Morgunblaðið - 28.12.2001, Síða 16

Morgunblaðið - 28.12.2001, Síða 16
LANDIÐ 16 FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ STEINÞÓR Vigfússon og Margrét Harðardóttir á Brekkum í Mýrdal hófu rekstur á Hótel Dyrhólaey fyr- ir fjórum árum. Þá byggðu þau hót- el með 15 tveggja manna her- bergjum og matsal, en núna ætla þau að stækka hótelið um meira en helming, þ.e. bæði gistipláss og matsal. Eftir stækkunina geta þau tekið við 70 manna hópum enda er eftirspurnin núna eftir gistingu meiri en framboðið. Að sögn Steinþórs hefur rekst- urinn gengið vel og töluvert er komið af bókunum fyrir næsta sum- ar, þar á meðal í þessa nýju bygg- ingu, og er hann mjög bjartsýnn þrátt fyrir ástandið í heimsmál- unum. Þegar fréttaritari leit inn hjá honum við nýja grunninn var búið að steypa veggina að grunninum á nýja húsinu og var hann sjálfur að vinna í grunninum. Hann segir tíð- arfarið hafa verið einstaklega hag- stætt fram eftir vetri miðað við árs- tíma og flýtti hitastigið mjög fyrir því að steypan herðist. Herbergin verða öll með baði og útsýnið frá hótelinu er fallegt og víðsýnt til allra átta. Þaðan sést Dyrhólaey, Reynisfjall, Búrfell og Mýrdalsjök- ull svo eitthvað sé nefnt. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Hótel Dyr- hólaey stækkað Vík í Mýrdal „ÉG hef unnið við sögun á reka- timbri á hverju hausti og fram á vetur undanfarin ár en það hefur farið eftir tíðarfari hversu lengi ég get verið við þetta,“ segir Pét- ur Guðmundsson frá Ófeigsfirði á Ströndum í samtali við fréttarit- ara. „Sögunin fer að mestu fram úti- við hér á Ströndum en ég hef líka verið mikið norður á Langanesi en þar hef ég aðstöðu til að vera inni,“ segir Pétur en hann er einn stofnenda og aðaleigandi fyrir- tækisins Háreka hf. sem sérhæfir sig í sögun á rekatimbri. „Það voru bændur í norðan- verðum Árneshreppi og austan- verðum Grunnavíkurhreppi sem keyptu þessa sögunarsamstæðu, fyrir sjö árum, sem nær eingöngu sinnir vinnslu úr rekaviði.“ Vélin sem er mjög afkastamikil fær orku sína frá afúrtaki drátt- arvélar. Miklu magni timburs hef- ur verið komið í verðmæti með til- komu vélarinnar og hefur Pétur tekið að sér stór og smá verkefni á mörgum rekajörðum. Það má því segja að þetta hafi orðið mörg- um hlunnindaeigendum búhnykk- ur þar sem sumir hverjir hafa þurft að horfa á rekavið rotna í fjörukambi þar sem möguleikar til nýtingar hans voru ekki til staðar. Pétur býr í Kópavogi en er Strandamaður frá bænum Ófeigs- firði í samnefndum firði og nýtir hann þá jörð. „Ég er eins og far- fuglarnir, kem í varpið í maí og dvel út sumarið,“ sagði Pétur. Morgunblaðið/Arnheiður Guðlaugsdóttir Pétur Guðmundsson við sögunarvélina í Kollafjarðarnesi. Að baki hans er Sigurður Marinósson bóndi. Reka- timbur til nytja Strandir UNGLINGARNIR í Grunnskóla Borgarness tóku fyrir nokkru til hendinni á ,,Umhverfisdegi ung- lingadeildarinnar“ í skólanum. Allir nemendur í 8. til 10. bekk ásamt kennurum á unglingastigi, list- og verkgreinakennurum og húsverði, unnu saman einn dag við að bæta og fegra umhverfið í unglingadeild skólans. Þegar kennarar skólans voru á nám- skeiði síðastliðinn vetur um sam- virkt nám kviknaði hugmyndin um að virkja krakkana til hóp- vinnu með umhverfið að leiðar- ljósi og ennfremur að allir fengju verkefni við hæfi. Alls voru hóp- arnir 10 og var málað, sniðnar og saumaðar gardínur, hengdar upp myndir, smíðaðir tímaritarekkar svo eitthvað sé nefnt. Einn hópur sá um að festa verkefnið á filmu og gerði myndband og annar hópur vann heimasíðu um Um- hverfisdaginn. Það var mat krakkanna og kennaranna að þetta hefði verið bæði gagnlegur og skemmtilegur dagur. Umhverfisdagur í Grunnskóla Borgarness Borgarnes ELSTA starfandi bókaverslun á landsbyggðinni, Bókaverslun Þórar- ins Stefánssonar á Húsavík, stóð fyr- ir jólaleik nú fyrir jólin. Leikurinn var fólginn í því að nafn hvers við- skiptavinar sem verslaði fyrir 10.000 krónur eða meira í einu fór í pott. Á Þorláksmessudag var svo dregið í leiknum og til að allt færi nú rétt fram voru fengnir til verksins lag- anna verðir, þeir Stefán Hallgríms- son og Hreiðar Hreiðarsson. Í fyrstu verðlaun var PlayStat- ion2-leikjatölva. Þegar dregið var um hana kom nafn Áslaugar Þor- geirsdóttur á Húsavík upp úr kass- anum. Í önnur verðlaun var 10.000 króna vöruúttekt í versluninni og þau hlaut Katrín Eymundsdóttir Lindarbrekku í Kelduhverfi. Þriðju verðlaunin voru 5.000 króna vöruút- tekt í versluninni og þau hlaut Ívar Ketilsson á Ytra Fjalli í Aðaldal. Ekki er hægt að segja annað en að verðlaunin hafi dreifst vel um Þing- eyjarsýslur, bæði dreifbýli og þétt- býli. Lindarbrekka er í norðursýsl- unni, Ytra Fjall í suður-sýslunni og Húsavík aðalþéttbýliskjarni sýsln- anna. Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Stefán Hallgrímsson lögreglumaður dregur í jólaleiknum, en Hreiðar Hreiðarsson fylgist með félaga sínum ásamt Friðriki Sigurðssyni, fram- kvæmdastjóra verslunarinnar. Jólaverðlaunin dreifðust um sýsluna Húsavík Á AÐFANGADAGSKVÖLD var aftansöngur í nýju kirkjunni á Tálknafirði. Milli 230 og 240 manns voru við athöfnina og er fréttaritara til efs að kirkjusókn hafi verið meiri annarsstaðar miðað við fjölda sókn- arbarna, þótt ekki skuli um það fullyrt. Séra Sveinn Valgeirsson sóknar- prestur bauð kirkjugesti velkomna og færði þakkir þeim, sem staðið hafa að byggingu kirkjunnar og gert þessa hátíðarstund að veru- leika. Þá kom fram hjá Sveini að nánar verður farið yfir bygging- arsöguna við vígslu kirkjunnar, sem áformuð er í vor. Við athöfnina söng kirkjukór Stóru-Laugardalssóknar við undir- leik Marion Worthman organista. Mjög góður hljómburður er í nýju kirkjunni og höfðu sumir kirkju- gesta á orði að kórinn hefði hljómað helmingi stærri en hann er. Þetta var fyrsta athöfnin í nýju kirkjunni ef frá er talin kyrrðarstund sem haldin var rétt fyrir jólin í fyrra. Kirkjan er nær fullbúin, aðeins er eftir lokafrágangur á rafmagni, uppsetning millihurða,uppsetning altaris, gráta, predikunarstóls, skírnarfonts og skreytinga yfir alt- ari. Frágangi að utan er lokið og einnig er búið að ganga frá lóð um- hverfis kirkjuna. Eins og áður sagði er áætlað að vígja kirkjuna í vor en Karl Sig- urbjörnsson biskup tók fyrstu skóflustunguna að byggingunni 6. maí árið 2000. Morgunblaðið/Finnur Hluti af kirkjugestum. Fjölmennt við aftan- söng í nýrri kirkju Tálknafjörður
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.