Morgunblaðið - 28.12.2001, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 28.12.2001, Qupperneq 24
ERLENT 24 FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ KASMÍR varð hluti af breska heims- veldinu árið 1846 þegar Bretar sigr- uðu furstadæmi Síkka á Norðvestur- Indlandi. Síðar um árið seldu Bretar Kasmír furstanum af Jammú og hér- uðin tvö voru sameinuð í Jammú og Kasmír. Þau urðu í raun sjálfstætt ríki sem naut viðurkenningar breska heimsveldisins. Þegar Indland fékk sjálfstæði frá Bretlandi í ágúst 1947 var landinu skipt upp í Indland undir stjórn hind- úa og Pakistan undir stjórn múslíma. Skiptingin leiddi til mikilla fólksflutn- inga og óeirða sem kostuðu um það bil hálfa milljón manna lífið. Indverjar og Pakistanar byrjuðu þá strax að deila um hvoru landanna Kasmír ætti að tilheyra. Þjóðaratkvæðagreiðslu hafnað Pakistanar halda því fram að Kasmír hefði átt að verða hluti af Pakistan árið 1947 vegna þess að múslímar eru þar í miklum meiri- hluta. Þeir segja að samkvæmt álykt- unum Sameinuðu þjóðanna eigi Kasmírbúar að ákveða sjálfir í þjóð- aratkvæðagreiðslu hvort landsvæðið eigi að tilheyra Indlandi eða Pakistan. Indverjar segja hins vegar að land- svæðið tilheyri þeim vegna þess að furstinn af Kasmír, Hari Singh, hafi undirritað samning í október 1947 um að það ætti að ganga í ríkjasamband við Indland. Samkvæmt indversku stjórnar- skránni er Jammú og Kasmír ríki og það nýtur meiri sjálfstjórnarréttinda en nokkurt annað indverskt sam- bandsríki. Indverska stjórnin segir að samkvæmt samningi Indlands og Pakistans frá 1972 eigi löndin að leysa deiluna um Kasmír með samningavið- ræðum sín á milli en ekki á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Indverjar hafna kröfunni um þjóðaratkvæða- greiðslu um framtíð Kasmír á þeirri forsendu að haldnar hafi verið kosn- ingar í ríkinu sem sýni að íbúar þess vilji að það verði áfram hluti af ind- verska ríkjasambandinu. Kasmír skipt í tvennt Indverjar og Pakistanar hafa tvisv- ar sinnum háð stríð vegna deilunnar um Kasmír. Fyrra stríðið hófst árið 1947 þegar Kasmír var tekið í ind- verska ríkjasambandið. Meirihluti íbúanna vildi sameinast Pakistan sem reyndi að innlima landsvæðið með vopnavaldi. Mikið mannfall varð í stríðinu en því lauk með vopnahlés- samkomulagi sem undirritað var 1. janúar 1949 fyrir milligöngu Samein- uðu þjóðanna. Samkomulagið kvað á um að landsvæðinu yrði skipt í tvennt. Indverjar og Pakistanar börðust aftur um Kasmír árið 1965. Þrátt fyr- ir hörð átök varaði stríðið aðeins í nokkra mánuði. Stríð blossaði aftur upp milli Ind- verja og Pakistana árið 1971 þegar íbúar Austur-Pakistans lýstu yfir sjálfstæði og stofnuðu ríkið Bangla- desh með stuðningi Indverja. Átökin breiddust þá einnig út til Kasmír. Indverjar halda mestum hluta Kasmír en um þriðjungur landsvæð- isins tilheyrir Pakistan. Kínverjar halda svæði í norðausturhluta Kasmír eftir hernað árið 1962. Mannskæð uppreisn Indverjar og Pakistanar voru á barmi nýs stríðs sumarið 1999 eftir að skæruliðar, sem nutu stuðnings Pak- istana, réðust inn í indverska hluta Kasmír. Hörð átök geisuðu í tvo mán- uði við markalínuna, sem skiptir land- svæðinu, og þeim lauk ekki fyrr en skæruliðarnir hörfuðu. Aðskilnaðarsinnaðir skæruliðar hófu uppreisn gegn indverskum yf- irráðum í Kasmír árið 1989. Mann- réttindahreyfingar segja að uppreisn- in hafi kostað meira en 60.000 manns lífið. Kjarnorkuvígbúnaðurinn fordæmdur Deila Indverja og Pakistana um Kasmír er mikið áhyggjuefni vegna hættunnar á að kjarnorkustríð blossi upp. Bæði ríkin hafa yfir kjarnavopn- um að ráða þótt ekki sé vitað hversu mörg þau eru. Ólíkt Bandaríkja- mönnum og Rússum hafa Indverjar og Pakistanar ekki undirritað samn- inga sem skylda þá til að gera grein fyrir fjölda kjarnavopna sinna. Sérfræðingar Jane’s Defence Weekly telja að Pakistanar eigi nú allt að 150 kjarnaodda og Indverjar um 200-250. Alþjóðahermálastofnun- in í London, IISS, áætlar hins vegar að Pakistanar eigi 10-30 kjarnaodda og Indverjar 65-90. Indverjar byrjuðu að smíða kjarna- vopn um miðjan sjöunda áratuginn eftir að Kínverjar hófu kjarnorkutil- raunir. Indverjar sprengdu fyrstu kjarnorkusprengjuna í tilraunaskyni í Rajasthan-eyðimörkinni árið 1974. Nokkrum árum síðar byrjuðu Pak- istanar að þróa kjarnavopn. Á sama tíma smíðuðu bæði ríkin skamm- drægar og meðaldrægar eldflaugar. Í apríl 1998 hófu Pakistanar til- raunir með nýja meðaldræga kjarn- orkueldflaug, sem nefnd var eftir Ghauri, íslömskum stríðsmanni sem náði hluta Indlands á sitt vald á 12. öld. Indverjar svöruðu með því að hefja kjarnorkutilraunir tæpum mán- uði síðar. Indverjar tilkynntu um miðjan maí-mánuð 1998 að þeir hefðu sprengt fimm kjarnorkusprengjur neðanjarðar í tilraunaskyni. Undir lok mánaðarins höfðu Pakistanar sprengt jafnmargar sprengjur. Þessar tilraunir voru fordæmdar út um allan heim og nokkur ríki gripu til efnahagslegra refsiaðgerða. Bandaríkjastjórn aflétti refsiaðgerð- um sínum í síðasta mánuði. Þrátt fyrir mikinn þrýsting Banda- ríkjastjórnar hafa hvorki Indverjar né Pakistanar viljað undirrita samn- inginn um bann við útbreiðslu kjarna- vopna eða samninginn um algert bann við kjarnorkutilraunum. Bandaríkjastjórn í vanda Pakistanar voru álitnir mikilvægir bandamenn Bandaríkjanna í kalda stríðinu en samskipti landanna versn- uðu vegna deilunnar um kjarnorku- tilraunirnar. Þau bötnuðu þó aftur eftir hryðjuverkin í Bandaríkjunum 11. september þegar Bandaríkja- stjórn leitaði eftir stuðningi grann- ríkja Afganistans við árásirnar á tal- ibana og al-Qaeda, samtök Osama bin Ladens. Bandarískir embættismenn hafa látið í ljósi áhyggjur af því að spennan í Kasmír geti torveldað tilraunirnar til að handtaka liðsmenn al-Qaeda sem hafa reynt að flýja frá Afganistan til Pakistans. Meira en 60.000 pakist- anskir hermenn eru nú við landa- mærin að Afganistan og blossi upp nýtt stríð vegna deilunnar um Kasmír er líklegt að þeir verði fluttir þaðan. Ennfremur er hugsanlegt að Banda- ríkjaher geti ekki notað pakistanskar herstöðvar, sem hafa verið mjög mik- ilvægar í hernaðaraðgerðunum í Afg- anistan. Bandaríkjastjórn er í vandræða- legri stöðu vegna deilunnar um Kasmír. Hún vill ekki beita Pakistana of miklum þrýstingi vegna þess að harðar aðgerðir gegn skæruliða- hreyfingunum í Kasmír, sem njóta mikils stuðnings meðal almennings í Pakistan, gætu orðið pakistönsku stjórninni að falli. Bandarískir embættismenn eru einnig tregir til að gagnrýna Indverja harkalega fyrir að íhuga að beita her- valdi gegn skæruliðahreyfingum sem eru sakaðar um hryðjuverkastarf- semi á Indlandi. „Það myndi bera keim af hræsni eftir 11. september,“ sagði vestrænn stjórnarerindreki. Bitbein tveggja kjarnorkuvelda Deilan um Kasmír hefur tvisvar sinnum leitt til stríðs milli Indlands og Pakistans frá árinu 1947 og stuðlað að hættulegu vígbúnaðarkapphlaupi. AP Háskólanemar í Patna á Indlandi kveikja í fána Pakistans og hrópa vígorð gegn Pakistönum vegna meints stuðnings þeirra við hryðjuverkastarfsemi á Indlandi.  ! "#!$ !  " #$         % &       '()*+*!,--./))  0    102   '  3   10   4  50    2  !  3    365 710 320 8*/ -*)  3030    20535   8   *   20   19  330    97  !  37    3 301720 20 /): *):   ;   <   =  /     "#$ %&' %     *  >  /): *):8*/ -*) (&)*'&)   %&' BRESKI leikarinn Sir Nigel Hawthorne, sem öðlaðist heimsfrægð fyrir leik sinn í sjónvarpsþátt- unum „Já, ráð- herra“, lést í fyrradag 72 ára að aldri. Var banameinið hjartaáfall en síðasta hálfa annað árið hef- ur hann átt í harðri baráttu við krabba- mein. Hawthorne þótti einstak- lega fjölhæfur leikari, sem hafði jafnt Shakespeare sem ærslafullan gamanleik á valdi sínu, en meistarastykki hans var þó tvímælalaust hlutverk hans sem ráðuneytisstjórinn Sir Humphrey Appleby í „Já, ráðherra“. Fyrir það fékk hann fjölda verðlauna og við- urkenninga og hann var aðlað- ur 1999. Þá sló hann í gegn í kvik- myndinni „Geðveiki Georgs konungs“ og var þá, eða 1995, tilnefndur til Óskarsverðlauna. Flóttafólk í Ermar- sundsgöngum UMFERÐ um Ermarsunds- göngin var komin í samt lag í gær eftir að nokkur hundruð innflytjendur í flóttamanna- búðum í Frakklandi höfðu reynt að komast um þau til Englands. Um 150 manna hóp- ur varð fyrstur til að rjúfa raf- magnsgirðingu við göngin og á hæla honum kom síðan annar hópur 400 manna. Ekki er tal- ið, að fólkið hafi búist við að komast alla leið til Englands, heldur að það hafi gripið til þessara ráða til að vekja á sér athygli fjölmiðla. Franskir og enskir lögreglu- menn smöluðu fólkinu saman í göngunum og voru 40 hand- teknir. Stöðvaðist öll umferð um göngin í 10 klukkustundir. Vegna þessa atburðar ítrekuðu Bretar kröfur sínar um að Frakkar flyttu flóttamanna- búðir í burtu frá gangamunn- anum austan megin. 100 ár frá fæðingu Marl- ene Dietrich ÞESS var minnst í Berlín í gær, að þá voru 100 ár liðin frá fæðingu Marlene Dietrich, einnar fræg- ustu stjörnu hvíta tjaldsins. Lagði Johann- es Rau, forseti Þýskalands, blómsveig á gröf hennar í borginni þar sem hún fædd- ist 1901 og var þá gefið nafnið Magdalene von Losch. Dietrich settist að í Banda- ríkjunum 1930 og sneri baki við landi sínu er nasistar kom- ust þar til valda 1933. Varð hún bandarískur ríkisborgari 1939 og söng fyrir hermenn banda- manna í stríðinu, en fyrir það ávann hún sér andúð í Þýska- landi. Hún lést 1992. STUTT Stjarnan í „Já, ráð- herra“ látin Marlene Dietrich Sir Nigel Hawthorne
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.