Morgunblaðið - 28.12.2001, Page 47

Morgunblaðið - 28.12.2001, Page 47
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2001 47 ✝ Jóna Guðmunds-dóttir fæddist 16. ágúst 1913 á Sveins- eyri við Tálknafjörð. Hún lést á heimili sínu sunnudaginn 16. desember síðastlið- inn. Foreldrar henn- ar voru Guðmundur Sigurður Jónsson, bóndi og kaupfélags- stjóri, f. 3.9. 1876, d. 6.6. 1953, og Guðríð- ur Guðmundsdóttir f. 7.12 1875, d. 4.7. 1967. Þau hjón bjuggu allan sinn bú- skap á Sveinseyri í Tálknafirði og þar fæddist Jóna og ólst upp ásamt systkinum sínum og fóstursystkin- um. Þau voru: 1) Guðmundur Ólaf- ur, f. 13.8. 1902, d. 21.7. 1978. 2) Guðríður, f. 16.8. 1903, d. 16.8 1903. 3) Jón, f. 14.4. 1905, d. 13.7. suður og hóf nám í hjúkrun og lauk námi í Hjúkrunarskóla Íslands 1947. Eftir að hjúkrunarnáminu lauk starfaði hún við hjúkrun í Reykjavík, m.a. á Kleppspítala, þar til í apríl 1949 er hún hélt til fram- haldsnáms í skurðstofuhjúkrun er- lendis. Fyrst var hún á Haukeland sykehus í Bergen og síðan við Sahl- grenska sjukhuset í Gautaborg og var þar til ársloka 1950. Þá fluttist Jóna til Akureyrar og starfaði við hjúkrun á sjúkrahúsinu þar frá ársbyrjun 1951 til 1962. Hún hélt sérmenntun sinni vel við og fór tví- vegis utan, um hálft ár í senn til endurmenntunar og þjálfunar, fyrst á Sahlgrenska sjukhuset (1957) og síðan á Rigshospital í Kaupmannahöfn (frá október 1962 til apríl 1963). Jóna réðst til starfa á Slysavarðstofunni í Reykjavík 1964 og var yfirhjúkrunarkona þar frá 1965 til 1971. Þá hætti hún hjúkrun en starfaði áfram við sótt- hreinsunardeildina fram til ársins 1981 er hún lét af störfum. Útför Jónu fer fram frá Bústaða- kirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. 1994. 4) Magndís, f. 18.7. 1906, d. 25.9. 1997. 5) Rannveig Okt- avía, f. 25.8. 1908, d. 13.4. 1976. 6) Albert Ingibjartur, f. 5.11. 1909, d. 24.6. 1967. 7) Ingileif, f. 19.7. 1911, d. 8.1. 2000. Fóstur- systkin: 1) Ingibergur Benoný Guðmunds- son, f. 14.6. 1894, d.17.10. 1950. 2) Magnús Einarsson, f. 29.1. 1919. 3) Kristín Berta Ólafsdóttir, f.11.9. 1922, d. 3.12. 1986. 4) Viggó Valdimarsson, f. 4.4. 1924. Jóna aflaði sér þeirrar menntun- ar sem mögulegt var fyrir vestan og lauk námi við Héraðsskólann á Núpi 1931 og síðan Húsmæðraskól- ann á Ísafirði 1934. Þá flutti hún Þrátt fyrir að Jóna giftist ekki og byggi alltaf ein var hún mikil fjöl- skyldukona og myndaði alla sína ævi rík tengsl við afkomendur systkin- anna og fóstursystkinanna frá Sveinseyri. Samstaða systranna Ingu, Veigu, Möggu og Jónu var kær- leiksrík og órjúfanleg og gaf þeim systrum styrk til að standast hverja raun og veitti þeim einnig ómælda ánægju á lífsins gleðistundum. Systk- inabörnin ólust að hluta til upp saman og héldu tengslum sínum gegnum Jónu og okkur frændsystkinin af næstu kynslóð á eftir gerði hún öll að ömmubörnum sínum. Þannig var Jóna frænka ein af sterkustu stoðum fjölskyldunnar og til hennar gátum við öll leitað. Hún mætti okkur með hlýju, ákveðni og áhuga. Hugtakið kynslóðabil þekkti hún ekki. Í fyrstu minningu drengsins er Jóna frænka hin flotta heimskona sem fór um heiminn og kom til baka með frábærar gjafir og framandi nammi. Frænkan sem ætíð var tilbúin til aðstoðar og mundi eftir öllum af- mælisdögum. Og minningin um her- bergið hennar þar sem hún bjó inni á sjálfri hjúkrunardeildinni á Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Akureyri – ávallt viðbúin ef þörf var á. Þá heimsókn- irnar í Austurbrúnina þar sem hún bjó í Reykjavík með útsýni yfir alla borgina. Síðar kynntist ég því hve mikils metin hún hafði verið sem hjúkrunarkona, vel menntuð, fagleg og einbeitt við hjúkrunarstörfin. Kæra frænka. Þakka þér sam- fylgdina, vináttuna og leiðsögnina. Hvíl í friði. Ólafur Þór Ævarsson. JÓNA GUÐMUNDSDÓTTIR Elsku Sævar, Birta, Viktor, Leifur og Vaka, missir ykkar er meiri en orð fá lýst, megi björt minning um ynd- islega eiginkonu og móður hjálpa ykkur og lýsa ykkur veginn um ókomna framtíð. Guð blessi systur mína og fjöl- skyldu hennar. Guðmundur. Fimmtudagurinn 20. desember var ekki bara næststysti sólardagur árs- ins heldur var dimmt og drungalegt veður allan daginn. Hún Fríða mág- kona mín dó síðdegis, mér fannst ekki að það birti þennan dag. Eins og son- ur hennar Leifur litli 5 ára sagði „nú er mamma mín orðin engill og svífur um loftið með Guði og passar okkur.“ Það er sárt til þess að hugsa að lífið er ekki alltaf réttlátt, Fríða í blóma lífsins er kvödd á brott frá eiginmanni og börnum á lokaspretti sínum í læknanámi sem hún hafði eitt mest allri sinni ævi í að nema og átti ekki eftir nema tvö ár í að verða sérfræð- ingur í barnalækningum. Fríða var vel skipulögð og var með alla hluti á hreinu. Fyrir nokkrum ár- um þegar ég, Kristrún og strákarnir vorum að fara í frí til Flórída, en Fríða hafði komið þangað tveimur ár- um áður með Sævari og krökkunum, bauðst hún til að lána okkur leiðarlýs- ingu sem hún hafði gert frá flugvell- inum og heim að hótelinu. Lýsingin var það nákvæm að það þurfti varla að taka upp kort alla leiðina. Þar er nákvæmni Fríðu rétt lýst. Seinna þegar við hjónin komum fyrst í heim- sókn til Fríðu og Sævars til Banda- ríkjanna þar sem hún var í námi í West Hardford var Fríða búin að undirbúa komu okkar vel. Hún var búinn að plana allan þann tíma sem hún átti lausan milli vakta á sjúkra- húsinu til að sýna okkur það helsta og merkilegasta á svæðinu og hvar bestu verslanirnar væru. Fríða var sér- fræðingur í mollum og verslunum. Fríða lagði sig alla fram um að gera dvöl okkar sem skemmtilegasta og hún og Kristrún áttu saman góðar stundir við þá iðju sem konum finnst skemmtilegust. Sama var þegar ég fór í heimsókn með strákana mína í vinnunni til Sæv- ars og Fríðu. Sævar var búinn að sýna okkur byggingarsvæðin og sportbúð- irnar, Fríða átti vaktafrí og vildi endi- lega taka okkur strákana í Casino og skoðunarferð um nágrennið. Í seinni áfanga Fríðu í náminu í Bandaríkjunum fluttu þau til Mary- land þar sem þau keyptu sér lítinn bú- garð úti í sveit, stutt frá sjúkrahúsini þar sem Fríða nam lokaáfangann í sínu námi. Sú aðstaða sem þau voru búin að koma sér upp þarna í sveitinni var eins og draumur allra íslenskra hestamanna. Sævar byggði glæsilegt hesthús í bakgarðinum og gat haft hestana á beit í á landareigninni. Þau voru búin að stofna fyrirtækið Icetolt sem annaðist kynningu og sölu á ís- lenska hestinum sem var áhugamál þeirra beggja og allt lék í lyndi og lífið blasti við þeim. Í lok janúar í ár fékk ég hringingu og mér var sagt að Fríða væri alvarlega veik. Það rann kalt vatn milli skinns og hörunds og ég átti erfitt með að trúa því sem mér var sagt. Þrátt fyrir þessar fréttir ákvað Fríða að halda áfram með allt sem þau höfðu skipulagt áður. Elsku bróðir, Guð verði með þér og börnunum þínum í þeirri miklu sorg sem yfir ykkur hefur gengið, þú veist að ég og fjölskylda mín stöndum þér við hlið. Guðmundur Leifsson. Elsku Fríða mágkona og vinur minn. Ég kveð þig í dag með mikla sorg og trega í hjarta. Hvernig má það vera að þú í blóma lífsins og sem hafðir svo mikið að lifa fyrir, sért hrif- in á brott úr þessari veröld? Lífið er hverfult og og enginn veit sinn tíma fyrir, hverjum hefði dottið í hug að þú sem varst alltaf svo hraust og full at- hafnaorku færir svona snemma frá okkur. En ég trúi því að þér sé ætlað eitthvert hlutverk sem er svo stórt og vandasamt að guð varð að kalla þig til sín. En eins og dóttir mín sagði marg- sinnis „þetta er svo óréttlátt“, ég ætla bara að vona að við fáum að skilja til- ganginn með þessu öllu saman ein- hvern tímann. Elsku Fríða mín, ég man fyrst eftir þér á Gimli, lítil ljós- hærð hnáta með bók í hendi, ég hef aldrei kynnst neinu barni sem hafði jafn mikið yndi af því að lesa og þú. Enda kom það á daginn að þú lagðir langskólanám fyrir þig með sérgrein í barnagigtarlækningum, sem var senn að ljúka, er þú varst greind með þenn- an erfiða og grimma sjúkdóm. Elsku Fríða, þú ert og verður alltaf hetja í huga mínum, ég þakka fyrir þær mörgu góðu stundir sem ég hef átt með þér. Mér er mjög minnisstæð sú stund þegar þú, ég, Kalla, og Gulla systur þínar vorum að pakka niður í kassa áður en þú fluttir út, ég átti að vera að lesa undir próf en var frekar að pakka með ykkur, þú full af eld- móði tilbúin að takast á við ný verk- efni á erlendri grund með ungu fjöl- skylduna þína, mikið samgladdist ég þér. Og aftur vorum við komnar sam- an fjórar í sumar að pakka fyrir óvænta heimkomu þína, við áttum yndislegar stundir í góða veðrinu með garðsölu og búðarferðum, þú með þinn drífandi kraft gafst okkur ekkert eftir, þrátt fyrir veikindin. Elskulega Fríða, ég kveð þig með þakklæti í hjarta, blessuð sé minning þín, ég veit þú ert umvafin fegurð ljóss og friðar. Þú munt alltaf vera ljósið okkar og við munum gæta vel að ljósunum þínum þremur. Ég bið góðan guð að styðja og blessa Sævar, Birtu, Viktor, Leif og Vöku í sorg sinni. Ruth. Á Gimli, æskuheimili Fríðu og systkina hennar, var vítt til veggja í mörgum skilningi. Systkinin nutu frjálsræðis og trausts á uppvaxtarár- um sínum, sem þau kunnu vel að fara með og nýttu á jákvæðan hátt til síns þroska. Það fyrsta sem vakti athygli mína í fari Fríðu, sem þá var u.þ.b. 10 ára gömul, var hve mikill dýravinur hún var. Villikettir úr hrauninu nutu húsaskjóls og matarbita hjá henni og hún ein gat klappað þeim þótt öðrum væri rétt klóin. Einnig var eftirtekt- arvert hve náin Fríða var og tók mik- inn þátt í lífi og starfi foreldra sinna. Þessi jarðvegur, ásamt góðu upplagi gerðu Fríðu að þeim fulltíða einstak- lingi sem okkur var ljúft að þekkja og hafa í návist okkar. Hana prýddi jafn- vægi og jafnaðargeð og létt, jákvæð lund en undir rólegu fasi bjó jafn- framt mikill dugnaður og þrautseigja. Sumarið 2000 nutum við Kalla og börnin þriggja vikna sumarleyfis hjá Fríðu og Sævari og börnum þeirra þar sem þau voru að koma sér fyrir í nýjum og notalegum heimkynnum á búgarði í Maryland, en þar hugðust þau eiga heima næstu árin á meðan Fríða stundaði nám í gigtlækningum barna. Þar kynntist ég, meðaljóninn, hvernig dugnaðarforkar ganga til verka, en stíll Fríðu og Sævars var að tvínóna ekki við hlutina, heldur láta verkin tala og var oft með ólíkindum hve miklu var áorkað. Sú rétta blanda af púli og afslöppuðum samvistum við góða vini, sem ástunduð var þessa ljúfu daga varð að eftirminnilegasta og ánægjulegasta sumarfríi sem hef upplifað og hélt ég heim endurhlaðinn orku. Í þessari sömu ferð varð ég þess heiðurs aðnjótandi að vera viðstaddur þegar Fríða útskrifaðist sem barna- læknir frá UConn. Frá því fagra júní- kvöldi geymi ég í huga mér mynd af glæsilegri mágkonu minni, stolti og augasteini eiginmanns, föður og systkina, í blóma lífsins. Hún hafði undirbúið sig vel fyrir þau krefjandi verkefni, sem ætla mátti að biðu hennar. „Verði þinn vilji, svo á jörðu sem á himni.“ Þannig hljómar bæn sú, sem okkur er ungum kennd. Erfitt reynist okkur fullorðnum að skilja, hvað þá útskýra fyrir börnum sem misst hafa ástríka móður eða frænku, að sú sára staðreynd, sem við nú stöndum frammi fyrir, sé vilji föður vors á himnum. Hvert svo sem hið stóra samhengi hlutanna er, ætti okk- ur ekki að dyljast þegar við lítum ynd- isleg börn Fríðu og Sævars, að lífið er þrátt fyrir allt dásamleg gjöf og það hefur sigur. Sú óska ég að verði nið- urstaða allra þeirra sem upplifa nú einlæga og djúpa sorg vegna fráfalls Fríðu Guðmundsdóttur. Ég kveð mágkonu mína með sárum trega og þakka henni samfylgdina. Blessuð veri minning hennar. Guðmundur Elías Níelsson. Hugur minn hljóðar, sorg mín er slík. Fríða Guðmundsdóttir, ung eig- inkona og móðir, er fallin frá. Barna- læknir, sem framtíðin brosti við. Besta vinkona mín. Við tvær áttum svo margt órætt, margar ferðir ófarn- ar og margar samverustundir ólifað- ar. Það hefur óréttlæti orðið. Á því er enginn vafi. Ég minnist alls síðasta árs. Fríða og ég spjölluðum um heima og geima einn kaldan janúardag, á veitingastað í Fíladelfíuborg og bið- um þess að Fríða færi til læknis vegna höfuðverkja. Ekki datt okkur í hug hver útkoma þeirrar læknisskoðunar yrði. Á leiðinni heim hvarflaði að okk- ur að stoppa bara aldrei bílinn, segja aldrei neinum og þá væri þetta kannski ekki satt. En raunveruleikinn er ekki svo einfaldur. Stundum getur maður ekki verndað vin sinn gegn áföllum, né heldur tekið á sig sorg saklausra barna. Hvað gerir maður þegar fréttist að það verði heimsendir á morgun? Fríða stóð frammi fyrir þeirri spurningu og svaraði hátt og skýrt. Þótt framtíðin væri ótrygg þá hefði hún líðandi stundu. Hún kvart- aði aldrei yfir hlutskipti sínu og náði að njóta vorsins með fjölskyldu sinni og vinum í Maryland. Ég gleymdi oft að hún væri veik, þegar við röltum með hundana um land þeirra hjóna, eða skruppum tvær saman í búðir. Hún sat ekki aðgerðarlaus heldur skipulagði mót og reiðnámskeið með íslenskum hestum sem haldið var í Maryland eina helgi í maímánuði síð- astliðnum. Samkoman tókst með af- burðum vel og það var á allra vörum að varla sæist að Fríða væri lasin. Jafnvel á erfiðu stundunum, þegar veikindunum varð ekki neitað, brosti hún til mín og sýndi börnum sínum og Sævari óhemju hlýju og ást. Samband þeirra, það sterkasta sem ég hef nokkru sinni kynnst. Sævar sýndi á síðasta ári þvílíkan styrk að mér fannst hann oft halda uppi heimi okk- ar allra. Ég er mikil gæfukona að hafa getað kallað Fríðu bestu vinkonu mína í tæpa tvo áratugi. Vinátta okk- ar var einstök, svo einstök að ég á erf- itt með að koma í orð hvernig henni var háttað. Hvernig við vissum alltaf hvað hin var að hugsa og byrjuðum samtímis að segja sama hlutinn. Við upplifðum svo margt. Ég man eftir samtali uppi í hesthúsi um ungan mann, sem sat vel hest og sýndi Fríðu áhuga. Líneyju, vinkonu okkar, og mér leist vel á hann og komumst að því að hann hét Sævar Leifsson. Þar með lauk hlutverki okkar og við tók átján ára samband milli Fríðu og Sævars. Ég gleymi heldur aldrei sím- talinu frá Fríðu með fréttum um að von væri á Birtu Rún. Ég vissi að hún yrði frábær móðir og það kom ekki síst í ljós þessa síðustu erfiðu mánuði. Ég minnist hestaferðanna, áranna í læknadeildinni, innkaupaferðanna til Evrópu og saumaklúbbanna. Þá held ég upp á árin okkar úti, bæði í West- Hartford og Maryland, þar sem við náðum að gera svo margt. Við fórum þrisvar saman til Flórída með börnin okkar öll, nú síðast í apríl síðastliðn- um. Við keyrðum þangað á fimmtán manna rútu, með börnin okkar átta og barnfóstrurnar tvær. Hulda Brá, vin- kona okkar, og fjölskylda hennar hitti okkur þar og við nutum dvalarinnar út í ystu æsar. Sjúkdómurinn var skil- inn eftir heima. Þegar ég hugsa um Fríðu brosa minningarnar á móti mér. Þó hugur minn hljóði, þá er sál mín sæl og hjarta mitt heilt því ég þekkti stórkostlega stelpu, fékk að fylgjast með henni verða að glæsilegri konu, móður og lækni og var svo heppin að vera nálægt henni allt til hins síðasta. Fyrir það er ég þakklát. Far þú í friði, elsku besta vinkona. Ýr.  Fleiri minningargreinar um Fríðu Guðmundsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.                !"#$ %&'!(&                                   !   "#$$ )) * (   ))+ ,&*  -  )+ .'*  /'*  )  0% *  1          //* ///*2  %           &    3454  (  )* 67 %&'!(&     '     (   '    )   * '    8+-!)+ 9%  0) 0)+ ((%)+ +:   )  .(%)+ 8;( 9;  )  )  :%)+ (      %)+  .'     //*2

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.