Morgunblaðið - 28.12.2001, Qupperneq 60
UMRÆÐAN
60 FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
HEMLUNARLENGD er mæli-
kvarði á núninginn milli barðans og
viðkomandi undirlags. Hún er því
jafnframt mælikvarði á spyrnuhæfi-
leika barðans, t.d. til að komast upp
brekku, upp úr göturæsi eða um tor-
færu við tilgreind skilyrði, eins og
hún er mælikvarði á hæfileikann til
að stöðva bifreiðina.
Nú liggur fyrir skýrsla Rann-
sóknarstofnunar byggingariðnaðar-
ins (Rb), sem gerð er af Pétri Pét-
urssyni og Þóri Ingasyni, um
hemlunarvegalengd eða bremsu-
vegalengd (b) á þurrum ísi fyrir
nagla (N), loftbólur (L), harðkorn
(H) og snjóbarða (S). Hér verður
bremsuvegalengd í metrum fyrir
loftbólubarða á 40 km hraða skráð
sem „bL40“ og er byggt á skýrsl-
unni. Tölur úr henni eru skráðar
þannig og innan sviga.
Í skýrslunni kemur fram, að við
ökuhraða 40 km/klst er b fyrir loft-
bólubarða (bL40= 43 m) hin sama
og fyrir neglda barða (bN40=43 m),
en harðkornabarðar (bH40= 65 m)
og ónegldir vetrar-
barðar, svokallaðir
„snjóbarðar“
(bS40=65 m) hafa mun
lengri (22 m, sem er
51% lengri) bremsu-
vegalengd eða 65 m.
Þetta er að mínu viti
afgerandi mikill mun-
ur. Þetta eru líka þær
aðstæður, sem miða
ber við, öryggi til að
stöðva og hæfileiki til
að komast áfram við
erfiðar aðstæður,
hálku og halla, þar sem
undir er þurr ís.
Þetta er því að mínu
viti rétta forsendan
fyrir vali á vetrarbörðum fyrir hinn
almenna ökumann, sem yfir vetrar-
tímann ekur að mestu innan borgar
og þarf að komast frá heimili sínu á
litlum hraða, yfirleitt um þröng
íbúðahverfi, að söltuðum brautum,
en ekur ekki úti á landi á ísi hraðar
en 40 km/klst. Segja má að þessi
spotti sé hans „hálkuvandi“. Hann
þarf að komast t.d. upp úr renn-
usteini eða upp smábrekku á leið-
inni út á braut, eða upp innkeyrsl-
una á leiðinni heim. Í þessum
tilfellum er reyndar um að ræða að
taka af stað næstum úr kyrrstöðu.
Við þessar aðstæður
eru hörðu kornin
(bH40 = 65 m) mun lé-
legri en loftbólur
(bL40 = 43 m). Mun-
urinn við 40 km hraða
er 65–43 = 22 m, sem
er 51% eða næstum 5
bíllengdir, sem bíll á
harðkornabörðum
rennur lengra en bíll á
loftbólum. Við meiri
hraða (60 km/klst) t.d.
utan borgar í hálku
stöðvast harðkorna-
barði á 122 m
(bH60 = 122 m) og
loftbólubarði á 97 m
(bL60 = 97 m) munur-
inn er 122–97 = 25 m, sem er 26%
eða um 5 bíllengdir. Þetta felur líka í
sér, að bíll á loftbólubörðum kemst
upp brattari brekku en bíll á harð-
kornabörðum. Hann situr eftir,
spólar og kemst hvergi.
Ökumaður, sem þarf að aka utan
borgar langar vegalengdir og ekur
því væntanlega með meiri hraða en
40 km/klst, þarf nagla til að stöðva
og ná lágmarks bremsuvegalengd.
þar duga loftbólur ekki, því hraðinn
er yfir 40 km/klst. Þar er hans
„hálkuvandi“. Á 60 km/klst stöðva
naglar á 88 m (bN60 = 88 m) en loft-
bólur á 97 m (bL60 = 97 m), mun-
urinn er 9 m eða 10%, um 2 bíllengd-
ir, en hörðu kornin stöðva á 122 m
(bH60 = 122 m) og renna því 122–
88 = 34 m lengra en naglar. Snjó-
barðar stöðva á 133 m (bS60 = 133
m) og renna því (133 –88 = 45) 45 m
eða 51%, um 10 bíllengdum lengra
en naglabarðar. Við akstur úti á
landi á meiri hraða en 40 km/klt eru
því naglar sjálfsagt öryggi.
Umhverfisvandi, svifryk, tjöru-
slettur og slit á akbrautum eru
fylgifiskar slitinna naglabarða einna
en hvorki harðkornabarða né loft-
bólubarða. Á þessum forsendum er
rétta valið fyrir höfuðborgarbíla því
loftbólubarðar. Þeir eru umhverfis-
vænir, spæna ekki upp malbik og
veita ökumanni hámarksöryggi í
hægum akstri á þurrum ísi t.d. inn-
an borgar frá heimili að söltuðum
brautum. Miðað við loftbólubarða er
munurinn á bremsuvegalengd við 40
km hraða 22 m eða 51% eða 5 bíl-
lengdir, sem harðkornabarðinn
rennur lengra en loftbólubarðinn.
Það gætu orðið margir árekstrar og
mörg slys og mikið fjárhagslegt tjón
bíleigenda á þessum 5 bíllengdum,
ef menn velja ranga barða undir bíl-
inn. Þetta er líka sjónarmið trygg-
ingarfélaganna, sem þurfa að borga
sinn brúsa, ef óhapp verður.
Að miða harðkornabarða aðeins
við naglabarða og tilheyrandi galla,
hljóðmengun, svifryk, slit á ak-
brautum og rennsli (skautun) á
þurru malbiki er ekki allur sannleik-
urinn, því á markaðnum eru loft-
bólubarðar, sem hafa ekki þessa
slæmu eiginleika. Loftbólubarðarn-
ir eru lausir við þessa galla en eru
auk þess mun betri á þurrum ísi,
eins og áður er lýst, en það eru þau
ökuskilyrði, sem lang flestir eiga við
að glíma.
Þetta má lesa út úr grein í Frétta-
blaðinu 30. okt., þótt það sé ekki
skráð þar skýrum orðum. Þetta
orðalag á niðurstöðum skýrslunnar
er því ekki að finna í skýrslunni, en
það eru einmitt þessi atriði, sem
ökumaðurinn þarf á að halda að
mínu viti til að velja réttu barðana,
takmarka hraðann og njóta fyllsta
öryggis í umferðinni. Það er full
þörf á að komast að réttri niður-
stöðu í vali á hjólbörðum. Það verð-
ur ekki gert með því að endurtaka í
sífellu samanburð á röngum for-
sendum, miða ágæti harðkorna-
barða við neglda barða eins og loft-
bólubarðar séu ekki til, eða að miða
við strætisvagna, sem aðeins aka
eftir söltuðum og auðum brautum
en ekki á þurrum ísi. Þetta er ein-
faldlega röng viðmiðun. Hins vegar
er það rétt, að naglabarðar eru ekki
besta lausnin. Það er þörf og tíma-
bær ábending.
Neyðarbílar lögreglu, slökkviliðs
og sjúkrabílar aka að sjálfsögðu á
negldum hjólbörðum. Þar er þess
vandlega gætt, að barðar séu ekki
slitnir. Þeirra forsendur eru líka
aðrar en hins almenna ökumanns,
sem að vetri ekur að mestu innan
strætisvagnasvæðis og ekki hraðar
en á 40 km/klst utan þess í frosti og
hálku.
Loftbólubarðar og harðkorna-
barðar skauta ekki á þurru malbiki,
eins og einkum slitnir naglabarðar
gera. Harðkornabarðar eru aftur á
móti ekki einu barðarnir, sem hafa
þennan kost. Loftbólubarðar skauta
heldur ekki.
Það ber að fagna þessari skýrslu,
sem gefur að mínu viti afgerandi
leiðbeiningar um val á hjólbörðum
og takmörkun hraða. Enn vantar
rannsóknir á bremsuvegalengd á
tjöruslepju á börðum og strætis-
vagnaleiðum.
Þá er rétt að benda „nöglunum“ á,
að haga sér ekki eins og „sauðir“,
sem troða fjárgötur.
Kostir loftbóluhjólbarða
Jón
Brynjólfsson
Hjólbarðar
Það er rétt að benda
„nöglunum“ á, segir Jón
Brynjólfsson, að haga
sér ekki eins og „sauð-
ir“, sem troða fjárgötur.
Höfundur er verkfræðingur.
Gjafavara – matar- og kaffistell .
All ir verðflokkar.
- Gæðavara
Heimsfrægir hönnuðir
m.a. Gianni Versace.
VERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.
Meðgöngufatnaður
fyrir mömmu
og allt fyrir litla krílið.
Þumalína, Pósthússtr. 13, sími 551 2136