Morgunblaðið - 17.02.2002, Side 16
Viður, leður og króm í innréttingum.
NÝR Hyundai Sonata er eitt best
varðveitta leyndarmálið á íslenskum
bílamarkaði. Bíllinn hefur lítið eða
ekkert verið auglýstur en lúrir stoltur
í höfuðstöðvum B&L, tilbúinn að
veita mönnum akstursupplifun sem
koma þar í heimsókn. Sonata er fimm
manna fólksbíll í efri millistærðar-
flokki, hefðbundinn að allri gerð, og
er boðinn jafnt með 2,0 lítra og 2,7
lítra V6 bensínvélum og miklum bún-
aði. En það sem meira er þá býður ný
Sonata af sér þokka lúxusbílsins, ekki
síst vegna mikilla framfara í smíði og
frágangi, velheppnaðrar hljóðein-
angrunar, aflmikillar og þýðgengrar
V6 vélar og mikils staðalbúnaðar. Við
tókum í nýjustu gerðina, árgerð 2002,
á dögunum með V6 vélinni og fjög-
urra þrepa sjálfskiptingu með hand-
vali.
Króm og sjálfstæð fjöðrun
Sonata hefur fengið smávægilega
andlitslyftingu milli árgerða, bæði á
ytra og innra byrði, en í öllum aðal-
atriðum er hann eins og fyrri gerð.
Hann er þó kominn með meira
króm að utan og mýkri línur að aftan
sem minna á Rover eða Jaguar frá
vissum sjónarhornum.
Sú breyting sem mest verður vart
við milli árgerða er bætt hljóðein-
angrun, sem í nýrri Sonötu er á svip-
uðum staðli og hjá mestu lúxusmerkj-
unum. Þetta hefur verið gert með
nýrri botnplötu sem gerir undirvagn-
inn jafnframt stífari en áður og bætir
jafnframt aksturseiginleika bílsins.
Sonata hvílir á stórum dekkjum á 16
tommu álfelgum og er með sjálf-
stæðri fjöðrun á öllum hjólum,
þriggja liða fjöðrun að framan og fjöl-
liðafjöðrun að aftan.
Hvað öryggið varðar er bíllinn
ágætlega búinn. Staðalbúnaður er
t.a.m. fjórir öryggispúðar, læsivarðir
hemlar, fjarstýrðar samlæsingar,
geislaspilari með sex hátölurum, púði
í miðju aftursæti sem gegnir hlut-
verki bars þegar hann er dreginn út
og innréttingin er skreytt með viðar-
klæðningu, leðri á stýri og gírstilk og
krómi hér og þar.
Bíllinn er með stórum og þægileg-
um framsætum sem koma beint úr
XG, flaggskipi Hyundai, og einfalt er
að finna góða stöðu undir stýri. Öku-
maður hefur gott útsýni og gott er að
lesa á mæla. Viðarklæðningin, sem er
staðalbúnaður með V6 vélinni, setur
lúxusblæ á innréttinguna. Það fer vel
um þrjá fullorðna í aftursætum. Þar
eru þrír hnakkapúðar og þrjú þriggja
punkta belti.
Góð V6 vél og H-Matic sjálfskipting
Stóri kosturinn við þennan bíl er
hin skemmtilega V6 vél. Þetta er
splunkuný vél smíðuð úr áli, 32 ventla
og með tveimur yfirliggjandi knastás-
um. Bíllinn hefur kraftmikið upptak
og hámarkstog, 245 Nm, næst strax
við 4.000 snúninga á mínútu.
Þrátt fyrir sömu hestaflatölu, þ.e.
173 hestöfl, er þetta ekki nákvæmlega
sama V6 vélin og í Santa Fé, sem er
með 100 rúmsentimetra stærra slag-
rými og þar með meira togi, 250 Nm
við 4.000 snúninga á mínútu. Þetta er
afar hljóðlát vél og þýðgeng og skilar
virkilega skemmtilegum afköstum.
Við hana er tengd H-Matic sjálfskipt-
ing með handskiptivali. Þetta er góð-
ur kostur fyrir þá sem vilja bæði geta
nýtt sér þægindin af sjálfskiptingunni
en vilja stundum keyra á sportlegri
nótum með því að þenja bílinn meira í
gírunum.
Sonata er þó langan veg frá því að
vera sportlegur bíll. Þetta er fyrst og
fremst rúmgóður fjölskyldubíll með
dálítið límúsínulegum eiginleikum,
s.s. mjúkri fjöðrun sem gleypir í sig
ójöfnur og léttu stýri. Hann minnir
dálítið á ameríska fólksbíla í akstri.
Hefðbundinn búnaður með
nýtískulegum þáttum
Tæknin í Sonata er fremur einföld í
samanburði við flóknari lúxusbíla.
Hann hefur t.a.m. ekki EBD-heml-
unarátaksdreifingu né skrikvörn en
spólvörn er þó staðalbúnaður. Að
flestu leyti er því hefðbundinn bún-
aður í Sonötu en þó með nýtískuleg-
um þáttum, eins og góðri V6 vél og
nútímalegum gírkassa. Það er
kannski fulldjúpt í árinni tekið að
setja Hyundai Sonata í flokk með lúx-
usmerkjum eins og Audi A6, BMW 5
og Mercedes-Benz E, og vissulega á
hann nokkuð í land með það á sviðum
sem tengjast rafeindatækni alls kyns,
ekki er hann boðinn með nýtískuleg-
um dísilvélum og sömuleiðis er inn-
réttingin nokkuð gamaldags í saman-
burðinum. Sömuleiðis heldur Sonata
ekki jafnvel verðgildi sínu og lúxus-
merkin. En hann hefur allt annað að
bjóða sem menn eiga að venjast í lúx-
usbílum, þ.e. góða aksturseiginleika
og fjöðrun, gott innanrými og frá-
bæra hljóðeinangrun. Það sem hann
hefur umfram alla aðra sambærilega
bíla er mikið hagstæðara verð. Fyrir
Hyundai Sonata þurfa menn að reiða
fram 2.650.000 kr. og fyrir þá peninga
fæst mikill og góður bíll.
Sonata fyr-
ir bensínfót
og þægindi
Frágangur er vandaður. Innbyggður barnabílstóll er í aftursæti.
Ávalar línur eru í skotthlutanum.
Aflmikil og þýðgeng V6 vél er hjartað í bílnum.
gugu@mbl.is
16 B SUNNUDAGUR 17. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
Vél: Sex strokkar, 2.657
rúmsentimetrar, 32 ventl-
ar, tveir knastásar.
Afl: 178 hestöfl við 6.000
snúninga á mínútu.
Tog: 245 Nm við 4.000
snúninga á mínútu.
Fjöðrun: Sjálfstæð fjöðr-
un, þriggja liða að framan,
fjölliða að aftan.
Lengd: 4.745 mm.
Breidd: 1.820 mm.
Hæð: 1.422 mm.
Eigin þyngd: 1.503 kg.
Farangursrými: 398/430
lítrar.
Hemlar: Diskahemlar,
kældir að framan, ABS.
Hámarkshraði: 220 km/
klst.
Eyðsla: 9,7 lítrar í blönd-
uðum akstri.
Verð: 2.650.000 kr.
Umboð: B&L.
Hyundai Sonata V6
REYNSLUAKSTUR
Hyundai Sonata
Guðjón Guðmundsson
Hyundai Sonata 2002, lítið breyttur en með meiri krómskreytingum.
Morgunblaðið/Sverrir