Morgunblaðið - 17.02.2002, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. FEBRÚAR 2002 B 11
bílar
FRUMSÝNING verður á hug-
myndabílnum Toyota UUV á bílasýn-
ingunni í Genf í næsta mánuði. Bíllinn
er sagður þess eðlis að hann muni
hrista upp í hefðbundinni bílahönnun.
Toyota segir að bíllinn sé til marks
um framsækni fyrirtækisins og rann-
sóknir á nýjum markaðsmöguleikum.
UUV er sagður vera blendingsbíll,
gerður úr helstu eiginleikum hlað-
baks, stallbaks og langbaks, sem
sameinar kosti fjórhjóladrifsbílsins
og helstu kosti fólksbíla, svo sem
góða aksturseiginleika, hönnun og
afl.
Bíllinn er með stórar hjólaskálar
eins og fjórhjóladrifsbílar að jafnaði
og stór dekk. Bíllinn er 4.430 mm
langur, 1.820 mm breiður og 1.650
mm á hæð. Hann er með mikið hjól-
haf sem tryggir mikið innanrými.
Í mælaborðinu er stór skjár þar
sem bæði ökumaður og farþegi í
framsæti geta stjórnað afþreyingar-
tækjum bílsins og leiðsögukerfi.
Kerfið er kallað Glass Vision og er
framleitt af Denso. Skjárinn er þeim
kostum búinn að geta varpað upp þrí-
víddarmyndum.
Toyota UUV
sýnd í Genf
Bíllinn er fjór-
hjóladrifinn blend-
ingur hlaðbaks, stall-
baks og langbaks.
Toyota UUV verð-
ur sýnd í Genf.
Stór skjár í mælaborði sýnir myndir í
þrívídd.
NÝR valkostur verður í boði strax ár-
ið 2004 í flokki stórra lúxusbíla frá
Hyundai. Bíllinn var frumsýndur á
bílasýningunni í Chicago. Bíllinn kall-
ast HCD-7 og er fernra dyra lúxusbíll
með 4,5 lítra V8 vél, 270 hestafla.
Hann er stærri en BMW 7 og vænta
má að hann verði á mun lægra verði.
Talsmaður Hyundai segir að HCD-7
verði afbrigði af Hyundai Centennial,
sem hefur aðeins verið til sölu í Aust-
urlöndum fjær í nokkur ár. Hann segir
að Centennial hafi ekki verið settur á
markað í Evrópu vegna þess að
Hyundai vill fyrst byggja upp mark-
aðsímynd fyrirtækisins áður en farið
er að keppa á sama markaði og BMW
og Mercedes Benz. HCD-7 er einmitt í
sama stærðarflokki og BMW 7 og
Mercedes-Benz S. HCD-7 verður með
ABS-kerfi, spólvörn, sjálfvirkri stýr-
ingu á veghæð bílsins og rafeinda- og
vökvastýrða höggdeyfa með aðlög-
unarhæfni að breytilegum aðstæðum.
Allt á þetta að gera bílinn betur í
stakk búinn að etja kappi við þýsku
forystusauðina í þessum flokki bíla.
Stór lúxusbíll frá Hyundai
Stærri en BMW 7 en mun ódýrari.Nýr Hyundai verður með mjúkar línur.
MARTRÖÐ hvers vörubílstjóra er að
lenda í því að þungur og jafnvel full-
hlaðinn vöruflutningabíll, hugsanlega
einnig með aftanívagni, stöðvast í
brekku og byrjar að renna aftur á bak.
Stilling hf. hefur nú hafið innflutn-
ing á sandkössum fyrir vöruflutn-
ingabíla, rútur og strætisvagna. Kass-
arnir eru festir fyrir framan drifhjól
bílanna og dreifingu sands úr þeim er
stýrt innan úr ökumannshúsinu. Með
því að dreifa sandi framan við drif-
hjólin fæst betra veggrip í hálum
brekkum og auk þess getur stöðv-
unarvegalengdin styst til muna. Inni í
kössunum eru spaðar sem dreifa
sandinum og auk þess er þar hitaele-
ment sem kemur í veg fyrir að sand-
urinn frjósi í kassanum. Autoline-
kassarnir eru hannaðir í Noregi þar
sem aðstæður eru svipaðar og hér á
landi hvað varðar vetrarakstur.
Búnaðurinn er núna til reynslu á
einum af flutningabílum Flytjanda.
Hann má einnig nota með snjókeðjum
og einfalt er að taka kassann af og
setja í geymslu á sumrin. Kassarnir
eru framleiddir í nokkrum stærðum
og taka þeir allt frá 60 upp í 90 kg af
sandi. Tómir vega kassarnir 27–40 kg
og eru þeir gerðir úr 1,5–2 mm þykku
ryðfríu stáli og lokið er úr áli. Mót-
orinn í kössunum gengur fyrir 12 volta
straumi og sömuleiðis hitararnir.
Sandkass-
ar á vöru-
bílana
Eins og sést dreifist sandurinn reglulega fyrir drifhjólin.
...ferskir vindar í umhirðu húðar
Enn eitt árið í röð
nota keppendur í
fegurðarsamkeppni
Íslands Silhouette
og Body scrub við
undirbúning
keppninnar.
Ástæðan segir Dísa
þjálfari vera:
“Það snarvirkar,
lærin þéttast og
rassinn verður
stinnari og flottur.“
Dísa í World Class segir:
Enn eitt árið í röð
Dísa í World Class
TILBOÐ ÓSKAST
í Chevrolet Monte Carlo Z 34
árgerð 1999 (ekinn 28 þús. mílur),
og aðrar bifreiðar, er verða sýndar að
Grensásvegi 9 þriðjudaginn 19. febrúar kl. 12-15.
TJÓNABIFREIÐ
Ennfremur óskast tilboð í Toyota 4 Runner
SR 5 tjónabifreið árgerð 2000,
vél 3,4 l. 24 v, sjálfskiptur.
Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16.
UMSÝSLUSTOFNUN VARNARMÁLA
SALA VARNARLIÐSEIGNA
C vítamín 500 mg
Eflir varnir.
Allt vítamínið í töflunni
nýtist þér. C vítamín forði í 12 klst.
Nýtt frá Biomega
Fæst í apótekum