Morgunblaðið - 17.02.2002, Page 20
Hasar handa
gráu sellunum
Njósnamyndin
Spy Game eftir
Tony Scott frum-
sýnd um helgina
svona rosaleg. Þá vaknar sú
spurning hvort ekki sé farsælla að
veita meira fé héðan í færri mynd-
ir, stækka framlag sjóðsins til
færri verkefna. Auðvitað er í
sjálfu sér gott að koma svona
mörgum verkefnum á flot, en
verra ef þau sigla í strand á miðri
fjármögnunarleið vegna þess að
þau rekast hvert á annað í poll-
inum. Kannski er til marks um
þetta sú staðreynd að fyrir síð-
ustu úthlutun var aðeins eitt af sjö
verkefnum, sem fengu styrkvil-
yrði í fyrra, orðið fullfjármagnað.
Hin sex fengu framlengingu vil-
yrða fram á sumar.
Annað atriði, sem vert er að
hugleiða, er hvort Kvikmynda-
sjóður Íslands þurfi ekki að vera
opnari fyrir veitingu framleiðslu-
styrkja í verkefni, sem erlend fyr-
irtæki eiga að stórum hluta á móti
íslenskum meðframleiðendum en
eru undir listrænni forystu er-
lendra manna. Mér er kunnugt
um a.m.k. tvö slík verkefni, sem
þýtt hefðu verulegt fjárstreymi
inn í landið og skapað fjölda
starfa í faginu, en fengu ekki
brautargengi hjá sjóðnum nú.
Það orkar tvímælis að skilgreina
okkar hagsmuni þröngt í þessum
efnum, vegna þess að íslenskar
kvikmyndir eiga í reynd framtíð
sína undir erlendu samstarfi
og fjármagni.
Eitt er því að breyta formi
úthlutunar, annað að breyta
eðli hennar. Kannski ættum
við að huga að því síðarnefnda,
ekki síður en hinu fyrrnefnda.
Neyðin kennir naktri konu að
spinna, en dugi lopinn
aðeins í sokkapar
stendur hún jafn-
nakin eftir.
EINN vinsælasti og virtasti sakamálasagnahöf-
undur samtímans er Bandaríkjamaðurinn Michael
Connelly. Hann er þekktastur fyrir syrpuna um
rannsóknarlögguna Harry (Hieronymous) Bosch,
en fyrsta bíómyndin, sem gerð er eftir bókum hans
er þó ekki um Bosch. Myndin heitir Blood Work og
er byggð á samnefndri sögu um FBI-manninn Terry
McCaleb, sem er sérfræðingur í fjöldamorðingjum.
Hann hefur nýgengist undir erfiða hjartaskiptaað-
gerð þegar morðmál togar hann aftur til starfa og
er þar ekki allt sem sýn-
ist. Það er gamla brýnið
Clint Eastwood, sem
leikur McCaleb og leik-
stýrir myndinni að
auki. Í öðru aðalhlutverki
er Jeff Daniels.
Eastwood kvikmyndar Connelly
ZHANG Yimou, sem sennilega
er frægasti kvikmyndaleikstjóri
Kínverja um þessar mundir (Blóð-
akrar, Rauða luktin, Ju Dou), hef-
ur nýlokið tökum í Kína á næstu
mynd sinni. Hún heitir Hero eða
Hetja og er epísk hasarmynd, sem
gerist á hinum róstusömu tímum
sameiningar Kína. Þar segir frá
þremur frægum flugumönnum
sem gerðir eru út af örkinni til að
myrða konunginn af Qin. Aðal-
hlutverkið er í höndum bardaga-
listamannsins Jets Li,
sem leikur mann sem
falið er að koma í veg
fyrir morðtilræðið. Í
öðrum hlutverkum eru
Maggie Cheung, Tony
Leung, Zhang Ziyi og
Donnie Yen.
Yimou með hasarmynd
Jet Li: Hetjuhasar
hjá Yimou.
HIN makalausa velgengni myndarinnar um
Harry Potter er nú orðin að viðmiðun í kvikmynda-
heiminum og eru margir framleiðendur með allar
klær úti til að reyna að krækja í svipuð dæmi. Þetta
gildir um sjö bóka ævintýri, sem nefnist The
Chronicles Of Narnia og er eftir rithöfundinn C.S.
Lewis. Bandaríski framleiðandinn Cary Granat,
sem fyrir nokkrum árum kom hingað til lands að
kynna sér kaup og kjör fyrir erlenda kvikmynda-
gerð á Íslandi, er aðalsprautan í þessu verkefni,
ásamt erfingjum Lewis. Fyrsta myndin á að verða
önnur bókin í syrpunni, The Lion, the Witch And
the Wardrobe, sem út kom árið 1950. Þar segir frá
fjórum krökkum sem stíga gegnum töfraskáp inn í
Narníu, land þar sem eitt sinn bjuggu talandi dýr,
dvergar, risar og álfar í sátt og samlyndi en er núna
í heljargreipum Hvítu nornarinnar. Skyldi Granat
finna þessu landi stað í íslensku landslagi?
Narníusyrpa
í kjölfar Potters?
ROBERTINN, verðlaun dönsku kvikmyndaka-
demíunnar, var afhentur nýlega. Flesta verðlauna-
gripi eða fimm fékk dogmamyndin En kærlig-
hedshistorie eða Ástarsaga eftir Ole Christian
Madsen. Hún hafði fengið alls 13 tilnefningar en
vann verðlaunin fyrir m.a. bestu mynd, bestu leik-
stjórn og besta handrit, auk leikkonuverðlaunanna
til Stine Stengade, en hún leikur konu sem snýr
aftur til eiginmanns og barna eftir dvöl á geðdeild.
Myndin er frumraun Madsens og hefur verið seld til
Bandaríkjanna, rétt eins og Ítalska fyrir byrjendur,
sem gengið hefur þar vel. Tvær aðrar dogmamyndir
hlutu verðlaun, Kóngurinn lifir eftir Kristian Levr-
ing fyrir kvikmyndatöku og Sönn manneskja eftir
Åke Sandgren fyrir besta karlleikara. Rómantíska
gamanmyndin Stutt og langt eftir Hella Joof, sem
12 þúsund Danir hafa séð, fékk þrjá Roberta, auk
áhorfendaverðlaunanna.
Þrjár dogmamyndir fá Robertinn
SÆNSKI unglingasmellurinn
Fucking Åmål eftir Lukas Mood-
ysson verður endurgerður í Hol-
landi, af öllum löndum. Handritshöf-
undurinn Kim van Kooten er nú að
laga söguna að hollenskum að-
stæðum en leikstjórinn heitir Pasc-
ale Simons. Til að leika sænska bæ-
inn Åmål með sína 20 þúsund íbúa
nærri norsku landamærunum hefur
verið valið sambærilegt hollenskt
krummaskuð, sem heitir Ommen.
Semsagt, Fucking Ommen.
Fucking Åmål
endurgerð
ÉG hef sjálfur lent í því aðhafa ekki slíka greind, þjón-aði í fyrrnefndri nefnd um
nokkurra ára skeið. Dómnefndir
af þessu tagi liggja ævinlega vel
við höggi, rétt eins og kviðdómar
og dómarar. Dómur felst í því að
gera upp á milli valkosta. Og val-
kostirnir, sem ekki eru valdir, eru
stundum með kjaft. Þannig hefur
það verið, þannig er það og þann-
ig mun það verða.
Á þessum stað næstsíðasta
sunnudag gerði ég fyrirhugaðar
breytingar á úthlutunarfyr-
irkomulaginu að umtalsefni og
reyndi að færa rök fyrir því að
okkar aðstæðum á Íslandi hentaði
þrátt fyrir allt betur fjölskipaður
dómur, hvort sem það kallast
nefnd eða samstarf konsúlenta og
forstöðumanns, en hið menntaða
veldi forstöðumannsins, sem ný
kvikmyndalög geta haft í för með
sér. Þannig er áreiðanlega erf-
iðara að spilla þremur mann-
eskjum en einni. Pólitískur eða
persónulegur þrýstingur á einn er
auðveldari en á þrjá. Og erfiðara
að efna til samsæris með þremur
en einum. Þetta liggur í hlutarins
eðli. Ekki meira um það – í bili.
Sem fyrr segir verður úthlut-
unarstarf af þessu tagi alltaf
vandasamt og umdeilanlegt og
fjarri mér að blanda mér í deilur
um einstakar styrkveitingar,
hvorki nú né fyrr, enda veit ég að
úthlutunarnefnd vinnur eftir eðli-
legum leikreglum, þótt sitt sýnist
hverjum um niðurstöðuna.
Mig langar þó að nefna tvennt,
sem telst til almennrar stefnu-
mörkunar við úthlutanir. Í viðtali
hér á síðunum nýlega við Önnu G.
Magnúsdóttur, kvikmyndaframleið-
anda í Svíþjóð, sem sæti átti í síð-
ustu úthlutunarnefnd, kom fram
að hún teldi íslenska kvikmynda-
gerðarmenn betur tengda inn í al-
þjóðlegt eða evrópskt fjármögn-
unarumhverfi en starfssystkini
þeirra á hinum Norðurlöndunum.
„Það er auðvitað vegna þess að
„neyðin kennir naktri konu að
spinna“. Kvikmyndasjóður hefur
ekki bolmagn til meirihluta-
fjármögnunar,“ sagði hún.
Við síðustu úthlutun fengu
fimm nýjar myndir fram-
leiðslustyrksvilyrði úr sjóðnum.
Þau duga aðeins fyrir broti af
framleiðslukostnaðinum, kannski
á bilinu 15%–30%. Þá er að leita
að hinum 70–85% erlendis. Þetta
gæti þýtt að fimm umsóknir bær-
ust á sama tíma frá Íslandi um
fjármagn úr þeim fáu norrænu og
evrópsku sjóðum sem við eigum
aðgang að og að á sama tíma verði
leitað eftir erlendum meðfram-
leiðendum að þessum sömu fimm-
myndum. Ljóst má vera að ár eft-
ir ár gengur þetta ekki; erlend
eftirspurn eftir fjárfestingum í ís-
lenskum bíómyndum er ekki
Spuni nöktu konunnar
„Þegar þú gengur inn í réttarsal
leggurðu örlög þín í hendur tólf
manna sem ekki höfðu greind til að
losa sig undan kviðdómsstörfum,“
sagði lögfræðirefurinn. Hann gæti
sagt við umsækjendur um styrki úr
Kvikmyndasjóði Íslands: „Þegar þú
sækir um í sjóðinn leggur þú örlög þín
í hendur þriggja manna sem ekki
höfðu greind til að losa sig undan út-
hlutunarnefndarstörfum.“
Reuters
Frá úthlutun úr Kvikmyndasjóði Íslands? Nei, ekki alveg, en...
SJÓNARHORN
Árni Þórarinsson
Clint
Eastwood:
Krimmi
eftir Conn-
elly.
Hrollvekjusmiðurinn
bandaríski Wes Craven
(Martröð á Álmstræti,
Scream) er að und-
irbúa gerð gotneskrar
hrollvekju sem byggir á
hinu sígilda „barna-
ævintýri“ Lewis Car-
rolls um Lísu í Undra-
landi. Höfundar
handritsins eru bræð-
urnir Jon og Erich
Hoeber, sem eru upp-
rennandi vestra með
tvær myndir í smíðum
um þessar mundir og
eina nýfrumsýnda.
Myndin á að heita
Alice og segist Wes
Craven ekki geta beðið
þess að elta Lísu niður
í kanínuholuna „í al-
gjörlega nýtt og mar-
traðarkennt ferðalag.“
Hrollvekja um Lísu í Undralandi
Wes Craven: Getur ekki
beðið...
HEIMILDA- og stuttmyndadeild
Kvikmyndasjóðs Íslands bárust í
fyrra um 170 umsóknir og fengu
39 verkefni styrk eða styrkvilyrði
það ár, auk 16 til viðbótar við út-
hlutun nýverið. Til úthlutunar í ár
eru 42,4 milljónir króna.
Að sögn Kristínar Pálsdóttur,
deildarstjóra sem annast úthlut-
unina, heldur gróskan í íslenskri
heimildamyndagerð áfram, en
næsta verkefni sé að efla stutt-
myndagerðina. „Stuttmyndin hef-
ur ekki notið sín sem skyldi hér-
lendis, hvort sem það er nú vegna
áhugaleysis á forminu eða þekk-
ingarleysis á því. Við hyggjumst
reyna að bæta úr þessu og munum
senn auglýsa eftir hugmyndum að
3–5 mínútna stuttmyndum og
munum svo velja nokkrar þær
snjöllustu til þróunar með erlend-
um sérfræðingi á námskeiði í sum-
ar. Síðan munum við setja fé í
framleiðslu þeirra bestu, sem út
úr þeirri vinnu koma.“
Meðal þeirra verkefna sem
hæstu styrki hljóta eru Reykjavík,
hvað næst? sem Hrafn Gunn-
laugsson gerir og er eins konar
framhald Reykjavíkurmyndar
hans, sem mikla athygli og um-
ræður vakti, en í nýju myndinni er
mannlífið í höfuðborginni í fyrir-
rúmi, Tíu Laxnessmyndir, sem
Sveinbjörn I. Baldvinsson skrifar
en þar munu tíu leikstjórar glíma
við að myndskreyta valda kafla úr
verkum Nóbelskáldsins, Hlemm-
ur eftir Ólaf Sveinsson, Nordisk
dans for kamera sem Saga Film
gerir en fyrirtækið gerir einnig
mynd um flugsögu Íslands, þá eru
myndir um Rockville, Bítlabæinn
Keflavík, Erla B. Skúladóttir ger-
ir mynd sem heitir Ferðin, Ein-
stefna myndina Skjóni fer á fjall,
The Impossibility Of Filming
Róska, sem Litla gula hænan ehf.
gerir og Árásin á Goðafoss sem
Hugsjón gerir, svo nokkur dæmi
séu tekin.
Rúmar 42 milljónir til úthlutunar 2002 úr Heimilda- og stuttmyndasjóði
Átak í þróun stuttmyndaverkefna í sumar
LEIKUR mús-
arinnar að kett-
inum undir
stjórn Stevens
Spielberg hófst
nú í vikunni þeg-
ar tökur byrjuðu
á nýrri mynd
hans Catch Me
If You Can.
Vænn stjörnuf-
ans tekur þátt í
leiknum, – Leon-
ardo DiCaprio, Tom Hanks,
Christopher Walken, Martin Sheen
og Amy Adams. DiCaprioer músin,
Frank Abagnale jr., sem fyrir 18 ára
aldur hafði starfað sem læknir, lög-
fræðingur og flugmaður, en er jafn-
framt snillingur í sjónhverfingum og
fölsunum og gerist umfangsmesti
bankaræningi í sögu Bandaríkjanna
og yngsti maður sem lendir á lista
alríkislögreglunnar yfir eftirlýsta
stórglæpamenn. Adams er konan
sem músin er skotin í, Sheen er
pabbi hennar, Walkenpabbi mús-
arinnar en fulltrúi kattarins er FBI-
maðurinn Tom Hanks.
Mús leikur sér að ketti
hjá Spielberg
Leonardo Di-
Caprio: Hættu-
lega snjall.