Morgunblaðið - 28.12.2001, Síða 15
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2001 15
FUNDINN er í Fuglavík á Rosm-
hvalanesi hellusteinn með 420 ára
gamalli áletrun. Á hann er klappað
ártalið 1580 og er þetta því elsti ár-
talssteinn sem vitað er um á
Reykjanesi og fundist hefur. Fólk
sem alið er upp á bænum hafði aldr-
ei heyrt á þennan stein minnst.
Félagar í ferðahópi rannsókn-
ardeildar Lögreglunnar í Reykja-
vík (Ferlir) hafa verið að afla gagna
um steina með ártölum og fleiri
menningarminjar á Reykjanesi og
leita að steinunum sjálfum. Hefur
hópurinn fundið allmarga slíka
steina. Þeir fundu meðal annars
stein frá 1674 við Kálfatjörn á
Vatnsleysuströnd og var hann sá
elsti, þar til Fuglavíkursteinninn
fannst.
Fann hann fljótlega
Fuglavík er eyðibýli sem stendur
við veginn á milli Sandgerðis og
Hvalsneskirkju. Ómar Smári Ár-
mannsson aðstoðaryfirlög-
regluþjónn og félagar hans fóru að
spyrjast fyrir um Fuglavíkurstein-
inn út frá upplýsingum úr Árbók
Hins íslenska fornleifafélags frá
árinu 1903. Þar er skráð frásögn af
steininum, eftir Brynjúlfi Jónssyni
sem hafði verið við rannsóknir á
Rosmhvalanesi árið áður. Kemur
þar fram að brunninum í Fuglavík
fylgdi sú sögn að útlendur maður,
Pípin að nafni, hefði grafið brunn-
inn og höggvið ártalið á hellustein
sem hann setti hjá brunninum. Sagt
var að steinninn væri nú í bæj-
arstéttinni og sæist enn gjörla á
honum ártalið 1538.
Eftir að Ferlisfélagar fóru að
spyrjast fyrir um steininn fór Jón-
ína Bergmann í Keflavík, sem ólst
upp í Fuglavík, að leita í bæjarstétt-
inni. Hún sópaði af gömlu bæj-
arstéttinni en steinninn var ekki
þar. „Ég fann hann þó fljótlega eft-
ir að ég fór að róta,“ segir Jónína.
Hún fann steininn í stétt sem var
fyrir framan gamla hlöðu og fjár-
hús sem búið er að fjarlægja. Möl
var yfir steininum að hluta enda er
hann í heimkeyrslunni að nýja bæn-
um.
Aldrei heyrt á hann minnst
Jónína segist hafa verið undrandi
að sjá steininn því hún hafi aldrei
heyrt á hann minnst áður. Hún er
fædd 1926 og bjó í Fuglavík til árs-
ins 1967. Ætt hennar hefur búið á
bænum frá því um 1884 að afi henn-
ar keypti jörðina og flutti bú sitt
þangað. Jónína og systkini hennar
eiga jörðina og hún og maður henn-
ar, Magnús V. Stefánsson, búa þar
alltaf á vorin á meðan þau hirða um
æðarvarpið. Hún hefur því vafalítið
oft stigið fæti sínum á umræddan
hellustein.
Á steininum reyndist vera ártalið
1580. Raunar er seinasti stafurinn
orðinn óskýr og gæti hann einnig
verið 8 eða 3.
Ferlisfélagar hafa nú skoðað
steininn og telur Ómar Smári að
hér sé um merkan fund að ræða,
þetta sé elsti ártalssteinn á Reykja-
nesi sem heimildir eru um og fund-
ist hefur.
Ljósmynd/Ómar Smári
Jónína Bergmann og Magnús V.
Stefánsson við hellusteininn í
heimreiðinni að Fuglavíkur-
bænum en hann ber 420 ára
gamla áletrun.
Fundinn hellu-
steinn frá 1580
í Fuglavík
Rosmhvalanes
ÍBÚUM á Suðurnesjum fjölgaði um
225 á árinu, eða um 1,36%. Er það
nokkuð yfir landsmeðaltali en íbúum
landsins alls fjölgaði um 1,21%. Hlut-
fallslega mesta fjölgunin varð í
Vatnsleysustrandarhreppi, rúm 8%.
Fjölgun varð á öllum stöðunum,
nema í Gerðahreppi, en íbúum í
Reykjanesbæ, Grindavík og Gerða-
hreppi hefur fjölgað hægar en á land-
inu í heild.
Samkvæmt bráðabirgðatölum
Hagstofu Íslands bjuggu 16.725 í
sveitarfélögunum fimm á Suðurnesj-
um 1. desember síðastliðinn. Fyrir ári
var íbúatalan 16.500. Hefur Suður-
nesjamönnum því fjölgað um 225
manns eða 1,36%.
Tæpt prósent í Reykjanesbæ
og Grindavík
Í Reykjanesbæ búa 10.942 manns
sem er 106 fleira en fyrir ári og nem-
ur fjölgunin tæplega einu prósenti. Í
Grindavík eru nú 2.339 íbúar, 22 fleiri
en fyrir ári, og nemur fjölgunin tæpu
prósenti, eins og í Reykjanesbæ.
Sandgerði er þriðja stærsta sveit-
arfélagið á svæðinu. Þar búa nú 1.400
manns, 34 fleiri en ári fyrr, og nemur
fjölgunin 2,5%. Aftur á móti fjölgar
ekki í Gerðahreppi, þar búa 1.207
manns sem er nákvæmlega sama tala
íbúa og fyrir ári.
Hlutfallslega mesta fjölgunin hefur
orðið í minnsta sveitarfélaginu á
svæðinu, Vatnsleysustrandarhreppi.
Þar búa nú 837, 63 fleiri en fyrir ári,
og nemur fjölgunin rúmum 8% á
árinu.
Undir landsmeðaltali
Íbúum á Suðurnesjum hefur fjölg-
að um 8,9% á síðustu tíu árum. Er það
heldur undir landsmeðaltali sem er
rúmlega 10% á þessu tímabili. Mest
munar um að í fjölmennustu sveitar-
félögunum, Reykjanesbæ og Grinda-
vík, hefur á þessu tímabili aðeins
fjölgað um 7,5 til 7,8%.
Mesta fjölgun á Suðurnesjum
í Vatnsleysustrandarhreppi
Reykjanes
SANDGERÐINGAR hafa verið duglegir að skreyta hús sín og garða um
þessi jól.
Hús við sumar göturnar eru áberandi mikið skreytt og á það ekki síst við
um Holtsgötu þar sem mörg hús eru með miklar og stílhreinar jólaskreyt-
ingar. Þangað fara menn til að skoða, meðal annars börnin af leikskólanum
Sólborg. Þau voru mynduð framan við hús Jónasar Jónssonar á Holtsgötu
34 sem er fallega skreytt.
Þá hafa bæjarstarfsmenn ekki látið sitt eftir liggja og hafa þeir skreytt
115 ljósastaura í bænum. Við höfnina eru einnig bátar með fallegar ljósa-
skreytingar.
Morgunblaðið/Reynir Sveinsson
Duglegir að skreyta
Sandgerði
ÓÐINSVELLIR í Keflavík
fengu viðurkenningu jólahús-
nefndar Reykjanesbæjar fyrir
jólalegustu götuna í ár. Þar er
talin vera fallegasta heildar-
mynd skreytinga.
Markaðs-, atvinnumála- og
menningarskrifstofa Reykja-
nesbæjar stóð fyrir vali á jóla-
húsi Reykjanesbæjar. Eins og
fram hefur komið í blaðinu
fengu eigendur Týsvalla 1 í
Keflavík aðalverðlaunin. Í öðru
sæti urðu íbúar Hamragarðs 9 í
Keflavík. Íbúar Borgarvegar
25 í Njarðvík urðu í þriðja sæti,
en ekki Borgarvegar 15 eins og
ranglega var kynnt fyrir blaða-
mönnum fyrir helgi.
Íbúar Aðalgötu 5 í Keflavík
fengu viðurkenningu fyrir fal-
legustu jólaskreytingu á fjöl-
býlishúsi og íbúar Norðurvalla
12–22 í Keflavík fyrir fallegustu
jólaskreytingu á raðhúsi. Þá
var Túngata 14 í Keflavík út-
nefnd sem sérstakt jólahús.
Óðinsvellir
jólalegasta
gatan
Reykjanesbær
ÖLVAÐIR unglingar tóku bíl
ófrjálsri hendi og óku um á bíla-
stæði við Hafnargötu í Keflavík
á Þorláksmessu.
Lögreglunni í Keflavík var
tilkynnt um bílþjófnaðinn að-
faranótt Þorláksmessu. Tveir
ölvaðir piltar, 16 ára gamlir,
höfðu þá ekið bílnum um bíla-
stæði sunnan við verslun 10-11
en þar hafði hann verið skilinn
eftir. Þegar lögreglumenn
komu á vettvang voru dreng-
irnir farnir en þeir náðust.
Ölvaðir 16 ára
drengir aka
stolnum bíl
Keflavík
TVÆR bílveltur urðu á Garð-
vegi um jólin. Ekki urðu alvar-
leg slys á fólki.
Fyrri veltan varð fljótlega
eftir hádegi á aðfangadag. Þá
valt bíll skammt sunnan við
Garð. Ökumaður var einn í bíln-
um og var hann fluttur á
sjúkrahúsið í Keflavík en
meiðsli hans voru ekki talin al-
varleg.
Um miðjan annan dag jóla
valt annar bíll á Garðvegi, rétt
norðan við golfskálann. Snjó-
koma var og hálka á veginum
þegar óhappið varð. Engin slys
urðu á fólki en bíllinn skemmd-
ist mikið.
Tvær
bílveltur á
Garðvegi
Garður
GAMALT sumarhús við Aust-
urveg, í svokallaðri Hest-
brekku, í Grindavík brann til
grunna snemma á Þorláks-
messumorgun.
Samkvæmt upplýsingum
slökkviliðsstjórans í Grindavík
var sumarhúsið mannlaust en
nýlega hefur verið hætt að nota
það. Lögreglan rannsakar upp-
tök eldsins en grunur leikur á
að um íkveikju hafi verið að
ræða, samkvæmt upplýsingum
lögreglunnar.
Sumarhús
brann til
grunna
Grindavík