Morgunblaðið - 17.02.2002, Síða 23
Hefði ég haldið áfram að gera mynd-
ir á borð við The Hunger þá hefði ég
fengið á mig stimpil sjálfstæðra og
öðruvísi mynda. Málið er bara að sú
mynd hlaut svo slæmar viðtökur að
ég fékk ekki annað verkefni í heil
fjögur ár.“
Og svo kom gjörólík mynd ...
„Já og svo kom Top Gun. Þannig
vildi bara til að hún gekk vel. Því
myndaðist eftirspurn eftir kröftum
mínum í gerð viðlíka spennumynda
og ég vildi vinna.“
Er enn verið að biðja þig um að
endurtaka Top Gun – gera samskon-
ar myndir?
„Ég fæ enn senda heilu bunkana
af slíkum handritum. Þar sem að-
alpersónan er herflugmaður, eða
stríðshetja og þess háttar. Nafn mitt
virðist einhverra hluta vegna koma
upp þegar gera á spennumyndir. En
ég er ekkert sérlega spenntur.“
Hugsandi hasar
Redford talar um Spy Game sem
„hasarmynd fyrir hugsandi fólk“ –
þetta mætti einnig segja um síðustu
myndir þínar á borð við Crimson
Tide og Enemy of the State. Er það
vísvitandi stefna?
„Já, ég er farinn að gera þær kröf-
ur til handritanna sem ég fæst við að
fléttan sé krefjandi, persónurnar
trúverðugar og sambönd milli þeirra
áhugaverð. Ég hef lítinn áhuga á að
gera innihaldslausar hasarmyndir
þar sem spennan er mæld út frá
sprengjuhávaðanum.“
Hinn 57 ára gamli Scott og öllu
frægari eldri bróðir hans Ridley,
sem á að baki eins ólíkar myndir og
Alien, Blade Runner, Thelma &
Louise og Gladiator, eiga saman
framleiðslufyrirtækið Scott Free
Productions og hafa framleitt mynd-
ir undir nafni þess í ein 12 ár en þó
engar sem þeir hafa leikstýrt sjálfir.
Áður en Scott snéri sér að kvik-
myndagerðinni vann hann í raun fyr-
ir stóra bróður og auglýsingafram-
leiðslu hans en báðir eiga þeir það
sameiginlegt að hafa stigið sín fyrstu
skref og vakið á sér athygli með gerð
auglýsinga.
Scott segir að þótt þeim bræðrum
gangi vel að reka saman fyrirtæki þá
muni aldrei nokkurn tímann koma til
þess að þeir vinni saman að gerð
myndar.
„Við myndum ganga hvor frá öðr-
um,“ segir hann og hlær. „Eina leið-
in fyrir okkur að vinna saman, síðan
ég hætti að gera auglýsingar fyrir
hann, er á jafnréttisgrundvelli. Þeg-
ar við deilum jafnt með okkur verk-
um, afskiptum og fjárhagnum. Á
þeim grundvelli náum við einstak-
lega vel saman og erum fyrirmynd-
arbræður, sem er ansi sjaldgæft í
kvikmyndaiðnaðinum, get ég sagt
þér.“
Besti skólinn
Þú vannst við auglýsingagerð í ein
tíu ár áður en þú gerðir þína fyrstu
kvikmynd. Var það góður skóli?
„Svo sannarlega. Maður lærir rétt
handbragð, vinnuorku og skjót
vinnubrögð. Ég lærði hvernig segja
á sögu, hvernig skapa á neista og
framvindu. Ég lærði um mikilvægi
hugmyndaflugs, hins myndræna og
hversu nausynlegt er að skilaboðin
sem maður reynir að koma á fram-
færi séu skýr. Ég lærði að eiga við
leikara, bæði stjörnur og óþekkta
leikara. Ég lærði að vinna á óvenju-
legum tökustöðum, í lofti, neðansjáv-
ar og í afskekktu landslagi, t.a.m. á
Íslandi. Þetta er einfaldlega besti
skóli sem kvikmyndagerðarmaður
getur hugsað sér.
Ég fæ svo mikið út úr auglýsinga-
gerð að ég er enn að taka að mér ein-
staka verkefni. Það er svo mikill létt-
ir að takast á við slíkt
stuttmyndaform, þurfa einungis að
glíma við eina einangraða hugmynd.
Þá get ég líka leikið mér svolítið,
reynt hluti sem mér gefst ekki tími
til er ég geri myndir í fullri lengd.“
Þá er það bara komið. Ég þakka
fyrir spjallið.
„Já, þakka þér. Þetta var ánægju-
legt. Skilaðu svo kveðju til Jonna.“
„Það skal ég gera.“
– Jonni. Tony biður að heilsa.
ngir aðrir til greina en Robert Redford og Brad Pitt.“
skarpi@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. FEBRÚAR 2002 B 23
bíó
Leitin endalausa
BÍÓMYNDIN Sidewalks of
New York, sem væntanleg
er í íslensku bíóhúsin um
næstu helgi, er afsprengi
leikstjórans Edward Burns,
en honum hefur gjarnan ver-
ið lýst sem arftaka Woody
Allen. Handbragð þessarar
nýjustu myndar Burns þykir
að minnsta kosti bera sterk-
an keim af verkum Allens,
en hún gerist í hringiðu New
York-borgar og segir af sex
ólíkum einstaklingum, sem
allir leita langþráðrar lífsfyll-
ingar. Þeir virðast einna
helst finna þessa fyllingu í
örmum hvers annars, en
eiga það sameiginlegt að
vera reknir áfram af ein-
hverri blindri sambandsþrá
fremur en sannri ást. Sögur
þeirra skarast með ýmsum
hætti og flækist alls konar
misskilningur, tortryggni,
skondnar aðstæður, skyndi-
kynni og framhjáhald inn í
endalausa leit þeirra að
þessari einu réttu persónu
sem þau eru sannfærð um
að leynist einhvers staðar í
öngstrætum stórborg-
arinnar. Leikstjórinn er sjálf-
ur í aðalhlutverki ásamt
Rosario Dawson, Dennis
Farina, Heather Graham,
David Krumholtz og Britt-
any Murphy.
Gæfu freistað í glæpaheimi
LEIKSTJÓRINN Jon Favreau vakti fyrst athygli á sínum
tíma fyrir myndina Swingers og sendir í þetta skiptið frá sér
kvikmyndina Made, sem fjallar um tvo lánlausa vini, sem
freista gæfunnar í heimi glæpanna. Favreau leikur sjálfur
Bobby, sem ætlar sér að slá í gegn sem
hnefaleikakappi. Á daginn vinnur hann sem smiður, en á
næturna sem lífvörður fyrir kærustuna sína, Jessicu, sem
er nektardansmær og leikin er af Famke Janssen. Bobby og
vinur hans Ricky (Vince Vaughn) komast í kynni við mafíósa
(Peter Falk) og flækjast þeir félagarnir inn í undarlega veröld
mafíunnar. Þeir telja sig hafa náð nokkuð langt á þeirri braut,
en það er bara léttgeggjaður misskilningur. Made verður
frumsýnd hér á landi 22. febrúar.
KVIKMYNDIN A
Beautiful Mind, sem
hefur farið sigurför
um Bandaríkin og
frumsýnd verður á Ís-
landi 1. mars næst-
komandi, fjallar um
stærðfræðisnillinginn
John Forbes Nash,
Jr., sem leikinn er af
Russell Crowe. Hann
hlaut Nóbelsverðlaun
árið 1994 og var af
mörgum talinn mjög
sérvitur þótt í dag sé
hann lifandi goðsögn
enda einna þekkt-
astur fyrir að hafa
beitt óhefðbundnum
aðferðum við að koma
með stærðfræðikenningar af ýmsum toga. Myndin
hefst árið 1947 á námsárum Nash í Princeton-háskóla
og ekki líður á löngu þar til hann fer að vinna fyrir
bandarísk stjórnvöld. Meðal annars er hann ráðinn til
að ráða dulmál sovéska hersins á dögum kalda stríðs-
ins og fæst auk þess við kennslustörf í MIT-tækniskól-
anum þar sem hann kynnist verðandi eiginkonu sinni,
Aliciu Larde, sem leikin er af Jennifer Connelly.
Myndin, sem tilnefnd hefur verið til Óskarsverðlauna,
hlaut fern Golden Globe-verðlaun á dögunum og var
hún þar kosin besta myndin. Russell Crowe og Jenni-
fer Connelly hlutu verðlaun fyrir besta leik og handrit
myndarinnar hlaut einnig verðlaun. Með önnur aðal-
hlutverk fara Ed Harris, Christopher Plummer, Paul
Bettany og Adam Goldberg. Leikstjóri er Ron Howard.
Lifandi goðsögn
Raunir snillingsins: Russell
Crowe í A Beautiful Mind.