Morgunblaðið - 28.12.2001, Side 28
ERLENT
28 FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Faxafeni 14 568 9915 www.hreyfing.is
Ný 8 vikna námskeið hefjast 7. janúar
Kraftmikil, einföld og árangursrík þjálfun
Hádegis- og kvöldhópar
Láttu Hreyfingu hjálpa þér að ná þínu markmiði
Skráning er í síma 568-9915
karlanámskeið
-eins og þau gerast best
JOHN Howard, forsætisráðherra
Ástralíu, lýsti í gær undrun sinni og
reiði eftir að staðfest hafði verið að
einhverjir hefðu vísvitandi kveikt þá
skógarelda sem nú brenna glatt í
Nýju-Suður-Wales. Eldarnir, sem
nú hafa brunnið í þrjá daga, ógna
stórborginni Sydney og hafa þegar
eyðilagt um 150 hús og neytt þús-
undir manna til að flýja heimili sín.
Óttast menn að eldurinn eigi enn eft-
ir að magnast áður en slökkviliðs-
mönnum tekst að vinna á honum því
veðurspáin er sérstaklega óhagstæð.
Þetta eru verstu skógareldar í
Ástralíu frá árinu 1994. Mikill reyk-
ur liggur yfir Sydney og sést varla til
sólar á sumum stöðum. Loftmengun
í borginni er mjög mikil og hafa
nokkrir kvartað um öndunarerfið-
leika, auk þess sem fáeinir slökkvi-
liðsmanna hafa brunnið í viðureign-
inni við eldana. Engar fréttir hafa þó
borist af meiriháttar meiðslum.
Slökkviliðsmenn hafa unnið hörð-
um höndum við að bjarga heimilum
fólks og öðrum verðmætum í Sydney
og nágrenni hennar. Margir urðu að
flýja heimili sitt á jóladag og fór því
lítið fyrir jólahaldi á sumum stöðum.
Um tólf þúsund heimili eru án raf-
magns og víða er drykkjarvatn talið
varasamt.
Er giskað á að kostnaður vegna
hamfaranna muni geta numið allt að
29 milljónum Bandaríkjadala.
Spáð hlýjum vindum
um helgina
Eldarnir geisa einkum í skóglendi
í nágrenni Sydney og þekja nú yfir
25 km stórt svæði, inn í Bláufjöll,
vestur af Sydney. Ógnar eldurinn
byggingum í úthverfi borgarinnar og
illa gengur að ráða niðurlögum hans.
Heldur dró þó að vísu úr eldunum
í gær, en þá var veður ögn mildara
en daginn á undan, en því er engu að
síður spáð að þeir muni geta lifað í
um tíu daga til viðbótar.
Í nágrenni Canberra, höfuðborgar
Ástralíu, hefur hins vegar tekist að
ráða niðurlögum eldanna að mestu
leyti en mikil hætta steðjaði að borg-
inni á jóladag.
Phil Koperberg, slökkviliðsstjóri í
Nýju-Suður-Wales, sagði að kom-
andi helgi myndi ráða úrslitum um
það, hversu grátt eldar munu leika
Sydney og úthverfi hennar. Þá er því
spáð að hlýir vindar muni leika um
Nýju-Suður-Wales sem gæti blásið
enn meira lífi í eldana.
Koperberg sagði að líklegast
hefðu þeir sem ollu þessum vítiseldi,
kveikt elda á allt að fjörutíu stöðum.
Hefur verið sett á laggirnar sérstök
lögreglusveit í Sydney með það
verkefni að hafa hendur í hári þeirra
sem kveiktu eldana.
Hét Andrew Refshauge, starfandi
forsætisráðherra í Nýju-Suður-Wal-
es, því að draga sökudólgana fyrir
rétt og sagði að þeir gætu vænst
hörðustu hugsanlegu dóma fyrir
gjörðir sínar, þ.e. allt að fjórtán ára
fangelsidóms. „Við lítum íkveikjur
afar alvarlegum augum,“ sagði hann.
Gífurlegir
skógareldar
ógna Sydney
Brennuvarga leitað dyrum
og dyngjum í Ástralíu
Sydney. AFP.
AP
Skógareldar ógnuðu í gær íbúðarhúsum í Warrimo, neðarlega í Bláufjöllum, í um 30 km fjarlægð frá Sydney.
NÝR forseti Argentínu, Alberto
Rodriguez Saa, hafði ekki setið
nema þrjá daga í embætti þegar
hann átti fund með forystumönnum
launþegasamtaka í því augnamiði
að draga úr spennu í landinu og
hét því að gefinn yrði út nýr gjald-
miðill sem koma myndi í veg fyrir
að efnahagskreppan í landinu
harðnaði enn.
Starfsfólk aðalskrifstofa laun-
þegasamtaka fagnaði ræðu sem
Saa hélt á miðvikudaginn þar sem
hann lagði til fjölda aðgerða sem
hann sagði að myndu auðvelda
Argentínumönnum að ná tökum á
kreppunni. Meðal þess sem forset-
inn lagði til var að afturkalla launa-
lækkanir opinberra starfsmanna,
minni hlunnindi til handa háttsett-
um embættismönnum og áætlanir
um nýjan gjaldmiðil, argentínó, til
þess að almenningur fái peninga í
hendur.
Rodrigues Saa tók við embætti
sl. sunnudag eftir að óeirðir og
fjöldamótmæli bundu endi á for-
setatíð fyrirrennara hans, Fern-
andos de la Ruas. Rodriguez Saa
tók ekki undir hugmyndir um að
Bandaríkjadollarinn yrði gerður að
gjaldmiðli landsins eða að núver-
andi gjaldmiðill, pesóinn, verði
gengisfelldur. „Gengisfelling myndi
þýða lækkun launa,“ sagði forset-
inn.
Argentínóinn verður „enn einn
gjaldmiðillinn, líkt og pesóinn og
dollarinn“, sagði Rodolfo Frigeri
fjármálaráðherra í útvarpsviðtali.
Argentínóinn verður ríkisskulda-
bréf sem hægt verður að nota til að
„borga hvað sem er, allt frá laun-
um til skatta, vörur og þjónustu,“
sagði Frigeri. Argentínóanum verði
ekki hægt að skipta í dollara eða
pesóa.
Ennfremur kom fram í máli hans
að gengi pesóans yrði ekki fellt og
yrði áfram tengt gengi Bandaríkja-
dollarans þannig að einn pesói jafn-
gilti einum dollara. Fjármálaskýr-
endur hafa margir haldið því fram
að þessi beintenging, sem tekin var
upp til þess að stemma stigu við
óðaverðbólgu 1991, sé rótin að nú-
verandi efnahagskreppu í Argent-
ínu.
Óttast verðbólgu
Frigeri greindi ekki frá því
hversu margir argentínóar verði
prentaðir. Hagfræðingar segja að
allt að þrír milljarðar gætu í raun
komið af stað aukinni neyslu en
meira en það gæti leitt til verð-
bólgu á ný og aukið á efnahags-
vandann. Gengi argentínóans verð-
ur í fyrstu skráð jafnt pesóanum og
dollaranum en Frigieri sagði að sá
möguleiki væri ekki útilokaður að
með tímanum myndi gengið lækka.
„Ég hef miklar áhyggjur af því
að við munum sjá lögmál Greshams
ríkja í Argentínu,“ sagði Chip
Brown, yfirmaður hagfræðirann-
sókna hjá Santander Hispano
Central í New York. Lögmál Gres-
hams er nefnt í höfuðið á enskum
hagfræðingi frá 16. öld og kveður á
um að „lélegir peningar ýti góðum
peningum úr umferð“.
„Dollarinn verður álitinn betri en
pesóinn, pesóinn betri en argent-
ínóinn,“ sagði Brown. „Fólk mun
hamstra dollara og svo mun það
hamstra pesóa. Eftir því sem meira
verður prentað af argentínóum til
að koma í staðinn mun gengið falla
að öllu leyti nema að nafninu til.“
Nýr gjaldmið-
ill boðaður í
Argentínu
Buenos Aires. AP.
Ráðamenn í Argentínu hyggjast
ekki fella gengi pesóans