Morgunblaðið - 17.02.2002, Qupperneq 17
MBA-nám
• Öll kennsla fer fram á ensku.
• 11 mánaða almennt MBA-stjórnunarnám með áherslu á
áætlanagerð, forystu og uppbyggingu víxlstarfandi liðsheildar.
• Nemendur alls staðar að, hámark 40 á námskeiði.
• Meðalaldur 32 ár og 7 ára starfsreynsla.
• „Hands on“-ráðgjafarverkefni.
MSc-nám
• Öll kennsla fer fram á ensku.
• Tveggja ára fullt nám.
• Sérgreinar.
• Fjármálahagfræði.
• Markaðsfræði.
• Áætlanagerð.
• Alþjóðaviðskipti.
• Upplýsingatæknistjórnun.
Við getum boðið þér eitt
alþjóðlegasta MBA- og
MSc-nám á
Norðurlöndum
Mánudaginn 18. febrúar kl. 18.00
fyrir MBA og 19.00 fyrir MSc
á Hótel Sögu, fundarherbergi B.
Kynningarfundur
á Íslandi
Netfang: mba@bi.no, msc@bi.no,
http://www.bi.edu
E f t i r t a l d i r s t a n d a a ð F l u g s k ó l a Í s l a n d s
w
w
w
.d
es
ig
n.
is
©
20
02
Upprifjunarnámskeið
fyrir flugkennara
Skv. JAR-FCL 1.355
Flugkennari/flugvél FI(A) – framlenging og endurnýjun
2. tölul. a-liðar AMC FCL 1.355
Upprifjunarnámskeið fyrir flugkennara FI(A) verður haldið hjá Flugskóla
Íslands hf. dagana 15.-16. mars nk.* Kennt verður föstudaginn 15. mars
frá kl. 1900-2130 og laugardaginn 16. mars frá kl. 1000-1500.
Skráning og allar nánari upplýsingar
í síma 530 5100 og/eða á www.flugskoli.is
* Námskeiðið verður haldið með fyrirvara um næga þátttöku
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. FEBRÚAR 2002 B 17
bílar
UNNIÐ var í síðustu viku að
bráðabirgðaviðgerð hjá Bílheimum
á tveimur Isuzu Crew Cab-bílum
ítalskra ferðalanga sem höfðu ver-
ið á ferð um landið frá því um
miðjan janúar. Voru þarna á ferð-
inni miklir ævintýramenn sem hafa
ferðast á bílum sínum um heim all-
an, en á síðasta ári fóru þeir m.a.
keyrandi á Isuzu-bílunum 17.000
km leið frá Feneyjum á Ítalíu og
enduðu ekki fyrr en í Tókýó í Jap-
an.
Þeir félagar sögðu að ástæða
þess að Ísland varð einnig fyrir
valinu hefði verið sú að Ísland væri
vissulega öðruvísi staður. „Sér-
staklega var það krefjandi að geta
tekist á við landið að vetrarlagi,“
sögðu þeir, og höfðu Isuzu Crew
Cab-bílarnir staðið sig ákaflega vel
við þau akstursskilyrði sem þeir
höfðu ekið við.
Ítalarnir nutu aðstoðar Péturs
Björnssonar, aðalræðismanns
Ítala, við undirbúning ferðarinnar
og færðu honum að launum við
leiðarlok sérstakt vín sem framleitt
er í heimahéraði þeirra, svokallað
Friðarvín, „Vino della Pace“.
Adalberto Buzzin og Thomas Tonicello við annan Isuzu Crew Cab-bílinn sinn.
Akandi um allan heim
EINS til þriggja ára Ford Focus er
ótvírætt sá bíll sem fæsta alvarlega
galla hefur, samkvæmt niðurstöðum
þýsku vottunar– og skoðunarstofn-
unarinnar TÜV. Stofnunin gerir ár-
lega könnun á gallatíðni á bílum í
fimm aldursflokkum, þ.e. 1–3 ára,
4–5 ára, 6–7 ára, 8–9 ára og 10–11
ára. Könnunin byggist á skoðunum á
100 bílum af 107 bíltegundum.
Í flokki 1–3 ára bíla var tíðni alvar-
legra galla í Ford Focus einvörð-
ungu 1%, sem þýðir að aðeins einn
bíll af hundrað hafi verið með alvar-
legan galla.
Að öðru leyti raða japanskir bílar
sér í efstu sætin. Toyota er t.a.m. í 2.
til 5. sæti í flokki 1–3 ára bíla. Versta
útkomu fær Chrysler Voyager en
hlutfall alvarlegra galla er 20,1% en
meðaltalið er 4,9%.
Fæsta alvarlega galla var sömu-
leiðis að finna í Toyota Starlet í
flokki 4–5 ára bíla og Toyota RAV4 í
flokki 6–7 ára bíla.
Fæstir gallar
í Ford Focus
!""
#
$%
!""
!""
& '
!""
"(%
Könnun þýsku vottunarstofnunarinnar
TÜV á göllum í bílum
Toyota Starlet hafði fæsta galla í
flokki 4–5 ára bíla.
Toyota RAV4 hafði fæsta galla í flokki
6–7 ára bíla.
Mercedes SL hafði fæsta galla í flokki
8–9 ára bíla.
Mercedes SL hafði fæsta galla í flokki 10–11 ára bíla.
INNAN tíðar kemur á markað feiki-
aflmikill Audi RS6 Avant. Þetta er
langbakur sem hefur mikið forskot
á aðra langbaka. Hann er með 4,2
lítra, V8 vél með tveimur for-
þjöppum og skilar 480 hestöflum á
5.700-6.400 snúningum á mínútu.
Togið er hvorki meira né minna en
560 Nm, eða næstum eins og í
tveimur A6 Quattro bílum með 3,0
lítra vélum. Þessi Audi á eftir að
rótbursta BMW M5 með sín 499
hestöfl og 500 Nm tog. Bíllinn fer í
sölu í september í Evrópu og mun
væntanlega kosta á milli 7 og 8
milljónir kr.
Þetta er þriðji RS bíllinn frá Audi,
en áður hafa komið á markað RS2
og RS4. Upptakið úr kyrrstöðu í 60
mílur á klst., um 96 km hraða, tek-
ur 4,8 sekúndur og hámarkshraðinn
er takmarkaður við 250 km á klst.
Í bílnum er fimm þrepa Tiptonic
skipting og hann er með quattro
fjórhjóladrifskerfinu, spólvörn og
stöðugleikastýringu.
Hægt verður að velja undir bílinn
19 tommu álfelgur eða átta spírala
léttmálmsfelgur, krómpúströr með
tveimur stútum, silfraða útispegla,
auka loftinntak að framan og fleira.
Bíllinn verður einnig framleiddur
sem fernra dyra stallbakur. Að inn-
an verður RS með leðurklæddu
stýri, skreytingum í mælaborði úr
koltrefjaefnum og leðursportsæt-
um.
Audi RS6 er hálfri sekúndu fljótari í hundraðið en BMW M5.
Audi RS6 –
480 hestöfl
BMW átti sem kunnugt er Rover í
Bretlandi um nokkurt skeið. Manna
á millum gekk Rover undir heitinu
Enski sjúklingurinn, og þótti fjár-
festing BMW ekki til marks um
mikla framsýni. Nú þegar BMW hef-
ur losað sig við Rover stendur það
eftir að fyrirtækið tekur yfir Rolls-
Royce af Volkswagen 1. janúar 2003
og óttast sumir að BMW sé enn á ný
komið með enskan sjúkling í sína
vörslu. Svo mun þó ekki vera því
BMW hefur þróað nýtt flaggskip
fyrir Rolls Royce sem heitir Silver
Seraph. Sá galli er hins vegar á gjöf
Njarðar að nýi bíllinn verður ekki
tilbúinn til sölu fyrr en nokkrum
mánuðum eftir að BMW tekur form-
lega við fyrirtækinu. Af þeim sökum
verður eigandinn í millitíðinni að
kaupa Silver Seraph bíla af eldri
gerð af sínum helsta keppinaut, VW,
til þess að halda uppi framboði til
sinna viðskiptavina.
BMW kaupir Silver Seraph af VW
Silver Seraph frá BMW ekki vænt-
anlegur strax.