Vísir - 06.06.1980, Page 26
Föstudagur 6. júnl 1980.
26
Je træ-útihurdir
ýmsar gerðir
AKARN HF.
Strandgötu 45, Hafnarfirði,
sími 51103
VIÐGERÐAR- OG
VATNSÞÉTTINGA-
EFNIN VINSÆLU
Það er staðreynd, að þeim mann-
virkjum sem legið hafa undir
skemmdum vegna raka í steypunni
hefur tekist að bjarga og ná raka-
stiginu niður fyrir hættumörk með
notkun Thoroseal.
Thoro efnin hafa um árabil verið
notuð hér á íslandi með góðum
árangri. Þau hafa staðist hina
erfiðu þolraun sem íslensk veðrátta
er og dugað vel, þar sem annað
hefur brugðist.
THOROSEAL
(kápuklæðning)
Thoroseal er sements-
málning sem fyllir og lokar
steypunni og andar eins
og steinninn sem hún er
sett á. Thoroseal má bera á
rakan flöt. Thoroseal er
vatnsþétt, flagnar ekki og er
til í mörgum litum.
THOROSEAL
F.C.
Þetta er grunn og sökkla-
efni í sérflokki. Fyllir og
lokar steypunni og gerir
hana vatnsþétta. Flagnar
ekki og má bera á raka fleti.
Thoroseal F.C. verður
harðara en steypa og andar
til jafns við steypuna.
Borið á með kústi.
THORITE
Framúrskarandi viðgerðar-
efni fyrir steypugalla.
Þannig sparar það bæði
tíma og fyrirhöfn við móta-
uppslátt ofl.
Thorite ertilvaliðtil viðgerða
á rennum ofl. Það þornar á
20 mínútum.
WATERPLUG
Sementsefni sem stöðvar
rennandi vatn. Þenst út við
hörðnun og rýrnar ekki.
Þetta efni er talin alger
bylting.
THOROSEEN
OG
THOROCOAT
100% acryl úti málning í
öllum litum. Stenst fyllilega
allan samanburðviðaöra úti
málningu.
ACRYL60
Steypublöndunarefni I
sérflokki. Eftir blöndun
hefur efnið: Tvöfaldan
þenslueiginleika, tvöfaldan
þrýstistyrkleika, þrefaldan
sveigjanleika og áttfalda
viðloðun miðað við
venjulega steypu.
15 steinprýði
W v/Stórhöfða sími 83340
Stórbætt bjónusta viö
húsbyggjendur
í sjónmáli
Aliar upp-
lýsingar
á elnum
stað
ByggingaDJónustan hefur
aukið starfsemi sína til muna
„Tilgangur Byggingaþjónustunnar er að vera
þjónustumiðstöð fyrir byggingariðnaðinn, opinberar
stofnanir og almenning," sagði Ólafur Jensson, fram-
kvæmdastjóri Byggingaþjónustunnar.
Llm síðustu áramót flutti Byggingaþjónustan frá
Grensásvegi 11 að Hallveigarstíg 1. Frá þeim tíma hefur
aðsóknin aukist mög mikið og hafa nær 4000 manns
leitað þangað á mánuði.
„Við veitum hlutlausar upplýsingar," sagði Ólafur.
„Snar þáttur í starfinu er að halda skrá yfir öll bygg-
ingarefni, og við leggjum mikið kapp á að geta veitt rétt-
ar upplýsingar. Hins vegar er mjög erfitt að gefa upp
rétt verð, þar sem þau breytast svo ört. En við hringjum
út f yrir fólk og fáum verðin, þegar um þau er spurt".
Byggingaþjónustan er auk þess með stöðuga sýningu á
byggingarefnum og tækjum og getur fólk sparað sér
mikinn tíma og fyrirhöf n með því að skoða sýninguna og
leita uppiýsinga um efnin þarna.