Morgunblaðið - 28.12.2001, Blaðsíða 74
DAGBÓK
74 FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Víkverji skrifar...
MIKIÐ er markaðurinn skrýtinskepna. Það sýnir hinn mikli
skortur á jólatrjám, sem skapaðist
síðustu dagana fyrir jól. Í fréttum
hefur komið fram að færri verzl-
anir seldu jólatré í ár en í fyrra,
m.a. vegna þess að í öllu góðærinu í
fyrra sátu kaupmenn uppi með
miklar óseldar birgðir eftir jól, sem
þeir gátu skiljanlega ekki gert
neitt við nema sett í timburkurl-
arann eða sniðið niður í girðing-
arstaura. Eftirspurnin í ár kom
mönnum hins vegar á óvart; fleiri
virtust kaupa sér lifandi jólatré en
kaupmenn bjuggust við, þrátt fyrir
allt talið um efnahagsþrengingar
og minnkandi kaupmátt.
x x x
SVIPAÐ var uppi á teningnum íNoregi fyrir jólin, nema hvað
þar vanmátu kaupmenn eftirspurn
eftir svínarifjum (ribbe) en ekki
jólatrjám. Í netútgáfu Aftenposten
kemur fram að margir Norðmenn,
sem ætluðu að hafa svínarif á borð-
um, komu að tómum kæliborðum
stórmarkaða á Þorláksmessu.
Þetta var auðvitað bagalegt, enda
borða 56% Norðmanna svínarif á
jólunum, samkvæmt könnun sem
gerð var fyrir samtök norskra slát-
urhúsa. Í fyrra seldust 3.500 tonn
af svínarifjum en í ár var salan
komin upp í 4.375 tonn þegar síð-
asta rifjasteikin seldist. Örvænt-
ingarfullir neytendur gripu sumir
til þess ráðs að aka yfir landamær-
in til Svíþjóðar til að leita uppi
rifjasteik, líkt og Keflvíkingarnir,
sem fóru til Hveragerðis að finna
sér jólatré.
x x x
VANDRÆÐALEGIR norskirkjötkaupmenn gefa þá skýr-
ingu á þessari stórauknu eftirspurn
að hryðjuverkin í september hafi
haft þær afleiðingar að fólk vilji
frekar vera heima hjá sér á jól-
unum, verja tíma sínum með fjöl-
skyldunni og halda gamlar jóla-
hefðir í heiðri en að ferðast til
útlanda eða ástunda einhverja til-
raunastarfsemi í matargerð um há-
tíðarnar. Kannski á það sama við á
íslenzka jólatrjáamarkaðnum; að á
þessum síðustu og verstu tímum
skapi greniilmurinn í stofunni ör-
yggiskennd og vellíðan hjá fólki.
x x x
NÚ ER næsta verzlunaræðilandans framundan, þ.e. flug-
eldaverzlunin fyrir áramótin. Fróð-
legt verður að sjá hvort kreppan
hefur þau áhrif á landann að hann
verði tregari en í fyrra til að skjóta
peningunum sínum upp í loftið eða
brenna þá upp á nokkrum mínútum
í formi flugelda og blysa. Það vegur
líklega upp á móti að með flugelda-
kaupunum er verið að styrkja gott
málefni, þ.e. starfsemi björgunar-
sveitanna. Líklega hefur sjaldan
verið meiri þörf á að sú starfsemi
njóti góðs stuðnings. Víkverji hefur
þó stundum velt því fyrir sér hvort
björgunarsveitirnar ættu ekki að
bjóða upp á þann valkost að fólk
styrkti þær bara beint um áramót-
in, án þess að kaupa flugelda. Það
væri betri nýting á peningunum.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
LÁRÉTT:
1 laskaðir, 8 málmur, 9
bakteríu, 10 húsdýr, 11
lóga, 13 smámynt, 15
kalt, 18 logið, 21 stormur,
22 úthluta, 23 gróða, 24
ofsalega.
LÓÐRÉTT:
2 eyja, 3 tilbiðja, 4 áreita,
5 sér eftir, 6 flasa, 7 heit-
ur, 12 gljúfur, 14 þangað
til, 15 nokkuð, 16 gera
auðugan, 17 kögurs, 18
dapra, 19 skyldmennis-
ins, 20 spilið.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 hagur, 4 þarfs, 7 fljóð, 8 næðis, 9 agg, 11 rits,
13 gróa, 14 ætlar, 15 slær, 17 áköf, 20 las, 22 koddi, 23
kafli, 24 súrna, 25 ranns.
Lóðrétt: 1 hafur, 2 grjót, 3 ræða, 4 þung, 5 riðar, 6 sessa,
10 gilda, 12 sær, 13 grá, 15 sekks, 16 ældir, 18 kæfan, 19
fliss, 20 lima, 21 skær.
K r o s s g á t a
1. g3 d5 2. Bg2 e5 3. d3 Rf6 4.
Rf3 Rc6 5. 0-0 h6 6. Rbd2 Be6
7. e4 dxe4 8. dxe4 Bc5 9. De2
0-0 10. c3 De7 11. Rc4 Bxc4 12.
Dxc4 Had8 13. b4 Bb6 14. a4
a6 15. Ba3 Dd7 16. b5 axb5 17.
axb5 Ra5 18. De2 Hfe8 19.
Bb4 Rb3 20. Had1 Dg4 21.
Hxd8 Hxd8 22. Dc4 Rd2 23.
Rxd2 Hxd2 24. Bc5 De2 25.
Dxe2 Hxe2 26. Bxb6 cxb6 27.
Hd1 Hc2 28. f4 Rg4 29. fxe5
Taflfélag Garðabæjar stóð
fyrir mikilli skákhátíð í
tengslum við úrslitaviðureign-
ina í bikarkeppni Plúsferða.
Einn af mörgum viðburðum
var liðakeppni á Netinu á milli
valinkunnra kvenna frá þrem-
ur löndum. Nýkrýndir Evr-
ópumeistarar, Frakkar, höfðu
tvö lið, Ísland og Noregur sitt-
hvort. Staðan kom upp í
keppninni. Hin fimmtán ára
Marie Sebag (2.312) frá
Frakklandi hafði svart gegn
Ellen Hagesaether (2102). 29.
...Hxg2+! 30. Kxg2 Re3+ 31.
Kf3 Rxd1 32. c4 Rb2 33. Ke3
Rxc4+ 34. Kd4 Ra3 35. Kd5
Rxb5 36. e6 fxe6+ 37. Kxe6
Rc3 38. e5 b5 39. Kd6 b4 40.
e6 b3 41. e7 Re4+ 42. Ke5 Rf6
43. Kd4 b2 og hvítur gafst upp
saddur lífdaga. Lokastaða
mótsins varð þessi: 1. Frakk-
land, a-sveit, fékk 8 vinninga
af 9 mögulegum 2.–3. Ísland
og Noregur 3½ 4. Frakkland,
b-sveit, 3 v.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
MIG langar til að lýsa
ánægju minni með þessa
bók eftir Þórunni Stefáns-
dóttur. Ég er greind með
þunglyndi og persónu-
leikaröskun (emotionally
unstable personality dis-
order). Mér fannst eins og
það væri verið að tala um
mig í bókinni. Ég er ekki
komin jafn langt á veg í
ferðalaginu sem höfundur-
inn lýsir en eftir lestur
bókarinnar er ég mun
bjartsýnni á að mér muni
takast þetta. Þegar ég
skrifa þetta er ég tilbúin í
slaginn enda ekki í svörtu
holunni í dag.
Þessi bók fær fimm
stjörnur frá mér.
Ung kona.
Góðir og
ódýrir réttir
ÞORBJÖRG hafði sam-
band við Velvakanda og
vildi benda fólki á taílenska
örbylgjurétti sem fást í
Hagkaup.
Segir Þorbjörg að þetta
séu mjög góðir og ódýrir
réttir og ekki síst skemmti-
leg tilbreyting.
Gleymdi
peningunum
í hraðbanka
ÉG varð fyrir þeirri leið-
inlegu reynslu að gleyma
peningunum mínum sem
ég var að taka út í hrað-
banka við Bónus í Holta-
görðum þriðjudaginn 18.
desember.
Samkvæmt upptöku frá
bankanum tekur kona pen-
inginn og fer inn í Bónus
eins og hún sé að leita að
þeim sem gleymdi pening-
unum.
Ef þú kæra kona lest
þetta bréf frá mér þá getur
þú náð í mig í síma 696
0616. Það er sárt fyrir mig
að tapa þessum aurum rétt
fyrir jólin þannig að ég
vona að þú hafir samband
við mig.
Elín.
Tapað/fundið
Gleraugu týndust
Karlmannsgleraugu í ljós-
brúnu hörðu hulstri týnd-
ust í desember. Finnandi
hringi í síma 586 2469.
Bíllyklakippa
týndist
BÍLLYKLAKIPPA með
fjarstýringu týndist trú-
lega á horni Hverfisgötu
og Smiðjustígs eftir hádegi
sl. fimmtudag. Skilvís finn-
andi hafi samband í síma
587-8058 eða 565-8327.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Konan
í köflótta
stólnum
Svangar grágæsir í Laugardal.
Morgunblaðið/Ómar
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Skel
og Arnarborg koma í
dag. Atlas og Vædderen
fara í dag.
Hafnarfjarðarhöfn: Ík-
an Serong fer í dag frá
Straumsvík.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
leikfimi og vinnustofa,
kl. 12.45 dans, kl. 13 bók-
band. Bingó í dag kl. 14,
Snælandsskóli kemur og
syngur. Félagsmiðstöðin
er lokuð 31.12. Starfs-
fólk óskar öllum gleði-
legs árs og góðrar fram-
tíðar.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8
hárgreiðsla, kl. 8.30 böð-
un, kl. 9–12 bókband, kl.
9–16 handavinna, kl. 10–
17 fótaaðgerð, kl. 13 spil-
að í sal og glerlist.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið
Hlaðhömrum verður
lokað til 8. janúar. Ósk-
um öllum gleðilegra jóla
og farsæls komandi árs.
Félagsstarf aldraðra
Dalbraut 18–20. Kl. 9–12
aðstoð við böðun, kl. 9–
16.45 er hárgreiðslu-
stofan opin, kl. 9 er
handavinnustofan opin.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8
(Gjábakka) kl. 20.30.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Kl. 8 böðun,
kl. 10 hársnyrting, kl.
10–12 er verslunin opin,
kl. 13 „opið hús“, spilað á
spil.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Áramótadansleikurinn
verður laugardaginn 29.
des. kl. 20.30. Caprí tríó
leikur fyrir dansi. Ása-
dans og happdrætti.
Félagsstarfið Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
myndlist og rósamálun á
tré, kl. 9–13 hárgreiðsla,
kl. 9.30 gönguhópur, kl.
14 brids. Opið alla
sunnudaga frá kl. 14–16,
blöðin og kaffi.
Gerðuberg, félagsstarf.
Í dag opið kl. 9–16.30.
Veitingar í veitingabúð.
Fimmtudaginn 3. janúar
verður áramótaguð-
sþjónusta í Bústaða-
kirkju kl. 14 á vegum
Ellimálaráðs Reykjavík-
urprófastsdæma og Bú-
staðasóknar, mæting í
Gerðubergi kl. 13.15. Að
messu lokinni verður ek-
ið um borgina ljósum
prýdda, skráning hafin.
Upplýsingar um starf-
semina á staðnum og í
síma 575-7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 13 bókband.
Hraunbær 105. Kl. 9–12
baðþjónusta, kl. 9–17
hárgreiðsla og fótaað-
gerðir, kl. 9 handavinna,
bútasaumur, kl. 11
spurt og spjallað. Laus
pláss í myndlist og gler-
skurði. Starfsfólk óskar
velunnurum sínum árs
og friðar. Starfsemin
hefst aftur 2. janúar.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
böðun, leikfimi og
postulín, kl. 12.30 postu-
lín. Fótsnyrting og hár-
snyrting.
Norðurbrún 1. Kl. 9–13
tréskurður, kl. 9–17 hár-
greiðsla, kl. 10 boccia.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerðir og hár-
greiðsla, kl. 9.15 handa-
vinna, kl. 13.30 sungið
við flygilinn, kl. 14.30
kaffi og dansað í aðalsal.
Vitatorg. Kl. 9 smíði og
hárgreiðsla, kl. 9.30
bókband og morg-
unstund, kl. 10 leikfimi
og fótaaðgerðir, kl.
12.30 leirmótun, kl.13.30
bingó.
Bridsdeild FEBK Gjá-
bakka. Brids kl. 13.15 í
dag.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan
verður á morgun. Lagt
af stað frá Gjábakka,
Fannborg 8, kl. 10.
Gott fólk, gott rölt.
Gengið frá Gullsmára 13
kl. 10 á laugardögum.
Ungt fólk með ungana
sína. Hitt húsið býður
ungum foreldrum (ca.
16–25 ára) að mæta með
börnin sín á laugard.
kl.15–17 á Geysi, Kakó-
bar, Aðalstræti 2 (Geng-
ið inn Vesturgötu-
megin). Opið hús og
kaffi á könnunni, djús,
leikföng og dýnur fyrir
börnin.
Minningarkort
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúkl-
inga fást á eftirtöldum
stöðum á Suðurlandi: Í
Vestmannaeyjum: hjá
Axel Ó. Láruss. skó-
verslun, Vest-
mannabraut 23, s. 481-
1826. Á Hellu: Mosfelli,
Þrúðvangi 6, s.487-5828.
Á Flúðum: hjá Sólveigu
Ólafsdóttur, Versl.
Grund s. 486-6633. Á
Selfossi: í versluninni
Írisi, Austurvegi 4, s.
482-1468 og á sjúkra-
húsi Suðurlands og
heilsugæslustöð, Ár-
vegi, s. 482-1300. Í Þor-
lákshöfn: hjá Huldu I.
Guðmundsdóttur, Odda-
braut 20, s. 483-3633.
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúkl-
inga fást á eftirtöldum
stöðum á Reykjanesi: Í
Grindavík: í Bókabúð
Grindavíkur, Vík-
urbraut 62, s. 426-8787.
Í Garði: Íslandspósti,
Garðabraut 69, s. 422-
7000. Í Keflavík: í Bóka-
búð Keflavíkur Penn-
anum, Sólvallagötu 2, s.
421-1102, og hjá Ís-
landspósti, Hafnargötu
89, s. 421-5000. Í Vog-
um: hjá Íslandspósti b/t
Ásu Árnadóttur, Tjarn-
argötu 26, s. 424-6500, í
Hafnarfirði: í Bókabúð
Böðvars, Reykjavík-
urvegi 64, s. 565-1630 og
hjá Pennanum-
Eymundssyni, Strand-
götu 31, s. 555-0045.
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúkl-
inga fást á eftirtöldum
stöðum í Reykjavík:
Skrifstofu LHS Suð-
urgötu 10, s. 552-5744,
562-5744, fax 562-5744,
Laugavegs apóteki,
Laugavegi 16, s. 552-
4045, hjá Hirti, Bón-
ushúsinu, Suðurströnd
2, Seltjarnarnesi, s. 561-
4256.
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúkl-
inga fást á eftirtöldum
stöðum á Vesturlandi: Á
Akranesi: í Bókaskemm-
unni, Stillholti 18, s. 431-
2840, Dalbrún ehf.,
Brákarhrauni 3, Borg-
arnesi og hjá Elínu Frí-
mannsd., Höfðagrund
18, s.431-4081. Í Grund-
arfirði: í Hrannarbúð-
inni, Hrannarstíg 5, s.
438-6725. Í Ólafsvík hjá
Ingibjörgu Pétursd.,
Hjarðartúni 1, s. 436-
1177.
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúkl-
inga fást á eftirtöldum
stöðum á Vestfjörðum:
Á Suðureyri: hjá Gesti
Kristinssyni, Hlíðavegi
4, s. 456-6143. Á Ísafirði:
hjá Jóni Jóhanni Jónss.,
Hlíf II, s. 456-3380, hjá
Jónínu Högnad., Esso-
versluninni, s. 456-3990
og hjá Jóhanni Káras.,
Engjavegi 8, s. 456-3538.
Í Bolungarvík: hjá Krist-
ínu Karvelsd., Miðstræti
14, s. 456-7358.
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúkl-
inga fást á eftirtöldum
stöðum á Norðurlandi:
Á Blönduósi: blómabúð-
in Bæjarblómið, Húna-
braut 4, s. 452-4643. Á
Sauðárkróki: í Blóma-
og gjafabúðinni, Hóla-
vegi 22, s. 453-5253. Á
Hofsósi: Íslandspóstur
hf., s. 453-7300, Strax,
matvöruverslun, Suð-
urgötu 2–4, s. 467-1201.
Á Ólafsfirði: í Blóma-
skúrnum, Kirkjuvegi
14b, s. 466-2700 og hjá
Hafdísi Kristjánsdóttur,
Ólafsvegi 30, s. 466-2260.
Á Dalvík: í Blómabúð-
inni Ilex, Hafnarbraut 7,
s.466-1212 og hjá Val-
gerði Guðmundsdóttur,
Hjarðarslóð 4e, s. 466-
1490. Á Akureyri: í
Bókabúð Jónasar, Hafn-
arstræti 108, s. 462-2685,
í bókabúðinni Möppu-
dýrið, Sunnuhlíð 12c, s.
462-6368, Pennanum-
Bókvali, Hafnarstræti
91–93, s. 461-5050 og í
blómabúðinni Akri,
Kaupvangi, Mýrarvegi,
s. 462-4800. Á Húsavík: í
Blómabúðinni Tamara,
Garðarsbraut 62, s. 464-
1565, í Bókaverslun Þór-
arins Stefánssonar, s.
464-1234 og hjá Skúla
Jónssyni, Reykjaheið-
arvegi 2, s. 464-1178. Á
Laugum í Reykjadal: í
Bókaverslun Rann-
veigar H. Ólafsd., s.464-
3191.
Styrktarfélag
krabbameinssjúkra
barna.
Minningarkort eru af-
greidd í síma 588-7555
og 588-7559 á skrifstofu-
tíma. Gíró- og kred-
itkortaþjónusta.
Í dag er föstudagur 28. desember,
362. dagur ársins 2001. Barnadagur.
Orð dagsins: „Kostið kapps um að
komast inn um þröngu dyrnar, því
margir, segi ég yður, munu reyna að
komast inn og ekki geta.“
(Lúk. 13, 24.)