Morgunblaðið - 28.12.2001, Blaðsíða 48
MINNINGAR
48 FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Áslaug SólveigStefánsdóttir
fæddist á Öldugötu 6 í
Reykjavík 10. júní
1929. Hún lést á
Landspítalanum í
Fossvogi 19. desem-
ber síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Stefán Páll Runólfs-
son, f. 25. janúar
1884, d. 17. júlí 1954,
og Pálína Andrés-
dóttir, f. 15. ágúst
1890, d. 28. apríl
1972. Systur Áslaug-
ar eru 1) óskírð, f.
1920, d. 1920; 2) Þóra Guðrún, f.
27. nóvember 1926. Eiginmaður
hennar er Ólafur Bergsson, þau
eiga fimm börn; 3) Andrea Þórdís,
f. 9. júní 1929, d. 16. júní 1945.
Áslaug giftist 7. júní 1957 Leifi
Hannessyni byggingaverkfræð-
ingi, f. 13. janúar 1930, d. 14. maí
2001. Foreldrar hans voru Hannes
Guðmundsson læknir og Valgerð-
ur B. Björnsdóttir.
Börn Áslaugar og
Leifs eru 1) Þórdís, f.
1958, dóttir hennar
er Sóley Jónsdóttir.
Faðir hennar er Jón
Grímsson; 2) Gerður,
f. 1961, sambýlis-
maður hennar er
Sveinn A. Blöndal,
þeirra börn eru Þór-
hildur, f. 1989, og
Baldur, f. 1998; 3) Ás-
laug, f. 1963. Sam-
býlismaður hennar
er Bjarni Halldórs-
son, hennar sonur er
Leifur Ýmir Eyjólfsson. Faðir hans
er Eyjólfur Bjarni Alfreðsson.
Áslaug Sólveig lauk hússtjórn-
arnámi í Svíþjóð árið 1947 og
starfaði í Björnsbakaríi í tíu ár.
Eftir það helgaði hún sig húsmóð-
urstörfum.
Útför Áslaugar Sólveigar fer
fram frá Fossvogskirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 15.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfin úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sig.)
Þín systir,
Þóra.
Í dag komum við ættingjar,
venslafólk og vinir Áslaugar Sól-
veigar Stefánsdóttur saman í Foss-
vogskirkju til þess að kveðja hana
hinstu kveðju. Áslaugu hittum við
undirritaðar fyrst er hún kom á
æskuheimili okkar í fylgd Leifs
bróður okkar. Þá starfaði hún í
Björnsbakaríi í Vallarstræti.
Björnsbakarí var upp frá því lengi
tengt fjölskyldu okkar varðandi af-
mæliskringlur og annað góðgæti á
góðum dögum.
Á þeim árum eignaðist Áslaug
margar góðar vinkonur og héldust
þau vináttubönd alla tíð.
Leifur og Áslaug höfðu engar
vöflur á hlutunum, heldur drifu sig í
hjónaband, húsbyggingu og barn-
eignir. Þá kom sér vel verkfræði-
menntun Leifs. Vandað raðhús reis
með hraði á Laugalæk 44, sem upp
frá því var heimili þeirra, þar til
harðnaði á dalnum. Dæturnar
fæddust hver af annarri, Þórdís,
Gerður og Áslaug, bjartar yfirlitum
og vel af Guði gerðar. Leifur var
önnum kafinn við verkfræðistörf,
en Áslaug annaðist af stakri prýði
börn og bú. Leifur stofnaði árið
1964 verktakafyrirtækið Miðfell hf.
ásamt tveimur eiginmönnum vin-
kvenna Áslaugar, þeim Steinbergi
og Rannveri, og störfin hlóðust upp
stór og smá, vítt og breitt um land-
ið. Áslaug og dæturnar fóru stund-
um með út á land og aðstoðuðu við
rekstur mötuneytis og önnur störf
er til féllu. Áslaug var glaðsinna og
lagði jafnan sitt af mörkum til þess
að ávallt ríkti góður andi á þeim
vinnustöðum, sem hún kom nálægt.
Verktakastarfsemi hefur löngum
verið erfið starfsgrein á Íslandi,
sérstaklega yfir hörðustu vetrar-
mánuðina.
Eftir liðlega 20 ára starf sem
verktaki sá Leifur gjaldþrot sitt
blasa við. Um sama leyti missti
hann heilsu sína til frambúðar.
Saman horfðu þau á eftir íbúðarhúsi
sínu og öllum eigum. Leifur, orðinn
veikur, bar harm sinn í hljóði og Ás-
laug sýndi af sér einstaka hugprýði.
Hún tók hverju, sem að höndum
bar, með stóískri ró. Margir réttu
þeim hjálparhönd á þessu tímabili
og voru þar fremstir í flokki gamlir
skólabræður og samstarfsmenn
Leifs. Varð það til þess, að þau gátu
leigt sér litla íbúð í miðborginni og
komið sér upp snotru heimili, sem
varð skjól þeirra til æviloka. Leifur
og Áslaug undu hag sínum þar all-
vel, voru bæði miðbæjarbörn síns
tíma. Áslaug var félagslynd kona og
ávallt glaðleg, naut þess að fara út á
meðal fólks og fá vini og ættingja í
heimsókn, veitti hún þá jafnan af
mikilli rausn. Áslaug var mikil
hannyrðakona. Ófá börn og full-
orðnir hafa fengið frá henni lopa-
sokka og teppi, sem munu ylja þeim
um langt skeið eftir andlát hennar.
Hún annaðist Leif bróður okkar í
veikindum hans af mikilli umhyggju
og dugnaði meðan kraftar entust og
kunnum við henni miklar þakkir
fyrir það hve vel hún reyndist hon-
um.
Það er erfitt hlutskipti dætranna
að missa báða foreldra sína með svo
stuttu millibili, en þær hafa sýnt
mikla hetjulund og verið óþreytandi
við að sinna þeim og aðstoða allt
fram til síðustu stundar.
Nú eru þessi mætu hjón bæði
horfin á braut – meira að starfa
Guðs um geim. Söknuðurinn er sár
fyrir þá sem eftir lifa, en bjartur og
hreinn. Minningin um góða for-
eldra, afa, ömmu, bróður og mág-
konu mun lifa um ókomin ár.
Blessuð sé minning þeirra.
Valgerður, Lína og Helga.
Látin er kær vinkona okkar, Ás-
laug Sólveig Stefánsdóttir. Við
kynntumst henni fyrir 45 árum þeg-
ar hún giftist Leifi Hannessyni
verkfræðingi, skólabróður Jóhann-
esar og vini frá unglingsárum. Við
bjuggum í sama raðhúsi í áratugi og
var alla tíð mikill samgangur á milli
heimilanna. Á þeim árum voru eig-
inkonur yfirleitt heimavinnandi á
meðan börnin voru ung og þannig
var það í raðhúsinu okkar. Áslaug
var einstaklega barngóð. Þetta
fundu börnin, leikfélagar dætra
hennar. Til hennar voru þau ávallt
velkomin. Þar beið þeirra hlýtt við-
mót og eitthvað gott í munninn. Ás-
laug var mjög ljúf og elskuleg kona
sem öllum vildi vel, greiðvikin og
hjálpsöm. Hugsaði hún jafnan
fremur um aðra en sjálfa sig.
Fyrir 15 árum urðu miklar breyt-
ingar á högum fjölskyldunnar. Þá
varð Leifur fyrir alvarlegu heilsu-
tjóni og varð óvinnufær upp frá því.
Í þeim erfiðleikum sýndi Áslaug
mikinn styrk og studdi við bakið á
manni sínum í öllum hans veikind-
um. Leifur lést fyrr á þessu ári.
Nokkrum árum áður hafði Áslaug
greinst með alvarlegan sjúkdóm og
varð síðustu árin að vera undir
læknishendi. Veikindum sínum tók
hún af kjarki og æðruleysi og sá
jafnan björtu hliðarnar á tilverunni.
Áslaug var félagslynd. Hún naut
þess að fara í fjölskylduboð og af-
mæli og hitta ættingja og vini. Lét
hún heilsutjón síðustu ára ekki
aftra sér í þeim efnum. „Ég hvíli
mig bara á morgun,“ var svar henn-
ar ef hún var spurð hvort hún væri
ekki þreytt.
Í veikindum foreldra sinna hafa
dætur þeirra, Þórdís, Gerður og Ás-
laug, staðið sterkar við hlið þeirra
og sýnt þeim einstaka umhyggju og
hjálpsemi.
Að leiðarlokum þökkum við Ás-
laugu fyrir samfylgdina og vináttu
og ræktarsemi í okkar garð. Inni-
legar samúðarkveðjur sendum við
dætrum hennar og öðrum ástvin-
um. Guð blessi minningu góðrar
konu.
Guðrún og Jóhannes.
Það er erfitt að kveðja ástvin að-
eins nokkrum dögum fyrir jól. En
öll þurfum við sætta okkur við kallið
þegar það kemur. Þegar maður
tekst á við sorgina, umkringdur
helgi og boðskap jólanna, er gott að
láta tárin falla og rifja upp góðu
minningarnar.
Áslaug Sólveig Stefánsdóttir hef-
ur kvatt þessa jarðvist en eftir sitja
minningar um góða systur, mág-
konu og frænku.
Áslaug og fjölskylda hennar
bjuggu í sama húsi og við nánast
alla tíð. Fyrst á Nýlendugötu 27,
síðan á Laugalæk 44 en við á 46. Við
vorum ein stór fjölskylda sem naut
umhyggju Áslaugar í ríkum mæli.
Samgangur milli heimilanna var
mikill, og var alltaf gott að koma til
Áslaugar í heimsins bestu pönnu-
kökur og nýsteiktar kleinur.
Áslaug var glæsileg kona, létt í
lund, síhlæjandi og gat alltaf séð
spaugilegu hliðarnar á öllu. Hún
var hlý og góð, óeigingjörn og mikil
hetja, því hún hugsaði alltaf fyrst og
fremst um hag annarra, þrátt fyrir
að þurfa að þola sjálf mikið mótlæti
síðustu árin. Áslaugu þótti betra að
gefa en að þiggja. Hún var mikil
fjölskyldumannesja og helgaði fjöl-
skyldunni líf sitt. Það var oft gest-
kvæmt á Laugalæknum enda elsk-
aði hún að hafa fólk í kringum sig.
Hún hélt glæsiveislur og voru af-
mælisveislur hennar ógleymanleg-
ar. Í minningunni var alltaf sól og
blíða á afmælisdaginn hennar, við
öll úti í garði, systur Leifs og fjöl-
skyldur og auðvitað allar vinkon-
urnar.
Það var oft mikið um alslags
uppákomur á Laugalæknum, dæt-
urnar þrjár sáu til þess. Þórdís,
Gerður og Áslaug komu oft hugar-
flugi sínu í framkvæmd og var þá
gott að eiga skilningsríka foreldra.
Áslaug og Leifur sýndu dætrum
sínum mikinn skilning og hvöttu
þær til dáða. Oft þótti okkur þau
vera of eftirlátssöm við dæturnar
en annað hefur komið á daginn, því
þann kærleika og atlæti sem þær
fengu í æsku hafa þær endurgoldið
foreldrum sínum síðustu árin, vakn-
ar og sofnar í að sinna þeim.
Heimilislífið hjá þeim heiðurs-
hjónum Áslaugu og Leifi einkennd-
ist af lífi og gleði. Þau hjón voru
eins og svart og hvítt og vógu því
hvort annað upp. Leifur var ákaf-
lega rólegur og tímaskyn hans ann-
að en okkar hinna en Áslaug hins
vegar mjög ör og var alltaf að flýta
sér. Þau þurftu að sýna hvort öðru
mikla þolinmæði og oft kom gott og
spaugsamt skap Áslaugar að gagni.
Í gegnum árin var Áslaug yfirleitt
að yfirgefa veislurnar þegar Leifur
mætti í þær. Jólin spiluðu mikla
rullu í lífi þeirra. Við krakkarnir
fylgdumst oft með jólasveininum
sem kom á aðfangadag áður en
haldið var heim til frú Valgerðar,
móður Leifs, í jólamatinn. Stelp-
urnar fengu pakkana fyrir mat svo
ekki þurfti að bera alla pakkana á
milli. Og hvað maður öfundaði þær.
Jólasveinninn var Leifur sjálfur í
jólasveinabúningi og færði dætrum
sínum jólagjafir.
Það er með miklum trega sem við
kveðjum þessa öðlingskonu og biðj-
um góðan Guð að blessa dætur og
fjölskyldur Áslaugar og Leifs
Hannessonar.
Fjölskyldan Laugalæk 46.
ÁSLAUG SÓLVEIG
STEFÁNSDÓTTIR
%
<=
402<=
4 /: '+
:76
+
,
-
' !
"++$
))0)+
/'* ))+
:<> )+ 0.
( .(<> )+ -%)(.)+
/'*'<> )+
?.)+
%;<> )+ !.
8;( <> <> .
0:@+<>
>!
)/* //* ///*2
%
-8-8 9&+ A
' +
-'*-' .(0)+
-%'+: -' @ /'*.28+)+
-'-' (:)+
--' /'* ))+
//* ///*2
./
-
454
4@<9 &&
/;$
%&'!(&
'
.
'
' 0/-'
+
"$+$
) 2' )+
' ) . ?&)+
< )
@+ ))+
)@+ )
//*2
<9@8 ;(
;$B
.:!(&
'
+
1-'
(
"++$
+!0 )8+)+
%+< )+ ;
/'*8+< )+ 0,:
8+< (/.')+
; < 8+ ;8+)+
@+ < )<
.<
//*2
* '
C48
0: (%&'!(&
(0'/&&D#
%&'!(&
2
#
-
/ '
2;
'+20)+
.(920)+)+ <> %!)
)-20)+)+
' E@ &)+2