmdur til að
borga allan sakarkostnað, þar með
talin 60.000 króna málsvarnarlaun
verjanda síns, Hilmars Ingimund-
arsonar hrl.
Jón Finnbjörnsson héraðsdómari
kvað upp dóminn.
Ógnaði með eftirlík-
ingu af skammbyssu
HÉRAÐSDÓMUR Austurlands
hefur sýknað karlmann á þrítugs-
aldri af ákæru fyrir að kveikt í íbúð-
arhúsinu á Hvalsnesi í Lóni í janúar
á þessu ári með því að brjótast inn í
mannlaust húsið og skilja eftir log-
andi kerti á tréborði. Þá var bóta-
kröfu VÍS upp á tæplega 20 milljónir
vísað frá.
Maðurinn var hins vegar dæmdur
í 60 daga fangelsi fyrir að brjótast
inn í húsið, fyrir umferðarlagabrot
og fyrir að villa á sér heimildir þegar
lögregla stöðvaði hann vegna hrað-
aksturs en hann gaf þá upp rangt
nafn og skrifaði það nafn einnig und-
ir lögregluskýrslu.
Í niðurstöðum dómsins segir að ef
gengið sé út frá því að frásögn
mannsins sé rétt, að hann hafi skilið
eftir logandi kerti á borðbrún þegar
hann yfirgaf húsið nóttina sem eld-
urinn kom upp, verði að telja miklar
líkur á að athæfi hans hafi leitt til
þess að eldur varð laus í húsinu. Hins
vegar mæli það gegn því að eldur
hafi orðið laus af þessum sökum að
flest bendi til þess að liðið hafi þrjár
klukkustundir frá því maðurinn fór
úr húsinu þar til elds varð vart auk
þess sem eldsupptök séu talin hafa
verið um 3–4 metra frá þeim stað
sem maðurinn taldi sig hafa skilið
kertið eftir. Verði því að telja að ekki
sé komin fram nægileg sönnun þess
að rekja megi eldsupptök til sak-
næms brots mannsins.
Logi Guðbrandsson héraðsdómari
kvað upp dóminn. Málsvarnarlaun
skipaðs verjanda mannsins, Sveins
Andra Sveinssonar hrl., 300.000
krónur, verða greidd úr ríkissjóði.
Sýknaður af ákæru um íkveikju
Ekki nægjanleg
sönnun fyrir sök