Morgunblaðið - 17.02.2002, Blaðsíða 8
8 B SUNNUDAGUR 17. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ferðalög
Torfi og Margrét fóru
að þessu sinni til
Selva í Val Gardena í
Dólómítafjöllunum.
Þetta er í annað
skipti sem þau velja
sér þorpið Selva og
hótelið Somont, sem
þau segja að sé heim-
ilislegt hótel með um
þrjátíu herbergi og
frábæra þjónustu.
Hvernig gengur svo
dagurinn fyrir sig?
„Það er vaknað
snemma og borðaður góður morgunverður og í leiðinni valinn kvöldmat-
ur. Síðan rennum við okkur frá hótelinu beint í kláfinn og upp í fjöllin. deg-
inum er eytt þar á skíðum í alveg stórkostlegum brekkum.“ Torfi segir að
tíu þorp séu í kringum fjallið Sella og hægt sé að velja milli ýmissa svæða
og brekkna eftir getu og löngun. Keyptur er passi sem gengur að öllum
brekkum á þessu svæði, Sella Ronda. „Það eru veitingaskálar víða í fjöll-
unum og um hádegisbil fáum við okkur heitt kakó eða súpu.“
Í sex daga segjast þau síðan fara á skíðum eins og þau lifandi geta, +́ymist
að æfa stílinn eða flakka um í fjalladýrðinni og á kvöldin er farið í heitan
pott eða gufu. Síðan er rölt um bæinn eða spilað.
Þarf fólk að vera vant skíðafólk til að fara svona ferð?
„Alls ekki. Við höfum verið með fólki sem hafði skíðin með í umbúðum og
fór í skíðaskóla.“ Margrét er íþróttakennari og hún segir að það sé frá-
bært að sjá fólk, allt frá börnum og upp í áttrætt, sem nýtur þess að
renna sér í brekkunum. „Ég hef jafnvel fylgst með fólki sem er búið að
fara í mjaðmarliðsaðgerðir njóta þess að fara þarna á skíðum,“ segir hún.
samt finnast ótal brekkur sem hægt er að svitna í.
Þið voruð á Kanaríeyjum í desember. Hvernig líkaði ykkur þar?
Torfi segist hafa haft sínar efasemdir um sólarlandaferðir en þetta var í
fyrsta skipti sem þau fóru í slíka ferð. Eigi að síður kom ferðin honum
þægilega á óvart. Margrét segir að loftslagið hafi hentað þeim vel en það
var um 25–30 stiga hiti og sól með sjávargolu, reyndar allt að heitum
norðangarra..
„Kanaríeyjar eru góður staður til að hvíla sig á. Við erum svolítið fyrir að
vera á ferðinni og fórum því í allar skoðunarferðir sem voru í boði.
Sumar þurfti að fella ferðir niður og þá skelltum við okkur í golf, leigðum
okkur kylfur og prófuðum. Við erum svona að fikra okkur áfram í þeirri
íþrótt.“
Margrét og Torfi ákváðu líka að leigja sér hjól og skoðuðu sig þannig um
útfrá ensku ströndinni. Þau segjast hafa fundið stórkostlegan stað við
ströndina, Duna, sem eru risastórir sandhólar.
Þau eru sammála um að landslagið á eyjunni sé annars keimlíkt alls stað-
ar þar sem þau komu og þau hafi skynjað hvað Íslendingar eigi fallega
eyju með sínu stórbrotna og breytilega landslagi.
Rákust þið á skemmtilegt veitingahús á Kanaríeyjum?
Við prófuðum þau mörg og heimsóttum m.a. Klörubar í tvígang. Þangað
var notalegt að koma. Það var athyglisvert að matseðlarnir voru einnig á
íslensku á nokkrum stöðum.“
Þetta er í fimmta skipti sem Torfi og Margrét fara til Ítalíu á skíði enda
Ítalir einstaklega gestrisnir. Með þeim á myndinni er Ásta Óskarsdóttir.
Torfi og Margrét leigðu sér hjól á Kanaríeyjum og skoðuðu þannig eyjuna.
Þ
ótt verið sé á ferðalagi í
Egyptalandi er Abu Simbel
ekki beinlínis í alfaraleið.
Frá Aswan, næstu stóru
borg Nílardals, eru um 300 km og
liggur leiðin að mestu um harðbýla
eyðimörk. Að auki hafa landa-
mæraerjur Egypta og Súdana
valdið því að leiðin er á köflum lok-
uð fyrir almenna umferð af örygg-
isaðstæðum. Auðveldast er því að
fljúga þangað frá Aswan.
Musterið var reist af Ramses II,
einum kunnasta faraó Egyptalands
hins forna á árunum 1290–1224
f.Kr. Ramses II ríkti lengur en
nokkur annar faraó eða í 67 ár
samfellt og varð veldi Egypta hvað
mest á þeim tíma. Með byggingu
hofsins í Abu Simbel er talið að
hann hafi viljað tryggja áhrif sín á
svæðinu, sem kallast Núbía og var
á suðurenda egypska veldisins.
Hofið er helgað þremur guðum
Forn-Egypta, Ra-Harakhty, Amun
og Ptah, auk Ramsesar II sjálfs.
Fornminjum bjargað
Við flugum til Abu Simbel með
litlu flugfélagi, Raslan Airlines.
Flugleiðin er upp með Nílarfljóti
og liggur yfir Aswan-stífluna með
góðu útsýni yfir uppistöðulónið,
sem kallast Lake Nasser. Gerð
stíflunnar árin 1960–1971 var um-
deild af ýmsum orsökum. Eitt
deiluefnið var sú staðreynd að
fjöldamargar fornminjar yrðu kaf-
færðar undir uppistöðulóninu. Til
að koma í veg fyrir það var gripið
til þess ráðs að flytja helstu minj-
arnar á öruggari staði. Stærsta að-
gerðin var fólgin í því að hluta
musterið í Abu Simbel í liðlega tvö
þúsund hluta, flytja hærra upp í
landið og endurbyggja þar. Á þann
hátt var fjöldamörgum fornminjum
bjargað frá því að kaffærast í Nas-
servatni.
Eftir um 45 mínútna flug var
lent á flugvellinum í Abu Simbel.
Við tókum rútu frá flugvellinum að
musterinu, enda lítið annað að sjá í
bænum. Inngangurinn er aftan við
musterið og lætur það því afar lítið
yfir sér í fyrstu. Eftir stutta göngu
fer maður hins vegar að taka eftir
því að eitthvað hefur verið höggvið
í bergið. Skyndilega opnast sýn að
styttunum glæsilegu á framhlið
musterisins. Þar stendur Ramses
II í allri sinni dýrð, fjórar liðlega
20 metra háar styttur sem horfa
festulega út yfir uppistöðulónið
sem næstum varð að votri gröf
þess.
Gríðarlegt mannvirki
Það er óneitanlega tilkomumikið
að standa frammi fyrir þessu gríð-
arlega mannvirki. Musterið er
höggvið út úr heilu bergi en ekki
hlaðið, ólíkt flestum þekktari
mannvirkjum Forn-Egypta og hef-
ur heilt fjall verið notað til verks-
ins. Til að fara inn í það er gengið
inn á milli styttnanna stóru á fram-
hliðinni. Inni í musterinu eru stór-
ar hvelfingar skreyttar ótal vegg-
myndum og styttum. Vegg-
myndirnar lýsa gjarnan herförum
Ramsesar og glæstum sigrum á
óvinaherjunum. Þekja þær alla
veggi og loft musterisins. Innsti
hluti musterisins er helgasti hluti
þess, djúpt inni í fjallinu. Þar í end-
anum kemur maður að litlu her-
bergi með styttum af guðunum
þremur sem musterið er tileinkað,
ásamt Ramsesi II. Snúa þær á
móti innganginum og eru hluti af
því verkfræðilega meistaraverki
sem musterið er. Musterið er
hannað þannig að tvisvar á ári ná
geislar sólar að skína inn um
þröngan innganginn, inn eftir því
endilöngu og falla á stytturnar í
innsta herberginu. Þar baða sól-
argeislarnir þá þremenninga
Ramses II, Amoun og Ra-Hartaky
en ná aldrei að skína á guðinn
Ptah. Þetta gerist einungis tvisvar
á ári, eða dagana 22. febrúar og 22.
október. Ekki eru öruggar heim-
ildir fyrir því af hverju þetta gerist
þessa daga, en líkur hafa verið
leiddar að því að þetta séu fæð-
ingar- og krýningardagur Ramses-
ar. Til þess að geta gert þetta fyrir
rúmum 3000 árum hefur þurft ein-
staka kunnáttu í stærð- og verk-
fræði. Flutningur musterisins olli
því reyndar að þetta gerist nú ein-
um degi fyrr en ella. Ástæða þess
er sögð vera sú að musterið var
flutt hærra upp í landið og orsaki
það þessa skekkju. Þegar kom
fram undir hádegið snerum við aft-
ur til baka að flugvellinum.
Ágengir sölumenn
Það er hægt að mæla með því að
vera snemma á ferðinni þegar forn-
minjar eru skoðaðar, hvar sem er í
Egyptalandi. Best er að að vera
kominn á stjá um sólarupprás. Þá
er hitinn og mistrið minna og mun
færri ferðamenn á ferli. Á baka-
leiðinni utan við musterissvæðið
lentum við í hasar við ágenga sölu-
menn sem buðu allskyns varning til
sölu, líkt og svo víða nærri egypsk-
um fornminjum. Í þeim bransa er
lífsbaráttan greinilega hörð og öll-
um brögðum beitt til þess að ná at-
hyglinni. Sölumennskan verður þó
á köflum svo yfirgengileg að hún
snýst upp í andhverfu sína og mað-
ur þakkar sínum sæla að sleppa
inn í flugrútuna án þess að hafa
keypt neitt. Til Aswan vorum við
síðan komin nægilega tímanlega til
þess að hitta áhöfn skútunnar, sem
ætlaði að flytja okkur niður Níl-
arfljót næstu dagana.
Uppistöðulónið Lake Nasser mynd-
aðist þegar Aswan stíflan var byggð á
árunum 1960–71.
Abu Simbel-musterið er höggvið út úr heilu bergi. Inngangurinn er á miðri
framhliðinni og ná geislar sólarinnar að skína tvisvar á ári inn eftir musterinu.
Ramses II faraó í Egyptalandi lét
byggja musterið í Abu Simbel á ár-
unum 1290–1224 f.kr.
Eitt þekktasta musteri Egypta-
lands er í Abu Simbel, nærri
súdönsku landamærunum. Jón
Geir Pétursson og Kristín Lóa
Ólafsdóttir skelltu sér þangað.
Á ferð um Egyptaland
Ferðalög til Egyptalands hafa dregist mikið saman eftir 11. september.
Því hefur verð lækkað, öryggisgæsla aukist og færri eru á ferli. Því eru
um margt kjöraðstæður til þess að fara þangað nú! Ágætt er að kynna
sér vefsíður breska utanríkisráðuneytisins og sendiráðs Bandaríkjanna í
Kaíró varðandi öryggismál í landinu. Slóðirnar eru www.fco.gov.uk/travel
og www.usis.egnet.net
Jón Geir og Kristín Lóa ferðuðust með breskri ferðaskrifstofu, Tra-
velbag Adventures, sem reyndist ágætlega www.travelbag-advent-
ures.com Einnig er hægt er að ferðast á þessar slóðir á eigin vegum.
Bæði British Airways og Egypt Air eru með daglegt flug milli London og
Kaíró sem kostar um 200–300£ fram og til baka eða frá 29.000 krón-
um og upp í um 44.000 krónur. Til Aswan er hægt að taka lest frá Kairo
sem tekur u.þ.b. 15 tíma. Flottasta hótelið í Aswan er án efa Old Cataract.
Notað í kvikmyndinni Dauðinn á Níl, enda bjó Agatha Christie þar sjálf.
Nóttin kostar um 150 USD eða um 15.000 íslenskar krónur tveggja
manna herbergi, sjá www.sofitel.com Afsláttur er fáanlegur ef gist er í
fleiri nætur. Ágætur kostur fyrir mun minni pening er Kalabsha Hotel fyr-
ir um 40 USD eða um 4.000 krónur.
Musterið sem hlutað var
í tvö þúsund parta
Ljósmyndir/Jón Geir Pétursson
Hvert ertu að fara?
Í Dólómíta-
fjöllin á skíði
„Fjallasýnin er falleg, skíðasvæðið frábært og Ítalir kunna
svo sannarlega að taka vel á móti fólki,“ segja hjónin
Torfi H. Ágústsson og Margrét Jónsdóttir, sem héldu í
gær til Ítalíu á skíði í fimmta skipti.