Morgunblaðið - 28.12.2001, Qupperneq 61
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2001 61
Einu færra um að hugsa
Estée Lauder kynnir
Equalizer Smart Makeup SPF 10
Nýi Equalizer Smart Makeup farðinn er sem
hugur manns. Þú þarft ekki lengur að hugsa
um hvort útlitið sé í lagi þótt liðið sé á daginn.
Þessi farði nýtir nýjustu tækni til að vinna gegn
breytingum á húðinni af völdum umhverfisins. Það
er rétt eins og hann hugsi fyrir öllu í þinn stað: Þar
sem húð þín er þurr færir hann henni raka. Þar sem
hún er feit beitir hann fituhemlunum. Þannig helst
farðinn ferskur, einsleitur og fullkominn allan daginn.
Fæst aðeins hjá
Clara Kringlunni, Debenhams snyrtivörudeild, Hagkaup
Kringlunni, Hagkaup Smáralind, Hagkaup Spönginni, Lyfja
Lágmúla, Lyfja Laugavegi, Lyfja Smáratorgi, Lyfja Smáralind,
Lyfja Garðatorgi, Lyfja Setbergi, Lyf og Heilsa Austurstræti,
Sara Bankastræti, Apótek Keflavíkur.
ÁRIÐ 1953 voru á
Alþingi samþykkt lög
um leigubifreiðar í
kaupstöðum. Meginat-
riði þeirra laga voru
svæðisbundnar tak-
markanir á fjölda leigu-
bifreiða, fyrst og
fremst í Reykjavík og
nágrenni. Það var fyrir
tilstilli félagsmanna í
tveimur leigubifreiða-
stjórafélögum sem lög-
gjöfin var sett og með
frumvarpi til laga árið
1952 var greinargerðin
skrifuð af formönnum
félaganna. Með lögun-
um urðu til mjög skýr-
ar hindranir á inngöngu nýrra aðila
að greininni og önnur ákvæði er fólu
í sér samkeppnishamlandi afskipti
hins opinbera. Nokkuð skiptar skoð-
anir voru um ágæti þeirrar lagasetn-
ingar og stór hópur þingmanna var á
þeirri skoðun að með henni væri
stjórn landsins að stíga skref í átt að
auknum ríkisafskiptum og óþarfa
hindrunum og höftum á markaði sem
krefðist ekki slíks. Lagasetningin
þýddi í raun að markaður með þjón-
ustu á þessu sviði væri ekki þess eðl-
is að þar giltu hin almennu markaðs-
lögmál og til þess að koma í veg fyrir
offramboð og til þess að bæta nýt-
ingu fjárfestinga í greininni væru
lögbundnar hindranir á inngöngu
nýrra aðila að markaðnum nauðsyn-
legt úrræði. Þessi ákvæði hafa haldið
sér í löggjöf um leigubifreiðar allar
götur síðan og nú á síðasta degi
þingsins fyrir jólaleyfi samþykkti Al-
þingi áframhald á haftastefnu sinni í
þessum málaflokki. Það skýtur
nokkuð skökku við þegar ríkisstjórn
er gefur sig út fyrir að standa vörð
um frelsi í viðskiptum og afnám at-
vinnuhindrana hverskonar leggur
blessun sína yfir slíka
löggjöf án þessa að
færa vel ígrunduð rök
fyrir afstöðu sinni. Það
eru stór orð að segja að
löggjafinn hafi án nauð-
synlegs rökstuðnings
bundið í lög skerðingu
á atvinnufrelsi manna
en réttur borgaranna
til að velja sér atvinnu
er bundinn í stjórnar-
skrá lýðveldisins líkt og
önnur grundvallar
mannréttindi. Það eru
einnig stór orð að segja
að án rökstuðnings sem
talist getur haldbær
hafi löggjafinn bundið í
lög ákvæði sem fara í öllu gegn
ákvæðum samkeppnislaga og al-
mennum viðhorfum manna til við-
skipta. Þessi orð eru stór en fyrir
þeim eru góð og gild rök. Það sama
er því miður ekki hægt að segja um
rökfærslu þeirra þingmanna er að
meðferð frumvarpsins stóðu. Með-
ferð þingsins á umræddu frumvarpi
var þess eðlis og með þeim hætti að
ef einhvern tíma hefur verið tilefni til
að íhuga hvort sérstakur stjórnlaga-
dómstóll sé nauðsynlegur á Íslandi,
þá er það nú. Með samþykki sínu
hefur Alþingi enn og aftur ítrekað að
þinginu er vart treystandi til að fara
með það fullnaðarmat sem því hefur
hingað til verið treyst fyrir þegar
kemur að því að leggja mat á hvernig
hagsmunum almennings í landinu sé
best borgið. Í nýjum lögum um leigu-
bifreiðar er löggjöfin ekki færð að
breyttum þjóðfélagsaðstæðum eins
og haldið er fram í athugasemdum
ráðuneytisins við umrædd frumvarp
og megininntak þeirra það sama og
það var fyrir nærri fimmtíu árum.
Haftastefna stjórnvalda er því stað-
fest og það vekur upp áleitnar spurn-
ingar varðandi hollustu þingmanna
við þær hugsjónir er þeir telja sig
standa fyrir. Að mínu mati og eflaust
margra annarra voru það ekki hags-
munir almennings sem hafðir voru
að leiðarljósi við lagagerðina nú,
heldur hagsmunir þröngs hóps
manna er stunda atvinnu í greininni.
Ef að slíkt hefur verið raunin hafa
þingmenn þeir sem töluðu fyrir um-
ræddum lögum gerst sekir um að
leggja til samþykktar lagafrumvarp
sem brýtur án nokkurs efa gegn 75.
grein stjórnarskrárinnar og hafa
þannig brotið trúnað sinn gagnvart
Íslendingum öllum. Þeir þingmenn
eiga að mínu mati að biðja kjósendur
sína afsökunar á opinberum vett-
vangi. Það gera þeir ekki nema með
því að leggja til endurskoðun á ný-
samþykktum lögum um leigubif-
reiðar með hagsmuni almennings og
mannréttindi borgaranna að leiðar-
ljósi. Ég skora hér með á háttvirtan
ráðherra samgöngumála að stíga
fram og útskýra fyrir almenningi
hvernig almannahagsmunir eru
tryggðir í umræddum lögum og þar
með hver hin gildu rök eru fyrir
þeirri skerðingu á atvinnufrelsi og
þeim samkeppnishöftum er í lögun-
um felast. Svör hans verða eflaust
mörgum til mikils fróðleiks og jafn-
vel skemmtunar.
Ný lög um leigubifreiðarekstur
Gunnar Axel
Axelsson
Leigubifreiðar
Alþingi hefur enn
ítrekað, segir Gunnar
Axel Axelsson, að því
er vart treystandi.
Höfundur er nemandi við
viðskiptadeild Viðskiptaháskólans
á Bifröst.