Morgunblaðið - 17.02.2002, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. FEBRÚAR 2002 B 9
ferðalög
Í HÖFUÐBORG Svíaríkis, Stokkhólmi,
eru margir áhugaverðir staðir að
heimsækja. Útivistarsafnið Skansen
var stofnað á þarsíðustu öld, árið
1891, og er vinsæll viðskomustaður
fjölskyldna. Um 150 sögulegar bygg-
ingar mynda ramma safnsins; hús,
bóndabæir og verkstæði. Í dýrahaldi
státar safnið af norrænum skepnum
og má þar sjá elg, björn og úlf. Fram-
andi dýr eins og slöngur og apar eru á
sérsvæði. Litli Skans er ætlaður
yngstu börnunum með kiðlinga, grís-
arunga, endur og ketti.
Í Vasasafninu er sænska orlofs-
skipið Vasa til sýnis en það var smíð-
að á 17. öld, sökk og hvarf sjónum
manna í aldir en var sótt af sjáv-
arbotni og endursmíðað. Bæði skipið
og hlutir sem fundust í því eru áhuga-
vekjandi.
Línu langsokkspönnukökur
Ævintýrin gerast í Junibacken þar
sem maður kynnist veröld barna-
bókahöfundarins Astrid Lindgren
sem nú er nýlátin.Á veitingastaðnum
er hægt að borða Línu langsokks-
pönnukökur og staldri maður nógu
lengi við mun Lína langsokkur koma í
ljós með lögregluna á hælunum.
Tæknisafnið Teknista museet býð-
ur upp á marga spennandi hluti. Þar
er t.d.hægt að semja tónlist með hjálp
tölvu.
Stærsta safnið í Svíþjóð
Náttúrufræðisafnið Cosmonova er
stærsta safnið í Svíþjóð með 18 millj-
ónir sýningarhluta. Sýningar og
kennsluefni spanna allt frá smæstu
öreindum til uppbyggingar alheims-
ins. Sýningin Vatnalíf segir frá dýrum
og plöntum í lækjum, vötnum og hafi.
Tölvur og smásjár auðvelda fólki að
kynnast leyndardómum náttúrunnar.
Fram í mars næstkomandi stendur
yfir sýning um unga risaeðlanna.
Cosmonova er aðeins tíu ára gam-
alt safn og talið eitt það áhugaverð-
asta á sínu sviði í heiminum.
Fjölbreytt söfn og útigarðar í Stokkhólmi
Stockholm Information/R. Ryan
Junibacken Galärvarvs-
vägenSE-115 21 Stock-
holmSweden Tel. +46-8-587
230 00.Fax +46-8-587 230
99.E-mail: staffan.af.kleen@-
junibacken.se
www.junibacken.se/eng/
info.html
Nánari upplýsingar um nátt-
úrufræðisafnið Cosmonova er á
finna á slóðinni www.nrm.se/
cosmonova/set_top.html
Göngu-Hrólfur og Úrval-
Útsýn kynna gönguferðir
Sunnudaginn 24. febrúar verða
Göngu-Hrólfur og Úrval-Útsýn með
kynningu á gönguferðum ársins.
Fundurinn hefst kl 15 og verður
haldinn á Hótel Loftleiðum. Rætt
verður um hefðbundnar ferðir, byrj-
andaferðir, orkuferð og gönguferðir
með menningarívafi.
Gianni og Giovanella samstarfsaðilar
um ferðirnar á Ítalíu mæta á fund-
inn. Jafnframt verður kynning á
vegum Útilífs á útbúnaði.
Aðgangseyrir með kaffi og kökum
er 600 krónur.
Vorferðir
Bændaferða
Bændaferðir í sam-
starfi við Terr-
aNova-Sól efna til
nokkurra vorferða.
Dagana 12. til 22.
apríl og síðan einn-
ig 21. apríl til 1. maí
verður farið í ferðir
að Gardavatni.
Flogið er til Frank-
furt, gist í Ulm
fyrstu nóttina og
þaðan ekið til Riva við Gardavatn.
Þar verður gist í sjö nætur og farn-
ar skoðunarferðir flesta daga m.a.
til Feneyja og Veróna.
Frá Riva verður ekið norður Sviss
og endað í Oberkirch í Svartaskógi
og þar gist í tvær nætur.
Þá verður farið til Mosel frá 25.
apríl til 2. maí. Flogið er til Frank-
furt og ekið til Cochem við Mosel.
Þar verður gist á góðu hóteli í sjö
nætur og farnar fjölbreyttar skoð-
unarferðir flesta daga m.a. til Rü-
desheim, Koblenz, Trier, Bernkastel
og fleiri staða. Innifalið í þátttöku-
gjaldinu er morgun- og kvöldverður
alla daga og allar skoðunarferðir.
Skemmtanastjóri í þessari ferð
verður harmonikkuleikarinn Jón
Árni í Víkurnesi í Mývatnssveit. Það
verður dansað og sungið á hverju
kvöldi.
Þátttökugjald í ferðunum er kr.
89.600 krónur til Riva en í Mosel-
dalinn kr. 76.400 krónur.
Fararstjóri í Ítalíuferðunum verður
Hólmfríður Bjarnadóttir (Hófý) en í
Mosel Eyrún og Agnar.
Kynning á Úrvals-
bændaferðum
Í fyrra gerði ferðaskrifstofan Úrval-
Útsýn sína fyrstu tilraun með Úr-
Kynningarfundur um Úrvals
bændaferðirnar verður í dag kl.
16:00, sunnudaginn 17.
febrúar, í Sunnusal Hótel Sögu,
þar sem Friðrik G. Friðriksson
kynnir ferðirnar.
Gardavatn
vals-bændaferðir svokallaðar og var
ákveðið að endurtaka þær en fjölga
þeim.
Ferðirnar, sem nú eru í boði flytja
menn um Portúgal og Spán, Þýska-
land og Frakkland, Austurríki og
Ítalíu og Tékkland, Austurríki og
Ungverjaland.
Fyrsta ferðin er farin 15. mars til
Portúgals og Spánar, en þar eru ör-
fá sæti laus og sú síðasta er í sept-
ember. Með reyndum Úrvalsfar-
arstjórum verður keyrt um Evrópu í
glæsilegri rútu undir stórn íslensks
bílstjóra. Innifalið í þessum ferðum
er m.a. hótel, morgunverðarhlað-
borð og flest kvöld verða snæddir
kvöldverðir á ýmsum skemmtilegum
stöðum með fararstjóra.
Allar upplýsingar um Úrvals-
bændaferðir gefa Silja Rún og Hel-
ena í síma 5854140.
Bílaleigubílar
Sumarhús
í Danmörku
og Mið-Evrópu
Ódýrari bílaleigubílar fyrir
Íslendinga.
Bílar frá dkr. 1.845 vikan.
Innifalið í verði:
Ótakmarkaður akstur, allar
tryggingar. (Allt nema bensín
og afgr.gjöld á flugvöllum.)
Aðrir litlir og stórir bílar,
smá-rútur og rútur.
Sumarhús og íbúðir.
Norðurlönd og Mið-Evrópa.
Hótel. Heimagisting.
Bændagisting.
Fjölbreyttar upplýsingar.
Nýjustu verðlistarnir komnir.
Hringið og fáið sendan.
Fylkir Ágústsson,
Fylkir — Bílaleiga ehf.,
sími 456 3745.
fylkirag@snerpa.is
www.fylkir.is
®Car Rental
Malarhöfða 2, 110 Reykjavík
og á Keflavíkurflugvelli
Sími 567 8300 • Fax 567 8302
Bíl í B-flokki í 7 daga:
Netfang: budget@budget.is
www.budget.is
Bílaleigubílar
um allan heim
á betra verði
Danmörk 23.200 kr.
Þýskaland 22.200 kr.
Krít, Grikkland 13.800 kr.
Portúgal 9.700 kr.
Í USA er verðið einnig sérlega gott
Fermingarfötin komin...
Opið í dag
sunnudag, kl. 1-5 á Laugaveginum
Jakkaföt 15.990. Stærðir 38-48
(Litir: Svart, dökkgrátt, ljósgrátt, grænt)
Skyrta 2.990 (Litir: Bljósblátt, ljósgrátt, beige)
Bindi 2.990 - Skór 8.990
Riffla-flauelsjakki 9.990
Riffla-flauelsbuxur 6.990
Stærðir 0-5
(Litir: Vínrautt, svart, dökkblátt)
Bolur 3.990. (Margir litir)
Skór 6.990
(Litir: Svart, hvítt, beige)
Kjóll 8.990 Stærðir XS - XL
(Litir: Svart, hvítt)
Buxur 4.990 (Litir: Svart, hvítt, beige)
Skór 6.990 (Litir:Svart, hvítt, beige)
Hálsmen/kross 990
Laugavegi, s. 511 1717, Kringlunni, s. 568 9017
Einnig opið kl. 1-5 í Kringlunni Sendum í póstkröfu
Nýtt kortatímabil
H
á
rg
re
ið
s
la
:
P
ri
m
a
d
o
n
n
a
/H
e
rd
ís
-
B
e
g
g
a
Blúndukjóll 9.990 (St. XS - XL)
(Litir: Ljósblátt, ljósbleikt, beinhvítt)
Kápa 10.990 (Litir: Svart, beinhvítt)
Hálsmen/Kross 990
Skór 6.990 (Litir: Svart, hvítt, beige)