Morgunblaðið - 17.02.2002, Qupperneq 10
Geislavarnir!
Er verið að mæla þig út?
Öflugir radarvarar frá
ESCORT og FUZZBUSTER
Hyundai
Sonata V6
Aflmikill,
þægilegur og á
hagstæðu
verði.
BRIMBORG hf., umboðsaðili
Ford, hefur riðið á vaðið með
nýja viðskiptahætti með Ford
Focus. Fyrirtækið hefur að und-
anförnu staðið í samningavið-
ræðum við Ford um sérpantanir
á bílum sem leiða til allt að 200
þúsund kr. lækkunar frá lista-
verði. Í fyrstu atrennu verður að-
eins um 35 bíla að ræða með 1,4
lítra vél, en Egill Jóhannsson,
framkvæmdastjóri Brimborgar,
segir að það ráðist af viðtökunum
og þolinmæði viðskiptavina, sem
þurfa að bíða allt að 6–8 vikur,
hvort frekara framhald verði á
þessu.
„Við höfum minnkað birgðir
hjá okkur verulega og höfum lít-
inn birgðahaldskostnað. Við vilj-
um reyna að koma upp kerfi þar
sem við erum með litlar birgðir
en bílar séu stöðugt að streyma
inn. Við sömdum við Ford um
Focus 1,4 og fáum hann á góðu
verði í grunninn. Við fengum við-
bótarafslátt á bílinn og skerum
okkar álagningu niður. Við reyn-
um að forselja alla bílana, þannig
að þeir stoppa stutt hjá okkur og
viðskiptavinirnir taka strax við
þeim og allir hagnast á þessu.
Við högnumst minna á hverjum
bíl en seljum fleiri bíla. Þannig
fáum við fleiri bíla á götuna og
þjónustu við þá í framtíðinni. Síð-
an koma þeir vonandi til okkar
aftur í endursölu og menn skipta
upp í nýjan bíl,“ segir Egill Jó-
hannsson, framkvæmdastjóri
Brimborgar.
Í fyrstu kostaði Ford Focus
1,4 Ambiente fimm dyra
1.760.000 kr. en Brimborg fékk
því framgengt að verðið lækkaði
niður í 1.650.000 kr. En með
þessum samningi við Ford verk-
smiðjurnar fer bíllinn niður í
1.499.000 kr. sem er 151.000 kr.
lækkun frá listaverði. Þriggja
dyra bíllinn kostaði upphaflega
1.700.000 kr. en lækkaði síðan í
1.590.000 kr. en samkvæmt
þessu tilboði kostar hann
1.399.000 kr. sem er 191.000 kr.
lækkun frá listaverði. Bílarnir
sem hér um ræðir eru fullbúnir,
þ.e. með fjórum öryggispúðum,
ABS-hemlakerfi, upphituðum
sætum, rafmagnsrúðum að fram-
an, samlæsingu og fleiru. Það er
því ekki verið að lækka verðið
með því að draga úr búnaði
bílanna. Bílarnir eru framleiddir
í Þýskalandi.
„Nú kemur í ljós hvort Íslend-
ingar eru nægilega þolinmóðir til
að panta og bíða í rólegheitunum
eftir bílnum sínum. Kaupandinn
pantar sinn lit og innréttingu og
getur bætt þeim búnaði í sem
hann óskar eftir. Hann greiðir
10% inn á bílinn við samning, við
metum gamla bílinn sem síðan er
tekinn upp í nýja bílinn. Þeir sem
eru mjög óþolinmóðir eiga þó
hugsanlega kost á því að fá nýja
bílinn fyrr ef aðrir umboðsmenn
í Evrópu eiga bíl á lager þeir eru
tilbúnir að gefa eftir. En þá þarf
viðskiptavinurinn hugsanlega að
sætta sig við annan lit en hann
hafði hugsað sér.“
Ljóst er að útspil Brimborgar
mun setja þrýsting á önnur bíla-
umboð í landinu því samkeppnin
er hörð á þessum markaði. Núna
stendur Brimborg með pálmann
í höndunum. Helstu keppinaut-
arnir, þ.e. þriggja dyra bílar með
1,4 l vél, eru Toyota Corolla, sem
kostar 1.639.000 kr., VW Golf,
sem kostar 1.720.000 kr., Opel
Astra 1,2 l, sem kostar 1.595.000
kr. og Peugeot 307, sem kostar
1.576.000 kr.
Verðfall á Focus
en lengri bið
Morgunblaðið/Þorkell
Ford Focus kom best út í árlegri gæðakönnun þýsku vottunarstofn-
unarinnar TÜV. Hann lækkar nú um allt að 191.000 kr. í verði.
BANDARÍSKA umferðaröryggisstofnunin, The Nat-
ional Highway Traffic Safety Administration (NHTSA),
lýsti því yfir sl. þriðjudag að stofnunin myndi ekki fara í
sérstaka rannsókn á Ford Explorer vegna ásakana
Firestone um að bíllinn en ekki dekkin væri valdur að
umtöluðum slysum í Bandaríkjunum í fyrra.
Stofnunin fór yfir gögn frá Firestone sem bentu til
þess að stýrisbúnaður og aksturseiginleikar gætu átt
þátt í umræddum slysum sem urðu þegar bílarnir ultu
eftir að dekk sprakk.
Fulltrúi NHTSA, Jeffrey Runge, sagði í samtali við
Reuters-fréttastofuna að gögnin frá Firestone styddu
ekki þessar fullyrðingar og sýndu ekki fram á að Ford
Explorer væri hættulegri en aðrir jeppar ef til þess
kæmi að dekk spryngi í akstri.
Firestone kallaði inn á sínum tíma 6,5 milljónir
dekkja og Ford bætti við innköllun á 13,5 milljónum
dekkja til þess að tryggja öryggi viðskiptavina sinna þó
ekki væri sannað að öll þessi dekk væru haldin þessum
galla.
Brimborg hefur, fyrir hönd Ford, séð um þessa inn-
köllun á Íslandi og fyrir starfsmenn varnarliðsins á
Keflavíkurflugvelli. Hefur innköllunin gengið mjög vel,
samkvæmt upplýsingum frá Brimborg og telur fyr-
irtækið að búið sé að ná inn öllum þeim dekkjum sem
voru í umferð á Íslandi. Hefur þeim verið fargað í sam-
ræmi við kröfur Ford og kaupendur bílanna fengið ný
dekk í staðinn.
Engin sérstök rannsókn á Ford
The North Face Ford Explorer.
VOLVO var mest seldi vörubíllinn á Íslandi á síðasta
ári. Alls seldist 41 Volvo vörubíll yfir 10 tonn á árinu og
er markaðshlutdeild Volvo 31,3%. Samdráttur í skrán-
ingum vörubíla yfir 10 tonn var á síðasta ári 53%.
Volvo mest seldi vörubíllinn
KIA frumsýnir stóran jeppa, Sorr-
ento, á bílasýningunni í Genf í
næsta mánuði. Jeppinn var frum-
sýndur í Bandaríkjunum í síðustu
viku og er væntanlegur á markað
á Íslandi í sumar, í júní eða júlí.
Hann verður boðinn með tveimur
vélum, þ.e. 2,5 l dísilvél með sam-
rásarinnsprautun, 145 hestafla
og með 330 Nm togi. Hin vélin er
3,5 lítra V6 bensínvél, 192 hest-
afla. Þetta er fullbúinn jeppi
byggður á sjálfstæðri grind og
með hátt og lágt drif. Ekki er
ennþá vitað hvert verðið verður á
bílnum en ef draga má einhverjar
ályktanir af verði Kia almennt og
Kia Sportage sérstaklega, er ekki
ólíklegt að verðið verði afar hag-
stætt.
Þetta er fyrsti stóri jeppi Kia og
er hann mun stærri en Sportage,
eða svipaður og Mercedes-Benz
M-línan. Sportage verður áfram í
framleiðslu og sölu meðfram
Sorrento.
Sorrento er með hallandi vél-
arhlíf og boga í þaklínunni og það
ásamt hornmynduðum aftur-
ljósaklasa gerir bílinn verklegan á
að líta. Ríkulegur staðalbúnaður á
síðan að gera Sorrento að val-
kosti gagnvart mun dýrari og
þekktari bílum.
Talsmenn Kia vonast til þess að
Sorrento breyti ímynd Kia í Evr-
ópu. „Sorrento er til marks um
stefnubreytingu hjá okkur. Bíllinn
er frísklega hannaður og hann
hefur yfir sér svipaðan stíl og
gæðaímynd og kaupendur tengja
vanalega við mun dýrari bíla.
Verðið á honum verður hins vegar
mun lægra,“ segir talsmaðurinn.
Eins og fyrr segir er ekki ljóst
hvað bíllinn mun kosta hérlendis.
Flaggskipið verður með V6 vélinni
og leður- og viðarklæðningu. Dís-
ilbíllinn verður fáanlegur með
handskiptingu og sjálfskiptingu
en V6 bíllinn einvörðungu með
sjálfskiptingu.
Kia hefur einnig lýst því yfir að
fyrirtækið þrói nú nýjan smábíl
sem á að koma í stað Pride, sem
hætt var að framleiða árið 2000.
Nýr og stærri Kia-jeppi í sumar
Nýi Kia Sorrento-jeppinn er með millikassa og byggður á sjálfstæða grind.
LÖGREGLAN í London
hefur tekið í notkun tvo
Think City-rafbíla. Bílarnir
verða notaðir af lög-
reglumönnum í West End.
Bílarnir eru tveggja sæta og
upphaflega hannaðir í Nor-
egi. Ford hefur þróað bílana
til hlítar og er nú að mark-
aðssetja þá víða um heim.
Bílarnir verða ekki notaðir
til að veita eftirför en þeir
eru nánast alveg hljóðlausir
og því auðveldara fyrir lög-
regluna að læðast að lög-
brjótunum. Þeir eru líka
mengunarlausir og yfirbygging þeirra er að öllu leyti
endurvinnanleg. Hámarkshraðinn er 90 km á klst. og
bílarnir komast í hæsta lagi 85 km á einni hleðslu. Það
tekur hins vegar átta klukkustundir að hlaða rafhlöð-
urnar ef þær tæmast að fullu. Myndin sýnir lög-
reglustjórann í London, Sir John Stevens, undir stýri á
Think við höfuðstöðvar Scotland Yard í London.
Lögreglan í London á rafbíla
Lögreglan í London
hefur tekið í notkun
Think-rafbíla.