Morgunblaðið - 28.12.2001, Page 12
FRÉTTIR
12 FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
„ÞAÐ vill stundum gleymast að
kjarnorkuógnin hefur síst minnkað
þótt stórveldin séu í bili hætt að
skaka vopnum sínum hvert að
öðru,“ sagði Sveinn Rúnar Hauks-
son, læknir og formaður Félagsins
Ísland – Palestína, m.a. í ræðu sinni
á fundi á Ingólfstorgi á Þorláks-
messu, sem haldinn var í kjölfar ár-
legrar friðargöngu niður Laugaveg-
inn. Friðargangan var fjölmenn í ár
eins og undanfarin ár en Hamrahlíð-
arkórinn undir stjórn Þorgerðar
Ingólfsdóttur kórstjóra tók þátt í
friðargöngunni. Gangan endaði á
Ingólfstorgi þar sem Sveinn Rúnar
flutti stutt ávarp og að lokum var
sunginn friðarsöngur.
Sveinn Rúnar sagði m.a. í ræðu
sinni að á tímum margfalds gjöreyð-
ingarmáttar vopnanna sem væru til
reiðu væri friður ekki einungis helg
þrá einstaklingsins heldur grund-
vallarskilyrði þess að líf á jörðu
verði varðveitt. „Enn þann dag í dag
eru kjarnorkuvopnin forgangsatriði
í vígbúnaði Bandaríkjanna og ann-
arra stórvelda. Eina hernaðar-
bandalagið sem eftir stendur,
NATO, áskilur sér rétt til að beita
kjarnorkuvopnum að fyrra bragði,“
sagði hann m.a.
Sveinn Rúnar gerði ástandið fyrir
botni Miðjarðarhafs einnig að um-
talsefni og sagði að lítil von væri til
þess að ástandið skánaði á svæðinu
„á meðan forseti Bandaríkjanna
[George W. Bush] veitti hryðju-
verkaforingjanum Sharon sitt full-
tingi,“ eins og hann orðaði það. Vís-
ar hann þar til Ariels Sharons,
forsætisráðherra Ísraels. „Það er
ekki traustvekjandi fyrir umheim-
inn, að forseti Bandaríkjanna, sem
vill hafa forystu í stríði gegn hryðju-
verkum, skuli gefa dæmdum hryðju-
verkamanni, sem hafist hefur til
æðstu valda í Ísrael, einu öflugusta
hernaðarveldi heims, – skuli gefa
honum grænt ljós til árása á óvopn-
aðan almenning, á heimili fólks,
skólabörn, lögreglustöðvar, sjúkra-
hús og hvaðeina sem fyrir kanna að
verða í borgum og byggðum Palest-
ínumanna.“
Síðar sagði Sveinn Rúnar: „Í
Belgíu er opinbert mál í gangi á
grundvelli alþjóðalaga vegna glæpa-
verka Sharons. Menn eins og hann
og bin Laden verður að draga fyrir
alþjóðlegan stríðsglæpadómstól. En
það er einmitt annar meinbugur á
forystuhlutverki Bandaríkjanna, að
þau skuli ekki vilja eiga aðild að
slíkum dómstóli og viðurkenna lög-
sögu hans. Ástæðan er sögð stríðs-
glæpir þeirra sjálfra í Víetnam og
víðar, Bandaríkjastjórn sé ekki
reiðubúin að framselja þegna sína
sem óhjákvæmilega yrðu ákærðir
fyrir alþjóðlegum stríðsglæpadóm-
stóli. Það er því heldur ófögur mynd
sem blasir við okkur í upphafi þess-
arar aldar. Hernaðarandinn ræður
enn ríkjum og eitt risaveldi gnæfir
yfir í hernaðarmætti sínum. En von-
ir okkar mega samt aldrei bresta.
Kertaljósin hér varpa birtu friðar
inn í hugi okkar, – sú birta vermir
hjörtu langt út fyrir Ingólfstorg.“
Fjölmenn blysför á Þorláksmessu
Morgunblaðið/Sverrir
Gangan endaði á Ingólfstorgi þar sem flutt var ávarp og sungið.
„Kjarnorku-
ógnin hefur
síst minnkað“
JÓLAHALD fór víðast hvar vel
fram um jólin og kirkjusókn var
með besta móti. Að sögn þeirra
sóknarpresta sem Morgunblaðið
ræddi við var kirkjusókn góð á að-
fangadag, jóladag og annan í jólum
en svo virðist sem miðnæturmessur
sem hefjast kl. hálf tólf á að-
fangadagskvöld séu að sækja í sig
veðrið í þéttbýlinu. Þær séu ekki
síst vinsælar meðal ungs fólks. Þá
tala margir prestar um að kirkju-
sókn sé að verða æ meiri annan í jól-
um.
Sr. Gísli Jónasson, prófastur í
Reykjavíkurprófastsdæmi eystra
og prestur í Breiðholtskirkju, segir
kirkjusókn um jólin hafa verið mjög
góða. „Það hefur reyndar ekki ver-
ið svona fjölmennt í kirkjunni hjá
mér í nokkuð mörg ár,“ segir sr.
Gísli, en Breiðholtskirkja tilheyrir
einum fámennasta söfnuði höf-
uðborgarsvæðisins. Hann segir
ennfremur að kirkjusókn hafi verið
mjög góð annan í jólum en þann dag
komi mikið af fjölskyldufólki.
„Kirkjusókn annan í jólum hefur
aukist mjög mikið.“
Í fjölmennustu sókn landsins,
Grafarvogssókn, var kirkjusókn
einnig mikil á jólunum. Sr. Vigfús
Þór Árnason, sóknarprestur í Graf-
arvogssókn, segir að um 1.200
manns hafi sótt guðsþjónustu Graf-
arvogskirkju kl. sex á aðfangadag
og að margir hafi þurft frá að
hverfa. Grafarvogskirkja tekur um
þúsund manns í sæti og segir sr.
Vigfús Þór að kirkjan hafi því verið
þéttsetin. Margir sátu í gluggakist-
um eða stóðu þá þrjá stundarfjórð-
unga sem guðsþjónustan stóð yfir.
Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson, pró-
fastur í Reykjavíkurprófastsdæmi
vestra og prestur í Hallgrímskirkju,
segir eins og aðrir prestar að
kirkjusókn hafi verið góð um jólin.
Hann bendir ennfremur á að kirkju-
sókn í desember sé að aukast al-
mennt.
Sumarbústaðagestir í Skálholti
Séra Svavar A. Jónsson, sókn-
arprestur í Akureyrarkirkju, segir
eins og fleiri, að kirkjusókn hafi
verið góð um jólin en hún hafi verið
óvenjugóð annan í jólum. Sennilega
hafi verið um 100 til 150 fleiri í
guðsþjónustunni annan í jólum nú
en í fyrra.
Sr. Svavar segir eins og prest-
arnir í Reykjavík að miðnæt-
urmessa á aðfangadag sé að sækja í
sig veðrið og segir hann það ein-
kennandi fyrir þá messu hve mikið
af ungu fólki mæti. „Við erum með
altarisgöngu í miðnæturmessunni
og kemur unga fólkið nær und-
antekningarlaust til altaris,“ segir
sr. Svavar.
Séra Úlfar Guðmundsson, pró-
fastur í Árnesprófastsdæmi, bendir
á að kirkjusókn sé ávallt góð um jól-
in og að engin undantekning hafi
verið á því þessi jól. „Kirkjusóknin
var svipuð nú og undanfarin ár.“
Sr. Egill Hallgrímsson, sókn-
arprestur í Skálholtsprestakalli,
segir eins og sr. Úlfar að kirkjusókn
sé ávallt góð um jólin en hann hafi
þó orðið var við að ákveðinn hópur
sæki í auknum mæli jólaguðsþjón-
ustur hjá Skálholti. Sá hópur er
fólkið sem dvelji í sumarbústöðum
um jólin en mikið af sumarbústöð-
um eru í nágrenni Skálholtskirkju.
„Margir sumarbústaðir eru orðnir
heilsársbústaðir,“ útskýrir sr. Egill
„og talsvert af fólki virðist dvelja í
þessum bústöðum um jólin.“ Það
fólk sæki því messur í þeirri kirkju
sem það þekkir og er næst sum-
arbústaðnum.
Kirkjusókn var með besta móti
Morgunblaðið/Ásdís
Góð kirkjusókn var um jólin eins og sést m.a. á þessari mynd sem tekin
var í Hallgrímskirkju á aðfangadag.
HELGI I. Jónsson, héraðsdómari
og formaður Dómarafélags Íslands,
telur að 4½ árs fangelsisdómur
Hæstaréttar yfir Kristni Óskars-
syni, sem nauðgaði unnustu sinni
hrottalega í sumarbústað í Helga-
fellssveit, sé skýr vísbending um þá
réttarþróun undanfarinna ára að
refsingar vegna kynferðisbrota séu
að þyngjast. „Hæstiréttur er for-
dæmisgefandi,“ segir Helgi.
Aðspurður hvers vegna refsi-
rammi í kynferðisbrotamálum sé
aðeins nýttur að hluta á sama tíma
og hann er nýttur til hins ýtrasta í
fíkniefna- og manndrápsmálum
segist Helgi ekki vilja tjá sig um
það.
Hann bendir á að á Íslandi séu
refsingar í nauðgunarmálum al-
mennt með þeim þyngstu á Norð-
urlöndum. Aðeins í Svíþjóð séu
dómarnir þyngri en þeir séu al-
mennt vægastir í Danmörku. Hér á
landi sé refsirammi almennt ekki
nýttur í öðrum málaflokkum en í
mjög alvarlegum fíkniefnamálum
og vegna manndrápa af ásetningi.
Þetta geti þó breyst.
„Rétturinn er í sífelldri þróun
eins og hefur sýnt sig varðandi
þyngingu dóma í kynferðisbrota-
málum,“ segir Helgi. Breytt gild-
ismat í samfélaginu hljóti að leiða
til breytinga á dómaframkvæmd en
sú þróun taki ekki stökkbreyting-
um í ljósi jafnræðissjónarmiða.
„Þróunin hefur orðið sú á síðustu
árum að refsingar sem lúta að brot-
um á líkama manna og heilsu hafa
þyngst í hlutfalli við refsingar til
dæmis vegna auðgunarbrota.“
Breytingarnar verði á hinn bóginn
ekki í stórum stökkum eins og fyrr
segir.
Formaður Dómarafélags Íslands segir að refsingar vegna nauðgunarmála séu að þyngjast
Breytingarnar verða
ekki í stökkum
UM 160 manns sóttu jólafagnað
Verndar og Hjálpræðishersins í
Herkastalanum við Kirkjustræti í
Reykjavík á aðfangadag jóla, en
þangað eru allir velkomnir sem ekki
hafa tök á að dveljast hjá vinum og
vandamönnum á aðfangadagskvöld.
Að sögn Ragnheiðar Jónu Ármanns-
dóttur, kafteins í Hjálpræðishern-
um, mættu um 150 manns á jólafagn-
aðinn á síðasta ári. Ívið fleiri hefðu
því mætt í ár en í fyrra.
Borðhald hófst kl. 18 og að sögn
Ragnheiðar fóru allir gestir heim
með jólagjafir. Hún segir að á jóla-
fagnaðinn komi m.a. einstæðingar en
einnig einstæðir foreldrar sem ekki
hafi efni á því að halda jólin heima.
Ívið fleiri
en í fyrra
Jólafagnaður Verndar
og Hjálpræðishersins
HÁLFFIMMTUGUR karlmaður
hefur í Héraðsdómi Reykjavíkur ver-
ið dæmdur í hálfs árs fangelsi fyrir að
hafa slegið konu í höfuðið á veitinga-
húsi í febrúar í fyrra með þeim afleið-
ingum að gat kom á hljóðhimnu
vinstra eyra hennar og hlaut hún
mikið heyrnartap.
Maðurinn var dæmdur á grund-
velli sömu ákæru og nú í mars sl.
Hæstiréttur ómerkti þann dóm m.a.
vegna þess að þá var dómurinn ekki
fjölskipaður, ekki hafði verið leitað
eftir framburði dyravarða og álits-
gerðar læknis.
Maðurinn krafðist sýknu en fram
þótti koma lögfull sönnun þess að
hann hafi slegið konuna í höfuðið.
Fjölskipaður dómur komst að þeirri
niðurstöðu að telja yrði að um stór-
fellt heilsutjón í skilningi 2. mgr. 218.
gr. almennra hegningarlaga hafi ver-
ið að ræða. Við ákvörðun refsingar
þótti ekki unnt að meta til refsimild-
unar þá fullyrðingu mannsins að kon-
an, sem hann sló, hafi klórað hann í
andlitið og þótti sú fullyrðing hans að
það hefði leitt til þess að hann sló
hana flötum lófa í andlitið ósönnuð.
Dyraverðir fundust ekki
Eftirgrennslan lögreglu eftir því
hverjir voru dyraverðir umrætt kvöld
bar ekki árangur.
Maðurinn var dæmdur í þriggja
mánaða skilorðsbundið fangelsi í júní
1999 fyrir hegningarlagabrot, en þar
var um að ræða ofsafengna árás sem
höfðu alvarlegar afleiðingar í för með
sér fyrir brotaþola. Ákærði rauf skil-
orð fyrrnefnds dóms og var hann því
tekinn upp og honum gerð refsing í
einu lagi. Þótti hún hæfilega ákveðin
fangelsi í 6 mánuði. Auk refsingar var
maðurinn dæmdur til að borga allan
sakarkostnað málsins, þar með talin
90.000 krónur málsvarnarlaun skip-
aðs verjanda síns, Hilmars Ingi-
mundarsonar hrl.
Héraðsdómararnir Jón Finn-
björnsson, Auður Þorbergsdóttir og
Eggert Óskarsson kváðu upp dóm-
inn.
Dæmdur í
annað sinn
fyrir sömu
árásina
♦ ♦ ♦