Morgunblaðið - 17.02.2002, Síða 7
Hyggi lesendur á ferð til Skot-
lands og vilji leigja sér hús þá
er slóðin www.uniquescot-
land.com áhugaverð.
NORDIC DELI er heitið á nýrri veitingaþjónustu
um borð í vélum Flugleiða frá Evrópu. Að sögn Ás-
laugar Thelmu Einarsdóttur hjá upplýsingadeild Flug-
leiða er Nordic Deli samheiti yfir léttan og fjölbreyti-
legan kost í handhægum umbúðum eins og
langlokur, samlokur og fleiri gerðir brauðmetis með
fjölbreyttu fersku meðlæti og smámeti ásamt
drykkjarföngum. „Með þessari nýjung erum við að
koma til móts við kröfur farþega um léttari mat,
sem skiluðu sér til okkar í skoðanakönnunum um
borð.“ Unnið hefur verið að þróun þessarar þjónustu
um nokkurra vikna skeið og að sögn Áslaugar hefur
hún fengið jákvæðar viðtökur farþega á þeim leiðum
þar sem hún hefur verið í boði.
Með tilkomu þessarar þjónustu verður matarþjón-
usta á almennu farrými í áætlunarflugi Flugleiða
með þeim hætti að heitur morgunverður er borinn
fram í morgunflugi til Evrópu frá Íslandi, Nordic Deli
borið fram í miðdegisflugi frá Evrópu til Íslands en
heit máltíð borin fram í síðdegisflugi frá Íslandi, og í
flugi frá Bandaríkjunum.
Ný veitingaþjónusta um
borð hjá Flugleiðum
LÍKT og síðastliðið sumar
býður ferðaskrifstofa Vest-
fjarðaleiðar upp á flugferðir til
Sviss einu sinni í viku í sumar
og er flogið með svissneska
flugfélaginu Crossair. Flogið
er til og frá Genf, en staðsetn-
ing þeirrar borgar í Mið-Evr-
ópu hentar vel til hvers kyns
ferðalaga um Evrópulönd.
Þetta er ein þekktasta borg
Evrópu, enda er þar aðsetur
flestra æðstu stofnana og sam-
taka heimsins. Borgin er við
suðvesturenda Genfarvatnsins,
rétt við landamæri Frakklands
og ekki er heldur ýkja langt að
skreppa yfir til Ítalíu. Til-
komumikil og áhugaverð ferða-
mannasvæði eru innan seiling-
ar og er þar nærtækast að
nefna Alpana. Ferðaskrifstofa
Vestfjarðaleiðar aðstoðar við
að útvega bílaleigubíla og
fleira og hefur hug að efna til
hópferða á þessar slóðir er
kynntar verða síðar. Flogið er
út til Genfar sem fyrr segir
vikulega, aðfaranótt laugar-
dags, frá 14. júní til 17. ágúst,
en komið er til baka á föstu-
dagskvöldum.
Vikulegt flug
til Genf í Sviss
Nánari upplýsingar og
bókanir eru hjá ferðaskrif-
stofu Vestfjarðaleiðar,
Skógarhlíð 10, Reykjavík,
sími: 562-9950 og fax.
562-9912.
MARGIR segja að vorin í París
séu einstök. Kannski hafa ein-
hverjir hug á að vera í heima-
gistingu þegar þeir leggja leið
sína þangað. Fyrirtækið Alcove
& Agapes er með um hundrað
heimili á sínum snærum vítt og
breitt um París og það er hægt
að koma með sér óskir eins og
að falast eftir því að heimilis-
fólkið sé listamenn, roskið fólk
eða fjölskyldufólk og svo fram-
vegis.
Hinn möguleikinn sem við
rákumst á er fyrirtækið Good
Morning Paris og það er með
um 40 herbergi til leigu.
Heimagisting í París
Morgunblaðið/Einar Falur
Við Bastillutorg í París.
Alcove & Agapes
8bis rue Coysevox, 18th
Netfang: infor@paris.bed-
andbreakfast.com
Good Morning Paris
43 rue Lacépéde, 5th
Netfang:info@goodmorn-
ingparis.com