Morgunblaðið - 28.12.2001, Qupperneq 50
MINNINGAR
50 FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Hans Sætran,stöðvarstjóri
Flugleiða í Frank-
furt, fæddist í
Reykjavík hinn 10.
maí 1947. Hann varð
bráðkvaddur í
Frankfurt í Þýska-
landi hinn 13. desem-
ber síðastliðinn. For-
eldrar hans eru
Svanhildur Sætran
hjúkrunarkona, f. 10.
september 1915, og
Jón Sætran raf-
magnstæknifræðing-
ur, f. 21. febrúar
1915, d. 8. janúar 1993. Systkini
Hans eru Kristín Hildur Sætran, f.
22. júní 1949, og Jóna Björg Sætr-
an, f. 14. 4. 1952. Börn Kristínar
eru: 1) Jón Reyr Þorsteinsson, f.
18.11.1969. Börn Jóns eru Alex-
andra og Leónard. 2)
Sindri Þorsteinsson,
f. 27. maí 1975. 3)
Steinn Hildar Þor-
steinsson, f. 9. júní
1978, unnusta hans
er Þóra Jensdóttir, f.
13.10. 1978. Eigin-
maður Jónu Bjargar
er Kristinn Snævar
Jónsson, f. 24.4.
1952. Börn þeirra
eru: 1) Hjalti Freyr
Kristinsson, f. 6.9.
1973, kvæntur Svövu
Brynju Sigurðar-
dóttur, f. 25.2. 1969.
Sonur Svövu Brynju er Arnþór
Einar. 2) Lóa Guðrún Kristins-
dóttir, f. 3. 7. 1977.
Útför Hans Sætran fer fram frá
Fossvogskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
Um miðjan desember eru víða
tendruð jólaljós um allan heim og
birta jólahátíðarinnar sem þá er
skammt undan lýsir í skammdeg-
inu. Í einni svipan er sem snar-
dimmi þegar sú fregn berst mér
hingað til Íslands frá Þýskalandi
að minn ágæti stóribróðir, Hans, sé
dáinn. Hans varð bráðkvaddur á
leið heim að loknum vinnudegi á
flugvellinum í Frankfurt þar sem
hann var stöðvarstjóri Flugleiða.
Þetta er þeim mun sárara í ljósi
þess að eftir nærri 30 ára dvöl í
Þýskalandi við störf hjá Flugleið-
um hafði hann verið að huga að því
að flytja heim til Íslands eftir fá-
eina mánuði. Eftirvæntingin hér
heima var mikil; loksins yrðu sam-
verustundirnar lengri og tíðari.
Allt í einu er allt breytt.
Við ólumst upp í Hlíðunum í
Reykjavík og helsta leiksvæðið var
náttúran í gömlu góðu Öskjuhlíð-
inni. Skátastarfið heillaði hann
snemma og varð ríkur þáttur í lífi
hans, enda hafði hann eignast þar
trausta vini. Snemma kviknaði
áhugi hans á ljósmyndun og
myndavélin var aldrei langt undan.
Hann hafði næmt auga fyrir góðu
myndefni og var auk þess óþreyt-
andi við að kenna litlu systur sem
mest í þeim fræðum.
Hugur Hansa leitaði fljótt út fyr-
ir landsteinana og tvítugur fór
hann í lýðháskóla til Noregs þar
sem hann eignaðist stóran vinahóp
sem hélt vel saman alla tíð. Síðan
lá leiðin til hótelstarfa á Jersey og
svo aftur til Íslands þar sem hann
hóf störf hjá Flugleiðum. Um tíma
var hann næturvörður á Hótel
Esju, fór svo til starfa á skrifstofu
Flugleiða í Hamborg, var síðan hér
heima um tíma og starfaði síðan á
skrifstofu Flugleiða í Frankfurt.
Nú síðustu árin var hann stöðv-
arstjóri Flugleiða á flugvellinum í
Frankfurt og sá um þjónustu gagn-
vart farþegum og flugvélum Flug-
leiða til og frá Frankfurt. Í starf-
inu naut hann sín best, hafði mikið
að gera og tók þátt í hringiðu lífs-
ins á flugvellinum. Hann gegndi
miklu ábyrgðarstarfi þar sem mik-
ilvægt var að hægt væri að treysta
því að öll mál væru afgreidd fjótt,
vel og örugglega. Hans var mikils
metinn og virtur af samstarfsfólki
sínu á flugvellinum, ekki aðeins
fyrir faglega færni heldur ekki síð-
ur fyrir persónueinkenni sín;
ákveðnar skoðanir og eftirfylgni,
sína léttu lund og ómælda hjálp-
semi gagnvart öðrum.
Hans hafði ríka ábyrgðartilfinn-
ingu gagnvart okkur fjölskyldunni.
Þrátt fyrir mikla landfræðilega
fjarlægð vildi hann alla tíð hafa
fullvissu um að hjá okkur öllum
væri allt í góðu gengi. Stuttar en
frábærar samverustundir, óvænt
símtöl, bréf og afmæliskortin sem
aldrei misfórust, allt er þetta ómet-
anlegt.
Ágæti stóri bróðir, þín er sárt
saknað. Þín litla systir.
Jóna Björg Sætran.
Nú er hann Hans okkar búinn að
kveðja okkur í síðasta sinn. Fátt
vissum við um ættir og uppruna
Hans og verður ekki fjallað um það
hér. Um margra ára skeið settum
við sem samstarfsmenn Hans hjá
Flugleiðum samasemmerki á milli
Hans og flugvallarins í Frankfurt.
Virtist sem vinnan væri Hans allt
og sem fátt annað kæmist að enda
var starfið honum meira en lífsvið-
urværi og aldrei lét Hans sig vanta
á vinnustað. Hans var flókinn per-
sónuleiki að eðlisfari og hleypti
ekki hverjum sem var að sér.
Þegar betur var að gáð var þó
hér á ferðinni afskaplega fróður og
skemmtilegur drengur sem með
hlédrægni ávann sér virðingu
þeirra sem kynntust honum.
Ekki verður á móti mælt að sam-
viskusamari starfsfélaga höfum við
vart kynnst og aldrei heyrðist
Hans hallmæla nokkrum manni.
Alhliða þekking hans á flugrekstri
og hárfín vinnubrögð voru til fyr-
irmyndar í alla staði.
Fagmaður fram í fingurgóma.
Skemmtilegast af öllu var að heim-
sækja flugvellina í Hamborg og
Frankfurt og láta Hans leiða sig
um alla ganga þar. Augljóst var að
Hans þekkti hvern krók og kima
og þekkti að því er virtist alla
starfsmenn þar sem allir heilsuðu
honum. Jafnljóst var af viðræðum
við samstarfsaðila okkar á erlend-
um flugvöllum að Hans naut mik-
illar virðingar allra sem þekktu til
og er skarð fyrir skildi í röðum
okkar. Síðan 1999 starfaði Hans
sem yfirmaður alls stöðvarrekstrar
Flugleiða í Mið-Evrópu og leysti
það starf af hendi bæði samvisku-
samlega og farsællega. Atburðirnir
11. september í Bandaríkjunum
settu strik í reikninginn hjá flug-
félögum um allan heim og voru
Flugleiðir eins og alkunna er ekki
undanskildar.
Niðurskurður í flugrekstri til
Mið-Evrópu var staðreynd og við
blasti að Hans flytti heim til Ís-
lands á ný með vorinu eftir áratuga
vist erlendis.
Æðruleysi og lítillæti einkenndi
viðbrögð Hans við þessum breyt-
ingum og sýndi sig vel hversu vel
gerður maður hann var. Í stað þess
að örvænta eða skammast yfir ör-
lögum sínum var tekist á við þessar
breytingar af jákvæði og dirfsku
sem sýndi sig best í hversu vel
Hans vildi skilja við rekstur okkar
í Frankfurt. Hans virtist hlakka til
að snúa aftur til fósturjarðarinnar
og er þess vegna enn sárara að
hann skuli vera farinn frá okkur.
Í dag kveðjum við Hans Sætran
en minningin um góðan mann og
vin verður eftir hjá okkur. Við
sendum fjölskyldunni okkar inni-
legustu samúðarkveðjur.
Hrafn og Kolbeinn.
HANS
SÆTRAN
Fleiri minningargreinar
um Hans Sætran bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu daga.
H3
3
:% &!
0;J &+
- "9
-
5-'
(
"($$
./
/
-
( /'*
( 0 < < /*2
%
94
H9
-'(7
%&'!(&
3 4' .- &
- "9
-
.-
' !
"#$$
6
- 2
2 -
1
7 @+)(:)+
:)+
9 :)+
)% //*2
%
'
,548
: 0 ;
-& )DD
-
,
&
! :
(! ?>:)+
( -()+ *:8+()+2
:
2
2
*
-
-
@545 :%!)&F'+
: ; !(&
(
0: (0:: 2
0'*)( 2@+ )+ -)
-2@+ 99&)+
2@+ % )+
2@+
JI+2@+ 0))+
0)+2@+ &&(< )+
<;)+
'2@+ )+ ;@
/ !@+ )+ +: >0 :)
.(@+ )+ 8+28+
//* ///*2
0L
* !'+H
(H&:
'.
';* "+
-
.-
!
"+<+$
6
- 2
2 -
'
!) J
.(0) J
8+-'*J2
%
0
@2.49 8*& "
0:
!$7
5
(
+
"++$
6
- 2
2 - &
-* )/*
//* ///*2
.
484 : ,:
- '+ 2
5
%
0
8 J&
+:D#
?0)+
/'*
)+)+
/'*
)+)+ 8+0
>8+)+ <> HJ!
( ))+ 00 2
%
45.9 0 ;G#
%&'!(&
' 2
#
'
)
* '
./
(0 &)2