Morgunblaðið - 28.12.2001, Qupperneq 14
AKUREYRI
14 FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
SAMHERJI hf. hefur ákveðið að
ganga til samninga við útgerðarfyr-
irtækið Deutsche Fischfang Union í
Cuxhaven í Þýskalandi (DFFU) um
sölu frystiskipsins Baldvins Þor-
steinssonar EA-10 til DFFU. Miðað
er við að skipið verði afhent nýjum
eiganda í febrúar á næsta ári. Jafn-
framt er gert ráð fyrir að Samherji
hf. kaupi frystiskipið Hannover,
(gömlu Guðbjörgina ÍS) sem mun
geta veitt og unnið rækju, bolfisk og
uppsjávarfisk um borð. Fjárfesting
Samherja hf. í þessum viðskiptum
við DFFU nemur sem svarar 265
milljónum króna.
Baldvin Þorsteinsson EA-10, sem
er 995 brúttólesta frystiskip, er
fyrsta nýsmíði Samherja og hóf veið-
ar fyrir félagið í árslok 1992. Útgerð
skipsins hefur ætíð verið mjög far-
sæl og flest þau ár sem Samherji hef-
ur gert það út hefur það verið afla-
hæst og/eða með mest aflaverðmæti
hérlendra fiskiskipa.
Heildarafli Baldvins Þorsteins-
sonar tæplega 70 þúsund tonn
Á þeim níu árum sem Samherji
hefur gert það út er heildarafli þess
tæplega 70 þúsund tonn upp úr sjó,
aflaverðmæti er um 6,9 milljarðar
króna. Miðað við fiskverð og gengi í
dag er verðmætið um 10 milljarðar
króna. Fullyrða má að ekkert hér-
lent fiskiskip hafi fengið meiri afla
upp úr sjó á umræddu árabili. Á
þessu árabili nema launagreiðslur til
áhafnar Baldvins Þorsteinssonar og
launatengd gjöld um 2,8 milljörðum
króna.
Á yfirstandandi ári er afli Bald-
vins Þorsteinssonar um 6.200 tonn.
Þetta er minni afli en á síðasta
almanaksári sem skýrist fyrst og
fremst af sex vikna verkfalli sjó-
manna síðastliðið vor. Flest árin hef-
ur Baldvin aflað 7–8 þúsund tonn á
ári og mestur varð aflinn 8.661 tonn
árið 1996.
Kristján Vilhelmsson, fram-
kvæmdastjóri útgerðarsviðs Sam-
herja, segir að af þeim 70 þúsund
tonnum sem Baldvin Þorsteinsson
EA–10 hafi veitt frá árinu 1992 séu
um 19 þúsund tonn af þorski, 40 þús-
und tonn af karfa – þar af um 28 þús-
und tonn af úthafskarfa – 2.700 tonn
af ýsu og um 3.400 tonn af grálúðu.
Mikill hluti af afla Baldvins Þor-
steinssonar hefur verið tekinn á haf-
svæði utan íslensku lögsögunnar og
hefur um helmingur af afurðum
skipsins farið á Asíumarkað, sem er
mjög kröfuharður markaður fyrir
sjófrystar afurðir og borgar gott
verð.
Hannover lengt um 18 metra
og breytt í fjölveiðiskip
Samhliða sölu Baldvins Þorsteins-
sonar EA til DFFU í Þýskalandi er
eins og áður segir gert ráð fyrir að
Samherji hf. kaupi frystiskipið
Hannover NC-100 af Deutsche
Fischfang Union. Skipið er 1.225
brúttólestir að stærð, smíðað árið
1994. Nú er unnið að gerð samninga
við skipasmíðastöð í Lettlandi um
gagngerar breytingar á skipinu.
Áætlað er að lengja Hannover um 18
metra og breyta því í fjölveiðiskip,
svipuðu Vilhelm Þorsteinssyni
EA-11. Gert er ráð fyrir að ráðist
verði í þessar breytingar fljótlega á
nýju ári og að Samherji geti sent
skipið á veiðar í lok maí nk. Áætlaður
kostnaður við breytingarnar á
Hannover er um 400 milljónir króna.
Eftir breytingarnar verður Hann-
over 85 metrar að lengd og frysti-
lestar skipsins um 1.600 rúmmetrar
að stærð, sem er allt að helmings
aukning frystirýmis frá því sem nú
er. Nú eru um borð í Hannover full-
komnar vinnslulínur fyrir bolfisk og
rækju, en jafnhliða lengingu skipsins
verður þar komið fyrir vinnslulínu
fyrir uppsjávartegundir. Gert er ráð
fyrir að skipið geti fryst 140–150
tonn af uppsjávarfiski á sólarhring
og það geti borið um 750 tonn af af-
urðum, eða um 600 tonn ef afurð-
unum er komið fyrir á brettum í
frystilest.
Frekari áhersla lögð
á uppsjávarveiðina
„Það er ljóst að bolfiskkvóti okkar
hefur verið skertur og jafnframt
hafa aflaheimildir verið fluttar frá
stærri skipunum til smábátaútgerð-
arinnar. Við þessum breyttu aðstæð-
um þurfum við að bregðast,“ segir
Þorsteinn Már Baldvinsson, for-
stjóri Samherja. „Reynsla okkar af
útgerð Vilhelms Þorsteinssonar
EA-11 er mjög góð og við teljum
ástæðu til þess að leggja frekari
áherslu á uppsjávarveiðina. Í því
ljósi var tekin ákvörðun um að fara
þá leið að selja Baldvin Þorsteinsson
til Þýskalands og jafnframt að
breyta Hannover í fjölveiðiskip, sem
er sambærilegt við Vilhelm Þor-
steinsson, en hefur þó til viðbótar
möguleika á því að veiða og vinna
rækju. Við munum færa bolfisk-
heimildir okkar á Baldvini Þor-
steinssyni yfir á önnur skip félagsins
og þannig erum við að nýta betur
skipastól þess og laga hann að skert-
um aflaheimildum á undanförnum
misserum. Við sjáum það meðal ann-
ars fyrir okkur að Samherji fari að
nýta að hluta rækjukvóta sinn á
Flæmska hattinum þannig að við
tryggjum betur hráefnisöflun fyrir
Strýtu, rækjuverksmiðju okkar á
Akureyri,“ sagði Þorsteinn ennfrem-
ur.
Leitast við að bjóða áhöfninni
störf á öðrum skipum félagsins
Baldvin Þorsteinsson mun fara í
sína síðustu veiðiferð undir merkjum
Samherja strax eftir áramót og eins
og áður segir verður skipið afhent
nýjum eiganda í febrúar. Hannover
er hins vegar þessa dagana í sinni
síðustu veiðiferð fyrir DFFU og
mun verða afhent Samherja í næsta
mánuði. Áhöfn Baldvins Þorsteins-
sonar verður sagt upp um áramótin
og verður leitast við að bjóða henni
störf á öðrum skipum félagsins.
Baldvin Þorsteinsson EA, frystiskip Samherja, selt til DFFU í Þýskalandi
Hannover NC keypt í stað-
inn og breytt í fjölveiðiskip
Útlitsteikning af Hannover NC eftir að skipið hefur verið lengt um 18 metra og breytt í fjölveiðiskip.
Tækifæri hf.
fjárfestir í
Hex-tækni
FJÁRFESTINGASJÓÐURINN
Tækifæri hf., sem starfar á Norð-
urlandi, hefur fjárfest í fyrirtæk-
inu Hex-tækni ehf. en það byggir
starfsemi sína á hugviti bræðranna
Davíðs og Níls Gíslasona. Hex-
tækni hefur m.a. þegar framleitt
mælitæki sem notuð eru í sjávar-
útvegi og flugsamgöngum. Sam-
hliða þessari fjárfestingu Tæki-
færis hf. hefur Hámark ehf., sem
er félag í eigu Lífeyrissjóðs Norð-
urlands, einnig fjárfest í fyrirtæk-
inu.
Markmið Hex-tækni er að smíða
mælitæki af ýmsum toga og hefur
félagið þegar smíðað frumgerðir
nýrra mælitækja sem miklar vonir
eru bundnar við.
Frá því fjárfestingasjóðurinn
Tækifæri hf. tók til starfa hefur
hann fjárfest fyrir um 120 millj-
ónir króna á Norðurlandi, en
hlutafé sjóðsins er tæpar 370 millj-
ónir króna. Hlutafjáraukning hef-
ur staðið yfir og er áformað að
heildaraukning hlutafjár verði 200
milljónir króna á þessu ári. Sjóð-
urinn er í vörslu Íslenskra verð-
bréfa hf.
Menningarfulltrúi
Akureyrarbæjar
23 umsóknir
um stöðuna
ALLS bárust 23 umsóknir um starf
menningarfulltrúa Akureyrarbæjar
en umsóknarfrestur rann út í vik-
unni. Menningarfulltrúi hefur m.a.
umsjón með rekstri skrifstofu menn-
ingarmála og yfirumsjón með starfi
menningarstofnana á vegum bæjar-
ins.
Umsækjendur um stöðuna eru;
Aðalsteinn Þorvaldsson, Reykjavík,
Aet Laigu Reykjavík, Anna Lilja
Sigurðardóttir, Reykjavík, Ari Jó-
hann Sigurðsson, Akureyri, Björg-
vin Ólafur Óskarsson, Kópavogi,
Eygló Þóra Harðardóttir, Reykja-
vík, Finnur Magnús Gunnlaugsson,
Akureyri, Gunnþóra Kristín Ingva-
dóttir, Akureyri, Heiðar Ingi Svans-
son, Kópavogi, Hjálmar Hjálmars-
son, Kópavogi, Kjartan Emil
Sigurðsson, Reykjavík, Kristín Sól-
ey Björnsdóttir, Svíþjóð, Kristrún
Lind Birgisdóttir, Hafnarfirði, Orri
Harðarson, Akureyri, Rakel Heið-
marsdóttir, Bandaríkjunum, Sigríð-
ur Örvarsdóttir, Selfossi, Sigrún
Inga Hansen, Akureyri, Sigurbjörn
Rafn Úlfarsson, Bessastaðahreppi,
Sigurður Einarsson, Reykjavík, Sig-
urður Eiríksson, Akureyri, Þórarinn
Stefánsson, Akureyri, Þórhallur V.
Einarsson, Akureyri, Þórgnýr Dýr-
fjörð, Akureyri.
Foreldrafélag barna með sérþarf-
ir og Styrktarfélag vangefinna á
Norðurlandi fengu aðstöðu í Botni
árið 1983 fyrir sumardvöl fyrir fatl-
aða og tók Þroskahjálp síðar við
þeirri starfsemi. Samtökin hafa gert
upp gamalt íbúðarhús á staðnum og
reist nýjar byggingar að auki. Krist-
ján Þór sagði að félögin hefðu þannig
með átaki sínu unnið sér nokkurn yf-
irráðarétt yfir húsinu. Þakkaði hann
öllum þeim sem lagt hafa af mörkum
óeigingjarnt starf í þágu þroska-
heftra um leið og hann afhenti gjafa-
bréfið.
KRISTJÁN Þór Júlíusson bæjar-
stjóri hefur afhent fulltrúum Þroska-
hjálpar á Norðurlandi eystra gjafa-
bréf fyrir íbúðarhúsinu í Botni í
Eyjafjarðarsveit.
Akureyrarbær eignaðist jörðina
1952, en það var sundkennarinn Lár-
us J. Rist sem gaf bænum jörðina
með þeim húsum og mannvirkjum
sem á henni voru. Lárus var áhuga-
og hugsjónamaður um uppeldi barna
og unglinga og vildi hann með gjöf-
inni stuðla að því að ungt fólk á Ak-
ureyri ætti kost á að þjálfa sál og lík-
ama í nánu sambandi við náttúruna.
Morgunblaðið/Kristján
Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri, t.v., og Karl Guðmundsson sviðs-
stjóri, t.h., ásamt fulltrúum Þroskahjálpar á Norðurlandi, Lilju Guð-
mundsdóttur, Sigurgeiri Vagnssyni og Jóni Aspar.
Þroskahjálp fær
íbúðarhúsið í Botni
Dæmdur
fyrir innbrot
í Ólafsfirði
RÚMLEGA þrítugur karlmaður
hefur verið dæmdur í tveggja
mánaða fangelsi skilorðsbundið í
tvö ár. Dómurinn var kveðinn upp
í Héraðsdómi Norðurlands eystra
en maðurinn var ákærður fyrir að
hafa brotist inn í veitingahúsið
Glaumbæ í Ólafsfirði í nóvember
síðastliðnum. Við innbrotið kastaði
hann gangstéttarhellu inn um tvær
rúður, en sjálfur fór hann inn eftir
síðara rúðubrotið. Braut hann upp
vínskáp og stal miklu magni af
áfengi, vindlingum og vindlum.
Maðurinn játaði brot sitt og
lýsti vilja til að greiða skaðabætur.
Farið var fram á um 225 þúsund
krónur í bætur, en samkvæmt
dómi er manninum gert að greiða
110 þúsund krónur í bætur. Þá var
honum einnig gert að greiða sak-
arkostnað.
UM 80–90 stúlkur í framhalds-
hópum Fimleikaráðs Akureyrar
sýndu listir sínar á jólasýningu
FRA sl. föstudag. Sýningin fór
fram í æfingasal félagsins í
íþróttahúsi Glerárskóla að við-
stöddu fjölmenni.
Þar sýndu ýmsir aldursflokkar
fjölbreyttar æfingar sem vöktu
mikla hrifningu viðstaddra. Áður
höfðu yngstu iðkendurnir sýnt
hvað þeir höfðu lært nú í haust.
Að sýningu lokinni hófst svo
fimleikamaraþon hjá stúlkum á
aldrinum 12–17 ára. Æfingin stóð
yfir í einn sólarhring, þar sem
stúlkurnar skiptust á við æfingar.
Tilgangurinn með maraþoninu
var að safna peningum í ferðasjóð
en áður höfðu stúlkurnar leitað
eftir stuðningi fyrirtækja í bæn-
um, þar sem þeim var vel tekið.
Jólasýning og
fimleikamaraþon
Morgunblaðið/Kristján
Fimleikastúlkurnar sýna listir sínar á slánni.
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦