Morgunblaðið - 17.02.2002, Síða 6
6 B SUNNUDAGUR 17. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Humarhúsinu. Í þetta skipti var mat-
urinn hins vegar í alla staði óaðfinn-
anlegur. Jafnt hvítlauksristaður hum-
ar og sniglar í smjördeigsbollu sem
glóðarsteiktur lambahryggvöðvi voru
réttir í hæsta gæðaflokki, fínleg og
næm matreiðsla þar sem öll litlu smá-
atriðin voru í lagi. Engir stælar, ein-
ungis glæsileiki og frönsk/íslensk
klassík.
Stælarnir hafa hins vegar frá upp-
hafi verið helsta aðalsmerki Sommel-
ier við Hverfisgötu. Hvergi í Reykja-
vík er matargerðin djarfari og á því
hefur lítil breyting orðið. Hvar annars
staðar væri hægt að fá léttreykta ýsu
með sætum kartöflum, djúpsteiktum
hrossabjúgum og bananahollandaise-
sósu? Allt þetta á eina og sama disk-
inum. Yfirleitt gengur þetta vel upp
hjá þeim Sommelier-mönnum og
maður dáist oft að því hversu lunknir
þeir eru við að velja rétt vín með þess-
um réttum. Með eftirréttinum
„þriggja súkkulaði-„brownie“ og
Fisherman’s Friend-ís“ var t.d. valið
rautt Cabernet Sauvignon-vín frá
Washington-ríki í Bandaríkjunum.
Columbia Crest Estate 1993. Aldrei
hefði mér dottið þetta í hug, en viti
menn; það smellpassaði. Mér er sagt
að hið ástralska Rosemount Cabernet
Reserve falli einnig vel að eftirrétt-
um þar sem súkkulaði er uppistað-
an.
Sjálfur er ég mjög heillaður af
matreiðslu-ævintýramennskunni á
Sommelier en hef hins vegar spurt
mig stundum hvort ekki væri skyn-
samlegt fyrir þá að hafa svo sem einn
eða tvo „hefðbundna“ rétti inn á milli,
til að höfða til fleiri. Þegar fólk fer í
litlum hópi út að borða leynist yfirleitt
einhver íhaldsmaður á mat inn á milli
sem leggur kannski ekki í að fara á
stað þar sem hann á á hættu að fá
djúpsteikt hrossabjúgu og banana-
hollandaise í stað nautasteikur með
béarnaise.
Staður sem alltaf stendur fyrir sínu
er Hótel Holt. Ég snæddi þar í hádegi
að þessu sinni og valdi mér þorsk í að-
alrétt. Hann kom fullkomlega eldaður
með fjölbreyttu meðlæti. Í senn
klassískur og íhaldssamur réttur sem
nútímalegur. Holtið er og verður kjöl-
festan í íslensku veitingahúsalífi.
Sá staður sem kemst hins vegar
næst því að minna á stóran stað í al-
þjóðlegri stórborg er Apótekið. Það
er einstök stemmning á Apótekinu,
þessu nýtískulega brasseríi, og eftir
að hafa litið aðeins upp á „fimmtu
hæðina“ fer ekki á milli mála að þau
hjónin Guffi og Gulla eru ennþá með
nóg af hugmyndum.
Á heildina litið var ég eiginlega
hlessa á því hversu hár staðall var á
öllum þeim stöðum er ég heimsótti.
Ekki spillir fyrir að verð, jafnvel á
dýrari stöðum Reykjavíkur, er mun
lægra á mat og drykk en gengur og
gerist á sambærilegum stöðum á
austurströnd Bandaríkjanna.
Steingrímur Sigurgeirsson
SÚ var tíðin að nýr veitinga-staður virtist spretta upp íReykjavík á nokkurra dagafresti. Góðærið var í al-gleymingi og bjartsýnin án
takmarka. Þetta er greinilega liðin tíð.
Þegar ég kom til Íslands í nokkurra
daga heimsókn fyrir skömmu, eftir að
hafa verið búsettur í Bandaríkjunum
frá því síðastliðið sumar, var greini-
legt að það hefur ekki verið mikil ný-
liðun á markaðnum síðastliðna mán-
uði. Í raun hefur nánast engin nýliðun
átt sér stað, sem er líklega eins gott.
Markaðurinn virðist vera mettaður og
vel það, að minnsta kosti í bili. Það
þarf ekki að hafa mörg orð um stöðu
efnahagsmála og eflaust kreppir víða
að í veitingahúsarekstrinum.
Það var hins vegar forvitnilegt að
heimsækja nokkur af helstu veitinga-
húsum Reykjavíkur á nýjan leik og
ekki síður ánægjulegt að sjá hversu
vel þau standa sig í mat og þjónustu.
Þetta er sterkt tromp í baráttunni um
ferðamenn því að oft verður maður
var við það, er maður ræðir við fólk er
hefur heimsótt Ísland, að maturinn á
veitingahúsunum er eitt af því sem
hefur komið því hvað mest á óvart.
Fyrsti staðurinn sem ég heimsótti
var Siggi Hall á Óðinsvéum. Þetta var
á mánudagskvöldi og það var rólegt
um að litast. Út á matinn var hins
vegar ekkert hægt að setja. Þvert á
móti. Í forrétt komu saltfiskbollur,
áþekkar þeim sem maður fær gjarnan
á spænskum tapasstöðum. Hér hafði
verið gerður heill réttur í kringum boll-
urnar og þær komu framreiddar á
fersku salatbeði. Siggi Hall hefur á
margan hátt sérhæft sig í matreiðslu
saltfisks og á fáum stöðum er hann
betri í Reykjavík en á Óðinsvéum. Í að-
alrétt kom lambafile, með blönduðu
grænmeti. Ekki flókinn réttur en vel
samsettur og eldaður þannig að lambið
naut sín til fulls. Og enn og aftur gat
maður dáðst að því hversu vel hefur
tekist til við að breyta þessum rótgróna
veitingastað í nútímalegan glæsiveit-
ingastað.
Staður sem einnig virðist taka stöð-
ugum breytingum er Humarhúsið.
Þær eru hins vegar hægar og íhalds-
samar. Það er samt eins og einhverju
litlu smáatriði hafi verið breytt í hvert
skipti sem maður kemur þangað. Nú
er svo komið að Humarhúsið er orðið
eitthvert fallegasta og besta veitinga-
hús landsins. Lykilatriði í því sam-
bandi var útþenslustefna og yfirtaka á
galleríinu, er var til húsa í sömu bygg-
ingu við hliðina á staðnum. Þar eru nú
glæsilegar setustofur þar sem gestir
geta beðið eftir borði eða þá fengið sér
kaffi eftir matinn. Matsalurinn sjálfur
er ekki stór en þar er gott andrúmsloft
og hönnun hans er nær óaðfinnanleg.
Allir innanstokksmunir og borðbúnað-
ur valdir af smekkvísi sem gefur
Humarhúsinu mjög elegant yfirbragð.
Maturinn er líka saga út af fyrir sig.
Það er orðið mjög langt síðan ég hef
orðið fyrir vonbrigðum með mat á
Tromp í ferðamannabaráttunni
Veitingastaðurinn Sommelier við Hverfisgötu.
Morgunblaðið/Golli
Sælkerar á sunnudegi
Steingrímur Sigurgeirsson Hanna Friðriksdóttir Áslaug Snorradóttir
Stress
Nokkrar staðreyndir og ráð-
leggingar varðandi álag:
Hlátur vinnur gegn stressi
en því miður fækkar bros-
viprunum með aldrinum og
fullorðinn einstaklingur hlær
að meðaltali 15 sinnum á dag
á meðan barn hlær allt að 400
sinnum á dag.
Drekkið a.m.k. 8 glös af
vatni á dag til þess að verjast
álagseinkennum. Líkami sem
fær nóg af vatni vinnur á mun
skilvirkari hátt.
Setjið nokkra dropa af lav-
anderolíu út í baðvatnið. Lav-
anderjurtin dregur úr
þreytuverkjum og róar
taugakerfið.
Hlustið á tónlist sem vekur
upp ljúfar minningar sem
tengjast ákveðnu tímabili, ein-
staklingi eða atburði.
Faðmið maka ykkar og
kyssið af öllu hjarta. Ástríðu-
fullur koss með þeim sem
maður elskar eykur fram-
leiðslu vellíðunarhormónsins
endorfíns.
Ef mikið álag er í lífi þínu,
ber að gæta þess að borða
mikið af mat sem inniheldur
C-vítamín.
Ef maginn á það til að
verða viðkvæmur á álags-
tímum ber að varast hvítvín,
osta, tómata, vínedik og
hvítan sykur. Til þess að róa
magann er gott að fá sér t.d.
heita mjólk eða kamillute áð-
ur en sest er að snæðingi.
Skipulagsleysi er stress-
valdandi og reyðileysi er langt
frá því að auka á rósemi hug-
ans. Allt óþarfa óskipulag ger-
ir ekki annað en að kynda
undir þá tilfinningu að þú náir
ekki að halda utan um líf þitt.
Reyndu að hafa sem mesta röð
og reglu á hlutunum í kringum
þig, hvort sem er í vinnunni
eða á heimilinu og lærðu að
skipuleggja tíma þinn betur.
Hér fylgir lítil uppskrift að
góðum degi
C-VÍTAMÍNRÍKUR
MORGUNVERÐUR
Skerið 1–2 ferskar fíkjur og nokkrar
ferskar döðlur í tvennt.
Hrærið saman hreinni jógúrt og
hunangsdreitli og setjið ávextina út
í.
Stráið ristuðum furuhnetum yfir.
Hanna Friðriksdóttir