Morgunblaðið - 28.12.2001, Blaðsíða 69
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2001 69
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins á Heiðarvegi
15, Vestmannaeyjum, fimmtudaginn 3. janúar 2002 kl. 9.30
á eftirfarandi eignum:
Áshamar 56, 50% eignarhluti gerðarþola, þingl. eig. Elías Rúnar
Kristjánsson, gerðarbeiðandi sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum.
Áshamar 57, 2. hæð til hægri (010203), þingl. eig. Kristina Goremykina
og Jósef Agnar Róbertsson, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður.
Bárustígur 2, íbúð á 2. hæð, matshluti 01 02-01, FMR 218-2612, íbúð
á 2. hæð, matshluti 02 02-01, FMR 218-2614, íbúð á 3. hæð, matshluti
02 03-01, FMR 218-2615, íbúð á 4. hæð, matshluti 02 04-01, FMR
218-2616, auk rekstrartækja skv. 24. gr. laga um samningsveð, þingl.
eig. V.I.P. Drífandi ehf., gerðarbeiðendur Ferðamálasjóður og Vest-
mannaeyjabær.
Bessastígur 8 (Skógar), vesturendi, þingl. eig. Hrefna María Guð-
mundsdóttir, gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf.
Bílskúr á Áshamri 57 nr. 060109, þingl. eig. Gunnar Ingólfur Gíslason,
gerðarbeiðandi Búnaðarbanki Íslands hf.
Boðaslóð 7, neðri hæð, þingl. eig. Ágúst Ómar Einarsson, gerðarbeið-
endur Íbúðalánasjóður og Vestmannaeyjum.
Brattagata 11, n.h., 50% eignarhluti gerðarþola, þingl. eig. Sigmundur
Karl Kristjánsson, gerðarbeiðandi sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum.
Brekastígur 31, kjallari, þingl. eig. Guðni Stefán Thorarensen, gerðar-
beiðendur Íbúðalánasjóður og Vestmannaeyjabær.
Flatir 25, þingl. eig. Útgerðarfélag Vestmannaeyja hf., gerðarbeiðandi
Vestmannaeyjabær.
Heiðarvegur 41, þingl. eig. Sólveig Thorarensen og Heimir Guð-
mundsson, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Sparisjóður Hafnar-
fjarðar.
Miðstræti 16, 50% eignarhluti gerðarþola, þingl. eig. Kristbjörn Hjalti
Tómasson, gerðarbeiðandi Fróði hf.
Strandvegur 81—83—85, þingl. eig. Lífró ehf., gerðarbeiðandi Vest-
mannaeyjabær.
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum,
27. desember 2001.
Karl Gauti Hjaltason, sýslumaður.
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Lífeyrissjóðurinn Hlíf
boðar til sjóðfélaga- og rétthafafundar
föstudaginn 28. desember 2001 kl. 17.00
á Hótel Sögu, fundarsal A.
Dagskrá:
1. Framtíð Lífeyrissjóðsins Hífar
2. Tillaga um að falla frá samþykkt
um aldurstengda réttindaávinnslu.
3. Önnur mál.
Stjórnin.
NAUÐUNGARSALA
Fiskvinnslutæki til sölu
Kínverskur plötufrystir, árg. ´97, 1000 Kw.
Verð 2.000.000 kr.
Baader 198-V flökunarvél. Verð 2.200.000 kr.
Baader 410 bolfiskhausari. Verð 150.000 kr.
10 manna flæðilína. Verð 200.000 kr.
10 manna vinnsluborð. Verð 200.000 kr.
Viktarbúnaður frá Eltak. Verð 240.000.
Brontec ísþykknivél, árg ´99. Verð 1.500.000 kr.
Snjóhorn. Verð 300.000 kr.
Ross S 3180 pökkunarvél. Verð 1.250.000 kr.
Kracher háþrýstidæla HD 895S. V. 50.000 kr.
Soco System færibönd. Verð 50.000 kr./stk.
Soco System snúningsborð. Verð 70.000 kr.
Atlas Copco loftpressa. Verð 260.000 kr.
Steinhöj loftpressa. Verð 220.000 kr.
TMC rafmagnsyftari, árg. ´97 m/snúningi.
Verð 1.100.000 kr.
Toyota rafmagnslyftari, árg. ´98 með snún-
ingi. Verð 1.250.000.
Yale Disellyftari árg. ´98 með yfirbyggingu.
Verð 1.600.000 kr.
Baader 51 roðfléttivél. Verð 1.000.000 kr.
Ulma Alaska gaspökkunarvél.
Verð 8.000.000 kr.
Upplýsingar gefur Birgir í síma 560 8834 eða
gsm 861 6919.
TILBOÐ / ÚTBOÐ
Aðveitustöðin á Bessastöðum
ÚTBOÐ BES-30
Aflspennir
Landsvirkjun óskar hér með eftir tilboðum í
aflspenni fyrir aðveitustöðina á Bessastöðum,
samkvæmt útboðsgögnum BES-30. Verkið felst
í deilihönnun, framleiðslu, prófun og afhend-
ingu FOB á 31,5/31,5/10 MVA, 132 (66)33/11
kV aflspenni.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Lands-
virkjunar, innkaupadeild, Háaleitisbraut 68,
103 Reykjavík, frá og með miðvikudeginum
2. janúar 2002, gegn óafturkræfu gjaldi að upp-
hæð kr. 3.000 fyrir hvert eintak.
Tilboðum skal skila á sama stað fyrir kl. 14:00
föstudaginn 22. febrúar 2002, þar sem þau
verða opnuð og lesin upp að viðstöddum þeim
bjóðendum, sem þess óska.
Úboð
Rif, múrbrot, endursteypa og styrkingar
á burðarvirki
Fyrir einn viðskiptavin okkar óskum við eftir
tilboðum í framkvæmdir á Hverfisgötu 8—10.
Verkið er fólgið í því að rífa allar innréttingar,
gólfefni, lagnir og raflagnir og annað sem til-
greint er í verklýsingu úr fasteigninni. Saga,
brjóta og fjarlægja steypta og hlaðna veggi,
bita og plötur. Endursteypa og setja upp stál-
styrkingar.
Byggingin er 1.886 fm að gólffleti. Fimm hæðir
og kjallari. Engin starfsemi verður í húsinu
þegar verk verður unnið.
Í byggingu hafa verið skemmtistaðir í kjallara
og á 1. hæð. Skrifstofur hafa verið á 2.—5. hæð.
Allt rifið efni verður eign verktaka. Verðmæti
geta verið nokkur í efni fyrir þá aðila sem hafa
vilja og tækifæri til að nýta sér það. Þar má
nefna töfluefni, lampa, rofa og tengla, hurðir
og tilheyrandi búnað. Hreinlætistæki og mögu-
lega lagnir, loftræsikerfi og tæki, innréttingar
o.s.frv.
Framkvæmdir munu standa yfir frá 15. janúar
til 15. febrúar 2002.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu VSÓ
Ráðgjöf ehf., Borgartúni 20, 105 Reykjavík.
Tilboðum skal skila á sama stað eigi síðar en
fimmtudaginn 10. janúar 2002 kl. 14:00 og
verða þau þá opnuð að viðstöddum þeim bjóð-
endum sem þess óska.
SMÁAUGLÝSINGAR
DULSPEKI
Mánasteinn
Englaspil, bækur um andleg
málefni. Feng shui tarot, Lord of
the rings spil, kristallar og
margt, margt fleira.
Mánasteinn,
Grettisgötu 26,
sími 552 7667
www.manasteinn.is
TILKYNNINGAR
Sálarrannsóknarfélag
Reykjavíkur,
Síðumúla 31,
s. 588 6060.
Miðlarnir, spámiðlarnir og hug-
læknarnir, Þórhallur Guð-
mundsson, Ólafur Hraundal
Thorarensen, Bíbí Ólafsdóttir,
Lára Halla Snæfells, Erla Alex-
andersdóttir, Margrét Haf-
steinsdóttir og Garðar Björg-
vinsson michael-miðill starfa
hjá félaginu og bjóða félags-
mönnum og öðrum uppá einka-
tíma.
Upplýsingar um félagið, einka-
tíma og tímapantanir eru alla
virka daga ársins frá kl. 13—18.
Utan þess tíma er einnig hægt
að skilja eftir skilaboð á sím-
svara félagsins.
Netfang: mhs@vortex.is .
Sálarrannsóknarfélag Reykjavíkur
starfar í nánum tengslum við Sál-
arrannsóknarskólann á sama stað.
SRFR.
FÉLAGSLÍF
Smiðjuvegi 5, Kópavogi.
Lofgjörðarsamkoma kl. 20.30
Allir hjartanlega velkomnir.
„Lofið Drottin, allar þjóðir, veg:-
samið hann, allir lýðir, því að
miskunn hans er voldug yfir oss,
og trúfesti Drottins varir að ei-
lífu.“
Minnum á samkomuna sunnu-
daginn 30. des. kl. 20.00.
29. desember: Bænastund kl. 20.
30. desember: Almenn sam-
koma kl. 16:30. Lofgjörðarhópur-
inn syngur. Vitnisburðir.
Gamlárskvöld: Áramótagleði
unglinganna kl. 01.00.
Nýársdagur: Hátíðarsamkoma
kl. 16.30. Lofgjörðarhópur Fíla-
delfíu syngur. Ræðumaður
Vörður L. Traustason.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía
sendir landsmönnum öllum
bestu óskir um farsæld og frið
Drottins á nýju ári og þakkar
samfylgdina á liðnu ári.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
Jólamótið
í Hafnarfirði
HINN 29. desember verður spilað
hið árlega jólamót Sparisjóðs Hafn-
arfjarðar og Bridsfélags Hafnar-
fjarðar.
Spilað verður í Hraunholti, Dals-
hrauni 15 í Hafnarfirði.
Keppnisstjóri er Sveinn Rúnar Ei-
ríksson.
Að venju verður spilaður Mitchell-
tvímenningur, silfurstigamót, 42 spil
með tvö spil milli para.
Veitt verða vegleg verðlaun fyrir
fimm fyrstu sætin bæði í N-S og A-V
spilamennska hefst kl. 11.
Keppnisgjald á keppanda er 3.000
kr, innifalið í keppnisgjaldi er kaffi
og meðlæti, keppnisgjald og keppn-
isstjórn. Spilað verður með forgefin
spil.
Hægt er að skrá sig í síma 699-
1364 dagana 20.–29. desember eða
hjá keppnistjóra 29. desember og
væri þá gott að mæta tímanlega.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Blönduð hraðsveitakeppni
á Siglufirði
Að loknu Siglufjarðarmótinu í
tvímenningi var spiluð þriggja
kvölda hraðsveitakeppni sem lauk
mánudaginn 10. desember. Sveitir
voru þannig myndaðar að par nr. 1
og par nr. 20 úr tvímenningnum
mynduðu sveit, par nr. 2 og par nr.
19, par nr. 3 og 18 og svo fram-
vegis.
Úrslit urðu þessi:
Sv. Sigurðar Gunnarssonar 171
Sigurður – Sævaldur/Jón Tryggvi,
Haraldur – Hinrik
Sv. Guðrúnar Jakobínu Ólafsdóttur 162
Guðrún – Kristín, Guðlaug – Ólafur
Sv. Önnu Láru Hertervig
Anna Lára – Kristrún, Anton – Bogi 137
Mánudaginn 17. desember fór
fram hin árlega bæjarhlutakeppni
milli norður- og suðurbæjar.
Undanfarin ár hefur norðurbær-
inn lotið í gras og hafa foringjar
hans brugðist við tapinu með ýms-
um hætti.
Til dæmis gerðist það í fyrra að
eftir að úrslit lágu fyrir gerði for-
ingi norðurbæinganna, Benedikt
Sigurjónsson, það sem ekki áður
hafði verið gert, hann rak alla með-
spilara sína áður en hann lýsti sig
sigraðan og sagði af sér.
Nú kom nýr foringi fram á svið-
ið, Hreinn Magnússon, sem skyldi
leiða hópinn til sigurs og mátti sjá
á svip þeirra norðanmanna að þar
hefðu þeir fundið foringja sem
myndi reynast erfiður viðureignar.
Kvenfyrirliði suðurbæinga, Kristín
Bogadóttir, hafði spurnir af lið-
söfnun hins nýja foringja og und-
irbjó sitt lið undir hörð átök. En nú
fór sem aldrei fyrr, tapið varð það
stærsta um nokkurra ára bil, þar
sem suðurbær vann með 289 stig-
um gegn 211 stigum norðurbæjar.
Bestum árangri sveita suður-
bæjar náði sveit Hinriks Aðal-
steinssonar með 77 stig, en foring-
inn Kristín kom næst með 67 stig.
Fyrir norðurbæinga náði foring-
inn Hreinn bestum árangri, 56
stigum, en missti þó bæði titilinn
og fyrirliðastöðuna.
Hið árlega einmenningsmeist-
aramót félagsins, „Eggertsmótið“,
verður spilað í Allanum sportbar
föstudaginn 28. desember nk.
Auk góðra verðlauna er brons-
stigapotturinn óvenju góður.
Margir eru að berjast um brons-
stigapottinn sem fyrr, en þar er
staða efstu spilara þessi:
Friðfinnur Hauksson 150
Hreinn Magnússon 150
Sigfús Steingrímsson 148
Sigurður Hafliðason 148
Ari Már Arason 147
Hinrik Aðalsteinsson 141
Haraldur Árnason 141
Bogi Sigurbjörnsson 122
Anton Sigurbjörnsson 122
Ólafur Jónsson 120
Spiluð verða tölvugefin spil þar
sem útreikningur miðast við að all-
ir spili í einum riðli, sem gefur hátt
skor.
Að lokum sendir Bridsfélagið
öllum bridsspilurum bestu óskir
um gleðileg jól og farsælt nýtt ár.