Morgunblaðið - 17.02.2002, Side 55
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. FEBRÚAR 2002 55
X
Y
Z
E
T
A
/
S
ÍA
Má bjóða þér hærri laun og frí allt árið?
– fyrir þína hönd
Með þátttöku í viðbótarlífeyrissparnaði geturðu búið svo um hnútana að
laun þín hækki um 31% við starfslok í stað þess að lækka um 45% eins
og nú er því miður algeng staðreynd.
Tíminn er dýrmætur. Því fyrr sem þú byrjar, því lengri tíma hefur
þú til að ávaxta peninginn og nýtur þannig ávöxtunar á ávöxtun
ofan. Þess vegna borgar sig að ganga frá viðbótarsparnaði
frekar fyrr en seinna.
Kaupþing býður persónulega ráðgjöf um skipulag lífeyris-
sparnaðar, úrval lífeyrissjóða og ávöxtunarleiðir sérsniðnar að
þínum þörfum.
Hafðu samband við sérfræðinga okkar í síma 515 1500 eða líttu
við í Ármúla 13a. Einnig getur þú fengið ráðgjafa heim þegar
þér hentar.
www.kaupthing.is
www.isb.is • 5 75 75 75
Námsstyrkir
Augl‡stir eru til umsóknar sex styrkir til námsmanna,
hver a› fjárhæ› 150.000 kr. Allir námsmenn í
Menntabraut Íslandsbanka geta sótt um styrkina,
óhá› skólum og námsgreinum.
Athafnastyrkir
Íslandsbanki efnir til samkeppni me›al námsmanna
Menntabrautar um n‡sköpunar- e›a vi›skiptahug-
mynd. Veittur er 200.000 kr. styrkur fyrir hugmynd
a› n‡rri vöru e›a rekstri fyrirtækis á framlei›slu-
e›a fljónustusvi›i.
Umsækjendur sæki um á www.isb.is, en flar
er a› finna nánari uppl‡singar um styrkina.
Umsóknarfrestur er til 15. mars nk.
og ver›a styrkirnir veittir í maí.
Allir félagar í Menntabrautinni
eru hvattir til a› taka flátt!
Náms- og
athafnastyrkir
ÁSGERÐUR Eir Jónasdóttir sigraði
í söngkeppni Fjölbrautaskóla Suður-
lands sem fram fór í fokheldum
menningarsal Ársala á Selfossi sl.
fimmtudagskvöld. Ásgerður Eir
söng lagið „Til þín“, sem hún samdi
sjálf.
Mikil og góð stemning var á
söngkeppninni og var keppendum
fagnað vel og hraustlega. Söng-
keppnin er árlegur viðburður í fé-
lagslífi nemenda skólans og
leggja nemendur metnað sinn í að
hún fari sem best fram. Hljóm-
sveitin OFL lék undir hjá kepp-
endum en alls voru flutt 26 lög í
keppninni. Milli laga héldu
Lukku-Láki og Daldónar uppi
fjörinu.
Allt skipulag keppninnar var
til fyrirmyndar en stór hópur
nemenda annaðist fram-
kvæmdina undir röggsamri stjórn
Ólafar Haraldsdóttur, ritara nem-
endafélagsins. Nemendur unnu leik-
mynd keppninnar og þurftu síðan að
flytja stóla og búnað í húsið og gera
það klárt fyrir keppnina auk þess að
stýra og annast framkvæmnd alla.
Dómnefnd keppninnar skipuðu:
Ólafur Helgi Kjartansson sýslumað-
ur, Óli Palli á Rás 2, Andrea Jóns-
dóttir, Þórarinn Ingólfsson og Helena
Káradóttir. Ólafur Helgi flutti í lokin
viðurkenningarorð til nemenda fyrir
framkvæmd keppninnar og fram-
göngu alla.
Ásgerður Eir sigraði
í söngkeppni FSu
Ásgerður Eir flytur lagið Til þín.
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
Selfossi. Morgunblaðið.
FORELDRAR: Passið upp á Harry
Potter-bækur ungviðisins, hver veit
nema að þær gætu orðið mikils virði
í peningum talið einhvern tímann í
framtíðinni.
Nú hefur eintak af fyrsta upplagi
sem prentað var af Harry Potter og
viskusteininum fært fyrrum eiganda
þess 1,4 milljónir króna, en eintakið
var boðið upp í London nýverið.
Á uppboðinu var boðið upp alls
konar dót sem tengist krökkum;
bækur, kort, náttúrufræðiritgerðir
og hvaðeina.
Þar voru til að mynda boðin upp
fágæt eintök úr fyrsta upplagi bók-
ar Beatrix Potter um ævintýri Pét-
urs kanínu, The Tale of Peter
Rabbit, sem er
flestum full-
orðnum Englend-
ingum að góðu
kunn. Pétur Kan-
ína hefur í seinni
tíð tekið sjálfan
sig í gegn hvað
varðar útlitið til
að freista þess að
höfða í ríkara mæli til nútímabarna.
Það sem hins vegar þykir óhugn-
anlegt við söguna um hann er að svo
virðist sem höfundur hennar hafi
valið nöfn á persónur bókarinnar af
legsteinum í kirkjugarði einum í
Vestur-London. Uppgötvaðist þetta
á síðasta ári.
Boðið í Harry Potter