Morgunblaðið - 28.12.2001, Qupperneq 84
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
SORPSAMLAG Þingeyinga, sem er
í eigu níu sveitarfélaga í Suður- og
Norður-Þingeyjarsýslu, hefur samið
við Eimskip og Sorpu um flutning
sjóleiðina og urðun sorps í Álfsnesi á
Kjalarnesi, milli Kollafjarðar og
Geldinganess. Breyta á brennslustöð
við Húsavík í pökkunarstöð þar sem
sorpið verður pressað saman í bagga
og útbúið til flutnings með Eimskip
suður á bóginn.
Tilboð í breytingar á brennslu-
stöðinni verða opnuð í byrjun janúar
og reiknað með að framkvæmdir
hefjist fljótlega eftir það. Um er að
ræða 150 fermetra viðbyggingu.
Sorpsamlagið hefur þegar fest kaup
á sorppressu frá Bandaríkjunum
sem setja á upp af framleiðandanum
í febrúar nk. Reiknað er með að
sorpflutningarnir hefjist næsta vor.
Stofnkostnaður um 30 milljónir
Að sögn Sigurðar Rúnars Ragn-
arssonar, framkvæmdastjóra sorp-
samlagsins, er stofnkostnaður við
þessar breytingar áætlaður um 30
milljónir króna. Litið er á þetta sem
skammtímalausn meðan sorpsam-
lagið leitar að hentugu urðunarsvæði
innan sýslumarkanna eða í nágrenn-
inu. Þingeyingar leituðu eftir sam-
starfi við Eyfirðinga í sorpurðunar-
málum en samkomulag hefur ekki
náðst í þá veru. Öll sveitarfélög í S-
Þingeyjarsýslu taka þátt í samlaginu
utan Hálshrepps, sem liggur næst
Eyjafirði og urðar sitt sorp í Gler-
árdal við Akureyri, og í norðursýsl-
unni er aðeins Kelduneshreppur ut-
an samlagsins.
Loftið skilið eftir heima
Starfsleyfi brennslustöðvarinnar
við Húsavík, sem hefur verið starf-
rækt í áratugi í útjaðri bæjarins,
rennur út í vor þar sem hún uppfyllir
ekki lengur skilyrði um mengunar-
varnir. Möguleikar á nýrri og full-
kominni brennslustöð voru kannaðir
en hún reyndist um fjórðungi dýrari
en sú leið sem var ákveðin, að sögn
Sigurðar Rúnars.
Sigurður Rúnar sagði að árlega
hefðu um 2.500 tonn af heimilis- og
iðnaðarsorpi fallið til förgunar frá
Þingeyingum en til samanburðar má
geta þess að Sorpa urðar um 100
þúsund tonn á ári í Álfsnesi.
Eyðingarkostnaður hjá Þingey-
ingum hefur verið um 4 krónur á
hvert kíló en á meðan sorpið verður
baggað og sent suður fer kostnaður-
inn í 7–8 krónur á kílóið, að sögn Sig-
urðar Rúnars. Vonast er til að land
til urðunar finnist sem fyrst nær
Þingeyingum en Álfsnesið er.
Sigurður Rúnar minntist á það að
lokum, til gamans, að sorpið yrði
pressað það vel saman að allt loft
færi úr því. Þingeyska loftið yrði því
örugglega skilið eftir heima.
Sorpsamlag Þingeyinga hefur samið við Sorpu og Eimskip
Sorp Þingeyinga flutt suð-
ur til urðunar í Álfsnesi
ÞEIR sem sáu sólina koma upp á
jóladagsmorgun austan við Vík í
Mýrdal urðu vitni að mikilli lita-
dýrð. Sólin lýsti bæði ský og vatn
og allt var baðað fallega rauðum
jólalit. Jólaveðrið í Mýrdalnum
hefur verið fallegt og stillt þar til
fór að snjóa að kvöldi annars
jóladags.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Litadýrð í jólaveðri
ÞORGEIR Pálsson flugmálastjóri
segir að Flugöryggissamtök Evrópu
(JAA) hafi gert athugasemdir við að
sérstök kærunefnd skuli fjalla um
heilbrigðisvottorð sem fluglæknar
gefa út. Staða nefndarinnar innan
stjórnsýslunnar og hvernig að henni
sé staðið sé ekki í samræmi við JAA-
reglur. Hann segir að Flugmálstjórn
hafi gert tillögu til samgönguráðu-
neytisins um hvernig standa mætti
að málum þannig að skuldbindingar
Íslendinga hjá JAA séu uppfylltar og
þar sé málið til skoðunar.
Skömmu fyrir jól vék flugmála-
stjóri Þengli Oddssyni, trúnaðar-
lækni Flugmálastjórnar, tímabundið
frá störfum, en Þengill hefur neitað
að gefa út heilbrigðisvottorð án tak-
markana til flugmanns sem fékk
hjartaáfall fyrir þremur árum. Þor-
geir segir að brottvísunin sé til kom-
in vegna athugasemda frá Félagi ís-
lenskra atvinnuflugmanna um að
Þengill hafi haft afskipti af máli flug-
mannsins eftir að hann sagði sig frá
málinu og vegna athugasemda frá
samgönguráðuneytinu.
Sturla Böðvarsson samgönguráð-
herra segir að ráðherra taki ekki
fram fyrir hendurnar á læknum en í
ráðuneytinu hafi verið kveðinn upp
sá úrskurður að við útgáfu skírteinis
fyrir flugmanninn beri að taka tillit
til niðurstöðu þriggja lækna nefndar,
sem hafi komist að þeirri niðurstöðu
að ekki sé ástæða til að takmarka
réttindi flugmannsins.
Þorgeir segir að það sé áhyggju-
efni ef það sé ósamræmi milli laga og
reglna sem gilda hér á landi og er-
lendis. Það sé grundvallaratriði að
reglunum sé beitt með sama hætti í
aðildarlöndum, hvort sem um sé að
ræða Flugöryggissamtök Evrópu
eða Alþjóðaflugmálastofnunina.
„Það vofir alltaf yfir okkur að það
verði farið að draga í efa gildi þeirra
réttinda sem við veitum ef við getum
ekki staðið við þær skuldbindingar
sem felast í aðild okkar að Alþjóða-
flugmálastofnuninni eða Flugörygg-
issamtökunum,“ segir Þorgeir.
Samgönguráðuneytið hefur
ákveðið að setja á stofn þriggja
manna nefnd lækna og lögfræðinga
til að fara yfir mál Þengils Oddsson-
ar. Ráðuneytið hefur einnig ákveðið
að skipa þriggja manna nefnd til að
fara yfir reglur um útgáfu heilbrigð-
isvottorða og flugleyfisskírteina
flugmanna.
Flugöryggissamtök Evrópu gera athugasemdir við íslensk flugmálayfirvöld
Kærunefnd er
ekki í samræmi
við JAA-reglur
Ágreiningur/42
SAMHERJI hf. hefur ákveðið
að selja Deutsche Fischfang
Union (DFFU) í Þýskalandi
frystiskipið Baldvin Þorsteins-
son EA. Í staðinn verður Hann-
over NC keypt af þýska útgerð-
arfyrirtækinu og skipinu breytt
í fjölveiðiskip, en um er að ræða
gömlu Guðbjörgina ÍS.
Aflaskipið Baldvin Þor-
steinsson er 995 brúttólesta
frystiskip og fyrsta nýsmíði
Samherja en það hóf veiðar fyr-
ir félagið í árslok 1992. Síðan þá
er heildarafli þess tæplega 70
þúsund tonn upp úr sjó og afla-
verðmætið um 6,9 milljarðar
króna, en miðað við fiskverð og
gengi nú er verðmætið um 10
milljarðar króna. Á þessu ára-
bili nema launagreiðslur til
áhafnar skipsins og launatengd
gjöld um 2,8 milljörðum króna.
Skipið verður afhent nýjum
eiganda í febrúar nk.
Gamla Guðbjörgin lengd
Hannover NC er 1.225
brúttólestir að stærð, smíðað
1994. Áætlað er að lengja skipið
um 18 metra og breyta því í
fjölveiðiskip, svipað Vilhelm
Þorsteinssyni EA. Eftir breyt-
ingarnar verður Hannover 85
metrar að lengd og frystilestar
skipsins um 1.600 rúmmetrar
að stærð, en með þessu ætlar
Samherji að leggja meiri
áherslu á uppsjávarveiði. Verið
er að semja við skipasmíðastöð
í Lettlandi um breytingarnar
og er stefnt að því að Samherji
geti sent skipið á veiðar í lok
maí á næsta ári. Áætlaður
kostnaður við breytingarnar er
um 400 milljónir króna, en fjár-
festing Samherja í viðskiptun-
um við DFFU nemur sem svar-
ar 265 milljónum króna.
Gamla
Guðbjörg-
in aftur
í flotann
Hannover NC keypt/14
Aflaskipið Baldvin
Þorsteinsson
EA selt úr landi
ÖRN Arnarson, tvítugur sundmað-
ur úr SH, var í gær útnefndur
íþróttamaður ársins af Samtökum
íþróttafréttamanna. Þetta er í
þriðja sinn sem Erni hlotnast þessi
nafnbót sem er sú eftirsóttasta í ís-
lensku íþróttalífi ár hvert. Örn varð
einnig fyrir valinu 1998 og 1999.
Hann er þar með kominn í hóp
með frjálsíþróttamönnunum Einari
Vilhjálmssyni og Hreini Halldórs-
syni sem einnig hafa verið kjörnir
þrisvar sinnum. Aðeins einn íþrótta-
maður hefur hlotið þessa nafnbót
oftar en Einar, Hreinn og Örn, það
er Vilhjálmur Einarsson þrístökkv-
ari, 1956, 1957, 1958, 1960 og 1961.
Mjög mjótt var á mununum milli
tveggja efstu manna að þessu sinni,
aðeins 9 stig skildu á milli Arnar, og
Ólafs Stefánssonar handknattleiks-
manns, næst kom Þórey Edda Elís-
dóttir stangarstökkvari.
Örn, sem varð tvítugur í lok
ágúst, setti alls 18 Íslandsmet á
árinu. Var eitt þeirra í 50 metra
lauginni einnig Norðurlandamet í
200 m baksundi. Einnig tók hann
þátt í að setja tvö Íslandsmet í boð-
sundum í 25 metra laug ásamt fé-
lögum sínum í Sundfélagi Hafn-
arfjarðar. Alls eru 16 af 20
Íslandsmetum sem skráð eru í 25
metra braut í höndum Arnar og 10
af 18 Íslandsmetum í 50 m braut eru
einnig í eigu hans. Þá eru ótalin Ís-
landsmet hans í boðsundum.
Af árangri ársins bar hæst hjá
Erni silfur- og bronsverðlaun hans í
100 og 200 m baksundi á HM í sundi
í 50 m braut í Fukuoka í lok júlí.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Mjótt á
mununum
Mikill heiður/C1