Morgunblaðið - 31.03.2002, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. MARS 2002 39
Hótel Valberg
Kaupmannahöfn
Hótel Valberg er gott tveggja stjörnu hótel, rekið
af metnaði á góðum stað í Kaupmannahöfn.
Hótelið er vinsæll áningarstaður Íslendinga.
Frá 1. júlí viljum við ráða íslenskan starfsmann
til móttökustarfa og tilfallandi hótelverkefna.
Við leggjum áherslu á góða þjónustulund og
ábyrgðartilfinningu. Ákveðin tölvureynsla og
tungumálakunnátta æskileg.
Fastur vinnutími á virkum dögum kl. 7.30—15.00.
Góð laun - möguleiki á þriggja herb. leiguíbúð.
Skrifleg umsókn berist fyrir 15. apríl nk.
Vala Baldursdóttir
Hotel Valberg København.
Sønder Boulevard 53 1720 København V
hotel@valberg.dk — www.valberg.dk.
„Au pair“ Danmörk
Óskum eftir „au pair“ til Danmerkur frá ágúst
2002! Starfið felst aðallega í að hugsa um litlu
dóttur okkar, hálfsárs, auk venjulegra heimilis-
starfa. Hafðu samband við Maj-Britt í síma
+45 4354 1588 eða á reskr01@ca.com .
Sendiráð Bandaríkjanna
Rannsóknarlögregla
Sendiráð Bandaríkjanna leitar að rannsóknar-
lögreglumanni til að aðstoða yfiröryggisfull-
trúa sendiráðsins.
Æskilegt er að umsækjendur hafi 4ra ára
reynslu á sviði rannsókna hjá rannsóknarlög-
reglu ríkisins eða í íslensku lögreglunni. Gott
vald á enskri og íslenskri tungu er nauðsyn-
legt.
Mjög góð þekking í hegningarlögum er nauð-
synleg. Þarf að geta unnið sjálfstætt.
Árslaun eru á bilinu íkr. 2.475.000—2.772.000.
Nákvæm starfslýsing og umsóknareyðublöð
má sækja í afgreiðslu sendiráðsins á Laufás-
vegi 21, frá kl. 8.00—12.30 eða kl. 13.30—17.00
frá 26. mars. Skrifleg umsókn á ensku er nauð-
synleg og henni ber að skila fyrir kl. 17.00
mánudaginn 8. apríl.
Sendiráð Bandaríkjanna mismunar ekki um-
sækjendum eftir kyni, aldri, trú eða kynþætti.
Sjúkraliðar
Sumarafleysing
Laus er til umsóknar 75 % staða sjúkraliða við
Heilsugæsluna í Garðabæ til afleysinga í sumar.
Frekari upplýsingar veitir Jóna Guðmundsdóttir,
hjúkrunarforstjóri í síma 520 1800.
Umsóknum, ásamt upplýsingum um menntun og
fyrri störf sendist framkvæmdastjóra
Heilsugæslunnar í Garðabæ, Garðatorgi 7, 210
Garðabæ, fyrir 15. apríl 2002.
Víðines, hjúkrunarheimili aldraðra,
Kjalarnesi, 116 Reykjavík
Hjúkrunarfræðingar
Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa á kvöld-
og helgarvaktir. Starfshlutfall eftir samkomu-
lagi.
Sumarvinna 2002
Starfsfólk óskast til afleysinga í sumar við
aðhlynningu aldraðra. Fastráðning kemur til
greina.
Nánari upplýsingar gefur hjúkrunarfor-
stjóri, Borghildur Ragnarsdóttir, í síma
563 8803 eða 563 8801.
Eldhús
Starfsfólk óskast til afleysinga í sumar í eldhús.
12 stunda vaktir.
Nánari upplýsingar gefur yfirmaður
eldhúss, Áslaug Guðmundsdóttir,
í síma 563 8807.
Víðines hjúkrunarheimili aldraðra hefur verið starfsrækt í
um þrjú ár. Á heimilinu eru tvær deildir, 19 og 18 rúma, og
er iðjuþjálfi starfandi á heimilinu ásamt aðstoðarmanni.
Við viljum leggja áherslu á heimilislegt umhverfi fyrir íbúa
og starfsmenn. Víðines er staðsett á fallegum og friðsælum
stað ca 10 km fyrir utan Mosfellsbæ. Bifreiðastyrkur er
greiddur samkvæmt reglum þar um.
Starf vigtar-,
ísafgreiðslumanns/
hafnarvarðar
Hafnasamlag Suðurnesja óskar eftir að ráða
í eitt stöðugildi vigtarmanns/ísafgreiðslu-
manns/hafnarvarðar.
Starfið felst í vigtun á hafnarvigt, færslur í
tölvukerfið Lóðsinn II, auk almennra skrifstofu-
starfa. Ísafgreiðslumaður sér um að keyra út
ís til viðskiptamanna. Vigtarmaður vinnur
einnig á bakvöktum.
Krafist er skipstjórnarréttinda v. starfs hafnar-
varðar, sem sér einnig um að leysa af á hafn-
sögubátnum Auðuni.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf í júní nk.
Umsóknir berist til hafnarstjóra á skrifstofu
Hafnasamlags Suðurnesja, Víkurbraut 11,
230 Keflavík, eigi síðar en 11. apríl nk.
Upplýsingar veitir hafnarstjóri í síma 421 4099.
Hafnarstjórn Hafnasamlags Suðurnesja.
Olíudreifing ehf
Meiraprófsbílstjórar
Sumarafleysingar
Olíudreifing óskar eftir að ráða meiraprófsbíl-
stjóra í sumarafleysingar hjá félaginu á Sel-
fossi, Ísafirði og Akureyri. Æskilegt er að við-
komandi sé með ADR réttindi, en ekki skilyrði.
Allar nánari upplýsingar veita:
Selfoss: Þorsteinn Guðmundsson, s. 550 9937
Ísafjörður: Auðunn Birgisson, s. 550 9900
Akureyri: Guðjón Páll Jóhannsson, s. 461 4070
Olíudreifing ehf. annast dreifingu á fljótandi eldsneyti fyrir Olíufélagið
hf. og Olíuverzlun Íslands hf. Félagið hefur starfað síðan 1. janúar 1996.
Hjúkrunarfræðingur
— Rannsóknir
Við óskum eftir að ráða hjúkrunarfræðing til
starfa við rannsóknir. Um er að ræða eftirlit
og blóðsýnatökur sjúklinga sem taka þátt í klín-
ískum rannsóknum. Nánari upplýsingar má
fá í síma 822 1444 (Jenný).
Um er að ræða tímabundið starf (2 ár).
Umsóknum skal skilað í afgreiðslu Húðlækna-
stöðvarinnar, Smáratorgi 1, 200 Kópavogi,
merkt: „Rannsóknir“, eða með tölvupósti
á jennya@simnet.is .