Morgunblaðið - 17.02.2002, Qupperneq 18
ÞAÐ VARallt á ferð og flugi í Norræna húsinu
þegar blaðamaður barnasíðna Moggans leit þar
inn. Þar voru fimmtán krakkar á námskeiði í að
búa til teiknimyndir. Og eftir nokkra daga voru
þau að klára þrjár teiknimyndir, þannig að
kannski er þetta alls ekki svo flókið.
Sama tækni og í South Park
Allir vita að til að búa til teiknimynd þarf að
teikna engan smá helling af myndum. Þegar þið
sjáið eina sekúndu af teiknimynd eru 24 myndir
þar að baki. Það eru nefnilega 24 myndarammar
í einni sekúndu af filmu. Skilið?
Krakkarnir í Norræna húsinu höfðu danskan
kennara, Hanne Pedersen, sem á teiknimynda-
fyrirtæki í Danmörku. Hún kenndi þeim að gera
teiknimyndir í sama stíl og South Park sjón-
varpsþættirnir eru gerðir. Ef þið íhugið málið, þá
munið þið að hreyfingarnar í þáttunum eru
nokkuð grófar. Það er af því að í stað þess að
hafa 24 myndir á sekúndu, hafa þau 6 myndir á
sekúndu. Sama myndin er þá 4 ramma í röð, því
4x 6 = 24. Ekki satt?
Og í stað þess að teikna allar myndirnar aftur
og aftur, klipptu krakkarnir út fígúrur í litaðan
pappír, gerðu á þær liðamót og hreyfðu þær
þannig til og mynduðu hverja hreyfingu. Þetta
getið þið jafnvel gert sjálf, ef fjölskyldan á eins-
konar myndbandsupptökuvél og ef þið getið
klippt annað hvort með tveimur myndbands-
tækjum eða í tölvu.
Örlög Osama bin Ladens ráðin
Blaðamaður fékk að trufla krakkana aðeins
við vinnuna og spyrja þau út í myndina þeirra.
„Okkar mynd heitir Mrs. Osama og er um
Osama Bin Laden og þegar George Bush nær
honum,“ útskýrir Dagbjört 11 ára. „Þeir breyta
honum í konu og selja hann til ógeðslegs karls,
þar sem hann þarf að vaska upp og hugsa um
heimilið.“
Krakkarnir voru ekkert smá ánægðir með
námskeiðið og flest þeirra voru í fyrsta skipti að
prófa að gera teiknimyndir, nema Hlín 12 ára, en
hún hefur verið að prófa sig áfram á alnetinu. Á
eftirfarandi slóð fann Hlín forrit sem er hægt að
kaupa, en líka hægt að prófa ókeypis allt að 50
sinnum. Slóðin er (engin smá runa!): https://
secure.element5.com/shareit/checko-
ut.html?productid=140250&language=english.
Morgunblaðið/ÞorkellMorgunblaðið/Þorkell
Dagbjört fylgist með á tölvunni þegar strákarnir færa til munninn á
Bush forseta, til að mynda aftur næstu fjóru ramma.
Íslenskar teiknimyndir eftir klára krakka
Teiknaðar myndir á ferð og flugi
Einbeittir teiknimyndasnillingar
framtíðarinnar mynda George Bush.
24 rammar á sekúndu.
fyrir Simpsons-þættina sjáið þið á þriðju
myndinni Lísu og Bart síga niður, út úr
rammanum og síðan er farið í víðara skot þar
sem myndavélin fylgir þeim niður.
Það skiptir miklu máli hvernig kvikmyndir
eru teknar – það er jú verið að segja sögu í
myndum – og söguspjöldin hjálpa kvik-
myndagerðarmönnum að sjá fyrir sér mynd-
ina, og sparar einnig fullt af tíma og filmu að
vita hvað maður er að gera.
Svona getið þið teiknað upp ykkar eigin
teikni- eða kvikmynd sem þið geymið í koll-
inum ykkar.
Söguspjöld hreyfimyndanna
Þegar gerðar eru hreyfimyndir, bæði teikni-
myndir og kvikmyndir, eru gerð svokölluð
„story-boards“ sem mætti þýða lauslega á
íslensku „söguspjöld“. Þessi spjöld eru ekki
ólík myndasögum, nema þau eru sjaldan í í lit
og engar talblöðrur.
Þá er ekki teiknaður upp hver rammi
myndarinnar heldur hvert skot í myndinni og
þá merktar inn hreyfingar persónanna. Einn-
ig eru merktar inn hreyfingar myndatökuvél-
arinnar; hvort hún færist inn persónuna, eða
út, fer til hliðar, upp eða niður.
Á meðfylgjandi myndum af söguspjaldi
Og svara nú!
1) Í hvaða teiknimynd heitir vondi kallinn Skari?
2) Hver talaði fyrir andann í Alladín?
3) Hverjum verður Fríða ástfangin af í Disney-myndinni frá 1991?
4) Á hvaða áratug kom fyrri Fantasíu-myndin út?
5) Hvað heitir strákurinn sem á dótið í Leikfangasögu?
6) Í hvaða heimsálfu býr Pókahontas?
7) Hvernig hundur er Pongó?
8) Hvað heita þríburafrændur Andrésar Andar?
9) Hver var fyrsta Disney-teiknimyndin í fullri lengd?
10) Hvernig dýr er Felix?
11) Hvað heitir Súperman þegar hann er venjulegur maður?
12) Hvað heita Stuðboltastelpurnar þrjár?
13) Í hvað bæ býr Simpsons fjölskyldan?
14) Hvað á Dexter margar systur og hvað heita þær?
15) Í hvernig ferð fara Guffi og Max í Guffagríni?
Svörin birtast í næsta blaði
Hún Andrea Messíana Heimisdóttir sjö
ára skellti sér á teiknimyndina Skrímsli
hf. í Kringlubíói. Hún fékk sér fullt af
nammi í poka og skemmti sér mjög vel.
„Búa er mjög sæt stelpa og skrímslin
Sölli og Maggi klæða hana í skrímslabún-
ing svo allir halda að hún sé líka skrímsli.
Myndin er skemmtileg og líka fyndin.
Maður verður ekkert hræddur því þetta
er ekki í alvörunni. Samt er myndin mjög
spennandi þegar hún er alveg að verða
búin. Mig langar að segja öðrum krökkum
að myndin sé skemmtileg og að þau eigi
að fara á hana. Ég ætla líka að segja
mömmu að hún eigi að horfa á hana.“
Krakkarýni: Skrímsli hf.
Maður verður ekki hræddur
„Bara skemmtileg skrímsli,“
segir Andrea Messíana.
JÁ, nú getur þú orðið lista-
maður, komist á sýningu
og unnið til verðlauna!
Barnasíður
Moggans
og Æv-
intýraland
Kringlunnar
standa nú fyrir
mynda-
sögukeppni með
frumskógarþema.
Það fer þannig fram:
1) Semdu sögu sem gerist í frumskógi.
2) Teiknaðu úr henni myndasögu (eins og
myndasögublöðin og -bækurnar eru, t.d
Andrés Önd) sem kemst fyrir á 1–2 blöðum.
3) Skilaðu henni inn í Ævintýraland Kringl-
unnar fyrir 4. mars.
4) Myndasagan þín verður hengd upp í Æv-
intýralandi á myndasögusýningu sem
stendur í hálfan mánuð. Gaman er að fara og
sjá söguna sína og sjá hvað hinir krakkarnir
gerðu.
5) Sunnudaginn 17. mars verða verðlaun af-
hent fyrir bestu myndasöguna.
1. verðlaun eru meiriháttar flottur Harry
Potter lego kastali sem Dótabúðin í Kringl-
unni ætlar að vera svo góð að gefa. Og einn-
ig fá fimm efstu sérstök verðlaun frá Mogg-
anum.
Byrja nú og
vanda sig svo!
Myndasögu-
samkeppni
Maður þarf að vera svolítið menntaður í teikni-
myndafræðunum til að geta leyst þessa kross-
gátu. Þið setjið nöfn teiknimyndapersónanna inn
lárétt og fáið þá út lóðrétt í grænu reitunum
hvaða ýkt skemmtilegu teiknimynd barnasíð-
urnar mæla með.
Krakkakrossgátan
Einn góður …
– Hvert var erfiðasta starfið á steinöld?
– Að bera út dagblöðin.
(Aldís Geirdal Sverrisdóttir.)